Morgunblaðið - 06.06.1990, Síða 1
72 SIÐUR B/C
125. tbl. 78. árg.
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Leiðtogafiindurinn í Washington:
Forseti Litháens gagn-
rýnir Bandaríkjamenn
Staða Gorbatsjovs sögð verða sífellt erfíðari
Moskvu, Washington, dpa, Reuter.
VYTAUTAS Landsbergis, forseti Litháens, sagði á þingi landsins í
gær að niðurstöður leiðtogafundarins í Washington hefðu valdið lands-
mönnum vonbrigðum. Gagnrýndi forsetinn framgöngu fulltrúa Banda-
ríkjastjórnar á fúndinum. Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi kom í
gærdag til Moskvu úr Bandaríkjaförinni en sérfræðingar í málefnum
Sovétríkjanna sögðu um helgina að svo virtist sem staða hans eystra
yrði stöðugt erfiðari.
Landsbergis sagði í ræðu á þingi
að Litháar hefðu vænst þess að
samningar þeir sem undirritaðir voru
á Washington-fundinum yrðu
bundnir því skilyrði að Sovétmenn
slökuðu á efnahagsþvingunum
sínum gagnvart landsmönnum og
viðurkenndu rétt þeirra til sjálfstæð-
is. Sagði hann sýnt að Bandaríkja-
menn hefðu brugðist Litháum og
mætti heita öruggt að Sovétstjórnin
teldi sig nú geta beitt Litháa ofríki
og þvingunum athugasemdalaust.
Míkhaíl S. Gorbatsjov kom síðdeg-
is í gær til Moskvu eftir að hafa
lokið fjögurra daga heimsókn sinni
til Bandaríkjanna. Á mánudagskvöld
Noregur:
Líðan kon-
ungs betri
Ósló. Frá Helge Sorensen, fréttaritara
Morgunblaósins.
var meginhluti fréttatíma sovéska
ríkissjónvarpsins lagður undir
Bandaríkjaförina og voru sýndar
myndir af hamslausum fögnuði
aðdáenda Sovétleiðtogans vestan-
hafs er hann gaf sig á tal við alþýðu
manna í Minnesota-ríki. Sögðu er-
lendir fréttamenn að svo virtist sem
forráðamenn sjónvarpsins vildu með
þessu leggja áherslu á vinsældir leið-
togans erlendis en hann þykir eiga
undir högg að sækja í Sovétríkjun-
um. Bandaríski rithöfundurinn Gail
Sheeby sem vinnur að bók um Gorb-
atsjov sagði í sjónvarpsviðtali í
Bandaríkjunum að innan Kremlar-
múra væru stuðningsmenn Gor-
batsjovs teknir að velta því fyrir sér
hversu lengi hann yrði við völd.
Sagðist hún hafa orðið vör við það
í ferð sinni til Moskvu nýverið að
Sovétleiðtoginn hefði einangrast.
Blaðamaðurinn Dusko Doder, sem
ritað hefur ævisögu Gorbatsjovs og
bjó lengi í Moskvu, spáði því í við-
tali að hann yrði ekki við völd í
Sovétríkjunum næsta vetur.
Sjá fréttir á bls. 26 og 27.
Blóðbaðsins í Peking minnst
Á mánudag var ár liðið frá því kínverskir hermenn brutu á bak aftur
mótmæli námsmanna á Torgi hins himneska friðar í Peking og myrtu,
að því talið er, hundruð eða þúsundir manna. Fórnarlambanna var
minnst víða um heim, m.a. komu sovéskir námsmenn saman á Rauða
torginu í Moskvu en þar var myndin tekin. Athöfnin fór friðsamlega
fram en engu að síður neyddu lögreglumenn námsmennina til að
hverfa af torginu.
Sjá frétt á bls. 29.
Sovétríkin:
Mannfall í
Kírgísíu
Moskvu. Reuter, dpa.
NEYÐARÁSTANDI læfúr verið
lýst yfir í borginni Osh í Sovétlýð-
veldinu Kírgísíu en ekki færri en
11 manns hafa fallið í borginni fi’á
því á mánudag er Uzbekar efndu
til mótmæla vegna þess að
Kírgísar höfðu tekið landskika
þar nærri á sitt vald.
Sex menn féllu á mánudag er
sveitir lögreglu hófu skothríð til að
dreifa þúsundum Úzbeka sem safn-
ast höfðu saman í Osh. Úzbekarnir
báru eld að byggingum og hugðust,
að sögn talsmanns innanríkisráðu-
neytis lýðveldisins, ráðast á lög-
reglustöð borgarinnar er lögreglu-
mennirnir hófu skothríð.
Inte’rfax-fréttastofan, sem telst
óháð, skýrði frá því í Moskvu í gær
að 11 manns hefðu fallið frá því á
mánudag og 210 særst. Innanríkis-
ráðherra Kírgísíu, Felix Kúlov, sagði
enn barist í úthverfum Osh.
Svo virðist sem tilefni uppþotanna
hafi verið deila þjóðanna tveggja um
yfirráðarétt yfir landskika í nágrenni
borgarinnar. Sovéska TASS-frétta-
stofan kvað Kírgísa hafa sest að á
svæðinu umdeilda til að tryggja að
þeim yrði heimilað að reisa þar hús
en húsnæðisskortur mun vera al-
mennur í Osh líkt og víðast hvar
annars staðar í Sovétríkjunum.
