Morgunblaðið - 25.10.1990, Blaðsíða 52
Minning:
Sr. Bergur Björns-
son fyrrv. prófastur
Fæddur 9. maí 1905
Dáinn 16. október 1990
Það var á afmælisdegi móður
minnar, Gunnhildar Björnsdóttur,
16. október síðastliðinn sem mér
var flutt sú fregn, að yngsti bróðir
hennar, sr. Bergur Björnsson, fyrr-
verandi sóknarprestur í Stafholti
og prófastur í þáverandi Mýrapróf-
astsdæmi, væri látinn. Andláts-
fregnin kom mér ekki á óvart. Að
baki var langvarandi vanheilsa,
sem ekki fékkst nein bót á og
ævidagurinn auk þess að kveldi
kominn, þegar aldursárin ein eru
höfð í huga. En það snart mig, að
hann skyldi kvaddur til sinnar
hinstu ferðar einmitt á þessum sér-
staka degi, þar eð móðir mín hafði
öðrum fremur það hlutverk í æsku
að gæta litla bróður síns og leiða
hann fyrstu sporin. Það má því og
af líkum ráða, að þessi frændi var
í barnsvitund minni harla glæsileg
og goðum lík persóna eftir þeim
myndum, sem móðir mín dró upp
af honum í frásögnum sínum, sem
hún miðlaði óspart, þegar eftir þeim
var leitað.
Bergur Björnsson fæddist á
Miklabæ í Blönduhlíð í Skagafirði
hinn 9. maí árið 1905. Foreldrar
hans voru hjónin sr. Björn Jónsson
prófastur og Guðfinna Jensdóttir.
Hann var yngstur af 11 börnum
þeirra hjóna. Af þeim er nú aðeins
ein systir, Guðbjörg Bjarman, á
lífi. Hún dvelur nú f Sunnuhlíð í
Kópavogi, orðin 95 ára. Hin systk-
inin 9 eru öll látin, en flest þeirra
náðu háum aldri.
Bergur ólst upp hjá foreldrum
sínum á Miklabæ, vafalaust við
mikið ástríki og eftirlæti, eins og
ekki er óeðlilegt með yngsta barnið
í svo stórri fjölskyldu. Einkum mun
hann hafa verið móður sinni sér-
staklega hjartfólginn.
Það kom fljótt í ljós, að Bergur
var stórvel gefinn og gæddur ótví-
ræðum námshæfileikum. Að af-
loknu traustu undirstöðunámi í
heimahúsum fór hann í Gagnfræð-
askólann á Akureyri og lauk þar
gagnfræðaprófi. Eftir það lá svo'
leiðin í Menntaskólann í Reykjavík.
Þaðan útskrifaðist hann með stúd-
entsprófi vorið 1926. Þá tók við
nám í guðfræðideild Háskólans og
kandídatsprófi í guðfræði lauk
hann vorið 1931. Allur var skóla-
og námsferill hans hinn glæsileg-
asti, enda gat hann sér orð sem
afburða námsmaður.
Hinn 27. september 1931 var sr.
Bergur vígður til prestsstarfa við
Breiðabólsstað á Skógarströnd,
fyrst settur en skipaður næsta ár
eftir kosningu safnaðarins. Þar
þjónaði hann um 5 ára skeið. Arið
1937 var hann svo kjörinn og skip-
aður sóknarprestur í Stafholti, hin-
um forna og fræga stað. Þar þjón-
aði hann samfleytt til ársins 1961,
er hann hvarf úr þjónustu kirkjunn-
ar. Prófastur í Mýraprófastsdæmi
var hann frá 1945.
Embættisstörf sín öll rækti sr.
