Morgunblaðið - 03.01.1990, Síða 13
MORGUlýBLAÐIÐ MIÐVlkuDÁGÚR '3. JANt'AR 1990
iá
Lífsspegill afreksmanns
eftirHelga
Þorláksson
í Lífsspegli, minningabók Ingólfs
Guðbrandssonar, verðum við margs
vísari, eigi aðeins um fjölþætt störf
hans, áhugamál og aflcöst, heldur
skynjum við þar hjartslætti úr sögu
okkar á þessari öld, þar sem þjóð-
inni opnast undraheimar æðstu tón-
listar sem og fegurð og furður fjar-
lægustu landa. Á síðasta aldar-
þriðjungi hefur Ingólfur öllum öðr-
um fremur veitt okkur sýn til æðri
listheima og jarðneskrar fegurðar,
sem aðeins fáir nutu áður nema af
bókum eða afspurn. •
Lífsspegill er hvorki ævisaga
Ingólfs né starfssaga fósturbarna
hans, Pólýfónkórs og Útsýnar, en
frásögn hans er þó af þessu öllu,
rituð á þróttmiklu og vönduðu máli,
sem honum er tamt og mætti til
vitna víða. Fegurð og hlýja eru
lífsförunautar og leiðtogar hans,
allt frá bernskuárum í móðurfaðmi
við ilm og unað skaftfellskrar nátt-
úru, í minningum hans um kennara
og leiðbeinendur frá bernsku til
fullorðinsára, í listaverkum og list-
sköpun, í furðuheimum fjarlægustu
landa. Fegurð kvenna er Ingólfi
gleðigjafi og ástin ríkur þáttur í
lífsnautninni. Bamalán hans er
mikið, enda feta þau mörg í fótspor
föðurins. í öllu lífi og list skynjar
Ingólfur unað ómælis og almættis,
sjálfan guðdóminn. Með beinum og
óbeinum hætti tjáir hann þessa
skynjun sína með bók sinni, í
bundnu máli sem óbundnu. Við
þekkjum líka úr tónleikasal með
Pólýfónkórnum þögula, andartaks
„Ingólfi Guðbrandssyni
hefur tekist, mörgum
fremur, að láta fagra
æskudrauma rætast
þrátt fyrir ótal erfið-
leika og vonbrigði. Af-
kastamikið og tilfinn-
ingaríkt skapmenni
eignast ýmsa öfundar-
menn, en Ingólfur á sér
ótal aðdáendur og þjóð-
in á honum mikið að
þakka.“
bænarstund Ingólfs áður en tón-
sprotanum er lyft. Sú tilbeiðsla veit-
Helgi Þorláksson
ir honum styrk og kór og áheyrend-
um samstillingu.
Ingólfi Guðbrandssyni hefur tek-
ist, mörgum fremur, að láta fagra
æskudrauma rætast þrátt fyrir ótal
erfiðleika og vonbrigði. Afkastam-
ikið og tilfinningaríkt skapmenni
eignast ýmsa öfundarmenn, en Ing-
ólfur á sér ótal aðdáendur og þjóð-
in á honum mikið að þakka. Nem-
endur hans, allt frá börnum á skóla-
bekk tii kórfélaga, áheyrenda og
ferðafélaga, hafa þúsundum saman
notið leiðsagnar hans á liðnum ára-
tugum.
Lífsspegill á erindi við marga,
unga sem aldna. Það er saga af
atorku, eldmóði, gleði og vonbrigð-
um landa okkar, sem átti sér djarfa
æskudrauma en lét engar torfærur
hindra sig í sigurgöngu til páfa-
garðs og mikiila afreksverka.
Pólýfónfélagar, ferðalangar Út-
sýnar og við hin eigum Ingólfi
Guðbrandssyni þökk að gjalda og
rifjum upp margar ljúfar minningar
er við gluggum í Lífsspegil hans.
Höíundur er fyrrverandi
skólastjóri.
-------- j^j -----
É
SKEXFAM
FASTEIGNAMIÐLUN • SKEIFUNNI 19 • 685556
SKÝR SVÖR - SKJÓT ÞJÓNUSTA
Einbýli og raðhús
STÓRITEIGUR - MOSB.
