Morgunblaðið - 10.12.1989, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1989
C 45
Larib Semichat
píndir enn meir. Ég vil búa á ís-
landi en líklegast verður endirinn
sá að ég neyðist til að flýja til
Ástralíu aftur.“
Túnisbúinn Larib Semichat læt-
ur ekki heldur sitt eftir liggja við
verðmætasköpunina og hefur unn-
ið við frystitækin í Hraðfrystistöð-
inni í þrjá mánuði. Hann kom til
Islands fyrir átta árum og á hér
sex ára gamla dóttur. „Ég kann
sæmilega við mig héma og starfs-
fólkið er ágætt. íslendingar eru
svolítið feimnir, en þeir reynast
Morgunblaðið/Bjami
Þórarinn Víkingur Gunnarsson
góðir vinir þegar maður kynnist
þeim. Hins vegar er erfitt að fram-
fleyta sér á íslandi. í Túnis er allt
miklu ódýrara. íslensk stjómvöld
mættu líka hugsa meira um hag
verkafólksins. Ég vann til dæmis
á stað þar sem loftræstingin var
engin. Starfsörygginu er einnig
ábótavant, menn geta átt á hættu
að verða reknir hvenær sem er.
Verkamenn njóta til dæmis mun
meiri virðingar í Danmörku. Ég
væri líklega farinn ætti ég ekki
dóttur hérna.“
Steindór Gunnarsson hefur ver-
ið verkstjóri í vinnslusal frysti-
hússins í fimm ár. „Þetta er kre-
fjandi starf og skemmtilegt; vinna
allan sólarhringinn,“ sagði hann.
í Hraðfrystistöðinni eru unnin
3-20 tonn á dag, eftir því á hvaða
verði fiskurinn er á mörkuðunum.
Steindór vann í 17 ár sem verk-
stjóri í hraðfrystihúsum úti á landi
og sagði að ekki væri rétt að lands-
byggðin héldi höfuðborgarbúum
uppi. „Ég þekki þessa tilfinningu
mæta vel þar sem ég vann þar svo
lengi, meðal annars á Akranesi
og Norðfirði. Reykjavík er næst-
mesta löndunarhöfn landsins á
eftir Vestmannaeyjum svo menn
leggja hér líka hönd á plóginn.
Höfuðborgarbúar veita einnig
ýmsa þjónustu fyrir fólk á lands-
byggðinni og það væri ekkert bet-
ur sett ef þjónustan yrði flutt eitt-
hvert annað. Ég tel að fjármag-
nið, sem landsbyggðarfólkið skap-
ar, skili sér áftur til þeirra. Öll
fyrirtæki búa við það sama, fá
sama verð fyrir vöruna, hvar sem
þau eru í landinu."
Hafa vopn-
aðir glæpa-
menn meiri
rétt en borg-
ararnir?
Njáll Arason skrifar:
Astandið í miðborg Reykjavíkur
er að sönnu orðið ógnvekjandi,
hópar vopnaðra ribbalda virðast fá
að vaða þar uppi og ógna lífi með-
bræðra sinna. Þetta er vandi sem
krefst skjótra viðbragða og það er
rétt sem borgarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins benti á að svo virðist sem
aðaláherslan sé lögð á að framfylgja
heimskulegum reglum um bifreiða-
skoðun í stað þess að vernda borgar-
ana.
Almenningur hér á landi er vita-
skuld löngu orðinn vanur bjálfalegum
yfirlýsingum svonefndra ráðamanna
og hættur að kippa sér upp við það
er þeir láta ljós sitt skína og opin-
bera andlegt atgervi sitt í fjölmiðlum.
Ég vil hins vegar leyfa mér að vekja
athygli á orðum Óla Þ. Guðbjatsson-
ar, hins nýja dómsmálaráðherra þjóð-
arinnar, er hann var inntur álits á
þessum ógnvænlegu tíðindum í sjón-
varpsviðtali á dögunum. Hann sagði
orðrétt: Við skulum ekki gleyma
því að þeir sem verða fyrir ofbeldi
eiga bágt en þeir sem valda of-
beldi eiga ennþá bágara.“Hafa
menn nokkum tíma heyrt annað eins!
