Morgunblaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1990
Reykjalundarkórinn heldur vortónleika sína í dag.
■ REYKJAL UNDARKÓRINN
heldur vortónleika sína í dag, laug-
ardaginn 21. apríl, kl. 14.00 í safn-
aðarheimilinu, Þverholti 3 í Mos-
fellsbæ. Kórinn var stofnaður
haustið 1986 og hefur sungið víða
í heilbrigðisstofnunum og í Mos-
fellsbæ. Kórfélagar eru nú 39. Efn-
isskrá vortónleikanna er fjölbreytt,
sungin verða innlend og erlend lög.
Stjórnandi er Lárus Sveinsson.
Undirleikari er Ingibjörg Lárusdótt-
ir.
M DANIEL Farrell, prófessor í
heimspeki við Ríkisháskólann í Ohio
flytur opinberan fyrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla íslands
og Félags áhugamanna um heim-
speki sunnudaginn 22. apríl kl.
14.30. Fyrirlesturinn, sem nefnist
„Nuclear Deterrence: The
Wrongful-Intentions Argument",
verður fluttur í stofu 101 í Lög-
bergi og er öllum opinn. Daniel
Farrell hefur kennt við Ríkishá-
skólann í Ohio síðan 1971. Hann
hefur einnig verið gistiprófessor við
Princeton-háskóla, Michigan-
háskóla og Oberin College. Sérsvið
hans eru siðfræði, réttarheimspeki
og stjórnmálaheimspeki.
■ „ ÓHEFÐB UNDNAR lækn-
ingaaðferðir og kristin trú“ er
yfirskrift fundar Kristilegs félags
heilbrigðisstétta mánudaginn 23.
apríl 1990, sem haldinn verður í
Safnaðarheimili Laugarneskirkju
kl. 20.30. Séra Magnús Björnsson
mun fjalla um efnið. Stöðugt ber
meira á því að menn leiti sér hjálp-
ar hjá þeim sem stunda slíkar lækn-
ingar án þess að gera sér grein
fyrir bakgrunni og heimspeki slíkra
aðferða. I fyrirlestrinum mun reynt
að varpa ljósi á bakgrunn aðferð-
anna og bera hann saman við
kristna trú.
(Fréttatilkynning)
■ GUÐSÞJÓNUSTA verður í
Laugarneskirkju sunnudaginn 22.
apríl kl. 11.00 en þá verður í síðasta
skipti sérstakt barnastarf í tengsl-
um við guðsþjónustu sunnudagsins
í vetur. Barnastarfið hefst svo aftur
í haust. Kirkjuklúbbur Laugames-
kirkju hefur komið saman einu sinni
í mánuði að undanförnu. Síðasta
samvera Kirkjuklúbbsins í vetur
verður í dag, laugardag, kl. 16.30.
Samveran hefst á helgistund í kirkj-
unni, þá er gengið til safnaðarheim-
ilisins og verður þar rætt um Sálma
Davíðs í Biblíunni. Einnig verða
kaffiveitingar. Barnagæsla verður
á staðnum ef fólk vill taka börnin
með sér. Kirkjuklúbburinn er öllum
opinn.
M DR. GUÐRÚN Kvaran orða-
bókarritstjóri flytur opinberan fyr-
irlestur á vegum Stofnunar Sigurð-
ar Nordals í dag, þriðjudaginn 24.
apríl, í stofu 101 í Odda, hug-
vísindahúsi Háskóla íslands, kl.
17.15. í fyrirlestrinum, sem nefnist
„íslensk málvísindi á öndverðri 20.
öld“, mun Guðrún gera grein fyrir
kennslubókagerð, orðabókasmíð og
öðrum málfræðirannsóknum á fyrri
hluta þessarar aldar. Guðrún
Kvaran vinnur nú m.a. að því að
skrifa sögu íslenskrar málfræðiiðk-
unar.
(Fréttatilkynning frá
Stofhun Sigurðar Nordals.)
■ APRÍL-hraðskákmót Taflfé-
lags Kópavogs verður haldið
sunnudaginn 22. apríl kl. 14.00.
Öll starfsemi Taflfélags Kópavogs
fer fram _í HjallaskólíHHMfMÍE
veg.
