Morgunblaðið - 06.07.1990, Page 13

Morgunblaðið - 06.07.1990, Page 13
MÖRGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990 13 Landsvírkjun á tímamótum eftir Birgi ísleif Gunnarsson 1. júlí sl. varð Landsvirkjun 25 ára og þann dag var lagður horn- steinn að Blönduvirkjun sem taka á til starfa á næsta ári. Landsvirkj- un var upphaflega sameignarfyrir- tæki ríkis og Reykjavíkurborgar og átti hvor aðili helming. Reykjavík hafði á sínum tíma byggt Elliðaárvirkjun og síðan fyrstu virkjunina við Sogið. Við áframhald Sogsvirkjana kom ríkið inn í þá mynd og þegar Sogið var fullvirkjað voru virkjanir þar í sameign borgar og ríkis. Heppilegt fyrirkomulag Þetta fyrirkomulag um eigna- Þó að enginn svartbakur verpi í þessari eyju koma þeir alls staðar að til þessarar þokkalegu iðju. Ég hefi séð svartbak kyngja 3-4 ungum á skammri stund. Það er reynt eins og hægt er að útiýma þessum vargi, en það er eins og sjái ekki högg á vatni. Við erum gersamlega í vandræðum með hvað taka á til raðild og ákveðinn ásetningur í upphafi að fyrirtækið yrði sjálf- stætt og óháð duttlungum stjórn- málamanna hefur haft mikil áhrif til góðs á rekstur og skipulag Landsvirkjunar. Viðskiptaleg sjón- armið hafa verið mjög ríkjandi og fyrirhyggja í fjármálum einkennt stjórn á fyrirtækinu. Þetta hefur farið í taugarnar á mörgum ráð- herrum sem hafa viljað ráðskast með málefni Landsvirkjunar, eins og annarra ríkisfyrirtækja. Allt hefur þetta leitt til þess að raf- magnsverð á íslandi er nú með því lægsta í Evrópu og mun fyrir- sjáanlega lækka enn í næstu framtíð. I lögunum um Landsvirkj- un frá 1965 var ákvæði þess efnis að Akureyrarbæ væri heimilt að gerast eignaraðili að Landsvirkjun bragðs. Það verður að heíja sameig- inlegt stríð allra eyjabænda eigi að linna þessum ófögnuði. Þessi sami maður sagði fréttarit- ara að þótt hrafninn væri ekki góð- ur, væri svartbakurinn þúsund sinn- um verri. Þetta er ekkert grín, held- ur alvörumál. - Arni Þriðja leiðin er sú að gera Landsvirkjun að hlutafélagi og setja hlut Akureyringa á markað sem fyrsta skref í átt til þess að gefa almenn- ingi kost á því að eign- ast hlut í fyrirtækinu. Þetta kallaði auðvitað á ýmsar breytingar á lög- um um Landsvirkjun en það er skoðun mín að þennan kost eigi að at- huga mjög rækilega og stíga þar með mikil- vægt skref til að einka- væða opinber fyrirtæki. og þá ráð fyrir því gert að Laxár- virkjun gengi inn í Landsvirkjun. Akureyrarbær óskaði eftir því að nýta þetta ákvæði í byijun níunda áratugarins og 1. júlí 1983 gekk Akureyrarbær inn í Landsvirkjun. Um þessa ráðstöfun voru skiptar skoðanir á sínum tíma, bæði sunn- anlands og norðan, en eftir að ákvörðum hafði verið tekin tókst heils hugar samstarf milli þessara aðila og fulltrúar Akureyringa hafa látið mjög gott af sér leiða í fyrirtækinu. Akureyri vill selja Nú hefur nýr meirihluti í bæjar- stjórn Akureyrar látið í ljos ósk um að Akureyri gangi að nýju út úr fyrirtækinu og selji hlut sinn. Það er auðvitað mál Akureyringa að taka slíkar ákvarðanir, en óneitanlega