Morgunblaðið - 27.04.1990, Page 44

Morgunblaðið - 27.04.1990, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1990 „'Aitu eJdd eJnhverjar bse-kujr stbmm dg J&llegum Utmíjndam hentugum tit Lnnrömmanarf " Með morgunkaffinu ^ / Ég vil ekki hafa að þú komir með bölvaðar flugur eða snigla í eldspýtustokkum inn i húsið! HÖGNI HREKKVlSI AríM fA T. „HÚfZ ERU Í.AUN/N þlN FyiSlf? PÖSSUN/NA ú, II Hu V ' í i1 wB !’ UM FAÐIR VORIÐ Jesús kenndi okkur Faðir vor; hann kenndi okkur að biðja milli- liðalaust til himnesks Föður okkar. Tilbreiðslu María og dýrlinga er ekk- ert annað en skurðgoðadýrkun. Og hégómi. Menn gátu ekki séð Guð fyrir það sem hann er, og urðu þess vegna að breyta honum í manns- mynd og sögðu að Jesús væri Guð. En hvað sagði Páll postuli um slíka menn? „Þeir kváðust vera vitrir, en urðu heimskingjar og breyttu veg- semd hins ódauðlega Guðs í mynd sem líktist dauðlegum manni. Þeir hafa umhverft sannleika Guðs í lygi, og göfgað og dýrkað mann í stað skaparans! Mennirnir eru því án af- sökunar, þar sem þeir hafa ekki, þótt þeir þekktu Guð, vegsamað hann eins og Guð, heldur gjörst hé- gómlegir í hugsunum sínum og hið skynlausa hjarta þeirra hjúpast myrkri. Því að hið ósýnilega eðli hans, bæði hans eilífi kraftur og guðdómleiki, er sýnilegt frá sköpun heims. Og reiði Guðs opinberast af himni yfir sérhveijum óguðleika og rangsleitni þeirra manna, er drepa Sænskur maður ritaði Velvakanda bréf fyrir nokkru og sagði sá að hann hefði svo gert vegna með- mæla íslendingafélagsins í Gauta- borg. Svíinn, Zoltan Bruckner, er að leita að íslenskri konu, Guðrúnu Jónsdóttur, sem vann um skeið á Carlanderska Sjukhemmet í Gauta- borg. í bréfi Bruckners stendur: -Guðrún var í Gautaborg á árunum 1965 til 1966 og vann þá á Carland- erska sjúkrahúsinu sem er einka- rekið. Eg var sjúklingur á sjúkra- húsinu um þetta leyti. Fyrra árið var hún „Lúsía“ sjúkrahússins. niður sannleikanum með rangs- leitni.“ Rómv. 1:18-23. í Jóhannes 3:13 segir Jesús: „Engínn hefír stígið upp til himins, nema sá er niður sté af himni — mannssonurinn." Það þýðir einfald- lega, að hvorki María, dýrlingar né nokkur maður er á himnum. Við förum öll í paradís eftir líkamsdauð- ann, sjá Lúkas 23:43. Svo það er algjörlega vonlaust að biðja Maríu að biðja fyrir okkur, því hinn fyrsta upprisa (Opinberun 20:6) hefur ekki ennþá átt sér stað, Matteus 24:29-31. Og Jesús sagði einnig við okkur: „Þegar þér biðjist fyrir, þá verið ekki eins og hræsnararnir og viðhaf- ið ekki ónytjumælgi eins og heiðin- gjamir, því að þeir hyggja að þeir muni verða bænheyrðir fyrir mælgi sína. Líkist því ekki þeim,“ Matteus 6:5-7. Hvernig geta þá kaþólikkar réttlætt talnabönd sín sem þeir renna yfir með ofsahraða án þess að hugsa? Og hvernig geta þeir rétt- lætt að prestar, sem þeir kalla „fað- ir“ („Og þér skuluð eigi kalla neinn Nokkrum áður síðar, er ég hóf eftir- grennslan eftir henni, var mér sagt að hún hefði farið heim til íslands. Guðrún er hjúkrunarkona og er trú- lega 42 til 45 ára í dag.“ Svo mörg voru þau orð, Bruckner lætur fylgja heimilisfang sitt og símanumer og fylgir það hér þann- ig að Guðrún eða einhver sem um hana veit geta sett sig í samband við Svíann. Zoltan Bruckner, Kant- or Edgrens vag 14 C, S-44334 Lerum, Svíþjóð. Síminn er 46/ (0) 302-12337. föðuryðar ájörðinni," Matteus 23:9) geta fyrirgefíð syndir? Enginn mað- ur getur fyrirgefið öðrum manni syndir hans eins og sumir setja upp orður á hvern annan. Enginn nema mannssonurinn — Jesús Kristur — gat fyrirgefið syndir. Og svo aðeins eitt í viðbót til að sýna fram á, að Jesús getur alls ekki verið Guð: „En um þann dag eða stund veit enginn, ekki einu sinni englarnir á himni, né sonurinn, heldur aðeins faðirinn." Markús 13:32. Þegar maður hefur sannleikann að leiðarljósi, þá er bara hægt að túlka Biblíuna á einn hátt (en fyrir alla hina er vandalítið að finna texta sem henta hverjum og einum best, eins og Jón Habets viðurkenndi sjálf- ur). Og þá er bara hægt að hafa eina kirkju — kirkju Krists eins og hún var í frumkristninni áður en páfínn og aðrir svokallaðir „fræði- menn“ komu við sögu og gjörspilltu henni með erfikenningum mann- anna. „Því að Guð er ekki Guð rugl- ingarinnar, heldur friðarins," I. Kor. 14:33. Þess vegna er ég enginn þræll neins trúarbragðaflokks, aðeins lærisveinn Krists. Ég þarf engar hækjur. Þegar maður hefur fundið sannleikann, þá er hann hættur að trúa, þá veit hann: Jóh. 8:32. Rök- semdirnar hafa verið bornar fram, rit og bækur hafa haft sín áhrif, en þó munu þúsundir og þúsundir hafa verið hindraðir í að öðlast fullan skilning á sannleikanum, Lúkas 11:52. En þrátt fyrir þau öfl sem bundist hafa samtökum gegn sann- leikanum mun mikill ijöldi taka sér stöðu nú við hlið Drottins. Boðskap- urinn verður fremur fluttur af djúp- ri sannfæringu anda Guðs en með röksemdafærslum. Og við Jón Habets langar mig að segja þetta: „Hrind þú ekki með mat þínum í glötun þeim manni, sem Kristur er dáinn fyrir. Því að ef bróð- ir minn hryggist sökum matar, þá ertu kominn af kærleikans braut.