Morgunblaðið - 03.01.1990, Síða 9

Morgunblaðið - 03.01.1990, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1990 9 IMýtt námskeið INNHVERF ÍHUGUN er huglæg þroskaaðferð, sem allir geta lært. Iðkun hennar vinnur gegn streitu og stuðlar að heilbrigði og ánægju í daglegu lífi. Nýtt námskeið hefst með kynningarfyrirlestri á morg- un, fimmtudag, á Laugavegi 18a (4. hæð) kl. 20.30. Aðgangur er ókeypis. Upplýsingar í síma 16662. Islenska íhugunarfélagið. I/ELKOMINÍ TESS TESS V NEl NEÐST VIÐ DUNHAGA, S. 622230. Yogastöðin Heilsubót auglýsir Konur og karlar athugið! Nýtt námskeið hefst 3. janúar 1990. Við bjóðum yður mjög góðar æfingar, sem slaka á stífum vöðvum, liðka liðamótin, halda líkamsþunganum í skefjum og losa huglæga spennu. Æfingarnar henta fólki á öllum aldri. Morgun-, dag- og kvöldtímar. Sértímar fyrir ófrískar konur. Nánari upplýsingar í síma 27710. 52. leikvika - 30.desember 1989 Vinningsrööin: 111-211-X2X-1X1 HVERVANN? 941.365- kr. 2 voru með 12 rétta - og fær hver: 329.478- kr. á röð 17 voru með 11 rétta - og fær hver: 16.612- kr. á röð Nýr hópleikur! LUKKULÍNUNNI S. 991002 Námskeið Siálfsþekking - Sjálfsöryggi Á námskeiöinu kynnast þátttakendur: • Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum • Hvernig má greina og skilja samskipti • Hvernig ráða má við gagnrýni • Hvernig finna má lausnir í árekstrum fHvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi Leiöbeinendur eru sálfræöingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. mmm'") Innritun og nánari upplýsingar ■■■■ í símum Sálfræðistöðvarinnar: ! MSf ■S-i 62 30 75 og 21110 kl. 11-12. !■■■ Af sjónarhóli áramóta Staksteinar glugga lítillega í forystugreinar DV, Þjóðviljans, Tímans og Alþýðublaðsins við upphaf nýs árs. Þar er horft um öxl og fram á veg, eins og vera ber á slíkum tíma- mótum. Frelsið og kreppan Dagblaðið Vísir segfir: „Dlu heilli höfum við lent í kreppu, og spár fyrir næsta ár benda ekki til, að við komust þá út úr kreppunni. Við verð- um að bíða lengur. Árið sem er að líða, hefur hér einkennzt, af basli, gjald- þrotum og aimarri óár- ani Svo mun einnig verða um næsta ár . . DV segir á liiim bóg- inn: „Þar [í umheiminum] hefúr velmegun vaxið, þótt íjölmargir búi sem fyrr við sult og seyru. En við höfúm á yfírstand- andi ári [1989] séð merki- lega og mjög hagstæða framvindu mála, einkum í Austur-Evrópu. Nú munu mörg hundruð mil[jónir geta um frjálst höfúð strokið, sem þær hafa ekki getað siðan fyr- ir seinni lieimsstyijöld- ina. Nú fagna memi því, að árið 1989 heftir fært okkur auknar friðarvon- ir. Auk þess er bjart yfír efiiahagsmáluin í heimin- um yfirleitt . . .“ Hrun komm- únismans Foi-ystugrein Þjóðvi[j- ans segir: „Það ár sem nú er senn liðið er niikið byltingaár. Þjóðir Austur-Evrópu héldu upp á tvö hundruð ára afmæli frönsku bylt- ingarinnar með eftir- minnilegum hætti. Valds- einokun kommúnista- flokkanna hrundi í hveiju landinu af öðru, og þeir atburðir, sem urðu með skjótari hætti en nokkuru vai’ði, gerð- ust friðsainlega og án blóðsúthelfinga nema i Rúmeníu." Þá segir blaðið: „Verkefrii íslendinga á liðnu árí voru náttúriega öllu hvunndagslegri. Við héldum áfram að bregð- ast við ástandi sem kreppti að okkur og átti rætur að rekja til mikill- ar óráðsiu í efnahagsmál- um í góðæri því sem næstliðin [svo?