Morgunblaðið - 13.11.1990, Síða 21

Morgunblaðið - 13.11.1990, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990 21 bindandi kosningu í fjórða sæti. „Eg er sannfærður um að þessi framboðslisti fær góðan byr í kjördæminu. I efstu sætum er traust og reynt fólk og á hæla þess koma nýir og ungir fram- bjóðendur. „Þarna eru mörg ný andlit og konur hafa fengið góðan byr.“ Arni Ragnar kvaðst vera mjög þakklátur öllum þeim sem hefðu stutt hann. „Ég vil sérstaklega þakka Suðurnesjamönnum, sem sýndu þá samstöðu, sem oft er talað um meðal þeirra. Þar átti ég mest fylgi. Ég hóf ekki barátt- una fyrr en fimm vikum fyrir próf- kjör og miðað við það er góð út- koma mín óvænt.“ Anægður með minn hlut - segir Ólafur G. Einarsson „ÉG er ánægður með minn hlut, sem mér þykir góður. Þá er ég einnig mjög án- ægður með þátt- tökuna í próf- kjörinu og mér sýnist við ætla að koma saman sterkum lista fyrir næstu kosningar. Mér þyk- ir ekki fjarri lagi að ætla að við fáum fimm þingmenn í kjör- dæminu í næstu kosningum,“ sagði Ólafur G. Einarsson, odd- viti lista Sjálfstæðismanna. Ólafur sagði að úrslit prófkjörs- ins í heild hefðu ekki komið sér mjög á óvart. „Ég var nokkuð viss um góðan árangur kvenna og þótt- ist sjá styrkleika Arna Mathiesen fyrir. Þá vissi ég að áhugi var önnur að menn fá ekki vinning nema kaupa miða.“ Aðspurður um afstöðu tii prófkjörs sagði Vil- hjálmur að á kjördæmisþinginu hafi komið í ljós að þegar á reyndi hafi aðeins mjög lítill hluti fulltrúa viljað prófkjör og það á nokkuð mismunandi forsendum. „Almennt vildi fólkið ekki prófkjör heldur að kjörnefnd gerðu tillögu um lista á grundvelli skoðanakönnunar sem áður farið fram. Sá listi var siðan borinn upp og samþykktur með öllum greiddum atkvæðum. Ég tel því að þarna hafi náðst mjög góð samstaða á meðal okk- ar,“ sagði Vilhjálmur Egilsson. Alger sam- staða var um listann - segir Hjálmar Jonsson „ÉG var hlynnt- ur prófkjöri því ég vildi vita hver staða mín væri. Ég hef þá skoð- un að prófkjör skuli vera al- menna reglan,“ sagði séra Hjálmar Jónsson sóknarprestur á Sauðárkróki, sem skipar þriðja sæti á lista sjálfstæðismanna vegna væntanlegra alþingis- kosninga. „Ég hafði jafnframt sagst sam- þykkja fyrir mitt leyti tillögu kjör- nefndar ef um þá skipan væri sam- staða. Á kjördæmisþinginu var alger samstaða um listann svona og ég sætti mig fyllilega við þá niðurstöðu og tel mig hafa fengið svar og næga vísbendingu um stöðuna,“ sagði hann. fyrir því í kjördæminu að Suður- nesjamaður fengi góða kosningu. Það kom mér dáltið á óvart að Sveinn Hjörtur yrði þetta neðar- lega og að Hreggviður næði ekki ofar á listann, þó ég gerði mér grein fyrir að hann átti þar í erfið- leikum.“ Ólafur sagði, að þar sem allir þátttakendur, fyrir utan hann og Salome, hefðu verið að taka þátt í prófkjöri í kjördæminu í fyrsta sinn, hefði þurft að leggja meiri áherslu á sameiginlegu kynningu á þeim. „Ég heyrði á fólki, að það átti erfitt með að gera upp hug sinn um röð á listann, vegna þess hve lítt það þekkti til frambjóð- enda,“ sagði hann. „Mér finnst listinn sterkur og á von á að flokk- urinn fái 5 þingmenn í kjördæminu í næstu kosningum. Það er ekki ástæða til annars en að ætla, að fylgisaukning verði í kosningum sem skoðanakönnunum.“ Úrslit próf- kjörsins skýr - segir Sveinn H. Hjartarson „ÚRSLITIN eru mjög skýr og ég er sáttur við þau, þó ég hefði auðvitað viljað hafna ofar á list- anum. Ég óska þeim, sem þeim árangri náðu, til hamingju," sagði Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræð- ingur, sem hafnaði í 7. sæti í prófkjörinu. Sveinn Hjörtur sagði, að þar sem hann hefði nú verið að taka þátt í prófkjöri í fyrsta sinn mætti hahn vel við úrslitin una. Hann hefði ekki vitað hvaða fylgi hann mætti búast við, en hann hefði verið að etja kappi við margt gott fólk. „Mér finnst að það hafi tek- ist að yngja upp á listanum og konur hafi fengið ágæta niður- stöðu. Mér finnst þeim hafa tekist ágætlega að koma sér á fram- færi, til dæmis ef úrslit í prófkjöri í Reykjavík eru höfð til hliðsjónar." Atkvæði kvennanna dreifðust - segirSalome Þorkelsdóttir „ÉG tók ákveðna áhættu með því að stefna í 2. sæti listans og er afar þakklát þeim sem studdu mig til að ná því mark- miði. Þá þykir mér ánægjulegt hve eindreginn stuðning for- ustumaður listans, Olafur G. Einarsson, hlaut í 1. sætið,“ sagði Salome Þorkelsdóttir, al- þingismaður. Salome benti á, að af fimmtán frambjóðendum hefðu verið sjö konur. „Konur eru yfirleitt mun færri og ég held að það hafi verið meiri dreifing atkvæða á okkur konurnar. Við getum þó vel við unað, því þtjár konur hlutu bind- andi kosningu. Þá er vert að benda á mjög glæsilega kosningu Árna M. Mathiesen í þriðja sætið. Við getum boðið fram sterkan lista í komandi kosningum og mig langar að senda öllum meðframbjóðend- um kveðjur og þakkir fyrir drengi- lega keppni og stuðningsmönnum mínum fyrir dyggilegan stuðning.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.