Morgunblaðið - 03.01.1990, Blaðsíða 60
Virðisaukaskattur:
Mikið ann-
ríki hjá ríkis-
"skattstjóra
MIKIÐ annriki var í gær hjá virð-
isaukaskattsdeild ríkisskattstjóra
vegna upptöku 24,5% virðisauka-
skatts í stað 25% söluskatts um
áramótin, en þangað bárust eink-
um fyrirspurnir vegna álitamála
varðandi undanþágur frá skattin-
um.
Verð á áfengi og tóbaki lækkar
um 0,4% vegna lækkunar skatthlut-
fallsins. Til dæmis lækkar fiaska af
íslensku brennivíni um tíu krónur,
úr 1.500 krónum í 1490, og pakki
af algengum amerískum sígarettum
úr 199 krónum í 198.
—, Kaupmenn munu ekki endurverð-
leggja vörur á lager vegna 0,5% lægri
skattprósentu.
Sjá nánar bls. 24-25.
Bruninn í Krossanesi:
Níu verka-
menn missa
atvinnuna
Akureyri.
NIU verkamenn af þrettán missa
atvinnu sína eftir brunann í
Krossanesverksmiðjunni á Akur-
eyri að morgni gamlársdags.
Starfsmönnunum var öllum sagt
upp fyrir jól en jafníramt óskað
eftir að þeir störfuðu áfram út
vertíðina. Nú er ljóst að loðna
verður ekki brædd á næstunni
og ekki vinna fyrir mennina níu.
Mörg hundruð milljóna tjón varð
er verksmiðjan brann en endanlegt
mat liggur enn ekki fyrir. Fasteign-
ir, vélar og tæki voru tryggð fyrir
um 900 milljónir kr.
Tilkynnt var um eldinn laust fyr-
ir klukkan hálf fimm að morgni
gamlársdags. Er eldsvoðinn einn sá
mesti sem slökkvilið Akureyrar hef-
ur fengist við í um 20 ár.
Sjá fréttir á bls. 34.
Viðbótarsamning-
urinn við Sovét:
Síldin verð-
"*ur söltuð
næsta haust
SOVÉZKA innkaupastofnunin
Sovrybflot hefur samþykkt að við-
bót sú við saltsíldarkaup, sem hún
hefúr staðfest, verði söltuð á
hausti komanda og afhent á
síðasta ársfjórðungi þessa árs. Um
er að ræða 50.000 tunnur.
Við undirritun samnings um sölu
150.000 tunna af saltsíld í Moskvu
að áliðnum nóvembermánuði, var
ákvæði þess efnis að sovézku kaup-
endumir leituðu leiða til kaupa á
50.000 tunnum til viðbótar. Stað-
festing þess efnis barst Síldarútvegs-
"" néfnd milli jóla og nýárs og ákvað
hún að leita eftir því við Sovétmenn
að síldin yrði ekki söituð fyrr en
næsta haust. Skýringin á því, var
meðal annars sú, að hæpið væri að
síldin væri nógu feit nú til að upp-
fylla kröfur Sovétmanna. Ennfremur
var kvótinn nær upp urinn og nokkr-
um vandkvæðum bundið að úthluta
viðbótarkvóta. Samþykki að austan
barst Síldarútvegsnefnd í gær og
verður því síldin söltuð í upphafi
næstu vertíðar.
Morgunblaðið/Þorkell
Hátíðahöld á fyrsta degi íslandsbanka
íslandsbanki opnar í dag með pompi og prakt.
Starfsfólkið mætir að höfuðstöðvum bankans
í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, klukkan
átta þar sem „blásið verður í lúðrana.“ Fyrsti
bankaráðsfundurinn verður haldinn og tekið
formlega á móti fyrstu viðskipavinunum. Síðan
verður boðið upp á veitingar og ýmislegt annað
gert í útibúum nýja bankans í tilefni dagsins.
Myndin var tekin í gærkvöldi þegar merki ís-
landsbanka var sett upp og merki Útvegs-
bankans tekið niður af gömlu höfuðstöðvunum
við Lælqartorg.
Skoðunar-
gjald hækkar
GJALD fyrir skoðun bifreiða
hækkaði samkvæmt vísitölu um
áramót og er nú 2.350 krónur, en
var á fyrra ári 1.900 krónur.
Hækkunin er 24%.
I dag hefst starfsemi í nýrri skoð-
unarstöð Bifreiðaskoðunar á Hest-
hálsi 6-8 í Reykjavík. Stöðin er fyrsta
sérsmíðaða skoðunarstöð fyrirtækis-
ins sem tekin er í notkun. Á þessu
ári er ráðgert að hefja byggingu
skoðunarstöðvar á Akureyri.
Sjá fréttir bls. 41.
Stærsta fyrirtæki Eskifjarðar stöðvast:
Starfsfólki Hraðfrystihússins
sagt upp vegna deilu um fískverð
Tekið af launaskrá í dag en mætir samt til vinnu
ÁHAFNIR togaranna Hólma-
tinds og Hólmaness frá Eskifirði
mættu ekki til brottfarar í gær
vegna ágreinings við útgerð tog-
aranna um fiskverð. Starfsfólki
Hraðfrystihúss Eskifjarðar, sem
gerir togarana út, var fyrirvara-
laust sagt upp störfúm í gær af
þessum sökum, og hefúr það ver-
ið tekið af launaskrá, en Verka-
Arnarflug er byrjað að
fijúga til Vestmannaeyja
11 ferðir verða farnar þangað á viku
ARNARFLUG innanlands hf. hefúr hafið áætlunarflug til Vest-
mannaeyja. Samgönguráðuneytið heimilaði félaginu þetta flug frá
áramótum ásamt Flugleiðum, sem áður höfðu leyfið einir, við
úthlutun í innanlandsflugi í haust. Twin Otter-flugvél Arnarflugs
fór fyrstu ferðina til Vestmannaeyja í gærmorgun kl. 8.15 og síðan
aðra ferð í gærkvöldi.