Fallegt raðhús á tveimur hæðum 145 fm
ásamt bílsk. 4 svefnherb. Gott hús.
LYIMGBERG - HAFN.
Fallegt nýtt einb. á einni hæð 142 fm með
innb. bílsk. Góður staður. Frág. og snyrtil.
eign. Ákv. sala. Verð 12,2 millj.
DALSBYGGÐ - GBÆ
Höfum ! einkasölu glæsil. einbhús á tveimur
pöllum ásamt kj. 212,2 fm nettó. Fallegar
sérsmíöaðar innr. Tvöf. bílsk. Hiti í bila-
plani. Stór og falleg lóð. Verð 15,2 millj.
ÁLFTANES
Fallegt einbhús á einni hæð ásamt 80 fm
bílsk. á fráb. stað v/Bessastaðatjörn. Hálfur
hektari lands fylgir. Fráb. útsýni. Ákv. sala.
Laust strax.
BRATTHOLT - MOSBÆ
Fallegt parh. sem er kj. og hæð ca 160 fm.
Vandaðar innr. Góður staður. Falleg ræktuð
lóö. Verð 8,5 nriillj.
BUGÐUTANGI- MOSBÆ
Glæsil. einbhús á tveimur hæðum 274 fm
nettó ásamt ca 100 fm óinnr. rými. Glæsil.,
sérsmíöaðar innr. Góður bílsk. Fráb. útsýni.
Ákv. sala. Verð 14,0 millj.
NÖNNUSTÍGUR - HAFN.
Snoturt einb. (timburh.) á tveimur hæðum
144 fm nettó. Góður staður. Ákv. sala.
Bílskréttur. Verð 6,7 millj.
DALATANGI - MOS.
Fallegt raðh. á tveim hæðum. Ca 150 fm.
Innb. bílsk. Falleg ræktuð lóð. Ákv. sala.
Góö eign. Verð 8,7 millj.
SELTJNES - RAÐHÚS
Vorum að fá í einkasölu stórgl. ca 200 fm
raðhús á tveimur hæðum á einum besta
stað á norðanveröu Nesinu. 30 fm ný sól-
stofa. Stórgl. útsýni. Verð 12,7 millj.
4ra-5 herb. og hæðir
FURUGRUND
Mjög falleg 5 herb. íb. ca 120 fm á 3. hæð
(efstu) ásamt aukaherb. I kj. Suöursv. Ákv.
sala. Laus fljótt. Verð 7,5 millj.
ÁSTÚN
Falleg 4ra herb. íb. á 1. hæð ca 100 fm.
Ákv. sala.
FROSTAFOLD
Góð 4ra herb. íb. á 2. hæð ásamt bílsk.
Suðursv. Þvottah. og geymsla í íb. Ákv.
sala. Verð 7,3 millj.
ORRAHÓLAR - BÍLSK.
Falleg 5 herb. íb. á 2. hæð í lítilli blokk ásamt
bílsk. 4 svefnherb. Ákv. sala. Verð 7,7-7,8 millj.
STELKSHÓLAR - BÍLSK.
Éalleg íb. á 1. hæð 93 fm nettó ásamt bílsk.
Suövestursv. Fallegt útsýni. Ákv. sala. Verð
6,8 millj.
SKÓGARÁS
Falleg 6 herb. íb. hæð og ris 140 fm ásamt
bílsk. Frábært útsýni yfir borgina. Ákv. sala.
Verö 8,5 millj.
KJARRHÓLMI
Falleg íb. á 4. hæð 90 fm nettó. Suöursv.
Þvhús í íb. Fallegt útsýni. Verð 5,8 millj.
VESTURBERG
ORRAHÓLAR
Glæsil. 5 herb. 123 fm nettó íb. sem er hæð
og kj. á 1. hæð í lyftubl. Stórar suðursv. Park-
et. Góðar innr. Húsvörður. Verð 7,3 millj.
SNORRABRAUT
Falleg 117 fm efri sérh. ásamt 50 fm
geymslurisi sem mögul. er að nýta sem
íbrými.
3ja herb.
HLÍÐARVEGUR - KÓP.
