Morgunblaðið - 03.01.1990, Page 34
Mesti bruni sem slökkviliðið hefiir fengist við í 20 ár:
Fasteignir, vélar og tæki tryggð fyrir um 900 milljónir króna
Hundraðamilljóna tjón í
stórbruna í Krossanesi
MÖRG hundruð milljóna tjón varð
er Krossanesverksmiðjan við Ak-
ureyri varð eldi að bráð á gamlárs-
dag. Tilkynnt var um eldinn til
slökkviliðs rétt fyrir kl. hálf fimm
að morgni gamlársdags og er að
var komið má segja að logað hafí
um glugga og göng, en eldur var
þá laus um svo til alla verksmiðj-
una. Menn frá tryggingarfélögum
skoðuðu aðstæður í gær, en enn
hefur ekki endanlega verið metið
hversu mikið tjónið er þó ljóst sé
að það er gífurlegt. Eldsvoðinn í
Krossanesi er einn sá allra mesti
sem slökkviliðið á Akureyri hefur
fengist við í um 20 ár, eða frá því
að bruni varð í verksmiðjum Sam-
bandsins á Gleráreyrum fyrir tutt-
ugu árum. Um tveimur klukku-
stundum áður en tilkynnt var um
eldinn hafði eftirlitsmaður frá
Securitas komið að verksmiðjunni
án þess að verða var við neitt
óvenjulegt. Verksmiðjan var
tryggð hjá þremur tryggingafé-
lögum og nema tryggingar á fas-
teignum, vélum og tækjum um 900
milljónum króna. Slökkviliðsstjóri
segir að eldvöraum hafi verið
ábótavant hjá verksmiðjunni. Eng-
inn var í verksmiðjunni er eldur-
inn kom upp.
Tómas Búi Böðvarsson slökkviliðs-
stjóri sagði að er slökkvilið kom á
vettvang um kl. hálf fimm að morgni
gamlársdags hefði verksmiðjuhúsið
staðið í ljósum logum og einnig hefði
logað í 26 metra háum tumi við
húsið. Beinageymsla áföst verk-
smiðjunni var þá þegar brunnin og
eldur þar slokknaður. Allt tiltækt lið
slökkviliðsins var kallað á vettvang,
um 28 manns auk þess sem starfs-
menn Krossaness tóku einnig þátt í
slökkvistarfinu. „Eldur logaði um
allt þak verksmiðjunnar og færði sig
niður veggi hennar, án þess að við
fengjum rönd við reist,“ sagði Tómas
um aðkomuna á staðinn. Hann sagði
að slökkvilið hefði ekki ráðið við eld-
inn og beindist því slökkvistarfið að
því að vetja mjölskemmu norðan
sjálfrar verksmiðjunnar. Þá sagði
Tómas að reynt hefði verið að veija
suðaustur hluta hússins, en þar eru
skrifstofur, aðstaða starfsmanna og
stjómstöð.
Sjaldan lent í jafii
vonlausum aðstæðum
A síðustu þremur ámm hafa mikl-
ar og kostnaðarsamar endurbætur
farið fram á Krossanesverksmiðjunni
og hefur nýtt hús verið byggt utan
um hið gamla. Gamla húsið, sem er
að stórum hluta úr timbri, stendur
að hluta til enn inni í nýja húsinu.
Tómas sagði að slökkvistarfið hefði
verið erfitt viðureignar og hættulegt
Verksmiðjuhúsin voru illa leikin eftir brunann.
fyrir menn að vera inni í verksmiðj-
unni þar sem þakplötur hefðu fallið
niður í miklum mæli. „Aðstæður all-
ar voru mjög erfiðar, við höfðum
enga möguleika á að opna þakið og
létta þannig á hita og reyk. Til þess
hefðum við þurft körfubíl sem við
því miður höfum ekki yfir að ráða.
Ég hef sjaldan lent í aðstæðum þar
sem jafn vonlaust var að ráða við
eldinn og þama, umfangið var svo
mikið,“ sagði Tómas. Tum verk-
smiðjunnar er um 26 metra hár, en
sjálft verksmiðjuhúsið er um 12
metrar að hæð. Stigar slökkviliðsins
náðu í um 8-9 metra hæð.
Slökkviliði tókst þó smám saman
að komast inn í verksmiðjuhúsið og
var farið inn á tveimur stöðum, að
austanverðu og einnig að sunnan,
en undir morgun var ráðist inn í
kyndiklefann þar sem var mikill eld-
ur. Turninn brann hægt og rólega
niður þar til eldurinn var kominn í
þá hæð sem slökkviliðið réð við, en
fenginn hafði verið að láni vörubíll
með pallkrana til áðstoðar. Slökkvi-
starfi var að fullu lokið um kl. 15 á
gamlársdag.