Leyfi Arnarflugs til Vest-
mannaeyjaflugs er háð því skil-
yrði að hlutur félagsins fari ekki
yfir 20% af flutningsþörf á móti
80% Flugleiða. Arnarflug mun
fara ellefu ferðir til Vestmanna-
eyja í viku. Farnar verða tvær
ferðir á virkum dögum, ein ferð
á sunnudegi en aftur á móti verð-
ur ekki flogið á laugardögum.
Jörundur Guðmundsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Arnarflugs
innanlands hf., sagði að Twin
Otter yrði notuð á flugleiðinni til
að byija með, eða þar til að Dorn-
ier-flugvélin sem Arnarflug var
með í leigu sl. sumar, kemur til
landsins 25. janúar. „Það er nú
verið að gera breytingar á vélinni
og hún skoðuð áður en hún verð-
ur afhent okkur til kaups. Domier
mun taka átján farþega eins og
Twin Otter,“ sagði Jörundur.
Ferð fram og til baka til Vest-
mannaeyja, með flugvallarskatti,
kostar 5.500 kr. með Arnarflugi.
Það er um 14% lægra verð en
fargjald Flugleiða, sem er 6.382
krónur.
„Við reiknum með að það verði
sextíu prósent sætanýting hjá
okkur í ferðunum til Vestmanna-
eyja,“ sagði Jörundur.
Sagði hann að Arnarf lug myndi
bjóða sérstakar pakkaferðir frá
Vestmannaeyjum til Reykjavíkur
í janúar. Flug og tvær nætur á
hóteli kostar 7.500 kr. í febrúar
verður boðið upp á pakkaferðir á
milli Vestmannaeyja og Amsterd-
am.
lýðsfélagið Árvakur á Eskifirði
telur uppsagnirnar ólöglegar og
hefúr hvatt starfsfólkið til að
mæta til vinnu í dag.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins fóru áhafnir togaranna
fram á fund um kjaramál sín með
forráðamönnum Hraðfrystihúss
Eskifjarðar á Þorláksmessu. Að
sögn eins talsmanna sjómanna voru
ekki settar fram neinar kröfur á
fundinum um hækkun á fiskverði,
en sjómenn á togurunum hafa feng-
ið greitt verðlagsráðsverð fyrir fisk-
inn, sem er lágmarksverð. Á fundi
þessara aðila sem haldinn var 29.
desember hefðu sjómennirnir síðan
gert kröfu um að 35% af lönduðum
afla togaranna yrðu gerð upp á því
verði sem fengist á fiskmörkuðum,
en þeim verið boðið að um 10% af
af lanum yrðu greidd á þennan hátt.
Sjómennirnir hefðu þá lækkað
kröfu sína í 30% og við það stæði,
en það gæfi þeim um 20% tekju-
aukningu. Þeir þyrftu hins vegar
um 25% tekjuhækkun til að ná
meðalskiptaverði togara á Aust-
fjarðasvæðinu á hvert kíló. Kröfu
sjómannanna var hafnað og til-
kynntu þeir þá að þeir færu ekki
til sjós, og mætti enginn þeirra til
skráningar í brottför sem tilkynnt
hafði verið 2. janúar.
Öllu starfsfólki Hraðfrystihúss
Eskifjarðar var síðan sagt upp
störfum fyrii'varalaust í gær, og það
tekið af launaskrá frá og með deg-
inum í dag. Vísaði stjórn fyrirtækis-
ins í því sambandi til ákvæða í lög-
um um að heimilt sé að segja upp
starfsfólki fyrirvaralaust vegna
ófyrirsjáanlegra orsaka af völdum
hráefnisskorts. Hrafnkell A. Jóns-
son formaður Verkalýðsfélagsins
Árvakurs á Eskifirði sagði að félag-
ið gæti ekki fallist á þessa túlkun
laganna. Uppsagnir með þessum
hætti væru ekki heimilar, og því
hefði starfsfólk frystihússins verið
hvatt til að mæta þar til vinnu i dag.
Kristján Ragnarsson formaður
LIU sagði að aðgerðir sjómanna á
Eskifirði væru óumdeilanlega ólög-
legar þar sem til loka janúar væri
í gildi fiskverð sem ákveðið væri
með löglegum hætti. Hann sagði
að sjómenn á Fáskrúðsfirði hefðu
gert svipaðar kröfur og sjómenn á
Eskifirði, og þeir hefðu hafnað til-
boði sem þeim hafi verið gert, en
ekki hefði reynt á hver viðbrögð
þeirra yrðu. „Kjarasamningar voru
úti um áramót, en þeir eru í gildi
nema að þeir séu hindraðir með
verkfalli eða verkbanni, sem ekki
hefur verið gert og ekki verið boðað
til. Þarna er því um algjöriega ólög-
lega aðgerð að ræða og að okkar
mati mjög óeðlilega með hliðsjón
af því að fiskverð á að ákvarðast
um næstu mánaðamót og það á að
gilda fyrir allt landið.“