Mjög falleg íb. á 1. hæð í fjórb. ca 85 fm.
Fallegar innr. Suðursv. Parket. Verð 5,6
millj.
BARÐAVOGUR
Mjög falleg 3ja herb. íb. á jarðhæð í þríb.
80 fm nettó. Nýtt eldhús. Sérinng.
LEIRUTANGI - MOSBÆ
Falleg íb. á jarðh. í fjórb. 96 fm. Sér suður-
og vesturlóð. Snyrtil. og falleg íb. Allt sér.
Ákv. sala. Áhv. gott lán frá húsnstj. Sérbíla-
stæði. Verð 5,7 millj.
HOFTEIGUR
Mjög falleg og mikið endurn. íb. í kj. í þríb.
78 fm nettó. Snyrtil. innr. Nýtt gler. Verð
4,8 millj.
RAUÐALÆKUR
Góð 3ja-4ra herb. ib. i fjórb. í kj. 85 fm.
Sérhiti. Sérinng. Sérbilast. Fráb. staður.
Ákv. sala. Laus fljótl. Verð 4,7 millj.
2ja herb.
AUSTURBRÚN
Falleg 2ja-3ja herb. íb. á jarðh. lítið niðurgr.
83 fm nettó. Snyrtil. íb. á fráb. stað. Ákv.
sala.
VÍKURÁS
Falleg ib. á 2. hæð 60 fm nettó. Parket.
Fullb. og falleg íb. Ákv. sala. Áhv. gott lán
frá húsnstj.
KLEPPSHOLT
Mjög falleg 2ja-3ja herb. íb. á jarðhæð.
Nýjar, fallegar innr. Nýir gluggar. Laus strax.
Ákv. sala.
HRAUNBÆR
Falleg íb. á 4. hæð (efstu) 54 fm nettó.
Suðursv. Góðar innr. Nýtt bað. Áhv. gott lán
frá húsnæðisstj. 2 millj. Ákv. sala. Getur
losnað strax. Verð 4,3 millj.
LAUGARNESVEGUR
Falleg íb. í risi í þríbhúsi. Geymsluris yfir íb.
Ákv. sala. Laus strax. Verð 3,2-3,4 millj.
KRUMMAHÓLAR
Falleg íb. á 2. hæð 56 fm nettó í lyftubl.
Þvhús á hæöinni. Snyrtil. íb. Áhv. gott lán
frá húsnæðisstj. Verð 4,2-4,3 millj.
NJÁLSGATA
Snotur 2ja-3ja herb. íb. á 1. hæð í þríb.
Sérinng. Ákv. sala. getur losnað fljótl. Verð
3,3-3,4 millj.
HVASSALEITI
Falleg 2ja herb. íb. i kj. ca 44 fm. Verð
3,5-3,6 millj.
HRÍSATEIGUR
Falleg íb. í kj. 44 fm nettó. Mikið endurn. íb.
Laus í jan. Verð 3,2 millj. Útb. aðeins 50%.
Vantar
Sérhæð eða raðhús vantar.
Höfum mjög góðan kaup-
anda að sérhæð eða raðh.
í Háaleitishverfi.
í smíðum
DALHÚS
Höfum til sölu 3 raðh. 162 fm ásamt bílsk.
Húsin afh. fullb. að utan, fokh. að innan.
Lóð grófj. Fallegt útsýni. Allar uppl. og teikn.
á skrifst.
VIÐARÁS
Falleg raðh. á einni hæð 170 fm. Skilast
fullb. að utan, fokh. að innan. Bílsk. fylgir.
Teikn. og uppl. á skrifst. Verð 6,7 millj.
GERÐHAMRAR - EINB.
Höfum í einkasölu einb. á einni hæð 170
fm ásamt 30 fm innb. bílsk. Afh. múrað að
utan m/frág. þaki, fokh. að innan. Grófj. lóð.
_ SVEIGHÚS
Fallegt einb. á einni hæð 137 fm ásamt.
góðum bílsk. Selst fullb. að utan, tilb. u.
trév. að innan. Húsið verður fokh. um ára-
mót. Teikn. á skrifst. Verð 8,7-8,8 millj.
