Morgunblaðið - 03.01.1990, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR
3. JANUAR 1990
59*
FRJALSAR / GAMLARSHLAUP IR
Jóhann
fyrstur
ámark
JÓHANN Ingibergsson hlaup-
ari úr FH varð fyrstur á mark
í Gamlárshlaupi ÍR, sem fram
fór sl. gamlársdag. Var hlaupið
háð 14. árið í röð og var met-
þátttaka þar sem 86 luku
hlaupinu en þeir höfðu flestir
verið 57 áður. Fyrst kvenna á
mark varð Martha Ernstdóttir
ÍR.
Eg er í góðri æfingu og fann
mig vel, hef æft vel undanfarna
mánuði í Gautaborg. Kom heim í
jólafrí og held aftur út strax eftir
áramót. Það er mikill munur að
æfa ytra. Þar hefur verið logn og
gott hlaupaveður í allaíi vetur. Þá
er frábært að æfa inni í skógum
þar sem er að finna sérstakar upp-
lýstar skokkbrautir,“ sagði Jóhann
í samtali við Morgunblaðið. Jóhann
hélt til Svíþjóðar sl. haust þar sem
hann stundar æfingar og vinnu en
hann er trésmiður. A sama stað er
Már Hermannsson, hlaupari úr
Keflavík, og hafa þeir æft mikið
saman ytra.
Annar í Gamlárshlaupinu varð
Bragi Sigurðsson úr Ármanni en
hann er sömuieiðis staddur heima
í jólafríi. Stundar hann nám í
Bandaríkjunum. Bragi veitti Jó-
hanni keppni framan af en þegar
hlaupið var hálfnað tók Jóhann for-
ystu sem hann lét ekki af hendi
eftir það. Greinilegt var að þeir
Jóhann og Bragi eru í góðri æf-
ingu. Þriðji á mark varð Daníel S.
Guðmundsson USAH.
Jóhann Ingibergsson.
KNATTSPYRNA / BRETLAND
Draumamark Guðmundar
ÞorvaldurÖrlygsson og Guðni Bergsson fyrstu íslend-
ingarnir sem mætst hafa í ensku knattspyrnunni
GUÐMUNDUR Torfason var í
sviðsljósinu í leik St. Mirren
og Hearts í skosku úrvalsdeild-
inni á laugardag. Hann tók við
verðlaunum fyrir leik sem leik-
maður mánaðarins, tryggði liði
sínu 2:0 sigur með drauma-
marki beint úr aukaspyrnu og
var valinn maður leiksins.
Guðmundur, sem var bókaður I
leiknum, skoraði úr auka-
spyrnu rétt utan vítateigs, er fimm
mínútur voru til leiksloka. Hann var
á ferðinni allan
tímann, vann vel
fyrir liðið og kórón-
aði leik sinn með
þessu glæsilega
Frá Bob
Hennessy
í Englandi
KORFUKNATTLEIKUR
leikmaður mótsins
Danir unnu íslendinga með eins stigs mun
Guðjón Skúlason var stiga-
hæsti leikmaðurinn á fjög-
urra liða körfuboltamótinu í Dan-
mörku sem lauk á laugardaginn.
Hann skoraði samtals 83 stig í
þremur leikjum. Pétur Guðmunds-
son varð næst stigahæstur með
82 stig.
íslendingar léku gegn Dönum
í síðast^ leik mótsins á laugardag
og töpuðu með eins stigs mun,
76:75, eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 37:27 fyrir Dani. ís-
lenska liðið lék illa í fyrri hálfleik
og náði sér ekki á strik fyrr en á
síðustu mínútum leiksins og gerði
reyndar tíu síðustu stig leiksins,
þar af gerði Guðjón Skúlason níu
þeirra.
Stig íslands gerðu: Guðjón
Skúlason 25, Pétur Guðmundsson
24, Páll Kolbeinssson 11, Svali
Björgvinsson 6, Nökkvi Jónsson
5, Birgir Mikaelsson 2 og ívar
Ásgrimsson 2.
Island hafnaði í 2. sæti í mót-
inu. Eistlendingar sigruðu í mót-
inu, unnu alla sína leiki. Banda-
ríska úrvalsliðið varð í 3. sæti og
Danir ráku lestina.
SKIÐI / LANDSLIÐIÐ
Örnólfur á verð-
launapall í Finnlandi
ÖRNÓLFUR Valdimarsson
hafnaði í þriðja sæti í svigi á
stigamóti íRovaniemi iFinn-
landi á laugardag. Hann keppti
einnig á sunnudag og varð þá
í 5. sæti. Hinn ungi og efnilegi
Ólafsfirðingur, Kristinn Björns-
son, stóð sig einnig vel og hef-
ur sýnt miklar framfarir.
Ornólfur var 1,14 sekúndum á
eftir Finnanum, Janne Leskin-
en, sem sigraði í sviginu á laugar-
daginn og hlaut fyrir það 58,80
stig. Hinn 17 ára gamli Kristinn
Björnsson frá Ólafsfirði varð í 8.
sæti, 1,02 sek á eftir Örnólfi. Hauk-
ur Arnórsson hafnaði í 23. sæti 6
sek á eftir Kristni.
íslensku strákarnir tóku þátt í
svigkeppni á sama stað á gamlárs-
dag. Þar hafnaði Örnólfur í 5. sæti,
Kristinn í 14. sæti og Arnór í 23.
sæti.
Örnólfur var þá 1,12 sek á eftir
Finnanum Leskinen sem sigraði og
hlaut fyrir það 56,79 fis-stig sem
er hans besti árangur.