[ ríkis- sfjórn spilaði illa úr. Sem og til þcss að við höfúm blátt áfram gengið of hart að fiskimiðum okk- ar. Ýmislegt hefúr vel tekist eða sæmilega í björgunaraðgerðum, annað er emi undir spumingarmerlq- um . . .“ Evrópuárið 1989 Timiim segir: „Allt bendir til þess að árið 1989 komist á spjöld sögunnar sem tímamóta- ár í sögu Evrópu. Sfjórn- málaviðburðir síðustu mánuða lciða í [jós að skýr kaflaskil hafa orðið í þróun alþýðulýðvelda í Mið- og Austur-Evrópu og það svo að stjórnkerfí þeirra er í rauninni hrun- ið. Einsflokkskerfi kommúnismans hefur þegar verið aínumið í Póllandi, Ungveijalandi, Tékkóslóvakiu og Aust- ur-Þýzkalandi og sýnist vera á fórum í Búlg- aríu . . .“ Og um innanlandsmál- in: „Efiiahagssamdráttur síðustu ára hefúr sett svip sinn á þetta ár og sýnt er að enn þarf nokk- um tíma til þess að sigr- ast á fjárhags- og at- vinnuerfiðleikum sem samdrátturiim liefúr í for með sér. En þessa árs má miimast fyrir það að opinberar efnahagsráð- stafanir hafa brorið þann ávöxt sem að var stefút að endurcisa fjárhag og rekstrargmndvöll út- fiutmngsframleiðslunn- ar. í því efiii hefúr þó engu endanlegu marki verið náð . . .“ Frelsisár Alþýðublaðið segir: „Árið 1989 mun varð- veitast í sögu mannkyns sem frelsisár, í líkingu við árin 19X8 og 1945 þegar fyrri og siðari heimsstyijöldunum lauk. Árið 1989 er árið þegar kalda stríðinu lauk og Austur-Evrópa leystist undan áþján hins stalíníska kommúnisma. Árið sem Berlínarmúrinn hmndi og nýjar vonir og framtíðarhorfúr blöstu við. Árið 1989 var ár hraðra atburða og óvæntra, þegar pólitísk heimsveldi hmndu til gmnna á örfáum vikum." Alþýðublaðið horfir og í heimarann: „Alþýðu- fiokkurinn hefur komið veigamiklum málum í liöfii og ráðherrar fiokksins eiga miklar þakkir skilið fyrir fóm- fúst og heilaríkt starf í ríkisstjórnum landsins frá 1987,“ segir þar. Síðan kemur rúsínau í pylsuendanum: „Enn er þó langt í land til að tryggja megi jafiiari hag- vöxt og skapa stöðugra jafiivægi í efiia- hagslífi . . .“ Slaufur efa- semda Öll íslenzk dagblöð fagna framvindunni í Austur-Evrópu. Sfjórn- armálgögnin reyna jafii- framt að tíunda sitt lítið af hveiju jákvætt lyá íslenzku rikissfjómimú. Það vekur á hinn bógiim athygli að á pólitíska ára- mótapakka þeirra em hnýttar siaufur efasemda og afsakana. Alþýðublað- ið: „Enn er þó langt í land til að tryggja megi jafiiari hagvöxt og skapa stöðugra jafnvægi í efiia- hagslífi." Tíminn um efnahags- og atvimiumál- in: „í því efiii hefúr þó engu endanlegu marki verið náð.“ Þjóðviljinn: „Ýmislegt hefúr vel tekizt," segir blaðið, en dregur síðan í land með orðunum „eða sæmi- lega“, - og enn frekar með orðunuin „aimað er emi undir spumingar- merkjum". Oft hefur ver- ið fastar að orði kveðið þar á bæ! Við óskum viðskiptavinum okkar farsældar á nýja árinu Um áramótin samfinuönst verðbréfamarkaöir Iönaðarbankans, Alþýöubankans og Utvegsbank- ans og urðn Veröbrélámarkáöur Islandsbanka hl’. Nýja fyrirtækið veröur í’yrst um sinn til húsa í Armtila 7 en einnig verður opin afgreiðsla að Síðumúla 23 út janúar. Hjá Verðbréfamarkaði íslandsbanka eru lil sölu Sjóðsbréf 1,2,3 og 4, Vaxtarbréf og Valbréf ásamt öðrum verðbréfum. Verið velkomin í VÍB. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.