Morgunblaðið - 27.04.1990, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.04.1990, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990 Um skógrækt í Hrísey eftir Guðjón Björnsson Hrísey er á miðjum Eyjafirði. Fyrir nokkrum árum nefndi góður maður hana „perlu Eyjafjarðar" í blaðagrein. Þessu nafni bregða menn oft fyrir sig í dag. Hrísey skiptist frá því árið 1959 í tvo mjög afmarkaða hluta, þ.e. land Hríseyjarhrepps á suðurhlut- anum og land Sæmundar Stefáns- sonar á norðanverðri eyjunni. Sæ- mundur eignaðist norðurhlutann þetta ár og friðaði strax sitt land. Meðal góðra hluta sem hann vann þar að var að hefja árið 1960 gróð- ursetningu skógarplantna. Vorið 1984 barst í tal á fundi sveitarstjórnar í Hrísey að gera til- raun til skógræktar á landi hrepps- ins. Þessi umræða fékk þegar í stað góðar undirtektir og strax sama ár hófst tilraunin og varð að átaki sem enn stendur. Um skógrækt í landi Hríseyjarhrepps Árið 1974 var öllum búsmala útrýmt í landi Hríseyjarhrepps vegna tilkomu sóttvarnarstöðvar fyrir holdanaut. Því var hægt að hefja gróðursetningu án friðunarað- gerða. í framhaldi af áðurnefndri sam- þykkt sveitarstjómar var leitað til Skógræktarfélags Eyjaíjarðar og ráðgast um hvernig að yrði unnið. Niðurstaða varð að kaupa hálft annað þúsund plantna af víði og birki sem gróðursett var mjög skipulega ofan þorpsins. Ekki fjarri voru nokkur hundruð lerkiplöntur gróðursettar óskipulega í þúfna- móa. Til að gróðursetja víðinn og birkið var auglýst eftir sjálfboðalið- um og ekki mátti minna vera en að meiri hluti vinnufærs fólks, ungl- ingar og fullorðnir, kom til vinnu. Með mikilli vandvirkni, húsdýra- áburði og vökvun, var gróðursett frá hádegi til kvölds. Þetta skeði í miklum hita og fólk varð örþreytt. Nóttina eftir gerði sunnan hvass- viðri með svo miklum þurrki að undur má heita að nokkur nýgróð- ursett planta skyldi lifa það af. En niður voru plöntumar komnar og' niður fór lerkið skömmu síðar. Þetta og næsta ár fóru Hríseyingar á stúf- ana að yfirlíta árangur verka sinna. LANDGRÆÐSLUSKÓGAR ATAK 1990 En viti menn. hvergi fannst skógur- inn, aðeins dapurlegar plöntur sem börðust fyrir tilveru sinni og voru jafnvel heldur daprari en þegar þær voru settar niður. Vorið eftir fyrstu gróðursetning- una var auglýst eftir framlögum til frekari plöntukaupa og skilaði sú auglýsing mjög góðum árangri, bæði hjá einstaklingum og fyrir- tækjum. Keypt var all nokkuð magn af plöntum og gróðursett í sjálf- boðavinnu og af unglingavinnu- hópi. Hins vegar skilaði sams konar auglýsing litlum árangri annað vor- ið sem henni var beitt. Sennileg orsök; skógurinn lét ekki á sér kræla. Þessi orð era ekki sögð til að skopast að Hríseyingum, heldur til að skerpa á því að skógrækt krefst þolinmæði. Þar verður að hugsa í áratugum og aldarfjórðung- um, en þegar til kemur eru þessar áraraðir senn liðnar, börn eru orðin að foreldram og foreldrar að öfum og ömmum. Endanlega sést árang- ur. Þannig verður skógræktarfólk að hugsa og byrji enginn verður aldrei neitt. Að minnsta kosti fyrstu 3 ár skógræktar í landi Hríseyjarhrepps virtust ekki ætla að skila neinu, árangurinn var ekki hughreystandi. Upphafið var sem fyrr greinir árið 1984. Árið 1988 varð mönnum eins og gengur á að rölta um útjörð sinnar heimabyggðar. Hvað var að sjá? Það vora ekki plöntur sem leita þurfti að með logandi ljósi, heldur vísir að bústnum og fallegum tijám. Nú hljóp mörgum kapp í kinn og menn vildu meira. Um skógrækt í Hrísey í Hrísey er ákveðinn hópur sem sýnir skógræktarátakinu mikinn og góðan vilja. Sýnir það í verki, með- al annars með því að hafa frá árinu 1984 gróðursett, með aðstoð ungl- ingavinnu, um 22.000 skógarplönt- ur í land hreppsins. Svo er annar hópur