Bergur af stakri kostgæfni, alúð
og smekkvísi. Hann var glæsimenni
að ytri ásýnd, prúðmenni hið
mesta, ljúfur og viðmótshlýr, hver
sem hlut átti að máli. Guðsþjónust-
an fór honum sérstaklega vel úr
hendi, bæði altarisþjónusta og
prédikun. Hann þótti góður ræðu-
maður. Hann talaði máli trúarinnar
og flutti fagnaðarboðskapinn á ljós-
an og lifandi hátt, með þeirri eðlis-
lægu hlýju, sem fann greiða leið
að hjörtum áheyrendanna hverju
sinni. Um hann má hiklaust segja,
að hann hafí verið sómi stéttar
sinnar, bæði í kirkju og utan. Og
víst er um það, að hann var virtur
og ástsæll í söfnuðum sínum.
Hinn 7. mars árið 1931 kvæntist
sr. Bergur eftirlifandi eiginkonu
sinni, Guðbjörgu Sigríði Pálsdóttur,
bátasmiðs og vélamanns, síðast í
Reykjavík. Þau eignuðust tvo syni,
sem báðir eru á lífi. Ragnar Heið-
ar, starfsmaður hjá Reykjavíkur-
borg, hefir búið heima hjá foreldr-
um sínum og Guðmundur Páll, full-
trúi hjá Brunamálastofnun ríkisins,
búsettur í Reykjavík. Kona hans
er Gerður Daníelsdóttir banka-
starfsmaður. Þau eiga tvö börn,
Björn og Guðbjörgu. Guðmundur
er tvíkvæntur. Fyrri konu sína,
Erlu Valtýsdóttur, missti hann
1969. Dóttir þeirra, Berglind, ólst
upp hjá sr. Bergi og Guðbjörgu og
hefir hún löngum verið ljósgeislinn
bjarti í lífi þeirra. Hún er nú banka-
starfsmaður í Reykjavík.
Heimilið í Stafholti var rómað
mjög fyrir rausn og myndarskap í
embættistíð sr. Bergs. Ég hygg,
að óvíða hafi gestrisni verið í meiri
hávegum höfð en hjá þeim mætu
og hjartahlýju hjónum. A þeim vett-
vangi átti Guðbjörg sinn ómælda
hlut að máli. Allt hennar líf hefír
einkennst af þeirri viðleitni, að
hjálpa, gefa og gleðja, án þess
nokkru sinni að hugsa um laun eða
verðskuldaða viðurkenningu sjálfri
sér til handa. Hennar hlutur í lífs-
hamingju eiginmannsins var því
ERFISDRYKKJUR
Tökum að okkur að sjá um erfisdrykkjur, stórar og
smáar, í glænýjum og notalegum sal, Ásbyrgi.
Upplýsingar í síma 91-687111.
I1ÓTEL kLAND
Erfídrykkjur í hlýlegu
og notalegu umhverfí
Við höfum um árabil tekið að okkur að sjá um erfidrykkjur fyrir £
allt að 300 manns. í boði eru snittur með margvíslegu áleggi,
brauðtertur, flatbrauð með hangikjöti, heitur eplaréttur með g
rjóma, rjómapönnukökur, sykurpönnukökur, marsípantertur,
rjómatertur, formkökur, 2 tegundir o.fl.
Með virðingu,
FLUGLEIDIR
HOTEL LOFTLEIÐIR
REYKJAVlKURFLUGVELLI. 101 REYKJAVtK
SlM1: 9 1 - 2 2 32 2
harla mikill að vöxtum. Frá starfí
hennar ljómar af geislastöfum þess
guðdómlega kærleika, sem „umber
allt og fellur aldrei úr gildi“.
Sr. Bergur hafði mikinn áhuga
á skólamálum og fékkst talsvert
við kennslu. Þótti hann frábær
kennari, einkum í tungumálum,
enda snjall málamaður.
Hann var formaður fræðsluráðs
Mýrasýslu frá 1951 til 1961. Þar
lét hann á margan hátt til sín
taka. M.a. studdi hann mjög ein-
dregið þá uppbyggingu, sem í emb-
ættistíð hans fór fram í skólamálum
á Varmalandi. Þar hafði hann líka
kennslu með höndum árum saman.
