Morgunblaðið - 27.04.1990, Síða 4

Morgunblaðið - 27.04.1990, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990 Fárviðri á vestan- og norðanverðu landinu Fjöldi manns lenti í hrakningum BLINDHRÍÐ og fárviðri gekk yfir vestan- og norðanvert landið á miðvikudag og fimmtudag og lenti Qöldi manns í hrakningum á bfium sínum á vegum á VestQörðum og vestan- og austanverðu Norðurlandi. Veðrinu slotaði upp úr hádegi í gær og er talið að þetta hafi verið eitt mesta veður sem gengið hefur yfir landið á þessum vetri. Hjá Vegagerðinni fengust þær upplýsingar að fært væri um mest- allt Suðurland allt austur að Vík. Austan Víkur var fært stærri bílum og síðan fært austur til Austfjarða utan hvað fjallvegir voru ófærir. Fært var um Hval- fjörð, Borgarfjörð og mestallt Snæfellsnes en norðan Hellissands. var ófært og Holtavörðuheiði var ófær. Mikið fannfergi var víða á Norðurlandi en til stóð að moka í dag flestar leiðir á Suðurlandi, Vesturlandi og Norðurlandi allt austur til Húsavíkur. Kirkja skemmist á Tálknafirði Upp úr kl. 17 á miðvikudag hvessti skyndilega á Tálknafirði. Fyrr en varði geisaði þar norðaust- an fárviðri svo ekki sá út úr augum og buldi íshröngl af götum bæjar- ins á rúðum húsa. Þá létu undir- stöður 200 fermetra fiskihjalls í bænum undan áhlaupinu og lagð- ist hjallurinn á hliðina undan þunganum. Húsið er talið ónýtt og nemur tjónið milljónum króna. í hjallinum voru geymd veiðarfæri. Við eyðibæinn Stóra-Laugardal þeytti vindurinn braki úr gömlu fjárhúsi á kirkjuna sem þar er, braut rúður og olli því að jámplöt- ur fuku af þaki hennar. Brak úr fjárhúsinu lenti einnig á rafmagns- streng sem liggur frá Tálknafirði til Amarfjarðar og sleit hann í sundur. Varð rafmagnslaust af þeim sökum á Tálknafirði í um fjórar klukkustundir. Línumenn unnu að viðgerð uppi í staurum þar sem erfítt og hættulegt var að athafna sig því veðurhamnum fylgdi 8-10 gráðu frost. Á Tálknaf- irði er ekki vararafstöð. Hrakningar í Aðaldal Harður árekstur varð á milli jeppa og fólksbifreiðar í Aðaldals- hrauni í Suður-Þingeyjarsýslu og er ökumaður fólksbifreiðarinnar mikið slasaður. Á veginum i Köldukinn, miðja vegu milli Akur- VEÐURHORFUR í DAG, 27. APRÍL YFIRLIT í GÆR: Um 500 km austur af Langanesi er 965 mb lægð og önnur álíka skammt austur af Jan Mayen, hreyfast báðar norð- austur. Á Grænlandshafi er hæðarhryggur sem þokast austur en heldur vaxandi lægðir suður og vestur af Hvarfi sem munu samein- ast og verða á Grænlandshafi í fyrramálið. SPÁ: Suðaustanátt um land allt, víðast kaldi eða stinningskaldi. Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands og síðar einnig á Norð- ur- og Austurlandi. Hiti 0 til 5 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Horfur á laugardag og sunnudag: Suðvestanátt um mestallt land. Skúrir eða slydduél á víð og dreif um vestanvert landið og sums staðar á annesjum norðanlands. Þurrt og sennilega léttskýjað á Austurlandi. Hiti víðast á bilinu 4 til 6 stig. x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / -J0° Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða * / # / * / * Slydda / * / * * * , * * * * Snjókoniá * * # ? ? i oo Súld Mistur Skafrenningur v_J Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti vefiur Akureyri +5 snjókoma Reykjavík +1 hálfskýjað Björgvin 7 skúrir Helsinki 16 léttskýjað Kaupmannahöfn 13 skýjað Narssarssuaq -i-5 snjókoma Nuuk +6 skafrenningur Ósló 10 rigning Stokkhólmur 17 léttskýjað Þórshöfn 3 snjóél á síð. klst Algarve 20 hálfskýjað ’ Amsterdam 15 alskýjað Barcelona 16 mistur Berlín 16 skýjað Chicago 19 léttskýjað Feneyjar 17 þokumóða Frankfurt 15 skúr Glasgow 9 skýjað Hamborg 18 skýjað Las Palmas 20 léttskýjað Lundúnlr 12 rigning Los Angeles 14 heiðskírt Lúxemborg 16 skýjað Madríd 12 skýjað Malaga 18 skýjað Maliorca vantar Montreal 12 þokumóða NewYork 11 heiðskírt Orlando 18 léttskýjað París vantar Róm 17 léttskýjað Vín 9 skruggur Washfngton *1 '22 mistúr ' 11 Winnipeg 1 alskýjað Morgunblaðið/Jón Bjamason Fiskhjallurinn á Tálknafirði sem lét undan í óveðrinu á miðvikudag. eyrar og Húsavíkur, festist rúta með sænska jarðfræðinga og vöru- flutningabíll síðla miðvikudags- kvölds og hélt bílstjóri rútunnar kyrru_ fyrir í bíl sínum alla nótt- ina. Úrkoma á Staðarhól í fyrra- dag mældist 30 mm. Löng jarðarför Séra Ægir Sigurgeirsson, prest- ur á Skagaströnd, jarðsöng á Holtastöðum í Langadal og var athöfnin nýhafín þegar óveðrið skall á. „Það var orðið mjög slæmt áður en yfír lauk og varla stætt í kirkjugarðinum. Þegar útförinni lauk áttu aðstandendur, söngmenn og aðrir sem við jarðarförina voru, í miklum erfíðleikum með að kom- ast til Blönduóss þar sem erfí- drykkja var,“ sagði Ægir. Hann sagði að í allt hefði ferðin til Langadals og aftur til Skaga- strandar tekið 11 klukkustundir. Tveir menn úr Bolungarvík í hrakningum Bolungarvík. Tveir menn sem sátu af sér veðrið aðfaranótt fímmtudags í botni Skötufjarðar komu til Bol- ungarvíkur laust fyrir hádegi í gær. Þeir heita Ingvi Sighvatsson og Haukur Vagnsson. í viðtali við fréttaritara Morgunblaðsins við komuna til Bolungarvíkur sagðist þeim svo frá: „Við lögðum af stað frá Reykjavík kl. 8.30 þriðjudags- kvöld. Allt gekk vel þar til við komum niður í Ísaíjarðardjúp. Þar var þæfingsfærð svo við urðum að setja keðjur á bílinn en meðan við vorum að eiga við það drap vélin á sér og fengum við hann ekki í gang aftur. Við ákváðum að sofa þá nótt í bílnum, aðfara- nótt miðvikudags. í bítið daginn eftir leituðum við aðstoðar á nær- liggjandi sveitabæ. Bóndinn fylgdi okkur síðan langleiðina fýrir ísa- fjörð. Er við vorum á leiðinni inn Skötufjörð um kl. 16 skall á svartabylur og skafrenningur. Þegar hér var komið var ekki ann- að fyrir okkur að gera en að bíða þar sem við vorum eftir að veðrinu slotaði. Það fór ekki illa um okk- ur, við létum bílvélina ganga ann- að slagið til að hita upp bílinn.“ Stórviðrið stóð fram til kl. 4 aðfaranótt fimmtudags en þá fór heldur að lægja. „Þá fórum við að finna fyrir slappleika og van- líðan. Héldum við í fyrstu að þetta væri aðeins þreyta en sem betur fer áttuðum við okkur á því að hér var koltvísýringi frá útblæstri vélarinnar um að kenna.