Morgunblaðið - 06.07.1990, Qupperneq 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990
Sjálfsbjörg á ísafirði var síðan eitt
þeirra fimm Sjálfsbjargarfélaga sem
stofnuðu með sér landssamband
árið 1959 og eins og áður er getið
var Trausti fulltrúi á því stofnþingi.
Árið 1960 var Trausti kallaður suð-
ur til starfa fyrir Sjálfsbjörgu og tók
við stöðu framkvæmdastjóra þann
1. nóv. 1960. Alla sína ævi var
Trausti starfsmaður Sjálfsbjargar,
lengst af sem framkvæmdastjóri.
Þótt Trausti sinnti geysi Ijöl-
breyttum og viðamiklum störfum
fyrir Sjálfsbjörgu má segja að bygg-
ing Sjálfsbjargarhússins hafi verið
merkasta og erfiðasta verkefnið sem
hann vann að. Byggingarnefnd
Sjálfsbjargarhússins var komið á fót
1966 og var Trausti í upphafi starfs-
maður hennar sem framkvæmda-
stjóri Sjálfsbjargar, en tæpu ári
síðar var hann skipaður formaður
byggingarnefndar og gegndi því
embætti þar til nefndin hafði lokið
störfum.
Atvinnumál fatlaðra voru Trausta
einnig einkar hugleikin. Þannig átti
Trausti sinn þátt í því að fyrsta
vinnustofa Sjálfsbjargar var stofnuð
á ísafirði í hans formannstíð og eins
og hann orðar það sjálfur í viðtali
við „Sjálfsbjörgu" 1974: „Við þetta
fyrirtæki fékk ég sæmdarheitið
framkvæmdastjóri — án launa.“
Trausti var einnig formaður Sjálfs-
bjargar, féjags fatlaðra í Reykjavík
og nágrénni, árin 1983 til 1989.
Þar lagði hann gjörva hönd á margt
og var m.a. einn af frumkvöðlum
að vinnustofu Sjálfsbjargar í
Reykjavík. Hann var formaður
vinnustofustjórnar frá upphafi til
dauðadags.
Auk þess að sinna framangreind-
um málaflokkum sérstaklega var
Trausti í ýmsum nefndum og ráðum
á vegum Sjálfsbjargar og sinnti
ýmsum öðrum störfum. Hann var
fulltrúi á öllum þingum Sjálfsbjarg-
ar og í seinni tíð ítrekað þingfor-
seti. Til að mynda stýrði Trausti 25.
þingi Sjálfsbjargar, 21.—23. júní
sl., af miklum skörungsskap. Hann
var fulltrúi í stjórn Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra, frá 1984—
1990, í fulltrúaráði Öryrkjabanda-
lags íslands sl. fjögur ár, sat þing
Bandalags fatlaðra á Norðurlöndum
sem fulltrúi Sjálfsbjargar og var í
ýmsum nefndum Sjálfsbjargar, s.s.
atvinnumálanefnd, ferðanefnd og
skemmtinefnd. Síðast en ekki síst
var Trausti forstöðumaður íjáraf-
lana Sjálfsbjargar og reksturs fast-
eigna.
Trausti var sæmdur gullmerki
Sjálfsbjargar, æðsta heiðursmerki
samtakanna, árið 1988. Þá hafði
hann hlotið Fálkaorðuna fyrir störf
sín að félagsmálum og málefnum
fatlaðra.
En Trausti var sannkallaður fé-
lagsmálahaukur og kom víðar við
en hjá Sjálfsbjörgu. Þannig var hann
um iangt árabil virkur félagi í Odd-
fellow-reglunni og eftir að hann
fékk hjartaáfall vár hann einn af
stofnfélögum í Samtökum hjarta-
sjúklinga á íslandi. Þá var Trausti
einnig í Alþýðuflokknum og var
m.a. í framboði fyrir hann.
Það má af framanrituðu vera ljóst
að missir Sjálfsbjargar er mikill
þegar jafn mikilvirkum baráttu-
manni og Trausti var er kippt úr
eldlínunni svona fyrirvaralaust. Við
söknurn þó ekki einungis mikilvirks
baráttumanns. Við söknum fyrst og
fremst góðs félaga, félaga sem var
jafnan hrókur alls fagnaðat' á
mannamótum hjá Sjálfsbjörgu, fé-
laga sem gjarnan greip gítarinn í
hönd á góðri stund og söng með
okkur „Sestu hérna hjá mér, ástin
mín“. Við söknum féiaga sem var
einkar lagið að stjórna fundum og
þingum, félaga sem hafði sérstakt
lag á að taka á móti gestum og var
glæsilegur fulltrúi Sjálfsbjargar.
