Morgunblaðið - 06.07.1990, Page 5
5
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 6. JULI 1990
Verðkönnun Verðlagsstofiiunar:
Allt að því 133% verð
munur á ávaxtasafa
VERÐLAGSSTOFNUN hefur
gert verðsamanburð á nokkrum
tegundum ávaxtasafa, hrísgrjón-
um og spaghetti í allmörgum
verslunum á höfuðborgarsvæð-
inu. Samanburðurinn leiddi með-
al annars í Ijós að af 12 tegundum
af hreinum ávaxtasafa var lægsta
meðalverðið á einum lítra af Sól-
appelsínusafa og Sól-eplasafa í
eins lítra umbúðum, en meðal-
verð þeirra tegunda var 101 kr.
6. umferð millisvæðamótsins í Manila:
Margeir gerði jafii-
tefli en Jóhann tapaði
Manila. Frá Karli Þorsteins.
SKÁK Margeirs Péturssonar og Boris Gulko í 6. umferð millisvæða-
mótsisns í skák sem fer fram í Manila á Filipseyjum lauk með jafn-
tefli eftir 30 leiki, en Jóhann tapaði fyrir Sovétmanninum Mikhail
Tal, sem fórnaði manni fyrir kóngssókn.
Sovétmaðurinn Vassily Ivanchuk
er nú einn efstur á mótinu með
fimm vinninga, en hann lagði Ung-
veijann Portisch af velli í sjöttu
umferðinni, en þeir voru jafnir að
vinningum fyrir skákina. Ivanchuk
hefur unnið fimm skákir i röð eftir
tap í fyrstu umferðinni. Næstir hon-
um að vinningum eru ungverski
stórmeistarinn Sax og Gelfand frá
hver lítri. Einn lítri af ávaxtasafa
frá MS í 200 ml. umbúðum kost-
aði að meðaltali 133% meira, eða
235 krónur.
Meðalverð á einstökum tegund-
um af hrísgijónum var frá 16 kr.
fyrir 100 grömm upp í 48 kr., en
það er 200% hærra verð.
Spaghetti frá Barilla í 500 g
pakka kostaði 13 kr. hver 100 g,
en Muller’s spaghetti í 227 g pakka
kostaði 32 kr. hver 100 g, eða 146%
meira. Eggjanúðlur frá Muller’s í
340 g pakka kostuðu hins vegar
að meðaltali 47 kr. hver 100 gr
Við verðsamanburðinn var verðið
á vörunum umreiknað miðað við
ákveðna þyngd eða magn þar eð
þær eru seldar í misstórum pakkn-
ingum.
Forystumenn norrænna garð-
yrkjubænda fiinda í Reykjavík
Árlegur fundur forystumanna samtaka garðyrkjubænda á Norðurl-
öndum stendur nú yfir í Reykjavík, en þetta er í annað sinn sem
slíkur fundur er haldinn hér á landi. Á fundinum hefur meðal ann-
ars verið rætt um EB-EFTA viðræðurnar, en að sögn Bjarna Helga-
sonar, formanns Sambands garðyrkjúbænda, ríkir óvissa meðal norr-
ænna garðyrkjubænda um hvort skapaður verði grundvöllur er ti-yggi
þeim jafna samkeppnisaðstöðu gagnvart EB-þjóðunum. Á myndinni
eru talið frá vinstri: Otto Koch, Danmörku, Kjartan Ólafsson, Helgi
Jóhannesson, Thor Andreassen, Noregi, Jan Röine, Noregi, Jan Hass-
ing, Danmörku, Ismo Ojola, Finnlandi, Egil Larsen, Danmörku, Eski
Murto, Finnlandi, Christer Wohlstrom, Svíþjóð og Bjarni Helgason.
Sovétríkjunum með 4,5 vinninga
og getur Gurevich bæst í hópinn
ef hann vinnur biðskák sína við
norska stórmeistarann Agdestein.
Skák Margeirs og Rechlis úr
fimmtu umferð lauk með jafntefli
og hefur Margeir því 3 vinninga
eftir sex umferðir og Jóhann tvo
vinninga.
Færri ferðamenn í júní en í sama mánuði í fyrra
FÆRRI ferðamenn komu til ís-
lands í júní en á sama tima í
fyrra. 36.260 manns komu til
landsins, þar af 21.062 útlending-
ar, en í fyrra komu 37.746 manns,
þar af 20.130 útlendingar. Þetta
kemur fram í mánaðaryfirliti frá
Útlendingaeftirlitinu.
Flestir erlendir ferðamenn komu
frá Vestur-Þýskalandi eða 3.299,
2.727 frá Svíþjóð, 2.641 frá Banda-
ríkjunum, 2.243 frá Danmörku,
2.044 frá Bretlandi, 1.658 frá Nor-
egi og 1.559 frá Frakklandi. Ferða-
menn af öðru þjóðerni voru mun
færri. Ferðamenn frá 80 þjóðlönd-
um komu til íslands í júní.
Frá áramótum til júníloka 1990
komu alls 111.265 ferðamenn til
landsins, þar af 54.978 útlending-
ar, en á sama tíma í fyrra komu
111.672 ferðamenn, þar af 52.832
útlendingar.
mmmw smmMmmmw m nmmwmww
SKÚTUVOGI 10A-104 REYKJAVÍK - SÍMI 686700
- .. ■■■■ ■' .i..-...
Síðan ég fékk Party Pavilion tjaldið mitt hef ég getað eytt meiri tíma í
garðinum en nokkru sinni áður. Tjaldið hefur sömu kosti og garðstofa
og því get ég boðið gestum mínum út í garð þó skiptist á skin og skúrir.
SiycifrýÓMádétt&i
ÓDÝR OG HENTUG LAUSN
Á íslandi er sumarið stutt,
og því er um að gera að
njóta þess sem best.
PartyPavilion tjöldin eru
frábær lausn fyrir þá sem
unna útiveru og láta
síbreytilega veðráttu ekki
aftra sér. Party Pavilion
tjöldin eru ódýrar og
hentugar garostofur.