sem er málinu hlynntur en er ekki verulega virkur. Svo eins og gengur era einhverjir sem standa utan við báða þessa hópa. Leitað hefur verið til aðila utan eyjar til að styrkja fjárhagslega plöntukaup Hríseyinga. Þetta hefur tekist og orðið heimamönnum mikil hvatning að fínna samstöðu ann- arra. Stærsta framlag til málefnis- ins er 200.000 kr. framlag Land- vemdar úr plastpokasjóðnum á síðasta ári. Árangur skógræktartilraunar- innar sem hófst í Hrísey árið 1984 kemur mjög á óvart. Lerki sem var gróðursett árið 1984 var árið 1989 komið í 1,2 metra. Meðalvöxtur lerkiplantna frá 1984 var á síðasta ári um 27 sm. Ef ekki kemur til verra árferði á næstu árum en þeim síðustu, mega Hríseyingar eiga von á að eign þeirra í skógi árið 1995 verði orðin svolítið stolt og árið 2000 vísir að fasteign. Þá ættu plönturnar frá 1984 að vera komn- ar nokkuð á þriðja metra á hæð. Trúlega gera fæstir Hríseyingar sér grein fyrir mikilvægi þess sem unn- ið er að á þessari stundu. Þegar sá tími kemur að menn fari að líta á skógrækt sína sem verðmæta fast- eign verður hún sjálfsögð. Þessar hugleiðingar miðast við að árin 1984 til 1989, sem ekki er þó lang- ur tími, séu ofurlítið marktæk hvað varðar skógræktarmöguleika í Hrísey. Gæta þarf að skipulagi skóg- ræktar í Hrísey. Eyjan er trúlega um 95% gróin og meiri hluti svæðis- ins utan þorpsins er þúfnamóar, vaxnir beija- og beitilyngi. Þessir móar skarta mikilli fegurð í ná- lægð, ekki síst þegar beitilyngið er í blóma. Slíkt má ekki kaffæra með framandlegum skógarplöntum. Lerkið er ekki tijátegund sem fer Hrísey alveg eðlilega. Hins vegar skilar það svo góðum árangri að fram hjá því verður ekki litið. Birk- ið vex mun hægar og sá fugl sem einkennir eyjuna, ijúpan, nærist á brumi birkisins og þar er óvægilega gengið til matar síns. Reynslu vant- ar á ýmsar tegundir sem gróður- ÆE LI0NASETTIN KOMINAFTUR Taflborð, spilaborð og Backgammon í sama borði. Verð kr. 27.265,- Eigum einnig 50 teg. taflmanna, 10 teg. skákklukkna og 30 teg. borða. VISA ■ KREDITKORT • SAMKORT • PÓSTKRÖFUR SKÁKHÚSK) Laugavegi 46 ■ Sími 19768 settar hafa verið. Að koma upp all- breiðu skjólbelti utan þorpsins ásamt gróðursetningu á nokkra fal- lega staði þar fyrir utan hefur ver- ið stefnan. Nú þarf að fara að gróð- ursetja frá þessu skjólbelti í teiga sem greinast inn í byggðina. Þá verður hægt að tala um að farið sé að vernda byggðina og íbúa hennar fyrir veðri, auka gæði úti- vistar og auka fegurð og þokka staðarins. Bætt aðbúð staðar bætir búsetumöguleika. Þessi bætta að- búð eykur svo aftur aðra ótalda möguleika sem varða meðal annars atvinnumöguleika sem dreifbýlis- staðir beijast gjarnan við. Hin al- menna vænting er trúlega á þessa leið: Skjólsæld, fegurðarauki og bættir útivistarmöguleikar. Ystibær Fyrr er minnst á norðurhluta eyjarinnar, eign Sæmundar Stef- ánssonar, land Ystabæjar. Hann hóf skógrækt á sínu landi árið 1960 og þar hafa nú verið gróðursettar yfir 70.000 plöntur. Skógrækt Sæ- mundar er frumraun skógræktar í Hrísey. Skógræktin á Ystabæ er skógrækt á landi Hríseyjarhrepps ómetanleg reýnsla sem sýndi á sínum tíma að ekki væri vonlaust að reyna. Hins vegar er ekki að sjá að skógræktin á Ystabæ hafi beinlínis verið frumhvati að skóg- rækt á landi Hríseyjarhrepps þar sem 10 ár liðu frá því að land hreppsins var friðað og þar til tekið var til við að gróðursetja þar. Við íbúðarhúsið á Ystabæ er greni frá fyrstu áram gróðursetn- ingarinnar að verða 30 ára gamalt. Nú er það komið í fimm metra hæð. Lerki frá fyrstu árunum er orðið fjórir metrar. Greni vex vel en þar sem það er í halla gefur það sig mjög undan snjó. Sæmundur telur skógrækt erfið- ari á Ystabæ en á landi Hríseyjar- hrepps vegna þess að þar sé mun