Morgunblaðið - 06.07.1990, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990
Aspir og op-
in umræða
í tilefiii af skrifum Jóhanns Pálssonar
í Mbl. 30.jóní
eftir dr. Kristján
Þórarinsson
Fátt hefur háð áhugamönnum um
tijárækt meir að undanförnu en
skortur á umræðu, upplýsingum og
leiðbeiningum. Sú þögn sem hefur
umlukið hin bitastæðari atriði tijá-
ræktar, skógræktar og landgræðslu
má heita orðin skerandi nú á ári
átaks. Þessu þarf að breyta og verð-
ur að breyta, og til þess er aðeins
ein leið þekkt: Opin umræða. Þess
vegna ber að fagna að ýmsu leyti
ágætu svari Jóhanns Pálssonar,
grasafræðings, við grein Úlfs
Oskarssonar um aspir og árangur í
tijárækt hér í Mbl.
Um niðurstöður
Það er eðli vísindarannsókna að
allar niðurstöður eru bráðabirgða-
niðurstöður. Endanleg svör munu
aldrei fást. Það er hins vegar mats-
atriði hvenær niðurstöður eru orðnar
nægilega ábyggilegar og mikilvægar
til að rétt sé að koma þeim á fram-
færi.
Varðandi val asparklóna til rækt-
unar í Reykjavík og nágrenni, þá
hefur Úlfur Oskarsson metið hlutina
svo að rétt sé að koma upplýsingum
til almennings nú. Þetta er réttur
hans.
Þegar borin eru saman náskyld
og mjög lík tré getur tekið margra
ára rannsóknir að fá öruggar upplýs-
ingar um raunverulegan mun. En
stundum eru aðstæður og árferði
þannig að sjá má mikinn og mikil-
vægan mun á fáum árum. Þetta
síðara gildir um asparklónarann-
sóknir Úlfs.
Þegar fræðimaður gerir opinbera
grein fyrir niðurstöðum sínum þá
má hann eiga von á gagnrýnni um-
ræðu. Þessi umræða fylgir starfi
fræðimanns, og er góðra gjalda verð.
Birkirannsóknir
Eitt þeirra verkefna á Mógilsá
sem nú ríkir óvissa um er mikil og
vönduð úttekt á íslensku skóglendi
og eiginleikum íslenskra birkitijáa.
í þetta verkefni hafa sumir okkar
varið töluverðum tíma, og okkur
mun þykja mjög sárt ef þetta verk-
efni misferst.
Það verður því ekki sagt að við
höfum ekki sinnt athugunum á
íslenska birkinu. Sérfræðingar á
Kristján Þórarinsson
Mógilsá eru því miður fáir og of-
hlaðnir verkefnum, og verða því að
velja og hafna. Það hefur því verið
okkur sérstakt gleðiefni að Þórarinn
Benedikz, skógfræðingur og sér-
fræðingur á Mógilsá, hefur séð sér
fært að taka þátt í því ágæta sam-
starfi um birkirannsóknir sem Jó-
hann nefnir í grein sinni.
Opin umræða
Jóhann Pálsson gerir rétt í því
að tjá sig um þau atriði í grein Úlfs
sem hann telur gagnrýnisverð. Eitt
það mikilvægasta sem við á Mógilsá
höfum barist fyrir er að sérfræðing-
ar í þjónustu hins opinbera njóti
sjálfsagðs málfrelsis. Vegna skrifa
Jóhanns er skilningur minn á erfið-
leikum asparræktar í Reykjavík ann-
ar og meiri en áður. Svona á þetta
að vera!
Ég vil því hvetja sem flesta til
að taka þátt í umræðunni um tijá-
og skógrækt, og að fínna að öllu
því sem þeim þykir missagt í skrifum
okkar Mógilsármanna sem annarra.
Þetta eiga menn að gera ófeimnir
og óhræddir þótt einhver atriði
þarfnist e.t.v. endurskoðunar þegar
tekið hefur verið tillit til fleiri sjónar-
miða. Til þess að hægt sé að taka
tillit til mismunandi sjónarmiða, þá
verða þessi sjónarmið að fá að koma
fram.
Höfiindur starfar sem
sérfræðingur á Rannsóknarstöð
Skógræktar ríkisins á Mógilsá.
R D A G S
INGLU - EIÐISTORG
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
í JÚLÍ OG ÁGÚST
9.30 - 14.00
HAGKAUP