Morgunblaðið - 05.09.1990, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990
Framfærsluvísitalan 0,5-0,6
prósentum yfír rauða strikinu
GERT ER ráð fyrir að vísitala
framfærslukostnaðar fari
0,5-0,6% fram úr þeim mörkum
sem sett voru í kjarasamningun-
um í febrúar og því komi til
kasta launanefnda að úrskurða
hvort hækkun framfærsluvísi-
tölu umfram mörk verði bætt
með launahækkun.
Hagstofa íslands og Verðlags-
stofnun vinna nú að því að taka
út vísitöluna og er reiknað með að
hún liggi fyrir í byrjun næstu viku.
í bytjun ágúst var vísitalan komin
0,27% fram úr rauða strikinu og
búist er við að annað eins bætist
við nú í byijun september, þrátt
fyrir að afnám virðisaukaskatts af
bókum verði til þess að lækka fram-
færsluvísitöluna um 0,2%.
Fjórar launanefndir þurfa að
fjalja um þessi mál, launanefnd
ASÍ, VSÍ og VMS, launanefnd
bankamanna og bankanna, launa-
nefnd BSRB og ríkisins og launa-
nefnd Kennarasambands íslands
og ríkisins. Úrskurður nefndarinn-
ar á að liggja fyrir 20. dag útreikn-
ingsmánaðar og laun hækka frá
og með 1. næsta mánaðar, úr-
skurði nefndin hækkun. Næsta
rauða strik er 1. maí á næsta ári,
en í millitíðinni eiga laun að hækka
um 2,0% 1. desember og 2,5% 1.
mars.
Veður í ágúst:
Hlýtt en sólarlítið
VEÐUR í ágúst var hlýtt en úrkomusamt og sólarlítið, sam-
kvæmt samantekt Veðurstofu íslands. Hiti í Reykjavík var 11,1
stig að meðaltali í ágúst og er það 0,6 stigum hlýrra en í meðal-
ári. Á Akureyri var meðalhiti 10,5 stig, sem er 0,8 gráðum
hlýrra en í meðalári.
í Reykjavík mældist úrkoma
66 millimetrar, sem er um 20%
umfram meðaltalið,. að sögn
Trausta Jónssonar veðurfræð-
ings og á Akureyri var úrkoman
48 millimetrar, eða um 50%
umfram meðaltal.
Sólskinsstundir í Reykjavík
voru 136, 28 færri en í meðal-
ári, og á Akureyri skein sól í 115
stundir, sem er 16 stundum
minna en í meðalári.
Meðalhiti í Hjarðarnesi var
10,6 stig og á Hveravöllum 6,8
stig. Hvorttveggja er um hálfri
gráðu umfram meðaltal. Á
Hjarðarnesi mældist úrkoma 120
millimetrar og 93 millimetrar í
Hveradölum og er úrkoma á báð-
um stöðum um 20% meiri en í
meðalári.
VEÐUR
veður vm um mm
kl. 12:00 í gær að fsl. tíma
hHI ve»ur
Akureyri 6 skýjað
9 skýjað
Bergen 12
Helsínki 13
Kaupmannahöfn 16
Narssarssuaq 6
Nuuk 3
Óstó 16
Stokkhólmur 14
Þórshöfn 11
skýjaft
skur
slydda
skýjaft
skýiað
skýjað
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlln
Chicago
Feneyiar
Frankfurt
Qlasgow
LaaPalmas
London
toaAngeles
lúxemborg
Madn'd
Mallorca
Montreal
NewYork
Orlando
París
Róm
Vín
Wlnnipeg
28
18
27
15
19
26
17
14
16
18
18
18
30
29
28
14
18
23
26
19
21
10
heWskfrt
hilfskýjaft
rnistur
rignhtg
skýjaft
rignin
skur
vantar
skýjað
heiðskírt
skýjaft
skýjað
helftskýrt
léttskýjaft
léttskýjað
léttskýjað
mistur
vantar
léttskýjað
alskýjaft
skýjað
léttskýjað
VEÐURHORFUR í DAG, 5. SEPTEMBER
YFIRLIT í GÆR: Fyrir austan land er grunn lægð, sem hreyfist lítíð
en á Grænlandshafi er vaxandi 1000 mb lægð sem færist austar,
Þriðja lægöin er um 800 km utar í hafi og fer hún vaxandi og hreyf-
ist austsuðaustur.
SPÁ: Fremur hæg suðaustiæg átt og súld eða rigning við vestur-
ströndina, en breytileg átt, skýjað með köflum en víðast þurrt aust-
aniands. Hiti 8 til 13 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg breytileg eða norðfæg
átt. Skýjað og skúrir á stöku stað á Norður- og Austurlandi, en
víðast þurrt og bjart veður á Suður- og Vesturlandi. Hiti 6-12
stig, hlýjast sunnanlands.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðlæg átt og þykknar upp á Suður- og
Vesturfandi, en léttir til á Norður- og Austurlandi. Heldur hiýnandi
í bili.
TAKN:
Heiðskirt
Léttskýjað
•á Hálfskýjað
A
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■JO° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V E.
