Morgunblaðið - 25.10.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.10.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1990 Hrunamanna- hreppur: Góð uppskera grænmetis Syðra-Langholti. UPPSKERA grænmetis hjá garðyrkjubændum var með betra móti í sumar, að sögn Arnars Einarssonar garðyrkju- bónda í Silfurtúni, formanns Sölufélags garðyrkjubænda. Enda var veðrátta hagstæð mestan hluta sumarsins en eitt- hvað töfðu miklir þurrkar fyrir sprettu í júlíbyrjun, einkum þar sem ekki voru fyrir hendi vökv- unarkerfi í garðlöndunum. Þá tjáði Öm fréttaritara að sala grænmetis hefði verið með besta móti enda hefði verðið verið hlutfallslega lágt, sem eðililegt væri í vemlegu offramleiðsluári. í fyrra var fyrst tekin í notkun hér á landi ný tegund af græn- metiskæli, svonefndur votkælir. Þar er lofti blásið gegnum 0 gráðu heitt vatn og er raki í geymslunum þá um 95% og er notaður svokall- aður ísbanki til að halda vatninu köldu. Aðeins þrír slíkir græn- metiskælar hafa verið teknir í notkun. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Þorleifur Jóhannesson garðyrkjubóndi á Hverabakka II við nýja grænmetiskælinn. Fréttaritari skoðaði einn slíkan kæli á dögunum. Hann er hjá Þorieifi Jóhannessyni á Hvera- bakka II og er nýlega kominn í notkun. Þorleifur kvaðst hiklaust geta geymt hvítkál sem nýtt fram til febrúarloka, kínakál og blóm- kál fram um miðjan desember. Það væri að vísu dýr framkvæmd að setja upp slíkan kæli, en von- andi yrði þetta arðbær fjárfesting með tímanum. Mjög mikilvægt væri að vera með ferskt íslenskt grænmeti á boðstólum mikinn hluta ársins. - Sig. Sigm. Alþýðuflokkurinn á Reykjanesi: Jón Sigurðsson verður í efsta sæti Keflavik. KJÖRDÆMISRÁÐ Alþýðu- flokksins í Suðurnesjakjördæmi ákvað á fundi í gærkvöldi að falla frá áður ákveðnu próf- kjöri. Jafnframt var ákveðið að Jón Sigurðsson ráðherra skipi 1. sæti framboðslistans við næstu þingkosningar, Karl Steinar Guðnason 2. sæti, Rann- veig Guðmundsdóttir 3. sæti og Guðmundur Arni Stefánsson 4. Guðmundur Ámi sagði eftir fundinn að hann væri maður kapps en jafnframt sátta. „Ég met ein- hug og samvinnu meira en röðun á lista og læt mig einu varða hvort ég næ kosningu í 1. eða 4. sætið.“ Fundinn sóttu um 100 manns. Hörður Zóphaníasson formaður fulltrúaráðsins bar fram tillögu um að þessi háttur yrði hafður á. Til- lagan var semþykkt með þorra atkvæða, 11 voru á móti því að falla frá prófkjöri. Ákvörðun um skipan annarra sæta en fjögurra Samningaviðræður EFTA og EB: Utanríkisráðheira ræðir við þijú ráðuneyti um fækkun fyrirvara efstu verður í höndum kjördæmis- ráðs í samráði við fjóra efstu menn listans og einn fulltrúa frá hveiju Alþýðuflokksfélagi í kjördæminu. ___________ B.B. Rúmlega 200 hafa kosið ut- an kjörstaðar RÚMLEGA 200 manns höfðu í gær greitt atkvæði utankjörstaðar í próflgöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Að auki höfðu nokkrir tugir manna úr öðrum kjördæm- um greitt atkvæði í Valhöll. Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla heldur áfram í Valhöll og á skrifstof- um Sjálfstæðisflokksins í öðrum kjör- dæmum, þar sem prófkjör er við- haft, í dag. í Reykjavík hefst próf- kjör á morgun og verður kosið í Valhöll. Á laugardag verður kosið á fimm kjörstöðum. Þeir eru Valhöll, Hótel Saga, Gerðuberg, Hraunbær 102 og Hverafold 1-3. Þeir sem ekki eru flokksbundnir og hyggjast taka þátt i prófkjörinu sækja um inngöngu í Sjálfstæðis- flokkinn um leið og þeir greiða at- kvæði. Þá greiða þeir atkvæði utan- kjörstaðar og verður sá háttur hafð- ur á báða prófkjörsdagana, föstudag og laugardag. JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segist ætla að ræða við aðila í ráðuneytum samgöngumála, landbúnaðar og menntamála um möguleika á því að draga úr fyrirvörum þeim sem Islendingar gera við samninga Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Evrópubanda- lagsins (EB) um Evrópskt efnahagssvæði. Utanríkisráðherrar EFTA lýstu því yfir á fundi sínum í Genf fyrr í vikunni að þeir gerðu sér grein fyrir nauðsyn þess að fækka undan- þágum þeim sem ríkin vilja fá frá reglum EB við framkvæmd samn- ingsins um Evrópskt efnahags- svæði. í staðinn yrði EB að fallast á að ákvarðanir sem vörðuðu efna- hagssvæðið allt yrðu teknar sameig- inlega. Fyrirvarar EFTA voru lagðir fram fyrr á árinu og voru allviða- miklir en hafa ekki verið birtir opin- berlega. í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis um samningaviðræðum- ar segir að grundvöllur þeirra séu samþykktir Evrópubandalagsins Um 4.000 kr. greidd- ar fyrir tonnið af loðnu Afurðaverð svipað og í fyrrahaust með fáum og afmörkuðum undan- tekningum. Samkvæmt þeirri skýrslu eru meginundanþágur þær sem gerðar eru að kröfu íslendinga að fjárfestingar erlendra aðila, tengdar náttúruauðlindunum, verði takmarkaðar og sett verði inn var- naglaákvæði varðandi fijálsan at- vinnurétt. Að sögn Jóns Baldvins er mis- jafnt hvað aðildarríki EFTA sjá sér fært að skera niður af undan- þágukröfum til að koma til móts við EB. íslendingar séu þar ekki til vandræða. Hann muni ræða þau mál sérstaklega við aðila í fyrr- greindum ráðuneytum. Utanríkis- ráðherra vildi ekki segja hvaða und- anþágur væri þama um að ræða. Að sögn Jóns Baldvins eru sjávar- útvegsmálin þriðja meginatriðið sem eftir er að útkljá í samningaviðræð- unum til viðbótar við undanþágum- ar og ákvarðanatökuna. Það er krafa EFTA og jafnframt megin- áhersluatriði, íslendinga að reglan um fijáls vöruskipti taki til físks og annarra sjávarafurða án tengsla við sjávarútvegsstefnu EB að öðm leyti. Spánveijar hafa sýnt þessari kröfu hvað mesta mótspymu af EB-ríkj- um. Um fyrirhugaðar tvíhliða við- ræður við Spánveija um sjávarút- vegsmál hafði Jón Baldvin þetta að segja: „Þetta er vandræðamál. Sjáv- arútvegsdeildin innan fram- kvæmdastjómar Evrópubandalags- ins er nánast ekki til viðtals. Það hefur verið leitað eftir samtölum við hana og ekki tekist. Ég hef metið það svo að það sé nauðsynlegt að ræða þessi mál við þá aðila sem þeim stýra á Spáni allavega til þess að upplýsingar liggi fyrir milliliða- laust.“ Kosning um kjarasamn- ing er hafin Farmanna- og fiskimanna- samband íslands hefur sent hátt í tvö þúsund atkvæða- seðla til féiagsmanna, en kosningu um nýgerðan kjarasamning FFSI og Landssambands íslenskra út- vegsmanna skal vera lokið fyrir 3. nóvember. Atkvæðaseðlar þurfa að ber- ast aftur til sambandsins í síðasta lagi 2. nóvember. Taln- ing hefst á hádegi 3. nóvember og er reiknað með að henni ljúki um kl. 16 þann dag. Borgarleikhúsið: UM 4 ÞÚSUND krónur eru nú greiddar fyrir tonnið af loðnu, að sögn Hilmars Þórs Hilmarssonar verksmiðjustjóra Hraðfrystihúss Þórshafn- ar. Verðið komst hæst í um 4 þúsund krónur fyrir tonnið á síðustu vertíð en fór niður í 3.200-3.300 krónur eftir áramótin þegar framboð var mikið. Um 31 þúsund krónur hafa fengist fyrir tonnið af loðnu- mjöli og 15.400-15.900 krónur fyrir tonnið af loðnulýsi. Þögn í stað Alparósar „Þetta er