Kristinn bætti sig einnig mjög
mikið, hlaut 73,03 stig en hann
átti áður best um 90 fis-stig. Krist-
inn hefur sýnt miklar framfarir upp
á síðkastið.
fpRÍhWR
FOLK
■ KARI Elíson, lyftingamaður á
Akureyri, setti 170. Islandsmet
sitt á gamlársdag. Þá fór fram
Akureyrarmót í bekkpressu og lyfti
Kári 180 kg. Bætti met Ólafs Sig-
urgeirssonar frá 1983, en það var
173 kg. Kári tvíbætti reyndar met-
ið; lyfti fyrst 175,5 kg og síðan
180. Hann keppti nú í 82,5 kg fl.
en venjulega í 67,5 kg eða 75 kg
flokki. Kári drakk tvo lítra af vatni
fyrir keppnina, drakk sig upp um
flokk. Keppendur á mótinu voru 13
og setti Helgi Jónsson einnig ís-
landsmet; lyfti 71 kg í 52 kg flokki.
Bætti eigið met um hálft kíló en
þetta er bæði fullorðins- og ungl-
ingamet.
SKIÐI
Stenmark heidursgestur
á Vetra ríþróttahátídi n n i?
Skíðasamband Islands hefur
boðið sænska skíðakappan-
um, Ingemar Stenmark, að vera
sérstakur heiðursgestur á Vetrar-
íþróttahátíðinni á Akureyri, sem
hefst síðari hluta marsmanaðar
og stendur í tíu daga. SKÍ hefur
haft samband við umboðsmann
Ingemars Stenmark vegna þessa
og er nú beðið eftir svari frá hon-
um.
Að sögn Sigurðar Einarssonar,
formanns SKI, verður allt reynt
til að fá Stenmark hingað til
lands. Stenmark, sem er einni
besti skíðamaður sem uppi hefur
verið, hætti sem kunnugt er form-
lega að keppa í heimsbikarnum í
fyrra. Hann hefur áður lýst því
yfir að hann hafi áhuga á að heim-
sækja ísland. „Ef Stenmark kæmi
hingað yrði hann hér sem heiðurs-
gestur, en ekki sem keppandi. Það
er þó ekki óhugsandi að hann
renndi sér eina ferð sem undan-
fari,“ sagði Sigurður.
marki. Ekki gekk eins vel í gær;
þá tapaði St. Mirren 2:0 gegn
Motherwell.
Þorvaldur góður
Þorvaldur Örlygsson stóð sig vel
gegn Liverpool og fékk góða dóma,
er Nottingham Forest gerði 2:2
jafntefli á heimavelli, en leikurinn
var í beinni útsendingu sjónvarps.
Þorvaldur var á hægri kanti, hélt
boltanum vel, lék skynsamlega og
yfirvegað, en átti sök á öðru marki
Liverpool, er John Barnes tók af
honum boltann, óð upp kantinn og
gaf á Ian Rush, sem skoraði. Brian
Moore, sjónvarpmaður, spurði
Jimmy Greaves, markakónginn
fyrrverandi sem lýsti leiknum með
honum, fimm mínútum fyrir leiks-
lok hver væri maður leiksins. Gre-
aves sagði að erfitt væri að velja,
þeir væru allir góðir og sagði að
GETRAUNIR: 111 211 X 2 X 1X1
Guðmundur Torfason.
hann gæti kosið Rush, Þorvald eða
einhvern annan!
Röng skipting
Tottenham tapaði á laugardag
fyrir Þorvaldi og samherjum, en
gerði síðan markalaust jafntefli í
Coventry á mánudag. Guðni og
Þorvaldur mættust í fyrsta sinn i
leik og var það jafnframt í fyrsta
sinn, sem íslendingar eru mótheijar
í ensku deildinni, en báðum var
skipt út af undir lokin.
„Skiptingin kostaði okkur sigur-
inn,“ sagði Venables hjá Spurs, en
hann tók Guðna og Paul Walsh af
velli, er 20 mínútur voru eftir. „Hin-
ir komust ekki inn í leikinn og því
fór sem fór.“
Guðni lék hins vegar allan leikinn
gegn Coventry og stóð vel fyrir
sýnu.
Þorvaldur Örlygsson.
KNATTSPYRNA / U-18
„Góður skóli
fýrir strákana“
- sagði Sveinn Sveinsson, fararstjóri
Islenska U-18 landslið karla í
knattspyrnu vann Lichtenstein
9:0 í aukaleik í gær, en þá var leik-
ið um efstu sæti í mótinu í ísrael.
Ríkharður Daðason gerði fjögur
mörk, Þórður Guðjónsson 3, Arnar
Grétarsson 1 og Arnar Gunnlaugs-
son eitt mark. A laugardag töpuðu
strákarnir 3:2 fyrir Svisslendingum
og gerði Arnar Gunnlaugsson bæði
mörk íslands. Á gamlársdag töpuðu
þeir svo 5:1 gegn Pólverjum og
gerði Bjarki Gunnlaugsson mark
Islands.
„Leikurinn gegn Pólveijum var
slakur hjá okkur, en í sjálfu sér var
gengið ekki svo slæmt, þegar Htlð'
er á andstæðingana. Við eigum hins
vegar margt eftir ólært, en þetta
var góður skólr fyrir strákana,“
sagði Sveinn Sveinsson, fararstjóri
og stjórnarmaður KSÍ við Morgun-
blaðið í gær.
Sovétmenn sigruðu í keppninni,
unnu Svía 2:1 í góðum úrslitSleik.
Portúgal vann ísrael 2:0 og hafnaði
í 3. sæti.
íslenska liðið kemur heim í dag.
Mennisdeild Vikings
auglýsir eftir nýjum félögum í alla flokka. Góð aðstaða
í TBR-húsinu.
Upplýsingar í síma 36862, Pétur.
Borðtennisdeild Víkings.