Við Sjálfsbjargarfélagar söknum
vinar og félaga.
í tímariti Sjálfsbjargar árið 1974
óskar Trausti þess að Sjálfsbjörg
beri gæfu til að vinna að málefnum
fatlaðra af dirfsku og dugnaði,
framvegis sem hingað til. Þessi ósk
hans mun fylgja okkur og vonandi
rætist hún.
Við Sjálfsbjargarféiagar vottum
móður Trausta, konu og dóttur
dýpstu samúð okkar.
Blessuð sé minning góðs vinar
og félaga.
Jóhann Pétur Sveinsson,
formaður Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra.
Prestasteftia:
Hugmyndir uni að kjaradóm-
ur úrskurði um kjör presta
Kirkjumálaráðherra hefur skipað neftid til að gera úttekt á starfs-
kjörum presta og ein þeirra hugmynda sein nefndin mun taka til
athugunar er hvort rétt sé að kjaradómur úrskurði um kjör þeirra
eins og var áður en samningsréttarlög opinberra starfsmanna gengu
í gildi 1986, en þessi hugmynd kom meðal annars fram á presta-
stefnu sem lauk nú nýverið.
Gísli Jónasson, sóknarprestur í
Breiðholtsprestakalli, sem hefur
verið formaður kjaranefndar
Prestafélagsins og setið í launa-
málaráði Bandalags háskólamennt-
aðra ríkisstarfsmanna fyrir hönd
félagsins, segir að þessi hugmynd
hafi skotið upp kollinum af og til
undanfarin ár og hafi verið blásin
upp í fjölmiðlum á fölskum forsend-
um. Þetta tengist á engan hátt
þeim deilum sem nú séu uppi milli
BHMR og ríkisvaldsins. Afstaða
presta hafi komið fram í mótmælum
við stjórnarráðið meðan presta-
stefnan stóð yfir. Hins vegar séu
ýmsir í stéttinni þeirrar skoðunar
að' þetta geti verið vænleg leið
vegna aúgljósrar sérstöðu prests-
starfsins. Það sé fráleitt að prestar
fari í verkfall til dæmis og það sé
því ekki nema sjálfsagt að skoða
þessa hugmynd ásamt öðrum þegar
starfskjör presta eru yfirfarin, eins
og sé verkefni þeirra nefndar sem
kirkjumálaráðherra hafi skipað.
Landafiinda norrænna manna
í Vesturheimi minnst 1992
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gær að veita 10 milljón-
um króna á næstu tveimur árum til þess að minnast landafunda
Leifs Eiríkssonar og annarra norrænna manna í Vesturheimi árið
1992, en þá eru fyrirhuguð mikil hátíðahöld vegna þess að 500 ár
eru þá liðin írá því Kólumbus fann Ameríku. Gert er ráð fyrir að
þetta verði gert í samvinnu við Norðmenn og að siglt verði á knörr-
um frá Noregi til íslands og áfram vestur um haf.
Heildarkostnaður vegna þessa er
áætlaður um 150 milljónir og er
málið nú til umijöllunar í norsku
ríkisstjórninni. Um samstarfsverk-
efni einkaðila og opinberra yrði að
ræða og hefur þessi hugmynd verið
rædd á undirbúningsfundum með
þáttöku Útflutningsi'áðs, fulltrúa
utanríkisráðuneytis og mennta-
málaráðuneytis, Árnastofnunar og
aðila í ferðamálum.
Þá er þess að geta að sú hug-
mynd kom fram í flugráði í vetur
að gefa Keflavíkurflugvelli nafn
eftir Leifi Eiríkssyni. Þessi hug-
mynd skaut upp kollinum fyrir fá-
einum árum en náði þá ekki fram
að ganga að öðru leyti en því að
flugstöðin var heitin eftir Leifi.
Þaðer
ekkinóg
að hafa fengið
góða ávöxtun
1989.
Þúviltlíka
góða ávöxtun
1990!
KJARABRÉF eru lausnin.
KJARABRÉF - 5 ára örugg spamaðarleið.
KJARABRÉF-19% ársávöxtun.
KJARABRÉF—8,1% raunávöxtun.
Ob
VERÐBRÉFAMARKAÐU R
FJÁRFESTINGARFÉBÁGSINS HE
- Löggilt verðbréfafyrirtæki -
HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI689700 • AKUREYRI11100