þokkalegt meðalverð og það er svipað og fékkst fyrir þessar afurðir í fyrrahaust," segir Jón Ól- afsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra fískmjölsframleiðenda. Jón segir að hins vegar bendi ekkert til annars en að Norðmenn og Sovét- menn muni veiða milljón tonn af loðnu í Barentshafí eftir áramótin og ekki sé komið jafnvægi á mjöl- og lýsismarkaðinn eftir þær fréttir. Súlan EA landaði loðnu á Vopna- firði á miðvikudag en það er í fyrsta skipti, sem loðnu er landað þar á Lýst eftir bíl Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir bifreiðinni X-486. Bíllinn er af gerðinni Subaru Justy J 12. Bifreiðin er grá að lit og sást síðast til hennar í Reykjavík á þriðjudagsmorgun, en hennar hefur og ökumanns verið saknað síðan. Þeir sem upplýsingar geta gefíð eru beðnir að snúa sér til lögreglunnar. þessari vertíð. Loðnu hefur einnig verið landað á Raufarhöfn, Þórs- höfn, Neskaupstað og Eskifirði und- anfama daga. Útibú Rannsóknastofnunar físk- iðnaðarins á Neskaupstað hefur rannsakað loðnu, sem Guðrún Þor- kelsdóttir SU og Börkur NK lönduðu nýlega. Loðnan er mjög blönduð og frekar rýr miðað við árstíma, fítu- innihald hennar er 13-14,7% og þurrefnisinnihald 14,3-14,5%. Úti- búið á Neskaupstað fékk fyrstu loðn- una 7. nóvember í fyrra og fituinni- hald hennar var 14-15% og þurrefni- sinnihald 14-14,5%. Loðnan er aftur á móti feitust í lok nóvember og fram í desember. Loðnuveiði var léleg aðfaranótt miðvikudags, þar sem mikill straum- ur var og loðnan dreifð. Veiðamar gengu hins vegar þokkalega aðfara- nótt þriðjudags og Hólmaborg SU fékk 500 tonn í einu kasti á þriðju- dagsmorgun. Börkur NK, Hilmir SU, Guðrún Þorkelsdóttir SU, Þórsham- ar GK og Súlan EA hafa einnig verið á loðnuveiðum um 40 sjómílur norðaustur af Langanesi. LAGIÐ Alparós úr söngleikn- um Sound of Music hefur verið fellt niður úr sýningu Leikfé- lags Reykjavíkur á leikritinu Ég er hættur! Farinn, eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdótt- ur. í svari Norræna leikhúsfor- lagsins, er gætir höfundarrétt- ar lagsins á Norðurlöndum, til Leikfélags Reykjavíkur, er far- ið fram á að það verði tafar- laust fellt niður úr sýningunni vegna óánægju Þjóðleikhússins með flutning þess. Á sýningu leikritsins í gærkvöldi var at- riðið leikið í þögn. Hallmar Sigurðsson leikhús- stjóri sagði, að við nánari skoðun á samningi Leikfélags Reykjavík- ur við STEF komi í ljós að vafa- samt sé að hann heimili flutning á lögum með þeim hætti sem gert er í sýningunni en þannig hafi hann verið túlkaður hingað til. „Ég reikna með að Þjóðleikhúsið hafí hingað til túlkað samninginn á sama veg og við,“ sagði hann. „En þegar þetta liggur á borðinu viljum við ekki standa í heims- styijöld vegna þessa litla lags og viljum ekki bijóta á einum eða neinum. Þess vegna er lagið dreg- ið til baka. Sýningin stendur eng- an veginn né fellur með þessu litla lagi.“ Að sögn Hallmars hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvernig atriðinu verði breytt, það kæmi síðar í ljós. Atriðið yrði leikið í „tregaþögn“, þar til annað hefur verið ákveðið. í svari Norræna leikhúsforlags- ins við bréfí Hallmars fyrir hönd Leikfélags Reykjavíkur, þar sem kynnt er sjónarmið félagsins, fer forlagið fram á að lagið verði þegar í stað fellt úr sýningunni, þar sem Þjóðleikhúsið sé óánægt með notkun þess þar og telji að það muni geta eyðilagt síðari upp- færslu þeirra á Sound of Music.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.