Eldvömum í Krossanesi var nokk-
uð ábótavant, að sögn Tómasar.
Hann sagði að mjög mikið vantaði
upp á að verksmiðjuhúsið væri kom-
ið í endanlegt horf og væri það hluti
Morgunblaðið/TLV
af skýringunni, en húsið er enn i
byggingu. „Við vissum að húsið yrði
í notkun jafnframt því sem það væri
í byggingu, en við höfum ekki kraf-
ist þess að starfseminni yrði hætt.
En hins vegar virðist sem eldvarnir
hafi ekki haft þann forgang sem við
hefðum talið eðlilegast og til dæmis
var ekki búið að setja þarna upp við-
vörunarkerfi," sagði Tómas.
Fasteignir, vélar og tæki
tryggð fyrir um 900
milljónir
Sigfús Jónsson, bæjarstjóri og for-
maður stjórnar Krossaness, sagði að
Níu verkamenn missa atvinnu sína eftir brunann:
Skoðum möguleika á að verk-
smiðjan komist í gang á vertíðinni
- segir Geir Zoega framkvæmdastj óri
STJÓRN Krossanesverksmiðj-
unnar kemur saman til fundar á
föstudag þar sem rætt verður um
stöðu mála eftir eldsvoðann í
verksmiðjunni á gamlársdag.
Ekki er útilokað að takist að koma
verksmiðjunni í gang á þessari
vertíð, en ákvörðun hefur ekki
verið tekin um hvort stefha skuli
aðþví. Níu verkamenn missa vinn-
una í kjölfar þess að verksmiðjan
brann.
Geir Zoéga framkvæmdastjóri
Rannsóknarlögreglan:
Innbrotaalda um áramót
ÁRAMÓTIN voru annasöm hjá rannsóknarlögreglunni á Akureyri.
Aðfaranótt gamlársdags voru framin 13 innbrot í bænum og búið
var að tilkynna 3 til viðbótar til lögreglunnar í gærmorgun, eða
samtals 16 innbrot yfir helgina.
Lörgeglan handtók mann um
tvítugt að morgni nýársdags grun-
aðan um að aðild að innbrotunum.
Ekki hafðist mikið upp úr inn-
brotunum þó víða væri farið, en
einhveiju var stolið á hveijum stað,
auk þess sem unnar voru talsverð-
ar skemmdir við innbrotin.
Þá voru tveir menn staðnir að
verki við innbrot í Sundlaug Akur-
eyrar á nýársnótt og höfðu þeir
náð smávegis af peningum, en
ekki unnið teljandi skemmdir. Á
nýársnótt voru einnig brotnar 3
rúður í miðbænum.
Á milli jóla og nýárs var brotist
inn í verslunina Bókval og þaðan
stolið peningum, tölvuleikjum og
fleiru, en það innbrot er upplýst
og sá er það játaði á sig, játaði
ennfremur ,.að hafa brotist inn í
verslunina Amaró um jólin og í
Dynheima fyrir nokkru.
Krossaness sagði að í gær hefði
verið unnið að því að koma raf-
magni á húsið og einnig hita til að
veija það frostskemmdum. Alls unnu
þrettán verkamenn úr Verkalýðs-
félaginu Einingu við verksmiðjuna í
gær, en í dag verða þeir fjórir, þann-
ig að níu verkamenn missa atvinnu
sína eftir brunann í verksmiðjunni.
Starfsmönnum Krossaness var
sagt upp störfum um jólin í kjölfar
hráefnisskorts, en jafnframt var þess
farið á leit við menn að þeir störfuðu
hjá verksmiðjunni út vertíðina. Nú
er ljóst að loðna verður ekki brædd
hjá verksmiðjunni á næstunni þann-
ig að verkamenn fá þar ekki at-
vinnu. Samkvæmt 3. grein laga
númer 19 frá 1979 um heimsendingu
verkafólks vegna hráefnisleysis seg-
• ir að falli niður vinna hjá atvinnurek-
enda vegna þess að hráefni er ekki
fyrir hendi hjá fiskiðjuveri, upp- og
útskipunarvinna er ekki fyrir hendi
hjá skipaafgreiðslu, fyrirtæki verði
fyrir ófyrirsjáanlegu áfalli svo sem
vegna bruna eða skipstapa og verði
atvinnurekenda þá ekki gert að
greiða bætur til launþega sinna þó
að vinna þeirra nemi eigi 130
klukkustunda á mánuði, enda missa
launþegar þá ekki uppsagnarétt sinn
meðan slíkt ástand varir.
