Morgunblaðið - 10.12.1989, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DÉSEMBER 1989
22 C
feril minn frá upphafi til dagsins í dag,“ seg-
ir Björgvin. “Það er búið að vinna töluverða
undirbúningsvinnu í sambandi við þetta dæmi
en spuming er hvenær maður hefur tíma til
að hella sér af krafti í málið. Ætli maður
reyni það ekki á næsta ári.“
Björgvin segir að hann hafi reynt að taka
það saman hve mörg lög hann hefur sungið
inn á plötur í gegnum tíðina og ljóst að þau
skipta hundruðum. Hann á sér nokkra eftir-
lætislagahöfunda og nefnir þar fyrstan Gunn-
ar Þórðarson. “Mér finnst mjög gaman að
syngja lög eftir Gunnar, eins eftir Magnús
Eiríksson, Jóhann G. og Valgeir Guðjónsson,"
segir Björgvin. Hann hefur einnig samið
nokkuð af lögum sjálfur og má þar nefna lög
eins og “Vertu ekki að plata mig“, “Riddari
götunnar" og nýjasta lag hans er að finna á
“Heima er best“ en það er lagið “í útvarpinu
heyrði ég lag“.
En eftirminnilegustu plötumar segir Björg-
vin vera vísnaplöturnar sem hann gerði með
þeim Gunnari Þórðarsyni og Tómasi Tómas-
syni er þeir bjuggu allir þrír í Englandi. Þess-
ar plötur “Einu sinni var“ og “Ut um græna
grundu" féllu í góðan jarðveg hérlendis og
segir Björgvin að það hafi honum þótt sér-
staklega ánægjulegt.
Ör tækniþróun
Þegar Björgvin lítur yfir farinn veg söng-
ferils síns og þær breytingar sem orðið hafa
á þessum vettvangi almennt verður honum
tíðrætt um þá öm tækniþróun sem orðið hef-
ur.
“Þegar við vomm að byija með Ævintýri
vom hér aðeins til staðar ein útvarpsstöð og
svo kanaútvarpið," segir hann. “Og tæknin
var mjög fmmstæð miðað við það sem geng-
ur og gerist á hljóðstofum í dag. Eg man til
dæmis eftir því að eitt sinn fékk Ævintýri
að taka upp lagið “Friður á jörð“ í aðalhljóð-
stofu ríkisútvarpsins. Til þessa komu flestir
af þekktustu dægurlagasöngvumm landsins
og upptaka hófst. Hún hafði ekki staðið í
margar mínútur er einn af starfsmönnum
útvarpsins kom með miklu írafári inn í hljóð-
stofuna og sagði að við yrðum að hætta þessu
strax. Lagið heyrðist sem sagt í fréttasend-
ingu útvarpsins sem fram fór á sama tíma.“
Nú er hinsvegar öldin önnur. Hljóðstofur
svo fullkomnar að hægt er að gera nánast
hvað sem er í þeim, sjónvarpsstöðvamar em
orðnar tvær, útvarpsstöðvamar mun fleiri og
svo höfum við fyrirbæri á borð við gervi-
hnetti og kapalsjónvarp. “Þetta hefur leitt til
þess miðlunin er orðin örari og hægt er að
ná til mun fleira fólks á mun skemmri tíma
en áður,“ segir Björgvin.
Meðal þess sem finna má á yfirhlöðnu
skrifborðinu er lítill handhægur farsími. Og
Björgvin þarf greinilega að vera í góðu sam-
bandi því tveir aðrir símar eru til staðar á
skrifstofunni. Og hann afgreiðir símtöl úr
þeim báðum meðan á stuttu spjalli okkar
stendur. Eins og hjá flestum íslendingum í
desember virðist líf hans þessa dagana snú-
ast um að finna tíma til eiginlega hvers sem
er.
eftir Friðrik Indriðoson/ mynd:Bjarni Eiriksson
ÞÓTT EKKI sé hann jafnspengilegur og
þegar hann steig fyrst fram á sviðið með
hljómsveitinni Ævintýri fyrir einum tutt-
ugn árum ber hann aldurinn merkilega
vel. Það rétt mótar fyrir maganum og
einu ellimörkin önnur eru þau að hann
fyllir betur út í kinnarnar en áður. En
hvað sem árunum líður heldur Ejörgvin
Halldórsson söngvari enn sínu striki og
nú fyrir þessi jól syngur hann á tveimur
plötum, nýrri plötu með HLH-flokknum
og jólaplötu sem mun vera nokkurskonar
framhald plötunnar “Jólagestir" sem
kom út í hitteðfyrra.
