Morgunblaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 27
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1990 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1990 27 3IÍ*¥gtiiiH*frÍfe Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjó'rar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík FlaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Krafist afsagnar formannsins * Olafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubanda- lagsins, er i hópi þeirra stjórn- málamanna sem reyna að láta eins mikið að sér kveða í fjöl- miðlum og frekast er kostur. Þess vegna vakti það meiri athygli en ella, hve tregur hann var til að segja álit sitt á fram- boðsmálum í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Flokkur Ólafs Ragnars hefur klofnað og kannski dáið vegna kosninganna. Hefur hluti flokksmanna gengið gegn vilja Alþýðubandalagsfélags Reykjavíkur, stærsta félagsins innan flokksins, og til liðs við framboð sem kennir sig við Nýjan vettvang. Úr því að flokksformaðurinn tók ekki strax afstöðu með þeim sem eftir voru í alþýðubandalagsfé- laginu, vildu margir innan flokks hans og utan vita hvar hann stæði. A síðasta vetrar- dag lét Ólafur Ragnar loks í sér heyra um málið og sagðist hvorki ætla að lýsa yfir stuðn- ingi við framboð Alþýðubanda- lagsins, G-listann, né Nýjan vettvang. Segist hann vera for- maður flokksins „í landinu öllu“ og telur þess vegna ekki „rétt“ að hann „taki formlega afstöðu í því máli“, hvaða lista hann styðji í kosningunum í Reykjavík 26. maí. Þess munu áreiðanlega ekki mörg dæmi ef nokkur, að fylg- ismenn flokks viti ekki hvaða afstöðu formaður þeirra hefur til framboðslista í fjölmennasta kjördæmi lands, þótt listi með bókstaf flokksins sé þar í kjöri. Þarf engan að undra viðbrögð Siguijóns Péturssonar, efsta manns G-listans í Reykjavík, en hann sagði hér í Morgun- blaðinu á fimmtudaginn: „Ég tel að með þessu sé formaður- inn orðinn viðskila við stærsta flokksfélagið í landinu og mér finnst full ástæða til að kalla saman landsfund og kjósa til formennsku alþýðubandalags- mann, sem styður flokkinn og félagið.“ Telur Siguijón að baráttan næstu vikur snúist ekki aðeins um það, hve marga borgarfulltrúa Alþýðubanda- lagið fái í kosningunum heldur „beinlínis um tilvist flokksins“. Siguijón Pétursson er ekki aðeins oddviti Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík, hann er einnig einn af fyrirliðunum í þeirri fylkingu flokksins, sem lítur á sig sem arftaka Komm- únistaflokks íslands og Sam- einingarflokks alþýðu - Sós- íalistaflokksins. Gegn þessari fylkingu beindi Ólafur Ragnar spjótum sínum um síðustu ára- mót, þegar hann kvað fast að orði um nauðsyn uppgjörs við kommúníska fortíð Alþýðu- bandalagsins. Hins vegar hefur hann ekki ráðið við hana á flokksfundum síðan. Forysta Alþýðubandalagsins hefur ekki fetað í fótspor Kremlveija, sem hafa til dæmis nú horfst í augu við fortíðina í Katyn-skógi. Ólafur Ragnar hefur ekki látið brotna á ágreiningi um við- kvæmnismál úr fortíðinni. Hann hefur ekki krafið Svavar Gestsson sagna um tengsl hans við kommúnista í Austur- Þýskalandi, svo að dæmi sé tekið. Ólafur