Morgunblaðið - 05.09.1990, Side 26

Morgunblaðið - 05.09.1990, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990 Þing Fjórðungssambands Norðlendinga: Störfum í opinberd þjón- ustu verði í stórauknum mæli beint út um land Á ÞINGI Fjórðungssambands Norðlendinga sem haldið var um helgina voru samþykklar nokkrar ályktanir, m.a. um atvinnu- landbúnaðar- >og ferðamál. í áiyktun um atvinnumál skorar þingið á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því að nýju álveri verið valinn staður við Eyjafjörð. „í ljósi þess að staðsetning álvers mun hafa afger- andi áhrif á þróun byggðar í landinu næstu 10-20 árin er mjög mikilvægt að fyllsta tillit verið tekið til byggða- sjónarmiða við þá ákvörðun,“ segir í ájyktuninni. í ályktun um ferðamál lýsir þingið yfir ánægju sinni með beint milli- landaflug til Norðurlands. Þá leggur það áherslu á lengingu ferðamannat- ímans, t.d. með markvissri uppbygg- ingu vetraríþróttasvæða. Hvað landbúnaðarmálin varðar leggur þingið áherslu á að samning- ar takist fyrir næstu áramót milli ríkis og bænda um gerð nýs búvöru- samnings, þannig að eytt verði óvissu sem ríkir um í framleiðslumálum landbúnaðarins. Þingið varar við því að gefa sölu á fullvirðisrétti fijálsan og í ályktun segir að hlífa þurfí jaðar- byggð og þeim byggðalögum þar sem búvöruframleiðsla er undirstaða bú- setu við frekari skerðingu á fullvirð- isrétti en orðin er. Þingið bendir á að landbúnaðarframleiðsla er ein megin undirstaða atvinnulífs margra þéttbýlisstaða á landsbyggðinni og frekari samdráttur muni því leiða til fækkunar starfa í þjónustugreinum. Þá leggur fjórðungsþingið áherslu á mikilvæ'gi þess að störfum og stofn- Yfirstjórn Alafoss flutt í Mos- fellsbæ BÆJARFULLTRÚUM á fundi bæjarstjórnar Akur- eyrar sem Iialdinn var í gær var mörgum heitt í hamsi vegna flutnings yfirstjórnar Álafoss hf. frá Ákureyri til Mosfellsbæjar, en nú um mánaðamótin fluttu alls 11 yfirmenn fyrirtækisins sig um set suður. Gagnrýndu bæjarfulltrúarað með þessu væri verið að flytja atvinnu af landsbyggðinni þar sem hana skorti, sem væri sér- staklega ámælisvert þar sem ríkisfyrirtæki ætti í hlut. Lýstu þeir yfir þungum áhyggjum vegna þessa og þeim spurning- um var varpað fram hvort og þá hvenær allt fyrirtækið flytti starfsemi sína úr bænum. Atvinnumálanefnd skoraði á stjórn og eigendur fyrirtækisins á fundi sínum fyrir skömmu, að koma í v,eg fyrir flutning starfsmanna suður tafarlaust. Á fund bæjarstjórnar barst bréf frá forstjóra Álafoss hf. þar sem fram kom að stjórn fyrirtækisins sæi sér ekki fært að breyta fyrri ákvörðun frá í vor um flutning yfirmanna suð- ur. unum í opinberri þjónustu sé í stór- auknum mæli beint út á landsbyggð- ina. Því er sérstaklega beint til sveit- arstjórna að notfæra sér þjónustu sérfræðinga sem fáanleg er á lands- byggðinni, frekar en leita hennar á höfuðborgarsvæðinu. Þá verði stefnt að því að öll fjölgun starfa á vegum ríkisins verði utan Reykjavíkursvæð- isins. „Þingið skorar á ríkisvaldið að standa myndarlega að uppbyggingu Háskóians á Akureyri og að beina rannsóknar- og þróunarstarfsemi, ásamt gagnavinnslu í ríkari mæli út um landið,“ segir einnig í ályktun frá þingingu. „ , # Morgunblaðið/Rúnar Þór Ármann Ármannsson eigandi Ingimundar hf. og Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra takast í hendur eftir undirskrift samningsins. Við borðið sitja Ari Guðmundsson framkvæmdastjóri Ingimund- ar, Sjöfn Haraldsdóttir, Svanfríður Jónasdóttir aðstoðarmaður ráðherra og Magnús Pétursson ráðuneyt- issljóri. Ingimundur hf. kaupir Sigló: Fyrirtækið flytur alla starf- semi sína til Sigluíjarðar „ÞAÐ ER mjög ánægjulegt þegar öflugt einkafyrirtæki af höfuðborg- arsvæðinu flytur starfsemi sína hingað. Hér er verið að stíga merki- legt skref, með þessum samningi snúum við þeirri þróun við, að allt flytjist til Reykjavíkur," sagði Ölafur Ragnar Grímsson fjármálaráð- herra, en í gær var skrifað undir samninga um sölu þeirra eigna sem kenndar eru við „Sigló“ til fyrirtækisins Ingimundar hf. sem starfað liefur í Reykjavík. Sölusamningurinn byggist á makaskiptum við Ingi- mund hf. þar sem eignirnar á Siglufirði voru metnar á móti húseign fyrirtækisins við Súðavog í Reykjavík og er milligreiðsla ríkissjóðs 67 milljónir króna. Þá er þess vænst að Byggðastofnun taki þátt í flutningi fyrirtækisins til Sigluljarðar með því að létta allt að 25 millj- ón króna skuld af Ingimundi hf. Ingimundur hf. mun flytja alla sína starfsemi til Siglufjarðar, en áður höfðu skip félagsins, Ögmund- ur RE, Helga RE og H^lga II RE lagt upp á Siglufirði, en aflinn síðan fluttur suður til vinnslu. Með samn- ingnum er tryggt að framhald verð- ur á störfum 20-30 manna við rækjuvinnsluna, auk þeirrar atvinnu sem skapast við útgerð þriggja skipa Ingimundar hf. sem hér eftir verða skráð og gerð út frá Siglufirði. Tvær rækjuverksmiðjur verða sameinaðar í eina í kjölfar samnings- ins, sem auka á hagkvæmni í þeirri grein fiskvinnslunnar. Þær eignir sem ríkið lætur af hendi á Siglufirði eru vinnsluhúsið við Norðurgötu 20, tæki öll og búnaður, þ. á m. rækju- vinnsjuvélar og meðfylgjandi kaup- leigusamningur, en eignunum fylgja einnig áhvílandi skuldir. Á móti þess- um eignum koma fasteignir Ingi- mundar hf. við Súðavog 6 í Reykjavík, ásamt ýmsum tækjum en eignunum fylgja líka áhvílandi skuldir. Niðurstaða samninganna er sú að ríkissjóður yfirtekur 67 millj-. óna króna lán Ingimundar hf. um- fram eignaskipti. Þá er þess einnig vænst að Kirkjuklukkur teknar í notkun í Glerárkirkju Miklar framkvæmdir við kirkjuna í sumar KIRKJUKLUKKUR voru formlega teknar í notkun við guðsþjónustu í Glerárkirkju á sunnudag. Klukkurnar eru danskar og kosta tæpar 279 þúsund krónur. í sumar hefur verið unnið að lokafrágangi kirkj- unnar að utan, en mjög mikil sjálfboðavinna hefur verið unnin við kirkjubygginguna frá upphafí og er áætlað að um 300 manns hafí á einn eða annan hátt komið nálægt byggingunni. Kirkjubyggingin er um 2100 fermetrar að stærð, um 1100 fermetra á efri hæð og kjallariiin er um 1000 fermetrar. Byggðastofnun taki þátt í flutningi fyrirtækisins norður með því að létta allt að 25 milljóna króna skuldum af Ingimundi hf. Við undirritun samningsins í gær voru m.a. viðstaddir nokkrir af þing- mönnum kjördæmisins og létu þeir í ljós