næðingssamara. Þar er einnig minna undirlendi. Þegar Sæmundur og fólk hans hóf sitt skógræktar- starf voru höfð samráð við Hákon Bjarnason þáverandi skógræktar- stjóra. „Hann var einstakur mað- ur,“ segir Sæmundur. En hveijar voru væntingar Sæmundar þegar hann setti niður sínar fyrstu plöntur í Ystabæjarlandi? „Það var óráðinn draumaheimur,“ segir hann, og jafnframt segist hann hafa verið skógræktarmaður í eðli sínu áður en hann kom til Hríseyjar. *Sæ- mundur hefur komið fram við land sitt í Hrísey eins og sá einn getur gert sem er samgróinn því. Umhverfismál almennt Umhverfismál hafa á síðustu árum verið Hríseyingum mikið mál, nálgast hugsjón. Upphafið að þess- ari hugsjón er feikn mikil hreinsun sem átti sér stað sumarið 1982 þegar flestir vinnufærir Hríseying- ar tóku þátt í að ganga óvægilega að öllu vafasömu uppsöfnuðu drasli og koma því fyrir kattarnef. Það tók litla jarðýtu næstum viku að koma þessum ósköpum undir yfír- borð jarðar. Tveimur árum síðar hófst jöfnun og uppgræðsla á auð- um svæðum innan þorpsins og umhverfis það. Síðan hefur þessi starfsemi haldið áfram og tekið yfir sífellt fleiri þætti. Eyjan hefur á þessum tíma tekið mikilli breyt- ingu og almennt þykir fólki vænt um hana. Því sámar þegar það sem vel hefur verið gert hlýtur illa með- ferð. Það virðist sérstaklega eldri borgurum staðarins mikils virði að heyra aðkomufólk tala um að Guðjón Björnsson „Það hlýtur að vera áhugamál allra sem skógrækt unna að „átak 1990“ takist vel og verði öllum landsmönn- um hvatning til meira starfs, enda er það markmiðið." byggðarlagið líti vel út, raunar öll- um, jafnvel þeim sem ekki taka þátt í verkefninu. Átak 1990 Það hlýtur að vera áhugamál allra sem skógrækt unna að „átak 1990“ takist vel og verði öllum landsmönnum hvatning til meira starfs, enda er það markmiðið. „Átak 1990“ á að vera upphaf að átaki sem ekki linnir þótt þetta ár líði í aldanna skaut. Þótt skógrækt- arstarfið í landinu væri ekki nema hálfri öld eldra en það er ættum við margan unaðsreitinn sem ekki er til í dag. Þetta vita allir sem leggja skógrækt lið í dag. Það er skylda okkar að halda áfram, ekki bara í því jafnvægi sem verið hefur á undanförnum áram,heldur af mun meiri krafti. Ást manns á landi hans sýnir sig í framkomu hans við það. Það er okkur misvel gefið að finna tengsl- in við ættjörðina, landið sem leyfir okkur að lifa og gefur okkur af þeirri auðlegð sem það á til. Megi okkur öllum, íbúum íslands, veitast sú gæfa að koma fram við land okkar á þann hátt sem það þolir og verða öðrum þjóðum fyrirmynd í þeirri land- og náttúravernd sem menn eru sífellt að uppgötva betur að er vanrækt. Höfundur er sveitnrstjóri í Hrísey. H PRÓFESSOR Margret Stacy heldur opinberan fyrirlestur í boði félagsvísindadeildar Háskóla ís- lands í dag, föstudaginn 27. apríl kl. 15.15 í stofu 101 í Odda. Fyrirlest- urinn verður fluttur á ensku og nefnist: „Test tube babies; A bless- ing or a curse?“. Margaret Stacy er prófessor í félagsfræði við há- skólann í Warwick í Bretlandi og hefur stundað rannsóknir á sviði heilsufélasfræði m.a á nýjustu tækni læknavísinda á sviði fóstur- og fijósemisaðgerða og setið í nefnd á vegum Evrópuráðsins sem hefur íjallað um það efni. Hún hefur einn- ig látið til sín taka á sviði félags- mála, til að mynda verið forseti breska félagsfræðifélagsins jafn- framt því sem hún hefur verið virk í kvennabaráttu í Bretlandi. Að- gangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. Það er í m. MARAS, Síðumúla 21, sem þú getur skoðað uppsett flísalagt baðher- bergi með fallegum flísum, skrautlistum, myndum og speglum. Sjón er sögu ríkari. Opið laugardag frá kl. 10-16, sími 39140.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.