Ragnar kýs að láta sjóða upp úr í hefðbund- inni vinstri-valdabaráttu, sem tekur nú á sig þann einstæða svip, að flokksformaður neitar að lýsa yfir stuðningi við flokk- inn sinn! Kosningabaráttan hér í Reykjavík verður sérkennileg. Oddviti alþýðuflokksmanna í borgarstjórn Reykjavíkur, Bjarni P. Magnússon, segir í Morgunblaðsviðtali, að forysta síns flokks hafi staðið þannig að málum í prófkjöri Nýs vett- vangs, að staða flokksfor- mannsins, Jóns Baldvins Hannibalssonar, hafi veikst. Oddviti Alþýðubandalagsins í Reykjavík krefst afsagnar eig- in formanns. Afstaða Ólafs Ragnars Grímssonar verður einfaldlega ekki túlkuð á annan veg en þann, að hann vilji sýna Sigur- jóni Péturssyni og félögum hans, sem þó hafa allar eignir Alþýðubandalagsins undir höndum og tögl og hagldir í stjórn flokksmálgagnsins Þjóð- viljans, í fulla hnefana. Alþýðu- bandalagið er raunar ekki lengur annað en nafnið tómt. Alþýðuflokkurinn treystir sér ekki til að bjóða fram undir eigin nafni í Reykjavík. Erum við ekki vitni að nýrri valdabar- áttu, þar sem þeir Ólafur Ragnar Grímsson og Jón Bald- vin Hannibalsson eru teknir að beijast um forystusætið í nýrri vinstrifylkingu, sem verður til með einum allsheijar klofningi. Nefndi einhver rauð ljós? Eldfimar umræður eftir Þorstein Pálsson Með nokkrum sanni má segja að stjórnmálaumræður þessa páska- viku hafi verið í eldfimara lagi. Annars vegar hafa nyenn rætt al- mannahættu vegna Áburðarverk- smiðjunnar en hins vegar þá spaugi- legu stöðu að formaður Alþýðu- bandalagsins skuli ekki treysta sér til að styðja eigin flokk í höfuðborg- inni. Lufsast enn í tilgangsleysi Eftir fall sósíalismans í Austur- Evrópu hefur vandræðagangur A- flokkanna svonefndu verið með ólíkindum. Alþýðuflokkurinn treystir sér til að mynda ekki að bjóða fram í eigin nafni í Reykjavík. Hann hefur einungis mátt til að gera það í skjóli annarra. Frægt er þegar formaður Al- þýðuflokksins lýsti yfir því í byijun þessa árs að með öllu væri tilgangs- laust fyrir kjósendur að lufsast á kjörstað tii þess að kjósa félaga Bjarna eins og hann orðaði það og átti við borgarfulltrúa Alþýðu- flokksins. Þessi sami félagi lenti í 3. sæti á framboðslista hins nýja pólitíska húsaskjóls Alþýðuflokks- ins og að eigin sögn lufsast hann þar að áliti fiokksforystunnar í sama tilgangsleysi og fyrr. Formaður gegn eigin flokki! Svo gerðist það að formaður Al- þýðubandalagsins fékk málið að nýju til þess að iýsa því yfir að hann styddi ekki framboð eigin flokks í höfuðborginni. Það eru mikil tíðindi enda einstakur atburð- ur í stjórnmálasögunni. Stuðnings- menn flokksformannsins hafa yfír- gefið skútuna og fylkja nú liði á öðrum vettvangi. Formaðurinn tel- ur sig ekki hafa aðstöðu til þess að fylgja félögum sínum eftir og situr því uppi sem forystumaður andstæðinga sinna! En það lýsir einkar vel bágu ástandi Alþýðubandalagsins að það sýnist ekkert geta gert í málum þó að það sitji uppi með formann sem harðneitar að styðja flokkinn. Sú staðreynd er ekki síður merkileg. Hún er í sjálfu sér einstæð og verð- skuldar að komast í heimsmetabók- ina. Vandræði ríkisstjórnar Þó að eldfimir atburðir af þessu tagi séu fyrst