= Þoka
= Þokumóða
’, > Súld
GO Mistur
—Skafrenningur
R Þrumuveður
Morgunblaðið/Ólafur Bemðdusson
„Nú vita allir krakkar á Skagaströnd að græna hliðin á að snúa
upp.“ Krakkar í vinnuskólanum ásamt verkstjórum.
Skagaströnd:
Miklar framkvæmdir
í umhverfísmálum
Skagaslrönd.
MIKIÐ hefur verið unnið að um-
hverfísmálum á Skagaströnd í
sumar. 2000 m2 af gangstéttum
voru lagðar og mikið af óræktar-
svæðum hefur verið sléttað og
þökulagt.
Helgi Gunnarsson bygginga-
meistari sá um að steypa gangstétt-
arnar sem aðallega voru lagðar
meðfram aðalgötum bæjarins.
Krakkarnir í vinnuskólanum hafa
að mestu séð um þökulagninguna
og má segja að á tveimur síðastliðn-
um sumrum hafi bærinn gjörbreytt
um svip. Með þökulagningunni hafa
krakkarnir séð um að halda opnum
svæðum í bænum nýslegnum og
snyrtilegum.
Þá settu krakkarnir í vinnuskól-
anum ásamt verkstjórum sínum nið-
ur í sumar 21 þúsund ttjáplöntur í
fjallshlíðinni ofan við bæinn. Vinnu-
skólanum fer nú að ljúka þar sem
krakkarnir eiga að mæta í skólann
7. september.
- ÓB.
Strand Vöggs GK:
Skipverjum ber ekki
saman um stefnuna
í SJÓPRÓFUM vegna strands
Vöggs GK, sem strandaði við ósa
Þjórsár fyrir skömmu, kom fram
að skipstjóra og háseta bátsins
ber ekki saman um stefnuna, sem
stýrt var eftir. Jafnframt viður-
kenndi skipstjórinn að hafa ekki
skipstjórnarréttindi.
Skipstjórinn á Vöggi bar við sjó-
prófin að hann væri ekki með skip-
stjórnarréttindi. Vöggur var sautján
tonna bátur, en skipstjórnarréttindi
þarf til að sigla bátum allt niður í
báta, sem eru sex metrar eða lengri,
hér um bil 1 'U tonn.
Við sjóprófin, sem haldin voru í
bæjarþingi Njarðvíkur, bar hásetinn
á Vöggi að hafa fylgt stefnunni
aust-suðaustur, samkvæmt fyrir-
mælum skipstjórans. Skipstjórinn
telur hins vegar að hann hafi stillt
sjálfstýringuna á 136 gráður áður
en hann fór úr stýrishúsinu, og er
þvi misræmi í framburði skipveij-
anna. Báðir haida fast við framburð
sinn. Við sjóprófin kom fram af hálfu
fulltrúa siglingamálastofnunar, Sig-
uijóns Hannessonar, að miðað við
ganghraða bátsins, tímasetningu frá
Selvogsvita að strandstað og stað-
setningu við Selvogsvita, komi heim
og saman að stefnan hafi verið
aust-suðaustur.
Sjálfstýring bátsins hafði bilað
fyrr um daginn, sem strandið varð,
en gert var við hana í Grindavík.
Báðir skipveijarnir telja að hún hafi
verið í lagi er slysið varð.
22 má ekki selja
vín um helgina
Lögreglusljóriim í Reykjavík
hefur ákveðið að banna vínveit-
ingar í veitingahúsinu 22, að
Laugavegi 22, um næstkomandi
helgi, 7. - 9. september, í fram-
haldi af ítrekuðum brotum á regl-
um um hámarksfjölda gesta.
Lögreglan taldi fjölda gesta í hús-
inu aðfaranótt síðastliðins laugar-
dags. Þeir mega vera 105 en voru
159. Að sögn Ómars Smára Ar-
mannssonar aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns höfðu tvær fyrri athuganir á
veitingahúsinu í ágústmánuði einnig
leitt í ljós að gestir væru fleiri en
leyfilegt var.
Ingi Bjöm 1 próf-
kjör í Reykjavík
INGI Björn Albertsson alþing-
ismaður hefur ákveðið að fara
í prófkjör Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík fyrir næstu Al-
þingiskosningar. Ingi Björn
lýsir þessu yfir í nýútkominni
Heimsmynd.
Ingi Björn segir í viðtali í
Heimsmynd, að margir hafi hvatt
sig til að fara í prófkjör í
Reykjavík, bæði almennir kjós-
endur, menn úr viðskiptalífinu,
íþróttahreyfingunni og þingmenn
flokksins. Hann segist búast við
að Sjálfstæðisflokkurinn bæti við
sig tveimur mönnum í Reykjavík
en þar eru þingmenn flokksins
nú sex.
Ingi Björn Albertsson var kjör-
inn á þing 1987 fyrir Borgara-
flokkinn á Vesturlandi. Árið
1989 gekk Ingi Björn úr Bqrg-
araflokknum og stofnaði Fijáls-
lynda hægri flokkinn en gekk
síðan í Sjálfstæðisflokkinn í vet-
ur. Hann segist ekki auglýsa sig
sem fyrirgreiðslupólitíkus eins og
faðir sinn, Albert Guðmundsson,
en muni beijast fyrir fijálslyndri
hægri stefnu og gegn hagsmuna-
gæslu.