Einn vetur kenndi hann við Gagn-
fræðaskólann á Akranesi.
Haustið 1960 fékk sr. Bergur
leyfi frá embætti um eins árs
skeið. Þann vetur kenndi hann við
Gagnfræðaskólann við Lindargötu
í Reykjavík. Haustið eftir fékk hann
svo lausn frá embætti prests og
prófasts og settist að í Reykjavík
ásamt fjölskyldu sinni. Fyrst
bjuggu þau á Marargötu 7, en síð-
ustu 10 árin hafa þau átt heimilli
sitt á Háaleitisbraut 50.
Haustið 1961 var sr. Bergur
skipaður fulltrúi við dóms- og kirkj-
umálaráðuneytið í Reykjavík.
Gegndi hann því starfi næstu 10
árin og rækti það af sömu alúð og
trúmennsku og öll sín fyrri störf.
Haustið 1970 hóf sr. Bergur
stundakennslu við Vélskóla íslands.
Kenndi hann þar samfleytt til árs-
ins 1979. Um það leyti var hana.
farinn að fást talsvert við þýðingar
úr erlendum málum, einkum þýsku.
En nú var skammt orðið til hinna
eiginlegu verkaloka í lífi sr. Bergs.
Í ársbyrjun 1980 handleggsbrotn-
aði hann og skömmu síðar fékk
hann heilablæðingu, sem svipt
hann máli og lamaði hann að veru-
legu leyti. Fyrtu árin á eftir var
lifað í voninni um einhvern aftur-
bata, sem þó varð aldrei að teljandi
veruíeika. Hann komst að vísu heim
og klæddist hvern dag. Og með
góðri aðstoð ástvina sinna gat hann
gengið um íbúð sína. Hann var
orðinn eins og skuggi sjálfs sín,
Legsteinar
Framleiðum allar
stærðir og gerðir
af legsteinum.
Veitum fúslega
upplýsingar og
ráðgjöf um gerð
og val legsteina.
S.HEL6AS0N HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI48. SIMI76677
ósjálfbjarga, dæmdur til að þiggja
allt sitt úr annarra höndum.
En skært ljós skein honum í
þessu þunga örlagastríði. Hann
átti ástvini, sem allir lögðust á eitt
við að axla með honum hina þungu
byrði, eftir því sem í þeirra valdi
stóð. Þar hlýt ég þó fyrst og
fremst að nefna Ragnar, son hans,
sem tók það að sér að annast föður
siiin og vera stoð hans og stytta,
hvenær sem hann þurfti á hjálp
að halda. Og það hlutverk sitt hef-
ir Ragnar rækt af hreinum kær-
leika og slíkri umhyggju og reisn,
að ég hygg, að fáir hefðu komist
með tærnar þar sem hann hafði
hælana á því sviði. Þannig hefír
hann verið, ekki einungis föður sín-
um, heldur og móður sinni ekki
síður, ómetanleg hjálp og ómæld
blessun á þessum síðustu erfíð-
leikaárum. En þrátt fyrir það, sem
hér er um Ragnar sagt, skal það
þó ítrekað og undirstrikað, að í því
stríði, sem nú er til lykta leitt, lögð-
ust allir á eitt við að létta byrðina
þungu.
Ég minntist í upphafi á þær
minningar, sem móðir mín miðlaði
mér ungum frá samskiptum við
litla bróður sinn. Enn í dag er svo
bjart yfir þeim myndum, að þær
vekja bros á vör. En björtust og
minnisstæðust verður þó í mínum
huga myndin af þessum frænda
mínum, þegar hann kom í fyrsta
sinn heim í sveitina okkar, Blöndu-
hlíðina, með eiginkonu sér við hlið,
eiginkonu, sem í mínum barnshuga
bar langt af öllum öðrum konum,
bæði að fegurð og góðleik. Þar
hafði frændi minn svo sannarlega
fundið lífshamingju sína. Yfír þess-
ari minningamynd er meiri birta
en orðum verði að komið.