og fremst broslegir og hafi vakið almenna kátínu, hafa þeir líka alvarlegar hliðar. íslenska þjóðin lýtur stjórn þessara flokka. Og það er helst til marks um stöðu núverandi ríkisstjórnar að Alþýðu- bandalagið í því standi sem það nú er hefur verið forystuafl hennar. Forysta Framsóknar beygir sig og hneigir fyrir fylkingum Alþýðu- bandalagsins og hræðsla Alþýðu- flokksforystunnar hefur verið svo mikil að utanríkisráðherrann hefur ekki einu sinni þorað að ákveða forkönnun vegna varaflugvallar af ótta við hótun Alþýðubandalagsins um stjórnarslit. Upplausn Alþýðu- bandalagsins er þannig önnur hliðin á vandræðagangi ríkisstjórnar ís- lands og það er sú hlið sem ekki er brosleg heldur bitnar á fólkinu í landinu. Viðbrögð við almannahættu Eldurinn sem kviknaði ofan á ammóníaksgeymi Áburðarverk- smiðjunnar hefur leitt til eldfímrar umræðu af öðrum toga. Athygli manna hefur beinst að hugsanlegri almannahættu vegna starfrækslu verksmiðjunnar þar sem hún er nú. Fyrir tveimur árum rúmum birti Vinnueftirlit ríkisins skýrslu um þá almannahættu sem gæti verið fyrir hendi ef ammóníaksský færi yfir byggð í Reykjavík. Þá þegar var brugðist við af réttum stjórnvöld- um. Þeir ráðherrar sem fóru með málefni vinnueftirlitsins annars vegar og verksmiðjunnar hins vegar lögðu til að reistur yrði nýr og ör- uggari geymir fyrir þetta áhættu- sama efni. Og ákvarðanir voru teknar í samræmi við þær tillögur. Óumdeilt er að nýr geymir dreg- ur verulega úr þeirri hættu sem fyrir hendi er. Eigi að síður hefur nú gerst sá atburður sem er alvar- leg viðvörun. Endurmat er af þeim sökum bæði sjálfsagt og eðlilegt. Neikvæð viðbrögð ríkisstjórnarinn- ar sæta því furðu. Verðbólgufolsun En ábyrgðarleysi ríkisstjórnar- Þorsteinn Pálsson „Það er lítil reisn yfir þessari utanríkisstefiiu Islands. Hún er í litlu samræmi við fyrri af- stöðu Islands gagnvart þjóðum sem brotist hafa undan oki og barist fyr- ir sjálfstæði.“ innar gagnvart Áburðarverksmiðj- unni kemur ekki aðeins fram í nei- kvæðum viðbrögðum vegna þeirrar almannahættu sem fyrir hendi var þegar eldur kviknaði á ammóníaks- geyminum. Fyrirætlanir ríkisstjórn- arinnar um rekstur verksmiðjunnar lýsa ekki síður alvarlegu ábyrgðar- leysi. Þar liggja til grundvallar hefðbundin vinstristjórnar sjónar- mið. Ríkisstjórnin tók þá ákvörðun í þeim tilgangi að falsa verðbóigutöl- ur að fyrirskipa stjórn Áburðarverk- smiðjunnar að reka hana með 130 milljóna króna halla á þessu ári. Til þess að koma í veg fyrir halla- rekstur þurfti áburðarverð að hækka um rúmlega 20%. Ríkis- stjórnin fyrirskipaði hins vegar 12% hækkun í þeim tilgangi að falsa verðbólgutölur. Mismuninn á gjöld- um og tekjum átti að brúa með erlendum lántökum. Niðurstaða meirihluta verk- smiðjustjórnar varð sú að hækka áburðarverð um 18% og mun sú ákvörðun byggjast á forsendum fjárlaga. Eigi að síður verður veru- legur halli á rekstri verksmiðjunnar sem nemur að minnsta kosti 50 milljónum króna. Hann á_ að brúa með erlendum lántökum. Ákvörðun meirihluta verksmiðjustjórnar um 18% hækkun áburðarverðs miðar að því að draga úr áhrifum þeirrar ábyrgðarlausu ákvörðunar ríkis- stjórnarinnar að dæma verksmiðj- una