Morgunblaðið - 06.07.1990, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990
45
Jens Hansson skip-
stjóri - Minning
Fæddur 20. október 1910
Dáinn 26. júní 1990
í dag kveðjum við Jens Hansson
skipstjóra, en hann lést á heimili
sínu þann 26. júní síðastliðinn. Jens
fæddist á Rifi á Snæfellsnesi þann
20. október og voru foreldrar hans
Hans Jensson, útvegsbóndi á Selhól
á Hellissandi, og Þóra Sigurbjörns-
dóttir. Jens fór snemma að vinna
og var nýlega fermdur er hann
gekk á tveimur jafnfljótum suður
og réð sig á bát frænda síns í Vest-
mannaeyjum, þar sem hann vann
nokkrar vertíðir. í framhaldi af því
sá hann hag sínum best borgið með
því að fara í Stýrimannaskólann og
að námi loknu gerðist hann farsæll
skipstjóri á bátum víða um land.
Upp úr 1950 og allt fram til 1962
sótti hann stopult sjóinn og vann
þess á milli í Landssmiðjunni og
síðar í Vélsmiðjunni Sindra sem
járnsmiður. Við þau verk sýndi
hann góða verkkunnáttu og hugvit,
og varð af þeim sökum eftirsóttur
til margra erfiðra verkefna þegar
ráð annarra hefðu brugðist til úr-
lausnar. Jens var alla tíð mjög
heilsuhraustur og entist honum
starfsorka fram að sjötugu, er hann
lét af störfum 1979 í Vélsmiðjunni
Sindra.
Jens giftist árið 1940 Jónínu
Maríu Þorbergsdóttur (f. 2.3.1911,
d. 3.8. 1985) og eignuðust þau fjög-
ur börn sem eru: Jóhannes (f. 1940,
d. 1940), Hans Þór, verslunarstjóri,
fæddur 1941, Hafsteinn, sjómaður,
fæddur 1943, og Sverrir, sjómaður,
fæddur 1949. Bjuggu þau alla sína
búskapartíð í Reykjavík og lengst
af á Réttarholtsvegi 95. Afkomend-
ur þeirra hjóna eru orðnir margir,
en þrátt fyrir fjöldann týndi Jens
ekki niður tölunni og voru öll barna-
börn og barnabarnabörn honum
hugstæð og tíðræð er við áttum tal
saman.
Hin síðari ár voru Jens að mörgu
leyti erfið og höfðu langvinn veik-
indi eiginkonu hans og síðar hans
eigin, þau áhrif að margt af því sem
hugur hans stóð til að gera varð
að bíða. En þrátt fyrir þá erfiðleika
lét hann þó aldrei neinn bilbug á
sér finna og hélt áfram eins og
honum var einum lagið. Jens sýndi
öðru fólki alltaf mikinn áhuga og
bryddaði sífellt upp á skemmtileg-
um umræðuefnum, enda honum í
blóð borin bjartsýni sem kom skýrt
fram er hann barðist við þrálát
veikindi hin síðari ár. Þær urðu
margar stundirnar sem við blótuð-
um saman í kór íslenskri pólitík,
spekúleruðum í breyttu þjóðfélagi
frá því að hann var ungur og ekki
síst bar oft á góma ættfræði og
heljarmennin sem við erum afkom-
endur af. í þeim ham lét hann ekki
á því standa að lýsa broslegum at-
vikum og oft var minnst á það
hvernig hann hlaut viðurnefnið
brjálaði skiptstjórinn og byrjaði þá
sögu svo gjarnan á orðunum „bless-
aður vertu“, eins og ekkert annað
kæmi til greina en að vera álitinn
galinn, þegar hann átti í hlut.
Astæðan fyrir þessu viðurnefni er
þannig til komin að mönnum fannst
hann stundum á mörkum vits fyrir
að tefla áhöfn og skipi í tvísýnu,
þegar veður voru válynd. En á bak
við það „brjálæði“, að halda út á
úfinn sjó sem gerði sig líklegan að
granda hverju sem sigldi, var þó
ekki allt sem sýndist, þar sem að
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
Jens fylgdi álfkona, sem hélt yfir
honum hlífiskyldi og aðvaraði ef
hættur steðjuðu að. Og varð þesi
sambúð hans og álfkonunnar til
þess að Jens varð farsæll sem skip-
stjóri og fenggælari en aðrir nokkr-
ar vertíðir.
Við fráfall afa og langafa er
horfinn góður félagi sem við minn-
umst með söknuði.
Sigurjón Baldur
Hafsteinsson og
fjölskylda.
t
Elsku drengurinn okkar og bróðir,
BERGUR ATLASON,
er látinn.
Útfðr hans verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn
7. júlí kl. 14.00.
Minningarathöfn fer fram í Langholtskirkju þriðjudaginn 10. júlí
kl. 16.00.
