Morgunblaðið - 10.12.1989, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ.
FJÖLMIÐLAR
SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1989
C 2SF
Dagskrárritstjóri hættir;
Pylsur á dagskrá
Sverrir Friðþjófsson, dagskrárritsljóri ríkissjónvarpsins, lætur af störf-
um um næstu mánaðamót. Þessi ríkisstarfsmaður hefur gerst kapítal-
isti; keypt pylsuvagninn í Austurstræti af Ásgeiri Ilannesi Eiríkssyni
alþingismanni Borgaraflokksins.
Undanfarið eitt og hálft ár hefur
Sverrir ritstýrt dagskrá Sjón-
varpsins, þar áður á hann að baki
farsælan starfsferil i þjónustu
Reykjavíkurborgar, var m.a. um níu
ára skeið forstöðumaður Fellahellis.
Sverrir var inntur eftir ástæðum
þess að hann hættir í opinberri þjón-
ustu. Hann kvað launakjörin hjá
því opinbera ekki bjóðandi nokkrum
manni. Vissulega væri gaman að
vinna hjá sjónvarpinu og þar væri
mjög gott fólk en hann hefði að
baki langan starfsferil hjá ríki og
sveitarfélögum og langað til að
standa á eigin fótum. Hann hefði
því afráðið að reyna fyrir sér á
öðrum vettvangi og fjárfest í pylsu-
vagni, „einni smæstu einingu kapít-
alismans". Sverrir kvaðst munu
sjálfur sinna afgreiðslu og pylsu-
suðu í vagninum, hefði reyndar nú
þegar gert það í ígripum nokkrar
Sextíu nýir
hluthafar
í Fróða hf.
Hlutafjársala í Fróða hf., al-
menningshlutafélag það sem
stofnað hefur verið um bóka- og
tímaritaútgáfu Fijáls framtaks
hf., gengur vel, að sögn Steinars
J. Lúðvíkssonar, aðalritstjóra
fyrirtækisins. Um það bil sextíu
nýir hluthafar eru komnir inn í
fyrirtækið, einstaklingar og
starfsmenn. Þá hafa þrjú fyrir-
tæki keypt sig inn í Fróða hf.
Það eru fyrirtækin Vífílfell hf.,
málningaverksmiðjan Harpa hf.
og Qárfesjingafélag Birkis Bald-
vinssonar hf. Hlutafé í fyrirtæk-
inu nemur alls 162 milljónum
króna og stefnir Frjálst framtak
hf. að því að eiga áfram 30%
þess hlutaijár. Hlutabréf að upp-
hæð 113 milljónir króna eru því
til sölu.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hefur Frjálsu framtaki ver-
ið skipt í tvö fyrirtæki. Útgáfustarf-
semin hefur verið klofin út úr
Frjálsu framtaki og um hana hefur
verið stofnað nýtt hlutafélag, Fróði
hf., sem er ætlað að vera almenn-
ingshlutafélag. Fijálst framtak
verður áfram í eigu Magnúsar
Hreggviðssonar og fjölskyldu hans
og stendur það fyrirtæki að bygg-
ingarstarfsemi.
Steinar sagði mjög misjafnt
hversu mikið menn og fyrirtæki
keyptu fyrir. Lágmarkshlutur væri
45 þúsund krónur, en mjög algengt
væri að einstaklingar keyptu fyrir
90 þúsund krónur. Með því fá þeir
fullan skattaafslátt, 35 þúsund
krónur. Steinar sagði það vera trún-
aðarmál ennþá hversu mikið hlutafé
fyrirtækin þrjú hefðu lagt Fróða
hf. til. Hann sagði að hlutafjárkaup
allmargra annarra fyrirtækja
myndu jafnvel skýrast fyrir jól.
FURÐUHEIMAR
FJÖLMIÐLANNA
(Jó-deild, sbr. jó-lasveinar)
Okkur þykir sjálfsagt að geta
þess, að á morgun á afmæli og
verður 48, þingmaður krata í
Norðurlandskjördæmi vestra, Jón
Sæmundur Siguijónsson. Um Jón
má meðal annars segja að hann
er einn af þessum dæmigerðu
krataþingmönnum um fimmtugt
með nafh sem byijar á „Jó“.
Alþýðubl.
kvöld- og helgarnætur. Pylsusalinn
kvaðst ekki vera meiri pylsuæta en
gengur og gerist; þó hefði ekki far-
•ið hjá því að neysla sín á þessum
matvælum hefði aukist, þótt ekki
væri fyrir annað en að fylgjast
þyrfti með gæðum söluvörunnar.
Stefnir Sverrir pylsusali að sömu
metorðum og Ásgeir fyrirrennari
hans? „Ég læt mér nægja að vera
á Alþingi götunnar.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sverrir Friðþjófsson í nýju starfí.
