Morgunblaðið - 10.12.1989, Page 39
C 39
MORGÚNBLAÐIÐ SUNfíUDAGUR 10. DESEMBER 1989
að gera upp við sig hvar maður
er staddur í lífinu. Hér úti rennur
allt saman í eitt hjólfar, en heima
er maður berskjaldaður gagnvart
raunveruleikanum. í raun finnst
mér að heima verði ég að hugsa
meira um lífið og eilífðina; þar er
maður í stöðugu sambandi. Hér
er sefjun í mannhafinu, en.heima
er allt svo nálægt, maður verður
svo áhrifamikill þátttakandi í lífinu
sjálfu, himni og hafi. Það er miklu
erfiðara, en mér finnst það já-
kvætt og þess vegna er það líka
nauðsynlegt fyrir mig að fara heim
og staldra við.
Fyrst eftir að ég lauk námi og
áður en ég eignaðist börn, spurði
ég mig oft: Hvað er ég eiginlega
að gera hér? Það er margt gott
við að vera hér og ég kann vel við
mig í París og það fólk sem er
hér. Það neikvæðasta heima finnst
mér vera smásjáin, en hún gerir
líka meiri kröfur og menn verða
enn frekar að standa sig vel. Mér
finnst að hver einstaklingur eigi
að gera það besta úr þeim hæfileik-
um sem honum hafa verið gefnir,
smíða úr þeim af kostgæfni og
alúð. Guðrún Finnboga sagði svo
oft við mig að maður ætti alltaf
að standa með lítilmagnanum. Ef
maður getur það og hefur verið
heiðarlegur og trúr gagnvart ná-
unganum, þá getur maður horfið,
dáið Drottni sínum. En lífið er
marglitt og túlkunin er persónuleg.
Eg minnist þess oft hvemig hún
Malla vinkona mín í Eyjum þétti
orðræðuna um lífið með sína djúpu
reynslu: „Svona er lífið, la lí la,“
eða „lífið er skippelsi,“ sagði hún
sönglandi glöð í hversdagsbrasinu.
Guð er í smáatriðunum, auðvitað
er hann í öllu, en ef til vill em
smáatriðin guðdómlegust.
Þar dreymir fólk meira og
verður órjúfanlegair hluti
af náttúrunni
Jú, ísland er mikið í mér og ég
hugsa að það hafi orðið til þess
að ég reyni að binda saman
íslenska hefð í nútíma form, því
þegar ég teiknaði húsin, sem hafa
verið byggð eftir mínum teikning-
um heima, var ég ekki að spá í
þetta en það varð ósjálfrátt útkom-
an. Hér úti hef ég mikið unnið við
skólabyggingar og það hefur verið
talað um að það hafi verið skand-
inavísk áhrif sem komi þar í ljós.
Það hefur ekki verið skilgreint
íslenskt, en eitthvað annað en
franskt.“
Ég hafði á orði við Högnu að í
verkum hennar sæi ég augljóslega
áhrif úr formum Vestmannaeyja,
fjöllum og bjargvéggjum með fles-
um og bringjum, slökkum og
hrekkum alveg eins og oft hefði
komið í gegn í myndum Sverris
heitins Haraldssonar listmálara.
„Formin í Vestmannaeyjum eru
margvísleg, bæði þetta ljúfa form
Helgafells og svo aftur hin saman-
þjappaða mynd í Heimakletti og
úteyjunum, himinn og haf, ótal
myndir og ofboðslegt birtuspil. Þar
er óstjórnleg ólga í náttúruöflunum
og mörgu slær saman.Tengslin
milli Kletts og Klifs, hvernig Háin
tekur á móti þessu öllu og allt
verður svo aðgengilegt. Svo er líka
þessi bústaður okkar á eyju. Það
er sérstakt að vera fæddur á eyju,
þar dreymir fólk meira og það
rennur meira saman við náttúruna
en annarsstaðar og verður óijúfan-
legur hluti af henni. Stundum vildi
ég helst vera fugl, kannski bara
mávur.“
vinnur
Á Þorláksmessu er dregið í jólahappdrætti Sjálfsbjargar
. ........... ............. Þá gætu draumar þínir ræst
1. vinningur: sóitógn. Vinningaskráin er glæsilegri en nokkurn tíma áitur
eriendis. Vetð bílsmser kr. 2.300.»»»-
Sannkölluð glæsikerra.
2. - 6. vinningur: Fimm Toyota
Corolla 1300ST hlaðbakar, hver
um sig að verðmæti kr. 716.000,-
Þessir bflar hafa svo sannarlega
sýnt að þeir henta við íslenskar
aðstæður.
7.-65. vinningur: Loks eru 59 val-
vinningar að verðmæti kr. 100.000.-
hver. Ef þú hlýtur einn af þeim get-
ur þú valið ferð hvert sem er með
Ferðaskrifstofunni Útsýn - Úrval
eða skartgripi fyrir þá upphæð.
Misstu ekki af glæsilegum vinningi, sem gæti látið drauma þína rætast, um leið og þú tekur
þátt í baráttu Sjálfsbjargar fyrir bættri framtíð fatlaðra í landinu.
SAMEINAÐA/SlA
HAPPÐRÆTTI
SJÁLFSBJARGAR 1989
SMRISJOÐUR
VÉLSTJÓRA
m
—i