Foreldrar og systkini.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
VILHJÁLMUR HANS ALFREÐ SCHRÖDER
framreiðslumaður,
Hringbraut 92c,
Keflavik,
andaðist í Landakotsspítala þann 4. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabarn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma,
BJARNHEIÐUR S. DANÍELSDÓTTIR
frá Auðsholti, Grindavík,
Hamrahlíð 17,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 7. júlí kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Grindavíkurkirkju.
Einar Indriðason,
Danfel Einarsson, Sigríður Jóhannsdóttir,
Birna Bjarnadóttir, Daníel Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTÍN ÖGMUNDSDÓTTIR
frá Syðri-Reykjum,
til heimilis á sambýlinu Skjólbraut 1a,
Kópavogi,
sem lést í Landspítalanum sunnudaginn 24. júní, verður jarðsett
frá Langholtskirkju mánudaginn 9. júlí kl. 15.00.
Sverrir Kristinsson, Þórunn Jósefsdóttir,
Kristín Ósk Sverrisdóttir, Torfi Halblaub,
Margrét Sverrisdóttir,
Kristinn Örn Sverrisson,
Eyrún Ósk Torfadóttir.
Útför
t
JENS HANSSONAR,
Eiríksgötu 13,
Reykjavík, .
fer fram frá Bústaðakirkju I dag, föstudaginn 6. júli, kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Barnaspítala Hringsins.
Hans Þór Jensson,
Sverrir Jensson,
Hafsteinn Jensson
Hjördís Sigurðardóttir,
Dorothea Róbertsdóttir,
og barnabörn.
t
Útför ástkærs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
KARLS JÓHANNS ÓLAFSSONAR
framkvæmdastjóra,
Brúnalandi 19,
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 10. júlí kl. 15.00 .
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir,
en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir.
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Kristjón, Karl Friðrik, Lilja Britta,
Kristin Erla, Eva, tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn og faðir,
TRAUSTI SIGURLAUGSSON
forstöðumaður í Sjálfsbjörg,
Skólagerði 48,
Kópavogi,
sem lést aðfaranótt 30. júní, verður
jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag,
föstudaginn 6. júlí, kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Sjálfsbjörgu, landssam-
band fatlaðra, og Landssamtök hjartasjúklinga.
Fyrir hönd móður, systkina og annarra ættingja,
Helga Hermannsdóttir,
Ester Traustadóttir.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum, er
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför
INGIBJARGAR SIGFÚSDÓTTUR.
Guðjón Sveinsson,
Sveínn Guðjónsson,
Auðbjörg Ámundadóttir, Sigfús Þorsteinsson,
Ásta Sigfúsdóttir, Kjartan Reynisson,
Þorsteinn Sigfússon, Þóra Vilborg Jónsdóttir,
Ómar Sigfússon,
Freyja Leópoldsdóttir.
t
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim, sem sýndu mér samúð og
hlýhug við andlát og jarðarför mannsins míns,
BJÖRNS S. GUNNLAUGSSONAR,
áður til heimilis á Álfhólsvegi 141,
Kópavogi.
Anna H. Karlsdóttir.
t
Innilegar þakkir sendum við þeim, er
sýndu okkur samúð við andlát og útför
bróður okkar,
OTTÓS B. E. BENEDIKTSSONAR,
Grettisgötu 37.
Systkini hins látna og fjölskyldur þeirra.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum, utan lands og innan, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar,
sonar, bróður og mágs,
GUÐJÓNS S. SIGURJÓNSSONAR,
Boston, Massachusetts.
Eyþór K. Guðjónsson,
Leger Walcott Guðjónsdóttir, Ragnheiður Steina Guðjónsdóttir,
Guðrún I. Jónsdóttir, Sigurjón H. Sigurjónsson,
Jóna Sigurjónsdóttir, Þórður Adólfsson,
Sigurjón G. Sigurjónsson, Anna E. Ásgeirsdóttir,
Viðar Sigurjónsson, Ólöf Jónsdóttir,
Gunnhildur Sigurjónsdóttir, Ólafur Mogensen.
Lokað
Skrifstofa Landssamtaka hjartasjúklinga í Hafnar-
húsinu verður lokuð í dag vegna jarðarfarar
TRAUSTA SIGURLAUGSSONAR, framkvæmda-
stjóra Sjálfsbjargar.
Landssamtök hjartasjúklinga.
Lokað
Skrifstofur, sjúkraþjálfun og sundlaug Sjálfsbjargar,
Hátúni 12, verða lokaðar frá kl. 12.00 í dag, föstu-
daginn 6. júlí, vegna jarðarfarar
TRAUSTA SIGURLAUGSSONAR.
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra,
og Sjálfsbjörg, félag fatlaðra
í Reykjavík og nágrenni.