mun það hafa áhrif á framtíð Landsvirkjunar ef af þessu verður. En hvaða leiðir eru helst færar í málinu? Þijár leiðir virðast einkum koma til greina. í fyrsta lagi að ríkið kaupi eignarhlut Ak- ureyrar og eignist þar með meiri- hluta í fyrirtækinu. Fjármálaráð- herra hefur lýst áhuga á því. Það er afleitur kostur. Bæði hefur ríkið ekkert fjármagn til slíkra fjárfest- inga nú og fyrir Reykjavíkurborg yrði það óviðunandi að vera í slíku samstarfí þar sem ríkið hefði meirihluta. Ásælni ríkisins til áhrifa á Landsvirkjun hefur verið mjög mikil og með meirihlutaeign ríkisins myndi engin fyrirstaða verða lengur og því ríkið líklegt til að geta ráðskast með fyrirtæk- ið að vild. Reykjavíkurborg ætti því ekki annarra kosta völ en að ganga einnig út úr fyrirtækinu og reyna, t.d. með Nesjavallavirkjun, að ná tökum á eigin rafmagns- framleiðslu í sem ríkustum mæli. Hlutafélag? Annar kosturinn er að Reykjavíkurborg kaupi hlut Akur- eyrar og væri það auðvitað eðlileg- asti kosturinn ef halda á fyrirtæk- inu í eigu opinberra aðila. Þar með væri komið ú það fyrirkomulag sem ríkti áður en Akureyri gekk Birgir ísleifúr Gunnarsson inn. Báðir aðilar yrðu jafn réttháir og jafnvægið í eignaraðild yrði fyrirtækinu til styrktar. í raun væri það mjög óeðlilegt að hin stutta viðdvöl Akureyringa innan Landsvirkjunar yrði til þess að ríkið eignaðist meirihluta. Þriðja leiðin er sú að gera Landsvirkjun að hlutafélagi og setja hlut Akureyringa á markað sem fyrsta skref í átt til þess að gefa almenningi kost á því áð eign- ast hlut í fyrirtækinu. Þetta kall- aði auðvitað á ýmsar breytingar á lögum um Landsvirkjun en það er skoðun mín að þennan kost eigi að athuga mjög rækilega og stíga þar með mikilvægt skref til að einkavæða opinber fyrirtæki. Höfundur er alþingismaður fyrir SjálfstæðisHokkinn í Reykja víkurkjördæmi. Stykkishólmur: Svartbakurinn í varpinu Stykkishólmi. ÞAÐ er þyngra en tárum taki, sagði eyjamaður við fréttaritara, að sjá hversu svartbakurinn tínir upp æðarungana um leið og þeir komast úr hreiðri og á sjóinn. Maður verður að horfa á æðarkollurn- ar einar eftir stutta stund, þótt þær fari með 3-4 unga til sjós. í tilefni af 60 ára afmæli Sólheima verður heimilið opið öllum landsmönnum frá kl. 13-17 helgina 7.-8. júlí nk. Laugardagur 7. júlí Kl. 14.00 Opnuð sýning á myndverkum eftir heimilisfólk og sýn- ing á Ijósmyndum frá fyrstu árunum í starfi heimilisins. Kl. 15.00 Leikfélag Sólheima sýnir ævintýrið Stígvélaði köttur- inn í leikgerð Alexöndru Kjuregej Argunova. Sunnudagur 8. júlí Kl. 14.00 Afhjúpuð höggmyndin Barnaheimili eftirTove Ólafs- son, gjöf Reykjavíkurborgartil Sólheima. Kl. 15.00 Leikfélag Sólheima sýnir ævintýrið Stígvélaði köttur- inn í leikgerð Alexöndru Kjuregej Argunova. Miðapantanir á leiksýningu eru í síma 98-64431. Veitingasala verður á staðnum. Áætlunarferðir verða frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 11.30 báða dagana. Veriú velliuniin og njúliú helgarinnar á Súlheimum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.