til a.m.k. 130 milljóna króna hallareksturs. Meiri verðbólga eða skattahækkanir Það er hægt að mæta halla- rekstri með tvennum hætti þegar ríkisfyrirtæki eiga í hlut. Annars vegar er hægt að hækka áburðar- verð síðar og þá bætist fjármagns- kostnaður ofan á hækkunarþörfina. Með öðrum orðum verðhækkanirn- ar verða meiri þegar til lengdar lætur og verðbólgan meiri þegar menn haga sér með þessum hætti. Á hinn bóginn er hægt að færa hallareksturinn yfir á ríkissjóð og hækka skatta. Þetta eru hefðbundin vinstri- stjórnarúrræði þegar falsa þarf verðbólgutölur. Áthyglisvert er að ríkisstjórnin er reiðubúin að fleygja út um gluggann hærri upphæðum í verðbólgufölsunarleik sínum en varið var til þess að byggja nýjan ammóníaksgeymi við verksmiðjuna. Það sýnir best það fullkomna ábyrgðarleysi sem að baki liggur. Það sýnir einnig að ríkisstjómin ræður ekki við að fylgja eftir þeim nýja efnahagsgrundvelli sem aðilar vinnumarkaðarins lögðu fyrir ríkis- stjórnina með kjarasamningunum í byijun þessa árs. Það var sannan- lega ekki ætlun forystumanna at- vinnurekenda og launþega að verð- bólgu yrði haldið í skefjum með því að pissa í skóinn. Páll styður Sovét Sovétstjórnin steig það örlaga- ríka skref í þessari viku að byija efnahagsþvinganir gegn Litháum. Hér er um að ræða mjög alvarlega ögrun sem haft getur slæmar afleið- ingar og spillt fyrir þeirri ánægju- legu þróun sem átt hefur sér stað í bættri sambúð þjóða austurs og vesturs. Efnahagsþvinganir Sovétríkj- anna gagnvart Litháum eru ekki aðeins ögrun við það fólk sem hefur verið að endurheimta frelsi sitt. Þær eru ekki síður ögrun við ríki Vestur-Evrópu sem stutt hafa um- bótaviðleitni forystumanna Sov- étríkjanna undanfarin misseri. Litháar hafa aldrei fremur en nú þurft á stuðningi Vesturlanda að halda. ísland á því að viðurkenna þetta nýfijálsa ríki sem er að endur- heimta sjálfstæði sitt. Ríkisstjórnin hefur á hinn bóginn þverskallast í málinu og snúist gegn þingsálykt- unartillögu nokkurra þingmanna þar að lútandi. Fyrir dyrum stóð að fulltrúar forsætisnefndar Norðurlandaráðs færu í heimsókn til Sovétríkjanna nú í vor. Þegar ljóst var að þeim yrði meinað að fara til Eystrasalts- ríkjanna var ferðinni aflýst. Ólafur G. Einarsson sem sæti á í forsætis- nefnd Norðurlandaráðs lagði þá til að kannað yrði hvort vilji væri fyr- ir því að fulltrúar forsætisnefndar- innar færu í heimsókn beint til Lit- háen og annarra Eystrasaltsríkja. Þessi tillaga var rökrétt svar við viðbrögðum Sovétstjórnarinnar og hefði sýnt í framkvæmd ótvíræðan stuðning Norðurlanda við Eystra- saltsríkin. Páll Pétursson forseti Norðurlandaráðs gerir hins vegar lítið úr hugmynd af þessu tagi og segir hana einungis setta fram til þess að erta ráðamenn Sovétríkj- anna. Augljóst er af þessum við- brögðum að Páli Péturssyni er meira annt um pólitíska stöðu og sálarheill leiðtoganna í Kreml en fólkið í Litháen sem nú berst fyrir sjálfstæði sínu undir ógnunum sov- ésks hervalds og efnahagsþvingun- um. Það er lítil reisn yfir þessari ut- anríkisstefnu íslands. Hún er í litlu samræmi við fyrri afstöðu íslands gagnvart þjóðum sem brotist hafa undan oki og barist fyrir sjálf- stæði. Núverandi ríkisstjórn tekur stórveldahagsmuni fram yfir hags- muni smáþjóðar, sem á í vök að veijast. Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins. Skipulagsstjórn ríkisins: Möguleiki á gerð jarðganga í Foss- vogsdal er opinn SKIPULAGSSTJÓRN ríkisins hefur samþykkt aðalskipulag Kópa- vogs 1988-2008 með þeim fyrirvara að í Fossvogsdal verði frestað skipulagi á ákveðnum svæðum, þar sem haldið er opnum möguleika á jarðgangamunnum í samræmi við athugun Vegagerðar ríkisins á vegtengingum í Fossvogsdal. Samþykktin hefur verið send félags- málaráðherra til staðfestingar. í samþykktinni segir að ljóst sé að með einhveijum skipulagsað- gerðum verði að tryggja umferð bifreiða milli austur- og vestur- svæða höfuðborgarsvæðisins, og að það verði ekki gert með opinni braut í Fossvogsdal vegna umhverfis- spjalla og skerðingar útivistar- svæða. Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins, segir að með samþykktinni taki skipulagsstjórn undir sam- þykkt bæjarstjórnar Kópavogs um að ekki verði opin akbraut í dalnum. „Það er haldið opnum möguleika á göngum undir Digraneshálsinn eða undir dalnum sjálfúm, en þetta þýð- ir að hægt verður að fara í frágang á útivistarsvæði í dalnum að undan- skildum þeim svæðum sem skipu- lagi er frestað á.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður skipulagsnefndar Reykjavík- ur, segir að samþykkt skipulags- stjórnar ríkisins staðfesti nauðsyn á samgönguæð í Fossvogsdal, sem tengi austur- og vesturhluta borg- arinnar. „Ef ráðherra staðfestir þessa samþykkt, þá er ríkið þar með að taka á sig þann aukakostnað sem fylgir því að hafa brautina alfarið í göngum, og ef niðurstaðan verður þessi þá tel ég að grundvöllur sé nú kominn fyrir því að sveitarfélög- in tvö ásamt ríkinu setjist niður og finni heppilega lausn á þessu máli. Samþykkt skipulagsstjórnar felur í sér að haldast verður í hendur skipulag á göngum og útivistar- svæði í Fossvogsdal og fram- kvæmdir í tengslum við það.“ SUMRI FAGNAÐ Sumardeginum fyrsta var fagnað með hefðbundnum hætti um allt land. Sums staðar setti veður strik í reikninginn. Mikill mannfjöldi tók þátt í hátíðahöldum í tilefni 40 ára afmælis Þjóðleikhússins. Gengið var í skrúðgöngu frá Austurvelli að Þjóðleikhúsinu þar sem boðið var uppá skemmtidagsrá. -------------------j--------------------------—--------------- ATOKIN I ALÞYÐUBANDALAGINU Hlutverk ABR að bjóða fram fyrir flokkinn í Reykjavík -segir Stefknía Traustadóttir formaður STEFANÍA Traustadóttir formaður Alþýðubandalagsins í Reykjavík [ABR] segir að samkvæmt flokkslögum Alþýðubanda- lagsins sé það hlutverk ABR að bjóða fram fyrir hönd flokksins í borginni. Meðal annars í ljósi þessa séu yfirlýsingar Ólafs Ragn- ars Grímssonar formanns AB um framboð G-listans í Reykjavík einkennilegar. Stefanía Traustadóttir sagði við Morgunblaðið, að sér þætti nokkuð einkennilegur málflutn- ingur Ólafs Ragnars Grímssonar um að ákvörðun um framboð G- listans í Reykjavík hefði ekki ver- ið tekin á flokkslegum grunni. Ólafur tali um fjóra hópa flokks- manna í Reykjavík, ABR-hópinn sem vilji bjóða fram G-lista, stóran hóp óánægðra ABR-félaga sem