■ ÍSLENSKU náttúruverndar-
félögin eru sex, eitt félag í einu
eða tveimur kjördæmum. Félögin
eru að endurskipuleggja starfsemi
sína með nýja starfshætti í huga
en aðalmarkmið félaganna er að
stuðla að góðri umgengni, bættu
skipulagi byggðar og landnytja,
samræmingu mannvirkja og um-
hverfís og verndun sögulegra minja.
Þau vilja koma á heiibrigðum sam-
skiptum manns og náttúru, þar sem
maðurinn er eðlilegur þáttur í heild-
inni. Framtíðarsýn íslensku nátt-
úruvemdarfélaganna á degi jarðar-
innar, sunnudaginn 22. apríl, er að
í öllum löndum heims starfi náttúru-
verndarfélög áhugamanna með
virkri þátttöku almennings er safni
stöðugt upplýsingum um ástand
lífríkisins, stundi „náttúruvöktun“
og komi þeim á framfæri við
ábyrgða aðila. Framlag ísiensku
náttúruverndarfélaganna til dags
jarðarinnar er nýja hugmyndin
þeirra, náttúruvöktun, sem þau eru
að undirbúa að framkvæma. Á degi
jarðarinnar ætla fulltrúar náttúru-
verndarfélaganna í nokkrum sveit-
arfélögum að kynna eyðublöð ætluð
til íjöruvöktunar fyrir almenningi
og fá reynslu af notkun þeirra.
Fulltrúarnir hafa kynnt þetta hver
í sínu sveitarfélagi.
(Fréttatilkynning írá verkeftiis-
stjórn íslensku náttúrufélaganna.)
■ FRÆÐSLURÁÐ Alþjóða-
ólympíunefhdarinnar „IOA“ býð-
ur Olympíunefiid Islands að senda
þátttakendur á eftirfarandi nám-
skeið í Olympíu, Grikklandi í sum-
ar. 11—17. júlí verður námskeið
fyrir íþróttafréttamenn. Þátttak-
endur greiði sjálfir ferðir, en fá frítt
uppihald. 20. júní—5. júlí verður
námskeið fyrir 35 ára og yngri.
Alls geta 5 sótt námskeiðið frá
hveiju landi, en aðeins einn karl
og ein kona fá fríar ferðir og uppi-
hald. 5.—11. júlí verður námskeið
fyrir skólafólk, kennara og leiðbein-
endur. Þáttakendur greiði sjálfir
ferðir en fá frítt uppihald. 10.—16.
júlí verður námskeið fyrir stjórn-
endur íþróttaskóla og æðri íþrótta-
menntastofnana. Þátttakendur
greiði sjálfir ferðir en fá frítt uppi-
hald. Þeir sem vilja taka þátt í þess-
um námskeiðum, sendi umsóknir
til Ólympíunefndar íslands,
íþróttamiðstöðinni, Laugardal,
104 Reykjavík fyrir 1. maí nk.
Umsækjendur skulu tilgreina aldur,
menntun, íþróttaiðkanir og störf að
íþróttamálum. Góð kunnátta í
ensku eða frönsku er nauðsynleg.
■ SYNING á verkum Sigurjóns
Jóhannssonar leikmyndateikn-
ara og málara var opnuð í húsi
Verkalýðsfélags Austur-Húnvetn-
inga á Blönduósi fimmtudaginn 19.
apríl á vegum Listasafns ASÍ. Sig-
urjón á að baki Iangan listferil,
fyrst sem málari, síðan sem leik-
myndateiknari hjá Þjóðleikhúsinu,
en þar var hann í meira en 10 ár
starfandi sem yfirleikmyndateikn-
ari. Sýningin sem hér kemur fyrir
sjónir almennings er byggð á
lífsreynslu Siguijóns sjálfs frá
bernskuárunum en Siguijón er
fæddur og uppalinn á Siglufirði.
Sviðið sem lýst er í þessum myndum
Siguijóns er lífið sjálft eiris og það
kom ungum dreng fyrir sjónir í
athafnasömu síldarplássi. Sýningin
verður opin alla daga frá kl. 14.00-
19.00. Á sýningunni verður seld
bókin Svartur sjór af síld (síldaræv-
intýrin miklu á sjó og landi) eftir
Birgi Sigurðsson, útgefandi Forlag-
_ið. _ Aðgangur að sýningunni er
ókeypis en hún stendur til 26. apríl.
