Morgunblaðið - 06.07.1990, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990
ffttAAflfl
Ég er að ná þessu. Þegar
ég var síðast á svona mat-
arkúr þyngdist ég aðeins
um 5 kg.
Þessir hringdu . . .
Myndavélahulstur fannst
Svart hulstur utan af Conica
myndavél fannst í Selatöngum,
skammt frá Krísuvík. Eigandi
getur hringt í síma 34658.
Fann kanínu
Lítil ljósblá kanína fannst á
bekk við Tjörnina. Á kanínuna er
saumað „Kiss me“. Eigandi getur
hringt í síma 612338.
Barnarúskinnsjakki tapaðist
í Vesturbæ
Helga hringdi:
„Rúskinnsbarnamittisjakki
með pijónastroffi framan á erm-
um, í kraga og að neðan tapaðist
fyrir nokkru í Vesturbænum, í
hverfinu í grennd við Melaskóla.
Jakkinn er brúnleitur með þykku
satínfóðri, stærð 10-11 ára. Mig
langar til að biðja foreldra að gá
að því hvort börnin þeirra eru
með jakkann. Jakkann fékk dóttir
mín í jólagjöf og er þetta bagaleg-
ur missir þar sem jakkinn var
æjög dýr. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 28330 eða komi
jakkanum í Hagamel 24.“
Lyklakippa í óskilum
Lyklakippa með gulri plastól
fannst á horni Hraunáss og
Deildaráss í Seláshverfinu. Eig-
andi getur hringt í síma 79391.
Kettlingar
Þrír átta til níu vikna kettlingar
fást gefins. Einn er svartur og
tveir svartir og hvítir. Kassavanir.
Upplýsingar í síma 54089.
Elvis týndur
Svartur köttur með hvíta
bringu og hvítar loppur hefur
ekki sést á- heimili sínu síðan á
fimmtudag í síðustu viku. Hann
er með rauða hálsól sem á stend-
ur Elvis og símanúmer. Þeir sem
finna hann eru beðnir um að
hringja ekki í símanúmerið sem
tilgreint er á ólinni heldur í síma
75850.
Hvert fór verslunin?
Kona hringdi:
„Það var verslun sem hét
Liverpool og var í Suðurveri en
nú er hún allt í einu horfin. Mig
langaði til að vita hvort hún hafi
flutt eða er hætt. Og ef hún er
hætt hvar er þá hægt að kaupa
vörurnar sem voru seldar þar?“
Svart úr gleymdist
Svart stúlknaúr var skilið eftir
í sundlauginni í Laugardal á
sunnudaginn sl. Sá sem fann úrið
er beðinn að skila því til starfs-
fólks eða hringja í síma 36625.
Hugljúf og skemmtileg lög
Útvarpshlustandi hringdi:
„Það er þáttur á Rás 2 sem
heitir Landið og miðin og langar
mig til að þakka stjórnanda hans,
Sigurði Pétri Harðarsyni, fyrir
tónlistina sem leikin er. Þetta eru
yfirleitt indæl lög, bæði hugljúf
og skemmtileg. Þetta er mjög
notalegur þáttur svona að kvöld-
lagi.“
Læða í óskilum
Gulbröndótt hálfvaxin læða er í
óskilum. Kötturinn er ómerktur
en eigandi getur vitjað hans hjá
Heru á Bjarkargötu 8, sími 28549,
eða hringt í Dýraspítalann.
í Gjábakkagöngu
Kona sem var í Gjábakkagöngu
kvödd með vísu er beðin að hringja
í síma 36629 sem fyrst.
Á móti öllum framkvæmd-
um sem til heilla horfa
Til Velvakanda.
Það var bæði fróðlegt og lær-
dómsríkt að hlusta á þáttinn í út-
varpinu sem greindi frá viðbrögðum
stjórnarandstöðunnar við álsamn-
ingnum. Þar kom skýrt fram stór-
hugur Framsóknar og Alþýðu-
bandalagsins. Þjóðviljinn lýsti þessu
sem landráðasamningi, það situr
síst á þeim flokki að saka aðra um
landráð. Blað sem helgað var út-
þenslustefnu marx-, lenín- og
stalínismans. Allir vita að Búrfells-
virkjun var óframkvæmanleg nema
að álbræðslan fylgdi. Hvernig væri
rafmagnsmálum farið hér ef Búr-
fellsvirkjun hefði ekki komið á
sínum tíma? Þegar maður hlustar
á þáttinn þá rifjaðist upp að þessir
tveir flokkar hafa alltaf verið á
móti öllu sem til framfara horfði í
landinu. Hitaveitan var af því illa
og nú síðast fjandskapurinn á móti
Nesjavallaframkvæmdunum. Það
var fleirum brugðið en mér þegar
sagt var frá því að lífsnauðsynlegt
væri fyrir Reykvíkinga að hafa
Framsókn í borgarstjórn. Man þá
enginn aðför Framsóknar að
„Grimsby-lýðnum“ í Reykjavík, eins
og Framsókn kallaði íbúa
Reykjavíkur og flokkurinn atti
bændunum á og Sambandið skyldi
drepa verslunina og stjórnin kreppti
svo að útgerðinni svo til varð „allt
betra en íhaldið". Þeir nutu líka
góðs af þessu boðorði kommúnist-
amir sem þá byijuðu að boða fagn-
aðarerindi Karls Marx. Þeir gengu
í allar stöður jafnt Framsóknar-
mönnum sem enn sést á mennta-
málum þjóðarinnar. Það er eins-
dæmi í sögunni að öll stjómarand-
staðan skyldi vera sammála í ut-
anríkismálum á tímum viðreisnar-
stjórnarinnar, sem sé Framsókn var
eins leiðitöm við KGB og Alþýðu-
bandalagið. Þessir tveir flokkar tala
svo um Sjálfstæðisflokkinn sem
steinrunnið íhald en em sjálfir á
móti öllum framkvæmdum sem til
heilla horfa í þjóðfélaginu.
