Morgunblaðið - 24.11.1989, Page 19

Morgunblaðið - 24.11.1989, Page 19
Miðfirði 24. mars 1902 og var því 87 ára er hann lést. Afi kvæntist ömmu minni, Pálínu Þorsteinsdóttur frá Stöð í Stöðvar- firði, árið 1934 og það sama ár fluttu þau til Akraness þar sem þau hafa búið síðan. Afi kenndi við Barnaskóla Akraness í áraraðir og þótti ætíð vænt um kennarastarfið. Afi og amma eignuðust 5 börn. Þau Ormar Þór, Gerði Birnu, Björn Þorstein, Ásgeir Rafn og Atla Frey. Barnabörnin eru orðin 15 og barna- barnabörnin 8. Afi minn var einstakur maður. Hann var víðlesinn og mjög fróður. Glæsilegur á velli og ákaflega lífsglaður og jákvæður. Hann fylgd- ist grannt með okkur barnabörnun- um og öllu því sem við tókum okk- ur fyrir hendur og nú síðustu árin urðu barnabarnabörnin honum til mikillar gleði. Nú þegar ævi afa míns er á enda er mér efst í huga þakklæti fyrir allt það góða sem hann kenndi okk- ur og alla ástúðina og hlýjuna. Síðustu vikurnar dvaldi afi á Sjúkrahúsi Akraness þar sem hann naut frábærrar umönnunar. Lífi afa míns hér á þessari jörð er lokið en minningin um einstakan mann mun lifa um ókomin ár. Megi hann hvíla í friði. Ragnheiður Ásgeirsdóttir Guðmundur Björnsson kennari á Akranesi verður jarðsettur í dag frá Akraneskirkju. Mig langar að kveðja þennan góða íjölskylduvin nokkrum orðum. Það var árið 1935 sem ég sá Guðmund Björnsson fyrst er ég kom á heimili hans og Pálínu mágkonu minnar, þau voru þá búin að mynda sér fagurt og hlýlegt heimili á Akranesi, sem mér fannst mikið til koma, en Guðmundur var _þá búinn að vera kennari um nokk- urt skeið. Mér eru minnisstæð þessi fallegu hjón og heimilið þeirra og hlýjan sem stafaði frá þeím þá og ætíð síðan. Það má vera að það hafi átt sinn þátt í því að við hjón- in fluttum á Ákranes tveimur árum síðar, því Halldór eiginmaður minn var alltaf mjög hrifinn af Pálínu systur sinni og þótti gott að vera í nálægð við hana. Og í 25 ár vorum við þeim samtíða á Akranesi og til þeirra ára höfða ég nú er ég skrifa kveðjuorð til vinar okkar Guðmund- ar Björnssonar. Ég hef margt þeim hjónum að þakka frá þessum árum, það var gott að eiga þau að og mega leita til þeirra ef með þurfti. Guðmundur Björnsson var mjög sterkur persónuleiki, myndarlegur og mikil reisn yfir honum svo eftir honum var tekið hvar sem hann fór. Hann var kennari af lífi og sál og var vel að því kominn að hljóta fálkaorðuna fyrir 50 ára farsælt kennarastarf. Guðmundur var mik- ill og góður heimilisfaðir og hlúði að fjölskyldu sinni á allan hátt. Hann hafði líka mikið barnalán. Börn þeirra hjóna fimm eru öll mjög myndarleg og vel gefin á allan hátt. Það gafst líka gott veganesti frá slíku heimili til að leggja með út í lífið. Það væri margt hægt að rifja María var einstaklega kær- leiksrík kona, eins og kom í ljós er ég missti foreldra mína með stuttu millibili. Þá kunni hún að hugga og styrkja. Hún og móðir mín voru líka mjög samrýndar og svo líkar að eðlisfari og í tilsvörum að mér fannst oft sem að móðir mín væri ennþá hjá mér. Man'a var einnig greind og oft svo hnittin í tilsvörum, að hún var hrókur alls fagnaðar i fjölskyldu- boðum okkar. Hun var einnig skart- kona mikil og hafði yndi af að punta sig. Því var hún einnig augnayndi hvar sem hún fór á mannamót. Síðustu árin átti hún margar ánægjustundir með ijölskyldu minni, einkum þó um hátíðir og á tyllidögum, sem ég er henni þakklát