“ Rómv. 14:13-15. Virðingarfyllst, Bronko Bj. Haralds Svíi leitar íslenskr- ar hjúkrunarkonu Vann í Gautaborg fyrir aldarflórðungi Víkverji skrifar Eigi alls fyrir löngu keypti Víkverji tvö ríkisskuldabréf af Ríkissjóði í Landsbanka íslands. Bréf þessi voru gjöf til ungs manns, sem var að fermast. í sjálfu sér er þetta ekki í frásög- ur færandi, ef klúðurslegt orðalag bréfsins hefði ekki vakið athygii Víkveija. Ríkisskuldabréfið hljóðaði svo, ef við köllum fermingardreng- inn Jón Jónsson: „Ríkissjóður Is- lands gjörir kunnugt, að hann skuldar Jón Jónsson, A-gata 100, Reykjavík, 10.000 krónur.“ Eins og hver maður sér, er ætlazt til að nafn bréfseiganda sé skrifað í þágu- falli en ekki nefnifalli eins og gert er við útgáfu bréfsins. Allt annað er klúður og þeirri stofnun, sem sér um útgáfu bréfanna, hvort sem það er Ríkissjóður, Seðlabanki eða Landsbanki, til skammar. Það ætti að vera krafa númer eitt, að íslenzkureglur séu ekki brotnar við útgáfu verðtryggðra ríkisskuldabréfa. xxx Nýlega skrifaði Víkveiji um lé- legar kartöflur í verzlunum og bar fram umkvartanir kunn- ingjakonu sinnar, sem áleit Ágætis-kartöflur (með stórum staf) svína- en ekki mannamat. Þessi kunningjakona skýrði kaupmannin- um sínum frá þyí að þessi Víkveija- klausa um kartöflurnar hefði komið: frá sér. Kaupmaðurinn skýrði aftur starfsmönnum Ágætis frá þessu og niðurstaðan varð, að konan fékk tvo poka af kartöflum ókeypis. En viti menn — þetta voru tveir pokar af sama „svínafóðrinu". xxx Víkveija hefur borizt eftirfar- andi bréf frá Auglýsingastof unni Argus, sem skrifar það fyrir hönd IBM á íslandi: „Þriðjudaginn 10. apríl vekur Víkveiji athygli á ósamræmi milli auglýsinga í Financial Times og Morgunblaðinu. Um er að ræða auglýsingar á nýjum geislaprentur- um frá IBM. Okkur er góðfúslega boðið rúm í dálkinum til skýringa og þiggjum við það með þökkum. Geislaprentarinn IBM LaserPr- inter kom á markað á síðasta ári og hlaut í janúar 1990 fyrstu verð- laun PC Magazine fyrir tæknilega yfirburði. í umsögn dómnefndar segir m.a. (orðrétt á ensku til að fyrirbyggja allan misskilning): „it does everything just a little bit bett- er than the compedition: it holds a little less space — all while using about a third of the parts of com- parable printers" (PC Magazine, 9. árg. 1. tbl. 16. janúar 1990, bls 117). í íslensku auglýsingunni er getið um þessi verðlaun og er texti auglýsingarinnar að hluta unninn upp úr umsögn dómnefndar. Rétt er að geta þess að PC Magazine er eitt útbreiddasta blað heims um tölvur og algjörlega óháð IBM. En þarna er því sem sagt haldið fram að IBM-geislaprentarinn sé settur saman úr rúmlega 60% færri ein- ingum. I erlendum auglýsingagögn- um frá IBM segir hins vegar um IBM LaserPrinter: „... an advanced IBM design includes fewer parts into the printer (about 390 — less than half the number in other desktop laser printers)". Sam- kvæmt þessu er IBM LaserPrinter samsettur úr meira en helmingi færri einingum en aðrir geislaprent- arar. I töflum sem fylgja sumum auglýsingum IBM er talan 390 hins vegar færð upp og er þar talað um u.þ.b. 400 einingar í IBM-prentar- anum á móti u.þ.b. 1000 í öðrum sambærilegum prentara, eða 60% færri, og er þar talan sem stuðst er við í íslensku auglýsingunni í Morgunblaðinu. Ekki kunnum við skýringar á tölunum í auglýsingunni í Financial Times, en helst virðist sem þar hafi tölurnar óvart snúist við, þótt ekkert verði um það fullyrt. Að lokum viljum við þakka Vík- veija fyrir athugasemdir sínar. Það er gott að vita af fólki sem gleypir ekki hrátt sem það les í auglýsing- um. Það veitir okkur og ekki síður keppinautum okkar aðhald og fyrir það erum við þakklátír.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.