Morgunblaðið - 10.12.1989, Blaðsíða 35
Aldarminning'.
MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1989
C 35
Lárus Björnsson
í Grímstungu
Fæddur 10. desember 1889
Dáinn 27. maí 1987
Afi okkar hann Lárus Björnsson
í Grímstungu hefði orðið 100 ára í
dag 10. des. 1989. Hann var fædd-
ur á Réttarhól í Austur-Húnavatns-
sýslu, sonur hjónanna Björns Ey-
steinssonar og Helgu Sigurgeirs-
dóttur. Að Grímstungu fluttist afi
á tíunda árinu eða vorið 1899, og
var hann þar mest alla ævi sína.
Afi hóf búskap í Grímstungu um
vorið 1910. Veturinn áður en afi
hóf búskap kom að Grímstungu ung
stúlka aðeins 13 ára gömul með
fósturforeldrum sínum. Þau höfðu
verið ráðin í vinnumennsku þangað.
Þetta var amma okkar hún Pét-
urína Björg Jóhannsdóttir f. 22.
ágúst 1896. Fósturforeldrar hennar
hétu Jakob Árnason og Kristín
Sveinsdóttir en foreldrar ömmu
hétu Jóhann Skarphéðinsson og
Halla Eggertsdóttir.
Amma var fædd í Hvammi í
Vatnsdal og átti alltaf heimili sitt
í Vatnsdalnum. Afi og amma giftu
sig vorið 1915, eignuðust þau átta
börn og eru afkomendur þeirra á
milii 90 og 100. í Grímstungu
bjuggu þau allan sinn búskap. Sök-
um heilsuleysis kom amma hingað
til okkar á Bakka upp úr 1970 og
var hún hjá okkur þangað til hún
dó 1985. Afi kom nokkrum árum
seinna, en hann var alltaf með hug-
ann við Grímstunguna og hrossin
sín sem honum þótti svo afskaplega
vænt um.
Mjög þótti okkur bræðrum vænt
um ömmu og afa og styttu þau
okkur stundir með sögum sínum.
Margar voru sögurnar sem við
fengum að heyra hjá þeim. Þau
sögðu svo skemmtilega frá að við
lifðum okkur inn í þær. Oft voru
sögur afa af veiðiferðum inn á heið-
arnar, en þar var hann oftsinnis í
huganum þegar hann raulaði vísur
sem hann kunni ógrynni af. Líka
voru þetta sögur af hestunum hans
en hann átti mikið af góðum og
glæsilegum reiðhestum.
Margsinnis þegar við bræður
komum inn í herbergi þeirra ömmu
og afa hér á Bakka voru þau að
tala um hestana sem þau höfðu
átt, en þau höfðu mikinn áhuga á
hestum bæði tvö. Afi sat þá við
rúmið hennar ömmu og hélt í hönd-
ina á henni og töluðu þau tímunum
saman um gömlu dagana. Þetta
sýndi vel hve kærleikurinn var mik-
ill á milli þeirra og voru þau eins
og nýtrúlofað par.
Marga uppáhalds hesta átti afi,
einn þeirra hét Funi og orti amma
vísu um hann sem er svona.
Þegar fákur fer á sprett,
fykur burtu mjöllin.
Funi í taumum ieikur létt,
lipur stiklar völlinn.
Heiðin var líf og yndi afa og
hugsaði hann oft fram til heiðarinn-
ar, sérstaklega þegar fór að hausta
og göngurnar nálguðust.
Síðasta haustið sem afi lifði fór-
um við bræður með hann á bíl í
fylgd með undanreiðarmönnum
fram'a Sísvatnsás en þar sést fyrst
fram á heiðina, þar fórum við út
úr bílnum og stoppuðum hjá
gangnamönnum og þar fékk afi sér
snafs af pela hjá þeim og kvað svo
eina stemmu með þeim og ánægjan
skein af andliti hans.
Að lokum er hér vísa sem gerði
Kristján Sigurðsson kennari hér í
sveitinni, um afa Lárus, þótti hon-
um mjög vænt um þá vísu því að
hann kvað hana oft.
Sótti á brattan, brast ei hug
bóndans undi veldi.
Haltu Lárus hetjudug,
hinsta lífs að kveldi.
Amma andaðist 23. júlí 1985,
88 ára gömul. Afi andaðist 27. maí
1987, 97 ára gamall.
Hinsta kveðja til elsku afa og
ömmu.
Svenni og Jonni á Bakka
Grímstunguhjónin Lárus
og Péturína.
LADA
vetrarskoóun
Skiptum um kerti, skiptum um platínur, skiptum
um loftsíur, strekkjum á tímakeðju eða tímareim,
efþarf, hreinsum bensínsíu íblöndungi, vélastill-
um, athugum viftureim, mælum olíuá vél,
gírkassa og drifi, athugum innsog, mælum
hleðslu, athugum Ijós, Ijósastillum, athugum
virkni rafkerfis, athugum þurrkur og rúðuspraut-
ur og ísvara bætt á rúðusprautu efþarf, mælum
frostþol, smyrjum hurðalæsingar, athugum und-
irvagn, stillum kúplingu, athugum stýrisbúnað,
athugum virkni hemla og reynsluökum.
Verð aðeins kr. 5.485. “ án efnis
LADA SAMARA
- verð aðeins kr. 4.690,-án efnis
Bifreiðaverkstæðið Stimpiil,
Auðbrekku 30, Kópavogi, sími 641095.
Kona
að nafni
Jackie
Einstaklega opinská og
persónuleg ævisaga Jacqueline
Kennedy Onassis, umdeildrar
konu sem hefur í meira en
aldarfjórðung hlotið meiri
frægð og umtal en flestar
kynsystur hennar.
Raktar eru ótrúlegar sögur af
óbeisluðu ástarlífi forsetans og
óstjórnlegri eyðslusemi Jackie
og þar er skýrt hvers vegna og
hvernig Jackie varð eins og hún
er - dáð eða hötuð, en ætíð jafn
dularfull og ætíð jafn umtöluð.
ÍÐUNN