Morgunblaðið - 25.10.1990, Blaðsíða 64
•IÝTT SMM'WMf®
“uGlWGADBLD^
esnii
tfgmiftbifeito
FIMMTUDAGUR 25. OKTOBER 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Hætt við áætlanir
um varaflugvöll
NATO á íslandi
VARAFLUGVÖLLUR Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafi
er ekki lengur á dagskrá samkvæmt bréfi til utanríkisráðherra frá
yfirmanni Atlantshafsflota bandalagsins, sem hann sendi i júlímán-
uði siðastliðnum. Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráð-
herra við fyrirspurn Geirs H. Haarde og Halldórs Blöndal, þing-
manna Sjálfstæðisflokks, sem þeir lögðu fram á Alþingi 11. október
síðastliðinn. „Mér finnst mikilvægt að það liggi fyrir, formlega, eins
og kemur fram í þessu svari, hver niðurstaða bandalagsins er, því
að ekki hefur ráðherrann greint frá því eftir öðrum leiðum," sagði
Geir H. Haarde í samtali við Morgunblaðið i gær.
vamarframkvæmdum.
Fyrirspurn þingmannanna hljóð-
aði svo: „Liggur fyrir formleg niður-
staða Atlantshafsbandalagsins
varðandi ósk þess um varaflugvöll
á íslandi?"
Svar utanríkisráðherra hljóðar
svo: „Vitað er að um nokkurt skeið
hefur farið fram endurmat á varn-
arviðbúnaði Atlantshafsbandalags-
ins í ljósi atburða í Sovétríkjunum
og ríkjum Mið- og Austur-Evrópu.
Viðræður um takmörkun vígbúnað-
ar hafa skilað umtalsverðum
árangri og hafa aðildarríki banda-
lagsins dregið saman seglin í varn-
armálum að undanfömu.
Við þessar aðstæður kemur vart
á óvart að innan bandalagsins skuli
þykja ástæða til að hægja á nýjum
Utanríkisráðherra barst í júlí
síðastliðnum bréf yfirmanns Atl-
ahtshafsflota Atlantshafsbanda-
lagsins, SACLANT, þar sem hann
greindi frá ákvörðun sinni um að
hætt hefði verið við frekari áætlan-
ir um varaflugvöll Atlantshafs-
bandalagsins á Norður-Atlantshafi.
í bréfinu kom fram að SACLANT
mundi ekki óska eftir fjárstuðningi
Mannvirkjasjóðs bandalagsins um
framkvæmdir við slíkan varaflug-
völl í framtíðinni.
Formleg niðurstaða Atlantshafs-
bandalagsins varðandi ósk þess um
varaflugvöll á íslandi liggur því
fyrir.“
Vatni safnað í miðlun-
arlón Blönduvirkjunar
PRÓFANIR á mælitækjum í
stíflu aðalmiðlunarlóns Blöndu-
Trillu leitað
HAFIN var leit að þriggja
tonna trillu frá Djúpavogi
um klukkan 22 í gærkvöldi.
Þá hafði ekkert til hennar
spurst frá því á hádegi. Einn
maður er um borð.
Maðurinn hafði samband við
Tilkynningaskylduna á hádegi,
en þegar hann kom ekki að
landi um kvöldið var hafin leit
að honum. Tveir síldarbátar,
ásamt þremur bátum frá
Djúpavogi, tóku þátt í leitinni
og varðskip hélt á leitarsvæðið
frá Hornafirði. Trillan var vel
búin, með talstöð og björgunar-
bát.
Logn var á leitarsvæðinu, en
mikil þoka.
virkjunar og vatnsborðsmæling-
ar í grunnvatnsholum neðan
stíflunnar standa nú yfir. Þetta
er gert með því að safna nokk-
urra metra djúpu vatni í lónið.
Olafur Jensson yfirstaðarverk-
fræðingur við Blönduvirkjun segir
söfnun vatns í lónið hafa byijað í
síðustu viku. „Við gerum þetta til
að sjá hvaða viðbrögð við fáum á
mælitækjum sem eru í stíflunni
sjálfri og í grunnvatnsholum sem
eru í kring um stífluna og neðan
við hana til þess að sjá hversu fljótt
vatnsborðshækkun kemur fram þar
og hvernig það tengist vatnsborðinu
í lóni.“
Mælingarnar fara fram með því
móti að hægt er á vatnsrennsli um
botnrás og þá safnast vatn fyrir í
lóninu.. Ólafur sagði að ekki væri
sett í lónið nema lítill hluti þess
vatns sem endanlega verður í því.
Á næstu dögum verður síðan hleypt
úr lóninu aftur.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal •
Kraftmesta borholan á Kröflusvæðinu blés duglega þegar Egill
Sigurðsson, umsjónarmaður borholanna, vitjaði hennar.
Ný borhola
sú kraft-
mesta við
Kröflu
25. BORHOLAN var nýlega
boruð á Kröflusvæðinu og þyk-
ir lofa góðu um mikil afköst.
Að sögn Asgríms Guðmunds-
sonar jarðfræðings hjá Orku-
stofnun stefnir í að holan verði
sú kraftmesta á svæðinu til
þessa og geti að óbreyttu af-
kastað allt að 9-10 megawött-
um. Ásgrímur sagði þó ekki
unnt að fullyrða um afköstin
fyrr en að liðnum nokkrum vik-
um. Við borunina voru tekin
sýni til rannsókna á efnainni-
haldi þannig að meta megi
hvernig svæðið sé fært til virkj-
ana eftir eldsumbrot liðinna
ára. Að sögn Ásgríms liggja
niðurstöður úr þeim mælingum
ekki fyrir en við eldsumbrotin
gerði kvika það svæði sem fyr-
irhugað hafði verið að yrði að-
alvinnslusvæði Kröfluvirkjunar
óvinnsluhæft.
