Morgunblaðið - 10.12.1989, Page 46
46 C
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNIÍUDAGUR 10. DESEMBER 1989
ÆSKUMYNDIN...
ERAF KATRÍNUFJELDSTED, LÆKNl OG BORGARFULLTRÚA
ÚR MYNDASAFNINU
.
i
Glaðvær, dugleg
og músíkölsk
Katrín Fjeldsted er fædd í Reykjavík hinn
6. nóvember, 1946, dóttir hjónanna Lárusar
Fjeldsted, verslunarmanns, og Jórunnar
Viðar, tónskálds. Katrín er gift Valgarði
Egilssyni, lækni og skáldi, óg hafa þau eign-
ast fjögur börn, Jórunni Viðar, Einar Vé-
stein, sem lést í bernsku, Véstein og Einar
Stein. Katrín lauk læknisprófi frá Háskóla
íslands árið 1973 og lauk síðar framhalds-
námi í heimilislækningum. Árið 1982 var
hún kjörin borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík.
Jórunn Viðar, móðir Katrínar,
segir vanda að lýsa eigin barni,
þar sem hún sé vart hlutlaus aðili.
„Samt sem áður hika ég ekki við
að segja að hún hafi verið sérstak-
lega skemmtilegt barn og mjög fjör-
ugt. Hún byijaði snemma að tala
og talaði mikið. Ég man eftur því
að gömul kona, sem hlustað hafði
á Katrínu nokkra stund, sagði
stundarhátt eftir ræðuna: „Katrín
verður prestur.““
Katrín fór fimm ára gömul í ís-
aksskóla, en hafði ekki verið þar
nema í 3-4 daga þegar hún veiktist
og varð að liggja í þijár vikur. „Það
var ekkert grín að hemja hana þar,“
segir Jórunn. „Ég las fyrir hana,
las og las, en uppáliaidsbókin var
Dísa ljósálfur. Þegar ég var búin
að lesa hana ótal sinnum, orðin vita
raddlaus og uppgefin, rétti ég henni
bókina og sagði: „Lestu nú sjálf.“
Og það gerði hún. Hún var orðin
læs!“
Arndís Gísladóttir, æskúvinkona
Katrínar hefur orðið: „Það má eig-
inlega segja að við Katrín 'höfum
erft hvora aðra, því ömmur okkar
voru vinkonur og mömmur okkar
líka, þannig að við umgengumst
reglulega alveg frá bernsku. Katrín
var yfirleitt mjög glaðvær og það
gekk vitaskuld ýmislegt á þegar við
létum til okkar taka. Annars man
ég eftir því frá því við vorum sam-
an í bamaheimilinu Steinahlíð að
hún komst í hann krappan þegar
einhver strákur ætlaði að fara að
tuskast á við hana, en hún var nú
ekki mikill bógur til slíkrar iðju.
Þá kallaði hún náttúrulega á mig
sér til aðstoðar og síðan segir hún
að ég eigi hönk upp í bakið á henni.“
Önnur vinkona Katrínar úr
barnaskóla segir hana hafa verið
afskaplega Ijúfa viðkynningar og
skemmtilega. „Við kynntumst í tíu
ára bekk í Miðbæjarskólanum og
hún var frekar feimin svona í fyrstu,
en feimnin vék nú fljótlega fyrir
glaðværð og dugnaði. Hún var af-
skaplega drífandi og það kom nátt-
úrulega líka fram í skólanum, því
hún var mikil námsmanneskja."
Þessi sama vinkona Katrínar
segir heimilisbraginn á Laufásvegi
35 einnig hafa sett mark sitt á
Katrínu. „Þetta var mikið menning-
arheimili með alveg sérstöku and-
rúmslofti, en auk foreldranna bjó
amma Katrínar og nafna í húsinu.
Þetta var mikið tónlistarheimili og
Katrín lærði t.d. á fiðlu. Hún hélt
því námi ekki til streitu, en hún
hefur alltaf verið mjög músikölsk."
Katrín um
fimm ára aldurinn.
Þótti feimin við fyrstu kynni, en feimnin vék
fyrir glaðværð og dugnaði.
ÓLAFUR K. MAGNÚSSON
Fyrsti KK-sextettinn
KK-sextettinn, sem starfaði hér
á landi á árunum 1947 til ára-
móta 1961-62, verður lengi í minn-
um hafður sem ein
besta hljómsveit^ sinnar
tegundar á Islandi.
Þegar þeir Kristján
Kristjánsson og Svavar
Gests komu heim frá
námi við Juilliard-tón-
listarskólann í New
York urðu þáttaskil í
íslenskri dægurtónlist. Þeir báru
með sér nýja, ferska strauma sem
fóru ' vel saman við nývaknaðan
jassáhuga ungra tónlistarmanna
hér á landi. Kristján stofnaði fyrsta
KK-sextettinn í samkomusal Mjólk-
urstöðvarinnar og lék hljómsveitin
í fyrsta sinn opinberlega 3. október
1947. Það hafði frést
um bæinn að mikið
stæði til og Ólafur K.