Samþykkt ríkisstjórnarinnar:
Núverandi ammoníaksgeym-
ir verði ekki notaður framar
Vilja viðræður við borgina um framtíð Ábiu’ðarverksmiðjunnar
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fúndi sinum í gærmorgun að fela
Steingrími Sigfússyni landbúnaðarráðherra og Jóhönnu Signrðar-
dóttur félagsmálaráðherra að sjá til þess að fyllsta öryggis verði
gætt við rekstur Áburðarverksmiðjunnar í Gufúnesi. Það telur ríkis-
stjórnin meðal annars fela í sér að núverandi ammoníaksgeymir, sem
kviknaði í á páskadag, verði ekki notaður framar. Ekki verði heldur
geymt ammoníak í versmiðjunni umfram það'sem sé á daggeymum
hennar vegna eigin frainleiðslu, þar til annað verði ákveðið.
Ríkisstjórnin hyggst fela Vinnu-
eftirliti og Almannavörnum ríkisins
að fylgjast með ofangreindum að-
gerðum, „ekki sízt því að rekstri
verksmiðjunnar verði, meðan á
þeim stendur, hagað þannig að ýtr-
asta öryggis sé gætt,“ eins og seg-
ir í samþykkt stjórnarinnar.
Ríkisstjórnin leggur áherzlu á að
ýtarlegri rannsókn á orsökum
óhappsins á páskadag verði lokið
hið fyrsta. Þá heitir hún að sjá til
þess að yfirstandandi öryggisgrein-
ingu í verksmiðjunni verði lokið svo
fljótt sem auðið er og í framhaldi
af henni verði áhætta í verksmiðj-
unni metin í heild með aðstoð viður-
kenndra erlendra sérfræðinga. Þá
verði aflað ýtarlegra upplýsinga um
staðsetningu, öryggisbúnað og
rekstur ammoníaksgeyma og sam-
bærilegra verksmiðja erlendis.
Loks segir í samþykkt ríkis-
stjórnarinnar að hún telji mikilvægt
að viðhalda áburðarframleiðslu í
landinu með þeim störfum, sem þar
skapist og tilheyrandi verðmæta-
sköpun, enda sé um þjóðhagslega
hagkvæma starfsemi að ræða.
Einnig lýsir stjórnin sig tilbúna til
viðræðna við Reykjavíkurborg um
framtíð verksmiðjunnar í Gufunesi.
Almannavarnir ríkisins:
Engar yfirlýsingar hafa
verið gefiiar um störf AR
Almannavarnir ríkisins sendu
í gær frá sér eftirfarandi frétta-
tilkynningu:
Vegna tilkynningar frá aðstand-
endum Nýs vettvangs í dagblöðun-
um 19. apríl 1990 vilja Almanna-
varnir taka fram:
Almannavarnir ríkisins hafa ekki
gefið neinar yfirlýsingar um að
Almannavarnanefnd Reykjavíkur
hafi ekki sinnt lágmarksskyldum
sínum varðandi öryggismál og við-
brögð við hættuástandi í borginni.
Enginn samanburður er gerður
á störfum almannavarnanefnda í
landinu, þar sem áherslur í störfum
þeirra eru mjög mismunandi og
miðast við ólíkar hættur sem ógna
á hveijum stað.
I neyðaráætlun Almannavarna
Reykjavíkur eru fyrirfram gefin
fyrirmæli almannavarnanefndar til
þeirra stofnana og sveita sem fara
með fyrstu viðbrögð gegn hættu
eða vá og ákvæði um verkaskipt-
ingu þeirra í þeim viðbrögðum. Ál-
mannavarnanefnd tekur ekki við
beinni stjórn og samræmingu að-
gerða á neyðartímum fyrr en
langtímaaðgerðir eru hafnar.
Neyðaráætlun Almannavarna
Reykjavíkur er frá árinu 1982, en
ekki 1976. Hlutverk æðstu embætt-
ismanna borgarinnar á neyðartím-
um er nákvæmlega skilgreint í
þeirri áætlun. Hefur nefndin falið
embættismönnum sínum að taka
þátt í námskeiðum og öðrum þjálf-
unum, sem stofnað hefur verið til
á sviði almannavarna, svo og sent
nefndarmenn og björgunarforingja
til að kynna sér hliðstæð almanna-
varnastörf erlendis.