„Við munum ekki láta þennan
bruna bijóta okkur niður, við ætlum
að halda áfram að bræða mjöl og
lýsi. Við munum skoða hvaða mögu-
leika við höfum á að koma starfsem-
inni í gang á þessari vertíð, spurn-
ingin er hvort hægt er að koma upp
einhverri bráðabirgðaaðstöðu, en
það hefur verið gert áður. Við mun-
um skoða alla möguleika í því sam-
bandi,“ sagði Geir.
Morgunblaðið/Geir Hólmarsson
Slökkviliðsmenn við störf við
Krossanesverksmiðjuna að
morgni gamlársdags.
verksmiðjan hefði verið mjög vel
tryggð. Brunatryggingar eru hjá
Vátryggingarfélagi Islands, vélar og
tæki hjá Tryggingamiðstöðinni og
Sjóvá Almennum og þá var rekstrar-
stöðvunartrygging hjá Sjóvá Al-
mennum. Sigfús sagði að tryggingar
verksmiðjunnar væru í eins góðu lagi
og unnt væri. Hann sagði að boltinn
væri hjá tryggingarfélögunum varð-
andi uppbyggingu verksmiðjunnar,
þ.e. hvort bærinn myndi annast upp-
bygginguna og hvernig staðið yrði
að hreinsun og öðru, en starfsmenn
yrðu ekki að störfum við verksmiðj-
una fyrr en endanlegar ákvarðanir
hefðu verið teknar þar um.
Brunabótamat fasteigna Krossa-
nesverksmiðjunnar var endurmetið
fyrir nokkrum vikum, en fasteignir,
vélar og tæki eru tryggð fyrir um
900 milljónir króna, fasteignir fyrir
um 250 milljónir og vélar og tæki
um 650 milljónir. Skoðunarmenn frá
tryggingarfélögunum skoðuðu að-
stæður í gær. Geir Zoéga fram-
kvæmdastjóri Krossaness sagði að
kappkostað hefði verið að tryggja
eignir verksmiðjunnar ævinlega í
samræmi við þann kostnað sem lagt
hefði verið í. Menn frá tryggingarfé-
lögunum skoðuðu aðstæður í Krossa-
nesi í gær, en heildartjón hefur ekki
verið metið. Ljóst er þó að tjónið
nemur einhveijum hundruðum millj-
óna, að sögn Geirs, en hluti véla og
tækja slapp, auk. þess sem verk-
smiðjuhúsið er ekki talið algerlega
ónýtt.
■Daníel Snorrason hjá rannsóknar-
lögreglunni á Akureyri sagði að elds-
upptök væru enn ókunn. Athygli
manna beindist einkum að olíubrenn-
ara sem staðsettur er í miðju verk-
smiðjuhúsinu, en hann væri alltaf í
gangi þó svo engin væri í húsinu.
Daníel sagði að rannsókn á upptök-
um eldsins væri ekki lokið, en allir
möguleikar væru skoðaðir.
ístess hf.:
Vantar gufuketil í kjöl-
far Krossanesbrunans
FORRÁÐAMENN ístess hf. könnuðu framboð gufúkatla í gær, en
fóðurverksmiðjan liefúr fengið gufú til framleiðslunnar hjá Krossa-
nesi. Ótti manna við skemmdir á vörum ístess eftir brunann í Krossa-
nesi var ástæðulaus, en þær sluppu við allar skemmdir.
Verksmiðja ístess hf. er til húsa
skammt norðan við Krossanesverk-
smiðjuna og hafa þeir ístessmenn
fengið gufu frá Krossanesi til fram-
leiðslu fiskafóðurs. Guðmundur
Stefánsson framkvæmdastjóri íst-
ess sagði að annað hvort yrði gufu-
ketill fenginn að láni eða hann
keyptur og hefði markaðurinn verið
kannaður í gær og ljóst að nægir
slíkir katlar eru fyrir hendi í landinu.
„Við erum ágætlega bjartsýnir á
að þetta leysist farsællega og verk-
smiðjan verði komin í gang næsta
mánudag," sagði Guðmundur. Þá
sagði hann að sá ótti manna að
framleiðsluvörur fyrirtækisins hefðu
orðið fyrir skemmdum í kjölfar
Krossanessbrunans væri ástæðu-
laust, birgðir hefðu verið skoðaðar
í gær og væru þær í góðu lagi.
ístess hefur keypt mjöl frá
Krossanesi til framleiðslunnar og
hvað þau mál varðar sagði Guð-
mundur að hráefni yrði nú alfarið
keypt annars staðar frá þar til verk-
smiðjan færi í gang aftur. Hráefnis-
stöðuna sagði hann í þokkalegu lagi
um þessar mundir.