Magnússon, þá nýráð-
inn ljósmyndari Morg-
unblaðsins, fór að sjálf-
sögðu á staðinn. KK-
sextettinn hafði æft
daglega í nokkrar vikur
amerísku útsetningunum sem þeir
Kristján og Svavar höfðu haft með
sér frá Ameríku. Daglegar æfingar
STARFIÐ
ERLENDUR S. BALDURSSONAFBROTAFRÆÐINGUR
Erlendíir S. Baldursson
Fangelsin
sneisafull
„Yfirleitt eru fangar mjög við-
ræðugóðir þó þeir óneitanlega
geti verið viðkvæmir á vissum
augnablikum, t.d. þegar þeir eru
nýbúnir að fá sína dóma eða ég
þarf að synja þeim um leyfi,“
sagði Erlendur S. Baldursson,
afbrotafræðingur og deildar-
stjóri félagsmáladeildar Fangels-
isstofnunar rikisins, en sú stofn-
un tók til starfa um síðustu ára-
mót.
Yið höfum þá þumalputtareglu
að veita ekki föngum leyfi
nema þeir séu búnir að sitja inni í
_ár. Þá sækja þeir um leyfi og ef
’sá, sem fanginn ætlar að heim-
sækja, er tilbúinn til að fá hann,
er veitt tólf tíma leyfi, frá níu að
morgni til níu að kvöldi. Slíkt leyfi
er upp frá því hægt að fá á sex
mánaða fresti. Ég veit ekki til þess
að fangar hafi lent í alvarlegu broti
í leyfum sínum, hvorki fyrr né síðar.
Þó hafa menn lent í því að koma
of seint aftur og jafnvel dottið í
það,“ segir Erlendur.
Afbrotafræðingurinn, ásamt fé-
lagsfræðingi og sálfræðingi, heim-
sækir fangelsin reglulega, en Er-
lendur segir að fangelsin á landinu
séu sneisafull og gjörnýtt. Plássin
séu 104. Þar af sitja fimm fangar
undir tvítugu inni. Menn eru sak-
hæfir 15 ára, en að sögn Erlends
er sáralítið um að menn séu fangels-
aðir svo ungir enda er yfirleitt um
að ræða einstaklinga, sem eru þá
að stíga sín fyrstu skref á afbrota-
brautinni.
PETTA SÖGDU
ÞAU M . . .
Jónas Árnason
á félagsfundi
Æskulýðsfylk-
ingarinnar í
Reykjavík 14.
nóv. 1949.
Jónas ræddi um kjör æsku-
fólks í bænum og sýndi
glögglega fram á það, hvernig
yfirvöld bæjarins hafa gjörsaml.
brugðist hlutverki sínu ... Hann
brá upp mynd af sjoppum íhalds-
ins í bænum .. . þeim hræðilegu
áhrifum sem þessir staðir hafa
á æskufólkið. Hvernig það yrði
andlega sljótt af þessum áhrif-
um ... Alt fyrir sök íhaldsins.
BÓKIN
Á NÁTTBORÐINU
Síðustu dagana hef ég verið að
glugga í „Gestapo" eftir Sven
Hazel. Hún er þrælgóð. Ég hef
reyndar verið að lesa hana frá því
ég var 7 ára og finnst mér hún
alltaf jafn skemmtileg.
*
Eg er að lesa „Islandsklukkuna"
eftir Halldór Laxness. Bókina
.fann ég í bókasafninu hennar
mömmu. Þetta er í fyrsta sinn sem
ég les bók eftir Laxness og finnst
mér hún svolítið erfið á köflum.
Annars hef ég haft mest gaman
af barnabókunum hennar Iðunnar
Steinsdóttur.
MYNDIN
ÍTÆKINU
Ólafur Guð
laugsson
nemi
Eg er að horfa á spennumyndina
„Die Hard“ með Bruce Willis í
aðalhlutverki. Mér finnst mest gam-
an af spennumyndum. Ég horfi
töluvert á myndbönd, en í bíó hef
ég ekki farið í þijá mánuði.
Ingimar
Ingimars-
son 12 ára
Þessa dagana er ég að horfa á
grínmyndina„Beemeð“ Michael
Keaton í aðalhlutverki. Ég horfi
mikið á myndbönd þegar ég á pen-
ing og þá aðallega grínmyndir,
bæði breskar og bandarískar.
PLATAN
Á FÓNINUM
*
Eg hlusta svona á hitt og þetta.
Eg held að mér finnist rokktón-
Iist skemmtilegust. Michael Jackson
er einn þeirra tónlistarmanna, sem
ég held mikið upp á og á ég reynd-
ar tvær hljómplötur með honum
sem oft eru spilaðar.
Rapp- og nýbylgjutónlist er mitt
uppáhald. Eg á flestar plöt-
urnar með hljómsveitinni „Public
Enemy“ og einnig hlusta ég mikið
á hljómsveitina „Cure“.