Það vildi svo til, að ég var stadd-
ur á heimili Guðbjargar og sr.
Bergs kvöldið áður en hann dó.
Áður en ég kvaddi námum við
Guðbjörg staðar litla stund við sjú-
krabeðinn. Það var augljóst, að
endalokin nálguðust óðum. En frið-
ur og birta bjó í svip hins þjáða
manns. Mér fannst sem æskubirtan
breiddist yfir allt, birtan, sem ljóm-
aði af þeim, þegar ég leit þau hjón-
in saman í fyrsta sinn sem lítill
drengur. Og í huga mér tóku að
hljóma hendingarnar, sem sungnar
voru á meðan faðir sr. Bergs og
afi minn var að kveðja þennan
heim:
Ég leit til Jesú, ljós mér skein,
það ljós er nú mín sól,
er lýsir mér um dauðans dal
að Drottins náðarstól.
Guð blessi þig, elsku Guðbjörg
mín, drengina þína, tengdadóttur
og ömmubörnin þijú. Við hjónin
blessum kærleika þinn og hetjudáð.
Innilegar samúðarkveðjur okkar til
ykkar allra.
Björn Jónsson
Séra Bergur Björnsson, móður-
bróðir minn, var burtkallaður af
þessum heimi hinn 16. október síð-
astliðinn og var það orðin næsta
langþráð lausn, því grimmúðugur
sjúkleiki hafði hijáð hann um rösk-
lega áratugar skeið.
Var hann á 86. aldursári, er
hann lézt, fæddur 9. maí 1905.
Séra Bergur var sonur prófasts-
hjónanna á Miklabæ í Blönduhlíð í
Skagafírði, þeirra sr. Björns Jóns-
sonar og frú Guðfinnu Jensdóttur.
Er nú Guðbjörg ein á lífí hinna ell-
efu barna þeirra hjóna. Þegar séra
Bergs er minnst verður huganum
fyrst reikað um áratugi aftur í tím-
ann, til þeirra hugþekku daga, þeg-
ar þau séra Bergur og kona hans,
Guðbjörg Pálsdóttir, og synir þeirra
tveir, Ragnar Heiðar og Guðmund-
ur Páll, voru sótt heim í Stafholt
þegar þau voru prests- og prófasts-
hjón þar.
Var heimili þeirra kjörinn áning-
arstaður á hinni þá löngu leið frá
Skagafírði til höfuðborgarinnar.
Hveiju sinni, er undirritaður kom
þar með foreldrum sínum og síðar
einn síns liðs eða með öðrum var
okkur fagnað af slíkum innileika
að ekki hverfur úr minni þótt ára-
fjöld hrannist upp. Enda var gest-
risni þeirra hjóna fyrr og síðar
mjög rómuð. Það var því eitt allra
stærsta tilhlökkunarefnið í sam-
bandi við þessar Reykjavíkurferðir,
ef þess var kostur, að eiga aðeins
viðdvöl í Stafholti, þessum forn-
fræga stað, þar sem hið fagra hér-
að Borgarfjarðar skartar e.t.v. sínu
fegursta.
Mörgum árum síðar þá er séra
Bergur og fjölskylda hans voru
orðin búsett í Reykjavík, fyrst á
Bárugötu 38 í nábýli við móður
mína og bróður, Björn Stefán, síðar
á Marargötu 7, bar fundum okkar
saman oftar miklu.
Var þá sem fyrr hin bezta
skemmtan að líta inn til þeirra
Bergs og Guðbjargar og dvelja hjá
þeim kvöldstund. Sú stund var fljót
að líða hjá því húsbóndinn var ein-
stakur samræðusnillingur og
skemmtinn í bezta lagi.