Það er einmitt þetta viðhorf, ásamt
rakalausum þvættingi sumra félags-
og sálarfræðinga, sem er hluti skýr-
ingarinnar á þessum vanda. Vopnað-
ir ofbeldismenn og ribbaldar eiga
samkvæmt þessu meiri samúð skylda
en þeir sem reknir eru á hol á götum
Reykjavíkur eða verða fyrir mis-
þyrmingum af hendi sturlaðra ungl-
inga. Maður sem lætur þvílíka þvælu
út úr sér á opinberum vettvangi er
ekki starfi sínu vaxinn. Grimmdar-
seggir, ungir jafnt sem gamlir, og
glæpamenn hafa engan rétt. Með
athæfi sínu segja þeir sig úr lögum
við mannlegt samfélag.'
Vitaskuld þarf að herða eftirlit en
það þarf einnig að herða refsilöggjöf-
ina og hraða meðferð dómsmála.
Síðast en ekki síst þarf að gera
mönnum ljóst að þeir eru ábyrgir
fyrir gjörðum sínum og verða að
taka afleiðingum. Sú lífseiga kenning
að þjóðfélagið allt beri ábyrgðina og
að réttlæta megi framferði glæpa-
manna með svonefndum „félagsleg-
um skýringum“ er ekki aðeins röng
heldur einnig hættuleg.
Hvers vegiia ég gerðist kaþólskur
Kæri Velvakandi.
Arið 1978 var ég við nám í
Kvennaskólanum í Reykjavík,
en skólaárið 1977-1978 opnaði
Kvennaskólinn í fyrsta sinn dyrnar
fyrir karlkyns nemendur. Þennan
vetur kynntist ég í fyrsta sinn kaþ-
ólskum presti, sem kom í skólann til
að kynna hina kaþólsku trú. Prestur
þessi var írskur frá bænum Tippar-
ery, og kallaður faðir Róbert Brads-
haw. Þarna talaði hann um það hvers
vegna kaþólskir prestar giftast ekki,
að hjónabandið sé samkvæmt guðs-
lögum óijúfanlegt og sagði okkur
heilmikið um móður um Jesú Krists,
Maríu mey.
Þegar þetta er skrifað, í nóvember
1989, hefur faðir Róbert nýtekið mig
inn í hina kaþólsku kirkju, eftir að
vera búinn að ræða við mig um undir-
stöðu trúarinnar, kenningar kirkj-
unnar og sent mér lesefni til að kynn-
asýtrúnni og siðum betur.
Ég er ánægður með stöðu mína í
dag. í fyrsta sinn í mörg ár er ég
sáttur við sjálfan mig, Guð og menn.
Ég sæki kirkju á hverjum sunnudegi
þegar ég get, og virka daga ef ég
óska þess og get.
Ég skrifta, þ.e. játa syndir mínar
fyrir presti reglulega ög fæ altaris-
sakramentið, líkama Krists. Ég á
mitt talnaband, sem er keðja með
perlum á, og róðukrossi, sem er kross
með Kristsstyttu á. Ég á rósakrans-
hring, sem nunnumar í Hafnarfirði
gáfu mér í veikindum mínum; en
rósakranshringur er smækkuð mynd
af talnabandi. Til Kermelnunnanna
í Hafnarfirði get ég hringt hvenær
sem er og þær biðja fyrir mér. Einn-
ig get ég haft samband við presta
kaþólsku kirkjunnar, sem eru til stað-
ar allan sólarhringinn, þegar á þarf
að halda.
Ég er ngög hamingjusamur maður
í dag. Ég hef eignast nýtt líf, ríku-
lega skreytt bænum sérhvern dag.
Þjáningar og mótlæti, hinir þungu
krossar, sem við þurfum að bera á
göngu okkar í gegnum lífið, fá nú
allt aðra merkingu. Nú er hægt að
bera þungar byrðar með léttri lund.
Nýr skilningur opnast mönnum, og
ábyrgðartilfinningin vex. Samviskan
er vakin af löngum dvala. Nú skal
trúað á Guð og breytt samkvæmt
vilja hans, án tilslakana.
Ég var sjúkur, en nú veit ég hvers
vegna, og að Guðs vilji er ávallt sann-
ur. Þó að á tímum örvæntingar sé
oft ekki auðvelt að eygja tilganginn
með þrautum okkar. En tilgangurinn
er þarna og smátt og smátt fer að
komast heildarmynd á verkið. Stykki
púsluspilsins falla hvort að öðru, þó
ein og sér virðist þau ekki vera til
neins.