“ Um kl. 10 í gærmorgun fundust mennimir og voru þeir komnir til Bolungarvíkur kl. 13.30, eftir um það bil 40 klukkustunda ferðalag. Starfsmaður orkubús Vest- Qarða sem fór á snjósleða frá Reiðhjallavirkjun í Syðridal, skammt frá Bolungarvík, ók fram af hengju í fyrradag. Maðurinn komst á næsta sveitabæ og reynd- . isÞminnp sJasaðurven í fyrsfu yirt- ist. Gunnar Vonskuveður á Vesturlandi Borg, Miklaholtshreppi. Norðaustan rok og stórhríð með fannkomu skall hér á seinnipartinn í gær. Eitt versta veður sem kom- ið hefur á þessu ári, þó nú sé vika af sumri. Margir ferðamenn á bif- reiðum lentu í vandræðum vegna ófærðar og blindu. Áætlunarbif- reiðir sem komu frá Ólafsvík og Stykkishólmi fengu vonskuveður í Kerlingarskarði og töfðust mikið. Áætlunarbifreið var einnig sam- ferða vöruflutningabifreið frá Hellissandi en einnig varð að skilja eftir nokkra fólksbíla sem fólk varð að yfirgefa. Fólkið komst á leiðarenda með áætlunarbifreiðun- um. Svo dimm var hríðin að ganga varð á undan bílunum ofan frá Seljafelli að Vegamótum. Um mið- nætti lægði veðurofsann og hélt þá áætlunarbifreiðin af stað til Reykjavíkur. Þá varð umferðaróhapp á Hey- dalsvegi. Þrir bílar lentu þar sam- an, einn varð óökufær. Mikil blinda og fannkoma var þar einnig. Fyrsti bíllinn var olíubíll. Varð bílstjórinn að stoppa vegna hríðarblindu. Þá lenti aftan á honum stór vöruflufn- ingabifreið með vagni aftaní. Síðan kom þriðji bíllinn, það var einnig vöruflutningabíll. Sá árekstur var það harður að aftan- ívagninn lenti þvert á veginum. Sá síðasttaldi er óökufær en engin slys urðu á mönnum. Til þess að ná þessum bílum svo umferð gæti haldist eðlileg, varð að nota veg- hefil, jarðýtu og kranabíl. - Páll Ofviðri í Strandasýslu Laugarhóli, Bjarnarfirði. Eitthvert versta áhlaup vetrar- ins skall yfir hér um slóðir eins og hendi væri veifað miðvikudag- inn 25. apríl siðdegis. Skólabíll úr Hólmavíkurhreppi varð veður- tepptur á Ósi, skammt innan við Hólmavík, en skólabíll úr Kaldr- ananeshreppi sem var að koma frá Hólmavík, tepptist á Hrófbergi. Báðir þessir bæir eru við innan- verðan Steingrímsfjörð sunnan- verðan. Hélst þetta fárviðri fram á nótt og sá bókstaflega ekki handaskil en allir vegir urðu ófær- ir, bæði um Steingrímsfjarðar- heiði, sem ekki verður opnuð fyrr en í næstu viku, og frá Hólmavík í Brú, sem verður opnaður á föstu- dag. Þá hófst mokstur á leiðinni Hólmavík í Bjarnarfjörð og Drangsnes á fimmtudagsmorgun um hálftíuleytið, en þá var komin sól og blíða. Nemendur Klúkuskóla héldu upp á sumardaginn fyrsta í góðu veðri og fluttu þá m.a. Þjóðarleik- inn. Hjónunum Matthíasi Lýðssyni og Hafdísi Sturlaugsdóttur í Húsavíkursveit fæddist dóttir þann 4. april sl. Ekki væri þetta nein stórfrétt, ef þetta væri ekki fyrsta stúlkan sem fæðist þar í sveit í 20 ár. Þar áður höfðu liðið 6 ár frá því að stúlka fæddist síðast. - SHÞ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.