ÞINGÁS - SELÁS
Höfum í einkasölu þetta glæsil. einbhús sem
er 175 fm ásamt sólstofu, 36 fm bílsk. og
60 fm rými í kj. 4 svefnherb. Skilast fullb.
að utan, fokh. að innan í sept.-okt. ’89.
LINDARBYGGÐ - MOS.
Fallegt parhús á einni hæð 160 fm ásamt
bílskýli. Tilb. u. trév. að innan, fullb. að ut-
an. Til afh. fljótl. Verð 7,9 millj.
HJARÐARLAND - MOS.
Höfum í einkasölu glæsil. parh. 183 fm á
tveimur hæðum ásamt bílsk. Afh. fullb. ut-
an, tilb. u. trév. innan í mars-apríl 1990.
Verð 7,8 millj.
DVERGHAMRAR - BÍLSK.
Höfum í einkasölu fokh. neðri sérhæð (jarð-
hæð) 172 fm ásamt 25 fm bílsk. íb. er í dag
fullb. að utan, fokh. að innan. Hiti kominn.
Áhv. nýtt lán húsnstjórn.
SVEIGHÚS - EINB.
Höfum til sölu einbhús 163 fm ásamt 41 fm
bílsk. Afh. tilb. að utan, fokh. að innan, gróf-
jöfnuö lóð. Teikn. og nánari uppl. á skrifst.
DALHÚS
Höfum til sölu endaraðhús 182 fm á tveim-
ur hæðum. Afh. fullb. að utan, fokh. innan,
grófjöfnuð lóð. Bílsk. Teikn. á skrifst.
GRAFARVOGUR - ÚTSÝNI
Höfum til sölu glæsilegar 2ja-5 herb. íbúðir
á einum besta stað í Keldnaholti. Bílskúrar
geta fylgt. Afh: tilb. u. trév., sameign fullfrág.
Húsið er nánast fokh. í dag og tilb. til
veðsetningar.
SÍMI:685556
rMAGNÚS HILMARSSON
EYSTEINN SIGURÐSSON
SVANUR JÓNATANSSON
JÓN MAGNÚSSON HRL.
Falleg 4ra herb. Ib. á 4. hæð (3. hæð). Fráb.
útsýnl. Mikiö áhv. Verð 5,7 millj.
Síðustu tónleikar 1989
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Síðustu tónleikar ársins 1989
voru haldnir í Hallgrímskirkju 28.
desember. Þar var á ferðinni Mót-
ettukór Hallgrimskirkju undir
stjórn Harðar Áskelssonar. Flytj-
endur auk kórsins voru einsöngvar-
arnir Ásdís Kristmundsdóttir,
Marta Halldórsdóttir, Guðrún Finn-
bjarnardóttir, Snorri Wium og
Magnús Baldvinsson, strengjasveit
undir forustu Rutar Ingólfsdóttur,
hörpuleikarinn Elísabet Waage og
orgelleikarinn Ann Toril Lindstad.
Fyrsta verkefnið var Jóiaórat-
oría op. 12, eftir Saint-Saéns. Um
Saint-Saéns er sagt að með verkum
hans hafi rómantíkin glatað fersk-
leika sínum og ástríðuþunga og
orðið innihaldslaus eftirherma.
Hvað sem því líður var Saint-Saéns
mikilhæfur tónlistarmaður, snill-
ingur á orgel og píanó, með af-
brigðum mikill málamaður, kunn-
áttumaður í bókmenntum bæði sem
skáld og fræðimaður, m.ö.o. há-
menntaður en ófrumlegur. Jólaóra-
toría hans ber þessa glögglega
merki og auk þess sem formgerð
hvers kafla er ákaflega einföld og
heildin nánast safn smálaga, þá
reynir ekki mikið á hljómsveit eða
aðra flytjendur í glímu við tónmál
verksins. Kórinn 'og hljóðfæraleik-
arar voru ágætir en f lutningur ein-
söngvara var nokkuð mikið á þeim
nótunum sem vel hæfir góðum
nemendum, sem þeir allir eru, auk
þess sem ókunnggleiki um verkið
sjálft kann að leika þarna smá hlut-
verk. Fimm einsöngvarar áttu
þarna misstóran þátt en mest
mæddi á Ásdísi Kristmundsdóttur.
