Morgunblaðið - 10.12.1989, Page 1
SUNNUDAGUR
10. DESEMBER 1989
BLAÐ
Karl nokkur fyrir
nordan var svo
snjall að hann kunni
mörk á öllu sauðfé
Skagfirðinga og
nærliggjandi sýslna.
Stóð hann við rétt-
arvegginn og þuldi þindar-
laust nöfn eigenda þegar
mörkin voru kölluð upp.
Þessi karl átti að heita ílla
gefinn, var víst ekki al-
mennilega læs, en hafði
þetta yfirgengiiega minni.
Fróðlegt hefði verið að sjá
frammistöðu hans í al-
mennu greindarprófi sem
t.a.m. er notað í sálfræði-
deildum skóla þegar meta
þarf líkur á námsárangri.
Mörgum þykir greindarpróf
vera nokkuð einhæfur mæli-
kvarði og hafa gagnrýnt þau
harðlega, þar á meðal How-
ard nokkur Gardner, próf-
essor við Harvardháskólann
í Bandaríkjunum, og Þor-
steinn Gylfason dósent við
heimspekideild Hóskóla is-
lands. Álíta þeir prófin ekki
réttmæt og jafnvel hættuieg.
Samkvæmt niðurstöðum
Gardners hefur maðurinn
sjö greindarsvið og eru þau
ekki eingöngu bundin víð
rökgreind og málgreind,
heldur telur hann það ekki
síður til greindar að geta
dansað vel eða spilað tennis
af leikni.