Almannavarnir ríkisins hafa ekki
reynt að túlka „skilning æðstu
embættismanna borgarinnar á hlut-
verkum sínum og viðbrögðum við
hættuástandi“. í stóræfingum al-
mannavarna í Reykjavík, svo og í
hættutilvikum og neyð, þegar al-
mannavarnanefndin hefur starfað
að stjórn og samræmningu að-
gerða, hefur ekkert annað komið
fram en að hún sinni fullkomlega
hlutverki sínu og leysi það af fag-
mennsku og festu.
Könnun á geymslu og notkun
hættulegra efna í Reykjavíkurborg
var gerð að frumkvæði Almanna-
varnefndar Reykjavíkur, en örygg-
issvæði kortlögð fyrir nefndina af
Almannavörnum ríkisins.
Samkvæmt lögum um almanna-
varnir fer stjórn Almannavarna
ríkisins (almannavarnaráð) með
umsjón með almannavarnanefnd-
um. Hafa samskipti Almannavarna
ríkisins og Almannavarnanefndar
Reykjavíkur verið með miklum
ágætum. Framkvæmdastjóri Al-
mannavarna ríkisins er ætíð boðað-
ur á fundi nefndarinnar og situr
þá verði því við komið. Nefndin
hefur tekið undir þær tillögur sem
komið hafa frá Almannavörnum
ríkisins um fr'amkvæmd einstakra
þátta í almannavörnum. Hins vegar
hefur verið lýst áhyggjum við
nefndina um að framkvæmdir í
ákvörðunum nefndarinnar gengju
hægar en æskilegt væri. Nefndin
brásti þegar við því og réði sér-
stakan verkefnisstjóra í fullt starf
til að hraða málum í framkvæmd.
Almannavarnir höfuðborgar
landsins eru mikið ábyrgðarstarf
og hefur þessi fagnefnd hennar eitt
víðtækasta verksvið allra nefnda
borgarinnar. Hefur Almannavarna-
nefnd Reykjavíkur haft forystu í
framkvæmdum á mörgum sviðum
almannavarna í héraði, sem ekki
verða talin upp hér.
Reykjavík, 20. apríl 1990.
F.h. Almannavarna ríkisins,
Guðjón Petersen.
Opinn fundur
um Aburðar-
verksmiðjuna
ÍBÚASAMTÖK Grafarvogs
standa fyrir opnum fundi um
málefni Áburðarverksmiðju
ríkisins í Gufúnesi og önnur
umhverfismál í Grafarvogi.
Fundurinn verður haldinn í
félagsmiðstöðinni Fjörgyn við
Foldaskóla í dag, laugardaginn
21. apríl, kl. 14.00. Formaður
íbúasamtaka Grafarvogs, Guð-
mundur Guðmundsson, opnar
fundinn. Framsöguerindi flytur
Guðmundur G. Kristinsson,
stjórnarmaður í íbúasamtökum
Grafaivogs. Ávörp flytja Davíð
Oddsson borgarstjóri, Guðrún
Helgadóttir, forseti sameinaðs
Alþingis, Steingrímur Sigfús-
son landbúnaðarráðherra, Guð-
jón Petersen, framkvæmda-
stjóri Almannavarna ríkisins,
og fulltrúi borgarverkfræðings.
Á eftir verða fyrirspurnir og
umræður. Fundarstjóri verður
Hákon Hákonarson íbúi í Graf-
arvogi.
Sigrirður
Orlyg-s-
son sýnir
Kjarvalsstaðir:
OPNUÐ verður sýning á verkum
Sigurðar Örlygssonar myndlist-
armanns á Kjarvalsstöðum í dag
kl. 14. Verkin á sýningunni eru
sjö talsins, öll unnin á siðustu
tólf mánuðum, og ná þau allt að
20 fermetrum að M£$|Íiiii£ *
Sigurður, sem hefur verið
„Á framabraut", eitt verka Sigurðar á sýningunni á Kjarvalsstöðum.
stundakennari við Myndlista- og ingu sem hélt á Kjarvalsstöðum
handíðaskóla Islands frá árinu árið 1988.
1980, á að baki 18 einkasýningar Sýningin verður opin daglega frá
frá árinu 1971 að telja. Hann Waut _J kl. 11-18 og lýljur sunnudp.gipg,^;
menningarverðfaun DV fyrir sýn-' maí.