Rödd Ásdísar hefur breyst nokkuð
frá því síðast heyrðist til hennar
hér heima, en hún stundar nám í
Bandaríkjunum og eru miklar von-
ir bundnar við þessa efnilegu söng-
konu.
Síðari hluti efni^skrár var safn
jólasöngva og af níu lögum átti
Willcock sex raddsetningar. Will-
cock er kirkjutónlistarmaður og
hefur m.a. starfað við Kings Coll-
ege í Cambridge. Raddsetningar
hans njóta nokkurra vinsælda, þó
um þær sé sagt að séu eins konar
yfirradda útfærslur í „sing-a-1-
ong“-stíl og færi lögin nær því að
vera dægurlög en eiginleg sálma-
lög. Þarna er um að ræða ákveðna
stefnu, sem m.a. birtist í söng
Kings College-söngvaranna, sem
hér voru fyrir stuttu og hafa í
nútímanum líka stöðu og Komidian
Harmonists höfðu á tímanum milli
heimsstyijaldanna. Hvað sem segja
má um viðhorf manna til slíkrar
tónlistarstefnu er víst að svona
útfærslur eru afskaplega leiði-
gjamar og þarf flutningurinn að
vera afburða góður og magnþrung-
inn í hljómi, svo nokkurt gaman
sé að fyrir þá sem vanir eru öðru.
Andmælendur telja að ekki sé
mögulegt að yfirfæra vinsældir
dægurlaga yfir á trúarlega tónlist,
því dansgleði og trúarleg upphafn-
ing eigi litla samleið.
Mótettukór Hallgrímskirkju er
mjög góður kór og samhljómán
radda þétt og í góðu jafnvægi.
Þrátt fyrir það mátti merkja að
kórfélagar fundu sig ekki í Will-
cock-raddsetningunum, því í þeim
þarf að „syngja út“ og gera minna
af því að dekra við viðkvæm tón-
brigði eða leika með þróttmikið
fjölradda tónmál. Þá er eitt sér-
kenni þessara útsetninga að sífellt
er verið að breyta um raddskipan,
rétt eins og ekki megi flytja sömu
útfærsluna tvisvar og þess vegna
er oft gripið til einsöngs, sem oft-
ast er varla meira en svo sem ein
tónhending.
í einu lagi, „Einu sinni í ættborg
Davíðs“, söng Marta Halldórsdóttir
með sinni undurfögru rödd allt lag-
ið án undirleiks og hefði mátt að
skaðlausu sleppa yfirraddasamsull-
inu eftir Willcock. Aðrir sem sungu
voru Snorri Wium, efnilegur tenór
sem nú stundar framhaldsnám í
Vín, Magnús Baldvinsson bassi sem
er efni í stórsöngvara og Guðrún
Finnbjarnardóttir, sem enn er við
nám hér heima og því nokkuð óráð-
ið hversu henni tekst að vinna úr
góðum hæfileikum sínum.
ÆTTFRÆÐINAMSKEIÐ
í næstu og þarnæstu viku hefjast ný ættfræðinám-
skeið hjá Ættfræðiþjónustunni, bæði fyrir byrjendur og
lengra komna. Notið tækifærið og leggið grunninn að
skemmtilegri, fræðandi tómstundaiðju. Öll undirstöðu-
atriði ættrakningar tekin fyrir. Þátttakendur fá þjálfun
og aðstöðu til ættarleitar með afnotum af alhliða heim-
ildasafni.
Leiðbeinandi er Jón Valur Jensson. Uppl. og innritun í
síma 27101 frá kl. 9.30-19.30.
Höfum mikið úrval ættfræðibóka til sölu, m.a. mann-
töl, niðjatöl, ættartölur, ábúendatöl, stéttartöl o.s.frv.
Hringið eða skrifið og fáið senda ókeypis nýútkomna
bókaskrá. _
Ættfræðiþjónustan-Ættfræðiútgáfan,
Sólvallagötu 32A, pósthólf 1014,121 Rvík, sími 27101.