mikla ánægju vegna flutnings fyrirtækisins frá Reykjavík til Siglu- fjarðar. Fjármálaráðherra sagði að flutningunum hefði verið líkt við það að fá álver inn í byggðalagið, en skipum fyrirtækisins fylgir 600 tonna rækjukvóti og 1.600 tonna botnfiskkvóti í þorskígildum. „Þetta er söguleg stund, sem áreiðanlega verður skráð í byggða- sögu Siglufjarðar. Þetta er byggða- stefna sem bragð er að,“ sagði Kristján Möller. Á síðasta ári var leitað tilboða hjá nokkrum aðilum um kaup og uppsetningu kirkjuklukkna og ákveðið var að taka boði fyrirtækis- ins Dansk kirkeklokketeknik. Til- boðið hljóðaði upp á tæpar 279 þúsund króna fyrir klukkur og allan búnað þeim tilheyrandi, þ. á m. tölvustýrðan fjarstýribúnað, tölvu- klukku o.fl. Klukkurnar sjálfar eru steyptar í Hollandi, en annar búnað- ur kemur frá Danmörku. Stærsta klukkan er um 690 kíló og 104 Skipstjóri - stýrimaður Vanur maður óskar eftir skipstjóra- eða stýrimannsplássi, helst við togveiðar. Upplýsingar í síma 96-24572. sentimetrar í þvermál, sú næsta um 400 kíló, en sú minnsta er 285 kíló að þyngd. Fyrsta skóflustunga var tekin í lok maí 1984 af þáverandi biskupi Islands, herra Pétri Sigurgeirssyni, dg það var einnig hann sem vígði fyrsta hluta kirkjunnar í febrúar 1987. Mikil sjálfboðavinna hefur verið unnin við bygginguna og áætlað að ekki færri en 300 manns hafi þar komið nærri. Eftir að innréttingu neðri hseðar var lokið var skátafélaginu Klakki leigður hluti húsnæðisins og á síðasta ári hóf barnaheimilið Króga- ból þar starfsemi einnig. Þá hefur Fræðsludeild þjóðkirkjunnar á Norðurlandi einnig verið leigð þar aðstaða. Bílastæði vestan og norðan kirkj- unnar verða malbikuð nú í septem- ber, én f súmar hefur verið unnið Morgunblaðið/Rúnar Þór Nýjar kirkjuklukkur voru teknar í notkun við Glerárkirkju á sunnudag. að ýmsum lokafrágangi utanhúss, m.a. var kirkjan máluð og nokkrir vinnufélagar úr Slippstöðinni smíðuðu í sjálfboðavinnu kross sem settur hefur verið upp á turn kirkj- unnar. Framreiknaður byggingakostn- aður var um sl. áramót rúmar 102,5 milljónir króna. Byggingin hefur verið fjármögnuð með sóknargjöld- um, styrkjum, frjálsum framlögum og gjöfum, auk lána og ýmiskonar fjáröflunar. Heildarskuldir vegna byggingar kirkjunnar voru um ára- mót 24,1 miUjón- króna, Gísli Jóns- son ráðinn yfírmaður Flugleiða á Norðurlandi GISLI Jónsson framkvæmda- stjóri ferðaskrifstofu Akureyrar hefur verið ráðinn yfirmaður starfsemi Flugleiðaá Norður- landi. Hann tekur við af Gunnari Oddi Sigurðssyni, sem hefur ver- ið umdæmisstjóri Flugleiða á Akureyri í tæp í 7 ár. í frett frá Flugleiðum segir m.a: „Gísli Jónsson hefur starfað að ferðamálum á Norðurlandi um ára- tugaskeið. Ferðaskrifstofa Akur- eyrar hefur verið mikilvségasta fyr- irtækið þar um slóðir í þjónustu við innlenda og erlenda ferðamenn. Gísli verður áfram framkvæmda- stjóri ferðaskrifstofunnar, jafn- framt því að stýra starfi Flugleiða. Með ráðningu hans efla Flugleiðir samstarf við heimamenn og styrkja jafnframt ferðaþjónustu í fjórð- ungnum með nánara samstarfi við , FerðaskrifstofU: Ákureyraiv",

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.