Minnisstæð er ferð, sem undirrit-
aður fór ásamt konu sinni í boði
Bergs og í samfloti með honum,
Guðbjörgu og Ragnari á fyrsta
þjónustuári undirritaðs í Odda
(1964), austur að Ásum í Skaftár-
tunguhr., Vestur-Skaftafellssýslu,
en þar var þá prestur séra Valgeir
Helgason, gamall skólabróðir séra
Bergs og góðvinur. Það var næsta
ánægju- og merkileg reynsla að
heimsækja séra Valgeir, sem þar .
var þá einbúi, þennan öðling, er
orðinn var einskonar þjóðsagnaper-
sóna, sakir þess að hann batt ekki
bagga sína sömu hnútum og sam-
ferðamenn hans og vildi standa
utan við neyzlu- og eyðslukapp-
hlaup sinnar samtíðar.
Á þessum árum var það einhver
bezta tilbreyting í hversdagsleik
daganna, ef þau Bergur og fjöl-
skylda gerðu sér ferð til okkar að
Odda, sem reyndar varð sjaldnar
en við hefðum kosið.
Fyrir röskum áratug dundi svo
reiðarslagið yfír, það er að var vik-
ið í upphafí þessa máls. Var þá
Bergi kippt í einu vetfangi út úr
lífí hins heilbrigða manns. Það var
honum því þyngra hlutskipti að
hann var einkar starfssamur. Hann
hafði að lokinni gifturíkri þriggja
áratuga prestsþjónustu að Breiða-
bólsstað á Skógarströnd og Staf-
holti í Borgarfirði og síðan fulltnía-
starf í dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu um áratugar bil, auk
ýmissa kennslustarfa fyrr og síðar,
tekið sér fyrir hendur þýðingar úr
erlendum málum, einkum þýzku.
En þýzk tunga og menning var
honum einkar geðfelld, enda fór
hann nokkrum sinnum til V-Þýzka-
lands auk annarra landa.
Á þessu síðasta erfíða tímabili í
ævi Bergs, en þá var heimili þeirra
á Háaleitisbraut 50 í Reykjavík,
var það honum hin mikla líknarlind *
að fá notið takmarkalítillar fórnfýsi
og umönnunar Guðbjargar og
Ragnars sonar þeirra. Guðmundur
sonur þeirra og hans fjölskylda
voru þeim og mjög svo hjálpsöm.
Sakir þessa þurfti Bergur sjaldan
að dvelja á sjúkrahúsi á hinum erf-
iða tíma, enda honum ekki geð-
fellt, því hann var um aðra hluti
fram heimilisins maður.
Hveiju sinni er Iitið var inn til
hans eftir áfallið var merkjanlegt
hversu þakklátur hann var, en þess-
ar heimsóknir urðu því miður of
fáar. Undir lok þessara kveðjuorða
langar mig að minnast þess, hversu
kær sonardóttir hans, Berglind, var
honum. í fagnaði í tilefni fermingar
hennar mælti hann til hennar ein-
hveijum þeim nærfærnustu og
áhrifaríkustu orðum, er ég minnist
að hafa heyrt við slík tækifæri.
Og nú þegar frændi minn, séra
Bergur Björnsson, er horfínn af
sviðinu, leystur úr fjötrunum, þá
trúi ég því að hann sé genginn inn
til fagnaðar herra síns, þess Drott-
ins, sem hann gaf líf sitt í þjónustu
fyrir. Og nú færi ég honum alúðar-
þakkir mínar og fjölskyldu minnar
fyrir allar liðnar samverustundir,
fyrir þá birtu, sem honum auðnað-
ist að bregða yfir þær.
Friður Guðs miskunnar hvíli yfir
eiginkonunni hans, sonum þeirra
og öllum ástvinum. Friður Guðs
miskunnar hvíli yfir sálu séra Bergs
Björnssonar. Guð blessi minningu
hans.
Stefán Lárusson