Morgunblaðið - 06.07.1990, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990
7
Mitterrand á íslandi
29. o g 30. ágúst
MITTERAND Frakklandsforseti kemur í opinbera heimsókn til
íslands í ágústlok. Allt bendir til þess að hann verði hér á miðviku-
degi og fimmtudegi, 29. og 30. águst, að sögn Kornelíusar Sig-
mundssonar forsetaritara. Skrifleg staðfesting á þessum dögum
hefur þó ekki fengist enn. Mitterand kemur hingað væntanlega
frá Osló.
Ferðamönnum flölg-
ar í þjóðgörðunum
í júnímánuði varð veruleg fjölgun gistinátta ferðamanna í þjóð-
görðunum, í Skaftafelli 46% og í Jökulsárgljúfrum 84% frá því í
fyrra, en þá var aðsókn raunar með minna móti. Fjölgun í Skafta-
felli miðað við júnímánuð undanfarinna ára er um 10%, en í jún-
ímánuði 1987 voru tæplega 9% fleiri gistinætur í Jökulsárgljúfrum
en nú í sumar. I Skaftafelli Qölgaði Islendingum meira en útlend-
um gestum.
Með komu sinni síðsumars end-
urgeldur Francois Mitterand heim-
sókn Vigdísar Finnbogadóttur for-
seta íslands til Frakklands. Mitter-
and kemur hingað fyrst og fremst.
sem þjóðhöfðingi, að sögn forseta-
ritara, en þar sem hann er einnig
stjórnmálaleiðtogi mun hann eiga
pólitískar viðræður við íslenska
ráðamenn. Gert er ráð fyrir að
utanríkisráðherra Frakklands
fylgi forsetanum og ræði við
starfsbróður sinn hérlendis.
Kornelíus Sigmundsson annast
skipulag heimsóknarinnar og und-
irbúning, eins og var um heimsókn
Bretadrottningar í júní. Hann seg-
ir að farið sé að huga að dagskrá
heimsóknarinnar. Gert sé ráð fyrir
Stjórnmála-
samband
við Seychell-
es-eyjar
Utanríkisráðherra Seyche-
les-eyja, Danielle de St Jorre,
kom í heimsókn til íslands dag-
ana 27.-30. júní sl. og í lok heim-
sóknarinnar var ákveðið að
stofhað skuli stjórnmálasam-
band milli Islands og Seychel-
les-eyja segir í frétt frá utanrík-
isráðuneytinu.
Ráðherrann átti viðræður við
Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríksráðherra, m.a. um sam-
starfsverkefni ásviði fiskvinnslu,
hvalamálið o.fl. Á meðan heim-
sókn ráðherrans stóð ræddi hún
m.a. við Halldór Ásgrímsson, sjáv-
arútvegsráðherra, og Jón Sigurðs-
son, viðskiptaráðherra, þar sem
skipst var á skoðunum um ýmis
málefni sem tengja smærri ríki.
Alþýðuflokkurinn:
Flokksþing-
ið haldið í
Hafiiarfirði
BÆJARRÁÐ Haftiarflarðar hef-
ur samþykkt að leigja Alþýðu-
flokknum íþróttahúsið við
Strandgötu 10 til 14. október.
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, sendi bæj-
arráði Hafnarfjarðar bréf, þar sem
hknn fór fram á að fá íþróttahú-
sið leigt vegna flokksþings Al-
þýðuflokksins, sem ráðgert er að
halda í bænum 10. til 14. október
í haust. Bæjarráð samþykkti þetta
erindi fyrir sitt leyti.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
5
að sýna Frakklandsforseta handrit
í Árnastofnun, Listasafn íslands
og fara á Þingvelli eins og jafnan
við svipuð tækifæri. Með Kornel-
íusi starfar undirbúningsnefnd
vegna heimsóknarinnar og hana
skipa siðameistari og ráðuneytis-
stjóri utanríkisráðuneytis auk lög-
reglustjórans í Reykjavík.
Francois Mitterand.
í fréttatilkynningu frá Náttúru-
verndarráði segir að tjaldsvæði
þjóðgarðanna komi vel undan vetri
en veðrátta seinni hluta júní hefur
verið gróðri óhagstæð, þurrkur í
Skaftafelli en kuldi í Jökulsárgljúf-
um. Tjaldsvæðið í Vesturdal í Jök-
ulsárgljúfrum fór mjög illa í flóði
vorið 1989, en er nú óðum að ná
sér og verður leyft að tjalda á hluta
þess í sumar, en ákveðnum svæð-
um verður að hlífa svo þau grói.
Ferðamenn eru beðnir að hafa það
í huga, að ef til vill er ekki alltaf
pláss fyrir alla sem vilja tjalda af
þessum sökum, en nóg er pláss í
Ásbyrgi.
IBM ábyrgist alla
þjónustu á IBM tölvum
og búnaöi sem keyptur hefur
veriö hjá Skrifstofuvélum
Gísla J. Johnsen hf.
Vegna tilkynningar um gjaldþrot fyrirtækisins 'Skrif-
stofuvéla Gísla J. Johnsen hf., sem var m.a. söluaðili
fyrir IBM PS/2 tölvur, vill IBM á íslandi koma því á fram-
færi að nú þegar hefur verið gripið til markvissra ráðstaf-
ana til að tryggja áframhaldandi öfluga þjónustu við not-
endur IBM PS/2 tölva og jaðarbúnaðar.
IBM á fslandi hefur ákveðið að bjóða þeim viðskipta-
vinum Skrifstofuvéla Gísla J. Johnsen hf., sem hafa
greidda viðhaldssamninga á IBM tölvubúnaði, viðhalds-
þjónustu án sérstaks gjalds hjá tæknideild IBM, auk
þess sem þar verður veitt þjónusta á vélbúnaði sem er
í ábyrgð.
Jafnframt verður alhliða þjónusta við notendur IBM
tölvubúnaðar veitt hjá söluaðila IBM á íslandi,
SAMEIND
BRAUTARHOLT 8 - BOX 5193
125 REYKJAVlK-SlMI 615833
Starfsmenn Sameindar munu njóta fulls stuðnings og
aðstoðar tæknimanna IBM á íslandi til þess að tryggja
að notendur IBM tölvubúnaðar njóti ávallt fyrsta
flokks þjónustu.
FYRST OG FREMST
SKAFTAHLÍÐ 24 REYKJAVÍK SÍMI 697700