fyrir. Að lokum votta ég börnum henn- ar, tengdadóttur, barnabörnum og barnabarnabörnum mína dýpstu samúð, og bið góðan Guð að leiða hana til sinna ástvina, sem farnir eru á undan henni yfir móðuna miklu. Blessuð sé minning hennar. Halldóra Hansen nort »■ upp frá þessum góðu árum á Akra- nesi, en þau eru langt að baki nú og geymast aðeins í minningunni. ' Guðmundur Björnsson var' mjög félagslyndur maður og hafði gaman af mannfagnaði. í gegnum árin hefir það verið fastur liður á hátíða- stundum hjá Qölskyldu minni að Guðmundur Björnsson héldi ræðu viðkomandi til heilla, væri hann ekki til staðar fannst manni á vanta. Hafi hann þökk fyrir allar þær góðu óskir. Þær eru líka ótaldar afmælis- og minningargreinarnar sem hann hef- ir skrifað eftir vini sína. Fyrir það skal honum einnig þakkað, hann var mikill artarmaður alla tíð. Ég kveð svo þennan aldna höfð- ingja með þakklæti frá mér og ijöl- skyldu minni og sendi Pálínu mág- konu og fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Rut Guðmundsdóttir Mig langar til að minnast hans afa míns. Það verður hvorki upp- talning á afreksverkum athafna- manns né lýsing á stórbrotinni manngerð því fyrir mér var hann- bara afi á Akranesi en þessi lát- lausi titill gerir hann einstakan svo enginn mun nokkurn tíma koma í hans stað. Mínar fyrstu minningar tengjast afa og sögunum hans. Aldfei þreyttumst við barnabörnin á að heyra ævintýrið um Hlyna kóngs- son og frásögn afa af Grýlu sem átti til að setja óþekk börn í poka var ekki skelfilegri en svo að alltaf mátti rifja hana upp í fangi afa. Leiðinlegar ferðir um Hvalfjörðinn urðu ævintýraferðir ef afi kom með því þá sagði hann okkur frá Helgu sem synti með syni sína tvo úr hólmanúm þegar vondir menn réð- ust á heimili hennar. Að eiga afa sem segir sögur er dýrmætara en nokkurt barnagull. Afi hvatti okkur barnabörnin mjög til útivistar og þær eru ótelj- andi gönguferðirnar með afa þar sem stafinn mátti aldrei vanta því virðulegri hlutur var ekki til. Há- mark alis var þó að fara með afa á Langasand og í sjóinn. Afi minn var alltaf að kenna. Hann brýndi ávallt fyrir mér og öðrum rétt íslenskt mál og þreyttist aldrei á að leiðrétta okkur enda fór svo að ekki háar í loftinu fluttum við frænkurnar honum stoltar há- tíðarræðu á fullveldisdegi íslend- inga þar sem mest áhersla var lögð á vandað orðafar eins og við höfðum heyrt afa nota í sínum ræðum. Afi lagði okkur líka lífsreglurnar, ávallt að hafa allt í röð og reglu var hann vanur að segja og leiddi okkur inn í skrifstofuna þar sem allt var á sínum stað og við máttum leika okkur þar bara ef við skiluðum öllu aftur á sinn stað. Fjölmargar aðrar lífsreglur kenndi hartn okkur, ailt fram til síðasta dags var hann að kenna og þó ég minnist ekki alls sem hann innrætti okkur er öruggt að betra veganesti fær ekkert barn en heilræði góðs afa. Ég hef vaðið úr einu minningar- brotinu í annað en minningin um afa minn er þó heil. Mér þótti vænt um hann afa minn og ég sakna hans en það sem hann gerði fyrir okkur barnabörnin mun lifa og verður aldrei frá okkur tekið. Sif Ormarsdóttir Fleiri greinar um Guðmund Björnsson birtast í hluðinu næstu daga. NÝTT SYKURSKERT MALT Helmingi Jcerri hitaeiningar EINNOTA FLÖSKUR MEÐ SKILAGJALDI Sanitas MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 24. NOVEMBER 1989

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.