hafi valið að fara aðrar leiðir, Æskulýðsfylkinguna sem er félag ungs alþýðubandalagsfólks, og Birtingu. „Það vita allir sem vilja, að þessir 14 drengir sem tóku ákvörðun fyrir Æskulýðsfylkin- una um að ganga til liðs við Nýj- an vettvang, og félagar í Birtinu eru jafnframt félagar í ABR. Þetta eru því ekki þrír stórir hóp- ar heldur sami hópurinn sem varð undir á félagsfundi ABR þegar ákvörðun var tekin um framboð G-listans,“ sagði Stefanía. Hún sagði Ólaf Ragnar ekki komast fram hjá þeirri staðreynd, að samkvæmt flokkslögum Al- þýðubandalagsins væri það hlut- verk Alþýðubandalagsins í Reykjavík að bjóða fram fyrir hönd flokksins í borginni. Einnig væri það mjög skýrt í lögum flokksins að einungis flokks- bundnir alþýðubandalagsmenn gætu tekið ákvarðanir fyrir hönd félaga og flokksins, og því gæti Nýr vettvangur aldrei talist fram- boð Alþýðubandalagsins. Þegar hún var spurð hvort hún tæki undir kröfu Siguijóns Pét- urssonar um að Ólafur Ragnar Grímsson segði af sér for- mennsku, sagði hún að þessi mál þyrfti að ræða á flokkslegum vett- vangi. „Undanfarnar vikur hef ég raunar haldið fram nauðsyn þess að kalla saman landsfund vegna þess að í ríkisstjórnarsamstarfinu eru að gerast ákveðnir hlutir með ýmis mikilvæg mál sem virðist vera að fara í stöðu sem ekki eru til flokkslegar samþykktir fyrir,“ sagði Stefanía. Hún nefndi í því sambandi sam-^- skipti EFTA og Evrópubandalags- ins, umhverfismál og stóriðjumál. „Þetta þýðir um leið að skipta þarf um forustu í flokknum," sagði Stefanía. „Þegar Ólafur Ragnar Grímsson tók við þessum flokki fyrir þremur árum naut hann 13% fylgi eftir síðustu al- þingiskosningar. Ólafur hélt þá miklar ræður um að Alþýðu- bandalagið væri loksins mætt til leiks en undir hans forustu hefur fylgið verið að hakkast af flokkn- um niður í 8%. Hann er því ekki farsæll foringi flokksins. Óg þetta útspil hans gagnvart stærsta flokksfélaginu getur ekki þýtt að hann beri hagsmuni flokksins fyrjr* ir bijósti, heldur eigin hagsmuni og eigin drauma. Og ég hef engan áhuga á að hjálpa Ólafi Ragnari að láta hans drauma rætast," sagði Stefanía Traustadóttir. Sljórn Æskulýðsfylkingar ABR : G-listinn er fylgislaus, þröngsýnn ogólöglegur MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá stjórn Æskulýðsfylkingar Alþýðubandalagsins í Reykjavík vegna ummæla Sigurjóns Péturssonar i fjölmiðlum: Stjórn ÆFR lýsir furðu sinni á því að oddviti framboðslista Al- þýðubandalagsfélagsins í Réykjavík skuli ekki hafa neitt betra að gera, nú þegar aðeins mánuður er til kosninga, en að betja á öðrum alþýðubandalagsfé- lögum í Reykjavík og formanni flokksins. Höfuðandstæðingar framboðs- lista ABR í komandi kosningum virðast samkvæmt þessu vera Ólafur Ragnar Grímsson og aðrir alþýðubandalagsmenn, en ekki borgarstjórinn í Reykjavík og sjálfstæðismenn. Stjórn ÆFR átelur þessi vinnu- brögð og spyr hveiju þau sæti, en hvetur jafnframt aðstandendur G-listans í Reykjavík enn og aftur til samstarfs við annað jafnaðar- og félagshyggjufólk í borginni um að fella núverandi meirihluta. Stjórn ÆFR minnir á að al- þýðubandalagsfélögin í Reykjavík eru þijú, ABR, ÆFR og Birting. Aðeins eitt