Helgarsj ónvarp enn
laust í reipunum
„Þetta er enn mjög laust i reipun-
um, bæði tæknilega og fjárhags-
lega og óvíst er hvenær við get-
um hafið útsendingar. Við ætlum
þó að reyna að byija í vetur,"
sagði Björn Br.Björnsson hjá Sýn
hf. þegar hann var inntur eftir
því hvernig undirbúningi að
helgarsjónvarpi miðaði.
Eins og fram kom í fréttum ekki
alls fyrir löngu, fékk kvik-.
myndagerðin Sýn hf. leyfi til sjón-
varpsreksturs og var markmiðið að
ýta helgarsjónvarpi úr vör upp úr
áramótum. „Það er verið að vinna
í málinu af fullum krafti. Það er
ekkert sem stoppar okkur af eða
stendur í veginum ennþá,“ sagði
Björn. Hann sagði að enn væri ekki
ljóst hveijir eigendur stöðvarinnar
yrðu, en verið væri að ræða við
menn um hugsanlega fjármögnun
helgarsjónvarpsins. „Við veijumst
allra frétta af þessu fyrr en við
erum komnir með allan pakkann á
borðið. Stefnan er sú að vera ekk-
ert að gaspra um þetta í fjölmiðlum
á meðan þetta er ekki orðið nagl-
fast,“ sagði Bjöm.
og sala íbúðar
Lög um húsbréfaviðskipti giida um kaup og sölu notaðra íbúða,
sem eiga sér stað eftir 15. nóvember 1989.
Hvað eru húsbréf?
Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar getur fengið
hjá húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir
fasteignaveðbréf, sem kaupandi íbúðarinnar gefur út.
Húsbréf eru verðtryggð og gefin út með föstum vöxtum til 25 ára.
Gengi þeirra er opinberlega skráð daglega.
Húsbréf eru með ríkisábyrgð og undanþegin skatti.
ráðgjafastö&var er
skilyrði fyrir tilbo&i.
Hvemig fer sala íbúðar ftam?
Allir kaupendur I húsbréfakerfinu verða að hafa í
höndum skriflega umsögn ráðgjafastöðvar
Húsnæðisstofnunar um greiðslugetu sína og
kaupverð íbúðar, áður en þeir geta gert seljanda
kauptilboð.
Seljandi fær kauptilboð.
z==\.-7,‘ \ Tilvonandi kaupandi sýnir seljanda
umsögn ráðgjafastöðvar og gerir honum kauptilboð
með tilliti til greiðslugetu sinnar skv. umsögninni.
\Tilboði tekið með fyrirvara um
. skuldabréfaskipti.
Þegar samkomulag hefur náðst um kaupverð,
samþykkir seljandi kauptilboðið með fyrirvara um
skuldabréfaskipti við húsbréfadeild Húsnæðisstofn-
unar. Allt að 65% af kaupverði íbúðarinnar getur
verið fasteignaveðbréf sem kaupandinn gefur út og
seljandinn fær skipt fyrir húsbréf. Fasteignaveðbréfin
geta verið tvö, ef seljandi þarf að afiétta skuldum
sem kaupandi tekur ekki við, frumbréf og viðauka-
bréf.
Undirbúningur að skuldabréfa-
skiptum. Þegar seljandi hefur
gengið að tilboði, fer tilvonandi kaupandi fram á
skuldabréfaskipti við húsbréfadeildina.
Afgreiðsla húsbréfadeildar.
Húsbréfadeild metur veðhæfni
íbúðar og matsverð og athugar greiðslugetu
væntanlegs kaupanda. Samþykki hún kaupin,
sendir hún væntanlegum kaupanda fasteignaveð-
bréfið, útgefið á nafni seljanda.
/\ c. \ Kaupsamningur undirritaður -
fasteignaveðbréf afhent
seljanda. ibúðarkaupandi og íbúðarseljandi gera
með sér kaupsamning og kaupandi afhendir
seljanda fasteignaveðbréfið.
/\ -» \ Kaupandi lætur þinglýsa
* \ kaupsamningnum.
X^Seljandi lætur þinglýsa
fasteignaveðbréfinu.
Fram að 15. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að
húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars sl.
og hafa lánsrétt.
HÚSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
HÚSBRÉFADEiLD
SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK SÍMl 696900
Seljandi skiptir á fasteigna-
veðbréfi fyrir húsbréf.
Óski seljandi eftir því að fá húsbréf, fær hann
þau afhent hjá húsbréfadeildinni í skiptum fyrir
fasteignaveðbréfiö.
«yrv\Húsnæðisstofnun annast inn-
V__A heimtu fasteignaveðbréfsins
af kaupanda, enda orðinn eigandi þess, þegar hér er
komið.
Seljandi ráðstafar húsbréfunum
að Vild. Seljandi getur átt bréfin,
notað þau við íbúðarkaup eða leyst þau út.
1