Hefðu þá Úzbekar tekið að krefjast
þess að þeim yrði einnig fengið
byggingarland.
ÓLAFUR V Noregskonungur
fékk alla fjölskylduna í heimsókn
að rúmstokknum í gær þar sem
hann lá á Ríkissjúkrahúsinu í
Ósló. Konungur, sem er 86 ára
gamall, fékk heilablóðfall á laug-
ardagskvöld en líðan hans er sögð
betri núna.
Ljóst þykir að heilablóðfallið hafi
ekki verið mjög hastarlegt þar sem
konungur gat hreyft vinstri fótinn
í gær en hann lamaðist í fyrstu
öðru megin. Um kl. níu í gærmorg-
un sögðu læknar að konungur hefði
átt rólega nótt og sofið vel. Hitinn
hefði lækkað og lungnabólgan væri
í rénun. Enn væri hann lamaður
að hluta vinstra megin en konungur
gæti þó hreyft fótinn og höndina.
„Ástandið er ekki lengur jafn
hættulegt," sagði í tilkynningu
læknanna.
Jan P. Syse forsætisráðherra
hefur í bili aflýst öllum utanlands-
ferðum, meðal annars Póllandsferð
nk. sunnudag.
Ráðstefiia RÖSE-ríkjanna um mannréttindi:
Búist við leiðtog'afundi um
samevrópskt öryggiskerfí
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter.
Mannréttindaráðstefna á vegum RÖSE, Ráðstelhunnar um ör-
yggi og samvinnu í Evrópu, var sett í gær í Kaupmannahöfh að
viðstöddum utanríkisráðherrum 34 ríkja, þar á meðal Edúard
Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, og James Baker,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Munu þeir halda áfram viðræð-
um sínum um framtíð sameinaðs Þýskalands en Shevardnadze
sagði í gær, að það væri aðcins sigurvegara síðari heimsstyrjaldar
og þýsku ríkjanna að ákveða hana. Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra Islands, flutti ræðu á ráðstefiiunni í gær.
Uffe Ellemann-Jensen, utanrík-
isráðherra Dana, setti ráðstefnuna
að viðstaddri Margréti Dana-
drottningu og gerði að umtalsefni
Lygileg
lottó-
heppni
Ástralska stúlkan Mic-
helle Kenny hefur
ástæðu til að brosa
breitt þessa dagana; á
þremur vikum hefur
hún hún tvívegis fengið
þann stóra í lottó-spili
og afraksturinn er um
níu milljónir ísl kr.
Ifrutor
umskiptin, sem orðið "hafa í
Austur-Evrópu síðasta misserið.
Sagði hann, að koma yrði á nýju
kerfi til að auka öryggi og sam-
vinnu með ríkjunum og bætti við,
að sem svar við því ætluðu ut-
anríkisráðherrar 35 ríkja að koma
saman þá um daginn til að ræða
undirbúning leiðtogafundar
RÖSE-ríkjanna Áætlað er, að
fundurinn verði í París fyrir ára-
mót. Danir hafa hins vegar boðist
til að hýsa fastanefndir RÖSE-
ríkjanna verði hugmyndin um
samevrópskt öryggiskerfi að veru-
leika.
Shevardnadze tilkynnti í ræðu
sinni í gær um frekari niðurskurð
í kjarnorkuvopneign Sovétmanna
í Mið-Evrópu. Hann sagði, að fjór-
veldin, Bandaríkin, Sovétríkin,
Bretland og Frakkland, og þýsku
ríkin tvö ættu að ákveða framtíð
sameinaðs Þýskalands. Kohl
kanslari V-Þýskalands ítrekaði
hins vegar í ræðu er hann flutti í
New York í gærkvöldi að ekki
yrði fallist á annað en Þýskaland
yrði aðili að Atlantshafsbandalag-
inu (NATO). Sagði hann þýsku
þjóðina andvíga hlutleysi og ein-
hliða. afvopnun og.að saga Þýska-
lands sýndi að stöðugleiki yrði
aðeins tryggður með aðild iandsins
að NATO.
Fulltrúa á ráðstefnunni eiga
Norður-Ameríkuríkin tvö og Evr-
ópuríkin öll að undanskilinni A!b-
aníu en stjórnvöld þar hafa nú
lýst áhuga sínum á aðild. Hafa
þau áheyrnarfulltrúa á ráðstefn-
unni en málaleitan Litháa um það
sama var hins vegar hafnað.
Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, sagði í ræðu
sinni, að viðfangsefni ráðstefnunn-
ar væri maðurinn sjálfur og vonir
hans um • betri heim og vék að
breytingunum í Austur-Evrópu.
Lagði hann áherslu á sjálfsákvörð-
unarrétt Eystrasaltsþjóðanna og
hvatti til samninga um þau mál
og sagði, að það væri Þjóðverja
einna að ákveða framtíð sína.
Fjölmargir ræðumenn fögnuðu
endalokum einræðisins í Austur-
Evrópu og lögðu áherslu á nauð-
syn þess að lýðræðið yrði treyst í
sessi í ríkjum þessum. Hvergi
mætti slaka á eftirliti með því að
grundvallarréttindi manna væru
virt í hvívetna þótt valdakerfi
kommúnismans hefði hrunið til
grunna.