Til að Kröfluvirkjun nái.áætl-
aðri 75 megavatta orkufram-
leiðslu þarf að koma annarri véla-
samstæðu virkjunarinnar í notkun
en með henni er áætlað að fram-
leiða um 30 megavött. Algengast
er að borholur á svæðinu afkasti
um það bil 5 megavöttum og má
því búast við að 6 holur þurfi til
að ná fullum afköstum en standi
nýja holan undir björtustu vonum
og skili 9-10 megavöttum og
svæðið reynist hafa náð sér eftir
umbrotin þarf minna að leggja í
boranir en áætlað var og Kröflu-
virkjun nær þá fullum afköstum
fyrr og með minni tilkostnaði en
áætlað hafði verið.
Áhafnir Sléttaness og Framness á Þingeyri:
Semja um allt að 37%
heimalöndunarálag
ÁHAFNIR togara Þingeyringa,
Sléttaness og Framness, hafa
samið við Kaupfélag Dýrfirð-
Sovétmenn segja gjaldeyrisskort hamla síldarkaupum:
Söltun hætt og framhald
síldarvertíðarmnar óvíst
SÖLTUN fyrir Rússlandsmarkað hefur nú alls staðar verið hætt og
ríkir óvissa um framhald síldarvertíðarinnar, sökum þeirrar óskar
Sovétmanna, að afgreiðsla upp í gildandi samninga um kaup þeirra
á saltsíld héðan verði stöðvuð vegna gjaldeyrisskorts í Sovétríkjun-
um. Síldarsaltendur segja þetta reiðarslag fyrir þá og atvinnulifið í
heild. Nokkrir aðilar hafa flutt ferska síld á markað í Bretlandi,
Þýskalandi, Danmörku og Hollandi og fengið mun hærra verð fyrir
kilóið en greitt er hér á landi.
Gunnar Jóakimsson, fulltrúi hjá
Sfldarútvegsnefnd, sagði að væntan-
lega verði þegar í stað farið fram á
viðræður við sovéska fyrirtækið
Sovrybflot, sem annast síldarkaup
Sovétmanna, um efndir á gildandi
samningi og um síldarsölu upp í
samninga næsta árs. Hann sagði
stöðvun þessara viðskipta hafa alvar-
legar afleiðingar fyrir landverkafólk
og sjómenn. Utflutningsverðmæti
þeirra 50 þúsund tunna, sem á eftir
að afgreiða upp í gildandi samning,
nemur um 350 milljónum króna.
Á þriðjudag seldu Gámavinir sf.
4,5 tonn af ferskri síld úr gámum í
IIull í Englandi. Tæpar 45 krónur
fengust fyrir kílóið að meðaltali. Þá
voru 3 tonn seld í Grimsby, á um
34 króna meðalverði. Kostnaður við
að koma síldinni á markað þar var
um 22 krónur á kílóið.
Hér á landi fást um 10 krónur
fyrir kílóið af síld til söltunar og
frystingar, 13,50 kr. fyrir stóra síld
í frystingu á Japansmarkað og 4,50
til 5 kr. fyrir síld til bræðslu.
Sjá fréttir á miðopnu.
inga um verulega hækkun
heimalöndunarálags. Viðræður
aðilanna höfðu staðið yfir frá
því á mánudag og tafðist boðuð
brottför Framnessins frá klukk-
an 14 í gær og þar til að loknum
fundi í gærkvöldi þar sem
áhafnirnar samþykktu nýtt fisk-
verð kaupfélagsins, sem felur í
sér allt að 37% heimalöndunar-
álag á karfa, 30% á þorsk og
grálúðu og 25% álag á ýsu og
ufsa. Áður var greitt 15% á allar
tegundir, að sögn Guðbjarts
Jónssonar stýrimanns á Slétta-
nesi.
Guðbjartur sagði að áhafnir
beggja togaranna hefðu staðið ein-
huga að kröfugerð um úrbætur þar
sem sjómenn á Þingeyri hefðu
dregist aftur úr starfsbræðrum í
nágrannabyggðunum á undan-
förnum vikum en sá munur hefði
verið jafnaður með hinu nýja fisk-
verði.
Magnús Guðjónsson kaupfélags-
stjóri sagði að hann hefði talið að
sjómenn á togurum Dýrfirðinga
mættu vel við sinn hlut una enda
hefði skiptaverð til þeirra hækkað
um 48,8% fyrstu níu mánuði þessa
árs miðað við sama tímabil í fyrra
og einungis þrír togarar á Vest-
fjörðum hefðu skilað meira afla-
verðmæti. Aðspurður hvort tilboð
um hækkun fiskverðs með þessum
hætti gæti samrýmst þjóðarsátt
sagði Magnús að hér væri ekki um
beina launahækkun að ræða heldur
hækkað hráefnisverð. „Þetta hefur
ekkert með þjóðarsátt að gera í
sjálfu sér. Hins vegar eru laun sjó-
manna tengd fiskverði og við rek-
um fiskvinnslu og verðum að reyna
að vera samkeppnisfærir við aðra
um verð á fiski. Ef við borgum
ekki svipað verð og aðrir fáum við
ekki fisk. Við erum búnir að taka
á okkur um 6 vikna atvinnuleysi
í frystihúsinu á þessu ári. Það er
búið að vera okkur erfitt og dýrt
og ef við fáum ekki hráefni nema
borga meira fyrir það þá neyðumst
við til þess. Eg lít ekki á þetta sem
kjarabaráttu, þetta snerist um hrá-
efnisverð."