Faðir Róbert sagði mér einnig
hvar sakleysi Krists væri að finna í
mannlegu samfélagi, þar sem við
erum öll limir á líkama Krists. Hann
sagðist það opinberast í hinum and-
lega vangefnu. Sá nýi skilningur
veitti mér nýjan skilning, og ólýsan-
lega gleði.
Það er einnig unun að vita að
hjónabandið sé eilíft á tímum skiln-
aða og hórdóms. Hjónum er ekki
leyfilegt að skilja, þó það sé tíska
og jafnframt faraldur í nútíma þjóð-
félagi. Hjónabandið-er lífstíðarsátt-
máli, eins og Kristur boðaði. Svo
sannarlega vil ég gjöra hans vilja,
heldur en að stofna lífi mínu, heilsu
og sál í hættu, og bijóta lög hins
algóða Guðs fyrir stundargaman.
Því lífið er útlegð frá Guði, aðeins
skamman tíma. Kaþólska kirkjan
gerir þá útlegð bærilega, þangað til
við förum til himna til Guðs.
Einar Ingvi Magnússon
KVIKMYNDALEIKUR
Ég er að leita að ungu fólki í stóran framhaldsmyndaflokk fyr-
ir sjónvarp og bíó sem gerist á 10. öld og ber nafnið „Hvíti
víkingurinn“.
A) Stúlku, sem getur leikið 15-16 ára höfðingjadóttur. Sam-
kvæmt handriti er höfðingjadóttirin sjálfstæð, viljasterk
og töfrandi falleg. Með orðinu falleg er átt við persónu-
töfra.
Sú stúlka, sem leikur hlutverkið, verður að vera ung, á
aldrinum 15-19 ára. Hún þarf að hafa brennandi áhuga
á kvikmyndaleik, búa yfir viljastyrk og óbifandi sjálfstrú.
B) Tveimur ungum mönnum, 15 og 17 ára, sem eiga að leika
hálfbræður. Bræðumir em ólíkir, en báðir afgerandi ein-
staklingar og sterkir persónuleikar. Sömu kröfur um áhuga
og viljastyrk em gerðar til þeirra, sem sækja um hlutverk
bræðranna.
C) I „Hvíta vikingnum" em ýmis, bæði minni og stærri, hlut-
verk fyrir fólk á sama aldri.
Þau, sem hafa brennandi áhuga á að spreyta sig á þessu verk-
efni og langar til að taka þátt í mjög erfiðu og krefjandi ævin-
týri, sendi mynd ásamt persónulegum upplýsingum um hvaða
hlutverki viðkomandi sækist eftir og hvers vegna.
Allt ungt fólk á áðumefndum aldri kemur til greina, en hvers
konar reynsla af leiklist eða öðm öguðu listnámi, t.d. hljóð-
færaleik, dansi eða söng, mun koma að góðum notum.
Æfingar hefjast í mars, en upptaka snemma í vor og lýkur síðla
næsta haust. Megin hluti verksins verður kvikmyndaður erlendis.
Góð laun í boði.
Umsóknir sendist á auglýsingadeild Mbl. fyrir 15. desember
1989 merktar: „Hvíti víkingurmn — 6300“ Umsækjendur
verða að útbúa umsókn sína sjálfir.
Hrafn Gunnlaugsson.
ll
Uppþvottovél
og éttu manna
matarstell
ffyrir ótrúlegt
verd
Verðið á þessari PHILIPS
uppþvottavél erótrúlegt í
augum þeirra sem
kynnast gæðunum. Og
hvemig hún uppfyllir
kröfur okkar um
- áð taka mikið
- að auðvelt sé að raða
í vélina
- að vinna hljóðlega
Vélin tekur allt að 12
manna fullkominn borð-
búnað. Hún er klædd að
innan með ryðfríu stáli.
Sex þvottakerfi.
Spamaðarstilling.
Þrenns konar hrtastig.
Sérstaklega virk vatns-
dreifing frá tveimur
örmum. Stillanlegur
vatnsþrýsinguráefri
armi. Hægt að hafa efri
grindina í tvenns konar
hæð. Ljós gefur til kynna
hvort vélin er í gangi
o.m.fl.
PHIUPS
ABÓT
Með Philips uppþvottavélinni
Verð frá getum við boðið fulikomið
kr. 59.950.- 8 manna matar og kaffisteíl
stgr. á aðeins kr. 299.-
Heimilistæki hf
Sætúni 8 SÍMI 69 15 15 • Kringlunni SÍMI69 15 20
Csamuf^xoK