Húsmóðir.
Víkverji skrifar
Enn gengur sú rangsleitni skatt-
yfirvalda aftur að taka 6%
skatt af börnum. Víkveiji hefur
áður bent á, að framferði skattyfir-
valda gagnvart börnum í þessu til-
liti er til háborinnar skammar fyrir
ríkisvaldið. Tekinn er 6% brúttó-
skattur af 14 og 15 ára börnum á
meðan 16 ára unglingar og eldri
þurfa engan skatt að greiða.
Ástæður þessa eru þær, að
barnaskatturinn er tekinn af hverri
krónu, sem börnin vinna sér inn,
en séu þau orðin 16 ára fá þau
skattkort og mega því hafa tals-
verðar tekjur áður en til skatt-
greiðslu kemur. Þau njóta sem sagt
skattfríðinda eins og annað fólk um
leið og þau verða sjálfráða, en börn-
in ekki.
Þessi barnaskattur er ósann-
gjarn. Börnin skilja þetta ekki og
telja að ekki séu allir jafnir fyrir
lögunum. Þau sjá eldri systkin með
mun hærri launagreiðslur, en greiða
engan skatt. Þannig getur ríkis-
valdið ekki komið fram gagnvart
ungum börnum sem eru að byrja
sinn starfsáldur. Réttsýnt ríkisvald
verður að vera til - hvernig er
unnt að brýna hollustu við ríkisvald-
ið og skattyfirvöld l'yrii* ungu kyn-
slóðinni, þegar fyrstu kynni hennar
af þeim eru með þessum hætti?
XXX
Skinhelgi ríkisvaldsins og skatt-
yfirvalda er ekki aðeins gagn
vart börnum. Landgræðsla ríkisins,
sem jafnan býr við naumar fjárveit-
ingar til uppgræðslu landsins, verð-
ur nú að greiða virðisaukaskatt af
áburði og fræði, sem sáð er í auðn-
ir landsins og þessi fáránleiki fæst
ekki leiðréttur. Upplýst er nú, að
sú söfnun, sem fram fór í vor á
annarri sjónvarpsstöðinni, fer öll í
að greiða virðisaukaskattinn hjá
Landgræðslu ríkisins. Skyldi fólk
hafa verið eins gjafmilt við Land-
græðsluna, hefði það gert sér þetta
ljóst?
Og skinhelgin ríður ekki við ein-
teyming. í sjónvarpinu sátu meira
að segja ráðherrar við símann og
tóku á móti framlögum. Augljóst
er nú, að þeir voru að taka við fjár-
framlögum í ríkissjóð, en ekki til
landgræðslunnar. Hvað skyldi hafa
hrærst í kolli þeirra, þegar stórgjaf-
irnar bárust. Var ríkissjóður þeim
efst í huga eða landgræðslan og
skógræktin?
Ríkisvaldið ætti að taka sér ein-
staklingana til fyrirmyndar. Það
skortir ekki á fórnarlund fólks, þeg-
ar kemur að slíkum þjóðþrifamálum
að græða landið. í áratugi hafa t.d.
flugmenn flogið fræ- og áburðar-
dreifingarflugvélum endurgjalds-
laust. Ríkið hins vegar heimtar allt-
af sitt og þá er ekki spurt um hver
málstaðurinn er.
xxx
Ljóst er, að við skattkerfisbreyt-
inguna fyrir tveimur árum,
hafa komið fram ýmsir hnökrar,
sem eðlilegt er, hnökrar, sem mynd-
ast hafa við það að fellt var niður
gamla kerfið og hið nýja tekið upp.
Einn slíkur er þessi barnaskattur,
sem áður var greiddur af foreldrum,
en nú bitnar á börnunum sjálfum.
Þessa hnökra þarf að sníða af og
það er skylda Alþingis að gera slíkt.
Víkveiji undrast þá tregðu Alþing-
is, að lagfæra það sem miður hefur
farið við skattkerfisbreytinguna.
Skattalög mega ekki bijóta í bág
við sanngirnishugmyndir fólksins í
landinu.