Við mælum okkur mót á skrifstofu hans
hjá íslensku auglýsingastofunni en þar
hefur hann unnið undanfarið ár. Skrifstofan
er á stærð við meðalkústaskáp og skartar fáu
öðru en yfirhlöðnu skrifborði og frístandandi
tölvuskerm. En nafnskiltið fyrir utan hurðina
er smart. Á því stendur, undir nafni Björg-
vins, þykkum svörtum stöfum á glansandi
álgrunni: Ljósvakamiðlar.
Á meðan á viðtalinu stendur er Björgvin
svoldið á iði, ýmist styður hann hönd á kinn
og párar krúsidúllur í dagbók sína eða hallar
sér aftur í stólnum með hendur spenntar fyr-
ir aftan hnakka.
“Hvað ertu eiginlega orðinn gamall Björg-
vin?“ Þessi spurning kemur honum á óvart
og svarið er langt usssss með miklum áhersl-
um á essunum. Svo hlær hann stundarhátt
og Iætur þess getið, eftir nokkra umhugsun,
að hann sé orðinn 38 ára. “En aldurinn er
afstætt hugtak í þessum bransa, málið er að
hafa tilfinningu fyrir því sem maður er að
gera“, segir Björgvin.
Platan sem HLH-flokkurinn gefur út núna,
“Heima er best“, er sú fimmta í röðinni á
þeim tíu árum sem liðin eru frá því að Björg-
vin og þeir bræður Halli og Laddi komu sam-
an. Nafn plötunnar segir Björgvin þannig til
komið að þeim hafi þótt það bæði “huggulegt
og kósí“. Hann bætir því svo við frá eigin
bijósti að heima sé alltaf best. Platan er í
sama stíl og aðrar plötur þeirra félaga, áhersla
lögð á lög frá sjötta áratugnum. Undirbúning-
ur að þessari plötu hófst í júlí í sumar en hún
var síðan tekin upp í Hljóðrita í vetur. Ýmis-
legt spaugilegt kom upp á við gerð plötunnar
enda eru þeir bræður Halli og Laddi öðru
fremur þekktir fyrir húmor sinn. Raunar má
finna eitt af þessum atriðum á plötunni sjálfri.
{ einu laginu sem Laddi syngur leikur hann
á nef sér, svipað og Mills-bræður voru þekkt-
ir fyrir á sinni tíð og er um gamalt lag þeirra
að ræða. í miðjum klíðum hlekktist Ladda
eitthvað á í laginu svo út kom ákaflega skrækt
nefhljóð. Þeim leist svo vel á hljóðið að ákveð-
ið var að láta það standa eins og það er.
ítölsk jólalög
Björgvin segir að hann hafi dvalið á Ítalíu
i sumarfríi sínu og þar hafi komið kveikjan
að jólaplötu þeirri sem hann, ásamt öðrum,
syngur á og hlotið hefur heitið “Allir fá þá
eitthvað fallegt". Öll lögin á plötunni eru
ítölsk að uppruna en Jónas Friðrik hefur sam-
ið textana við þau. “Ég heyrði þessi lög á
Ítalíu og þau snertu mig mikið, höfðu ein-
hvem vingjamlegan blæ yfir sér,“ segir
Björgvin. “Ég er mjög ánægður með þessa
plötu sjálfur og hún er að vissu leyti nokkuð
frábrugðin þeim jólaplötum sem hér hafa
verið gefnar út enda eru lögin sjálf ekki beint
jólalög."
Björgvin segir að líta megi á þessa jóla-
plötu sem framhald plötunnar “Jólagestir"
sem kom út fyrir tveimur árum. Svipað og
þá fær Björgvin nokkra söngvara með sér
sem gesti á plötuna. Þessir gestir nú eru
Eyjólfur Kristjánsson, Rut Reginalds, Ari
Jónsson og Guðrún Gunnarsdóttir. Þá er einn-
ig að f inna dóttur Björgvins, Svölu, á plötunni.
Önnur tuttugu ár ekki áformuð
Nú eru komin nokkuð yfir tuttugu ár síðan
Björgvin hóf söngferil sinn, fyrst með skóla-
hljómsveit í Flensborgarskólanum. Aðspurður
um hvort hann hyggist starfa önnur tuttugu
ár i viðbót á þessu sviði segir hann slíkt ekki
áformað en hann ætlar ekki að hætta í bráð,
svo mikið sé víst. Og þótt næstu tuttugu ár
séu ekki skipulögð er hinsvegar áformað að
halda upp á þau tuttugu sem liðin eru á ein-
hvern hátt.
“Það hefur verið í deiglunni lengi að setja
upp söngsýningu sem myndi spanna þennan