þeirra stendur að G- listanum í Reykjavík og ekki var rétt að honum staðið samkvæmt lögum flokksins. Mynda hefði átt fulltrúaráð félaganna þriggja, samkvæmt 5. gr. laga Alþýðu- bandalagsins, til að sjá um fram- boðsmál flokksins í kjördæminu. í greininni kemur fram skilyrðis- laus réttur ÆFR til að krefjast stofnunar fulltrúaráðs einhliða. Slík krafa kom fram en henni var ekki sinnt. Listinn er því ólöglegur sem slíkur og á því í raun engan rétt til listabókstafsins G sem til- heyrir flokknum öllum. Fylgis- laus, þröngsýnn og ólöglegur G- listi í höfuðstað landsins stórskað- ar raunveruleg G-listaframboð annars staðar á landinu. Slíkt ber að harma. Stjórn ÆFR hvetur frambjóð- endur ABR til að gæta hófsemdar í málflutningi sínum í framtíðinni og hafa það í huga að sameigin- legt verkefni félagshyggjufólks í borginni er að hnekkja veldi sjálf- stæðismanna í borginni. Vinnum saman í vor!“ EvrópudómstóUinn Qall- ar um mál Onkel Sam UNDIRRÉTTUR í Hjörring í Danmörku vísaði máli skipstjórans á lax- veiðibátnum Onkel Sam til Evrópudómstólsins á fimmtudag. Málarekst- ur fyrir dómstólnum gæti tekið a.m.k. sex mánuði. Að sögn Orra Vig- fússonar, talsmanns hóps sem berst gegn úthafsveiðum á laxi, hefiir danska sportveiðisambandið skorað á þjóðþingið að samþykkja lög, sem banni dönskum þegnum að taka þátt í slíkurn veiðum. Slík lög eru í gildi hér á landi og í Noregi. Samþykki þingið slík lög ná þau til áhafna þeirra (jögurra báta, sem stundað hafa slikar veiðar á alþjóð- legu hafsvæði norðaustur af íslandi. Eins og Morgunblaðið hefur skýrt frá var laxveiðibáturinn Onkel Sam kyrrsettur þegar hann kom til hafnar í Hirtshals í Danmörku í byijun mars. Báturinn var þá á leið til Pól- lands með 20 tonna afla^en varð að leita hafnar vegna bilunar. Skipstjór- inn var ákærður fyrir að hafa brotið NASCO-sáttmálann um vgrndun lax í Norður-Atlantshafi, en Evrópu- bandalagið hefur staðfest sáttmál- ann. Eigendur dönsku bátanna hafa reynt að sniðganga sáttmálann með því að skrá bátana í Panama eða Póllandi, en þessi lönd hafa ekki skrifað undir sáttmálann. Onkel Sam er skráður í Panama, en eigandi skipsins seldi bátinn skúffufyrirtæki þar, sem er í eigu bróður fyrri eig- anda. Báðir búa þeir í Borgundar- hólmi. Orri Vigfússon er í forsvari níu landa hóps, sem berst fyrir stöðvun þessara veiða. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að undirrétt- ur í Hjörring hefði sent málið til Evrópudómstólsins, þar sem málið tengdist NASCO-sáttmálanum og Evrópubandalagið færi með málefni Dana í laxveiðimálum gangvart NASCO. „Það er óvíst hvort hægt er að stöðva aðra laxveiðibáta á meðan mál Onkel Sam er fyrir Evr- ópudómstólnum," sagði Orri. „Þar gæti málarekstur tekið 6 mánuði, en í versta falli á annað ár. Formá&br danska sportveiðisambandins skoraði í gær á danska þjóðþingið að setja lög, sem banni dönskum þegnum að taka þátt í slíkum veiðum. Við íslend- ingar höfum slík lög, svo og Norð- menn. Væru slík Jög sett næðu þau til allra bátanna. Ég hef hvatt kvóta- nefndir í þeim níu löndum, sem beij- ast gegn þessu, að hvetja IJafti »til þessa.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.