Morgunblaðið - 13.11.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990
25
Menntaskólanemar í Frakklandi:
Kennsluaðferðum og lé-
legum aðbúnaði mótmælt
Perpignan í Frakklandi. Frá Margréti E. Ólafsdóttur, fréltaritara Morgunblaðsins. Reuter.
UM EITT hundrað þúsund franskir menntaskólanemar efndu í gær
til mikilla mótmæla í mörgum stærstu borgum landsins til að leggja
áherslu á kröfur sínar um fjölgun kennara og betri aðbúnað í skól-
um. Mótmæli af þessu tagi hafa verið tíð og stundum ofsafengin að
undanförnu. Námsmönnunum finnst ríkisstjórn Michels Rocards
koma of skammt til móts við kröfur þeirra en hún ákvað í síðustu
viku að auka framlög til menntamála um 9% á næsta ári, eða í 217
milljarða franka, jafnvirði 2.387 milljarða ÍSK.
Meðal þess sem menntaskóla-
nemarnir fara fram á er að aðstaða
í sjálfum skólunum verði bætt en
þeir saka yfirvöld um að taka lítið
tillit til þarfa nemenda. Þeir vilja
að fækkað verði í bekkjum þannig
að í hveijum slíkum sitji 40 nemend-
ur hið mesta. Nemendurnir hafa
og krafist þess að vörðum verði
fjölgað innan skólanna en í stærri
borgum hefur borið á því að undan-
förnu að hópar ungmenna ráðist
að nemendum og ræni þá tískufatn-
aði og öðrum verðmætum. Þá eru
nemendur ósáttir við kennsluað-
ferðir í frönskum menntaskólum og
nefna einkum að þeir fái ekki tæki-
færi til að taka virkan þátt í kennsl-
unni. Þeir telja að stúdentsprófið
sé lítils metið í Frakklandi og segja
að nánast sé nauðsynlegt að bæta
við sig fjögurra ára háskólanámi
ætli merin að standast kröfur sam-
félagsins og fá viðunandi starf. Um
80 prósent franskra ungmenna í
hveijum árgangi ljúka stúdents-
prófi og eru flestir 18 ára að aldri
þegar þeir ná þeim áfanga.
Skömmu eftir að fyrstu mót-
mælagöngurnar fóru fram boðaði
menntamálaráðherra Frakklands,
Lionel Jospin, ákveðnar breytingar.
Stöðum gangavarða var' fjölgað og
því heitið að framlög til mennta-
mála yrðu aukin. Er gert ráð fyrir
því að á næsta ári muni framlög
til þessa málaflokks í fyrsta skipti
verða hærri en útgjöld ríkisins á
vettvangi varnarmála.
Menntamálaráðherrann Jack
Lang hefur hvatt ungmennin til að
sýna stillingu en svör og viðbrögð
hans hafa vakið litla þrifningu með-
al menntaskólanemanna. Þannig
efndu um 100 þúsund námsmenn
til mótmæla víða um land í gær,
þar af 50 þúsund í höfuðborginni,
París. Mótmælin fóru að mestu frið-
samlega fram en þó tóku smáhópar
grímuklæddra manna sig út úr og
brutu rúður í verslunum.
Hermdarverk
IRA harð-
lega fordæmd
Belfast. Reuter.
KIRKJULEIÐTOGAR og stjórn-
málamenn fordæmdu á sunnu-
dag írska lýðveldisherinn (IRA)
fyrir hryðjuverk samtakanna
sem myrtu fjóra andaveiðimenn
skammt frá Loch Neagh-vatni á
Norður-írlandi á laugardag. Tvö
fórnarlambanna voru í lögreglu
landsins.
„Þessir morðingjar starfa í óþökk
allra, kaþólikka jafnt sem mótmæl-
enda, hvort sem er á N-írlandi eða
í írska lýðveldinu," sagði Hugh
Annesley, lögreglustjóri á N-Ir-
landi. Dr. Cahal Daly, harður gagn-
rýnandi IRA, er fyrir skömmu var
kjörinn erkibiskup kaþólikka í ír-
landi, sagði kirkjudeildir beggja
vegna landamæranna hafa samein-
ast um að reyna að stöðva ofbeldið.
Þessar tilraunir hefðu komið í veg
fyrir að ástandið yrði jafnt slæmt
og í Líbanon.
Reuter
Sigri fagnað of fljótt
Jorge Carpio, einn af frambjóðendum í forsetakosningunum í Guate-
mala, sést hér sigurviss er hann hafði greitt atkvæði á sunnudag.
Skoðanakannanir gáfu til kynna að Carpio ætti mesta möguleika á
sigri en er búið var að telja 7% atkvæða í gær var annar maður og
áður óþekktur, Jorge Serrano, langefstur með um 36% fylgi, Carpio var
í þriðja sæti. Serrano er talinn hafa fengið mikið af atkvæðum sem
Efrain Rios Montt, fyrrverandi hershöfðingi, hefði hlotið ef framboð
hans hefði ekki verið úrskurðað ógilt. Rios Montt er sakaður um að
bera ábyrgð á hryðjuverkum hægrimanna fyrir nokkrum árum en ta-
lið er að um 100 þúsund manns hafi látist í innanlandsátökum í Guate-
mala sl. 30 ár.
Evrópubandalagið:
Svipta Færeyinga þorsk-
veiðiheimild í Eystrasalti
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun,
ÓSAMKOMULAG er nú komið
upp milli Evrópubandalagsins
(EB) og Færeyinga í viðræðum
um fiskveiðisamning þessara
aðila fyrir næsta ár. Deilt er
um 800 tonna þorskkvóta sem
Færeyingar hafa fengið að
veiða í fiskveiðilögsögu
Austur-Þjóðverja í Eystrasalti
ár hvert í skiptum fyrir 6.000
tonna kolmunnakvóta.
Þennan samning vill EB ekki
endurnýja nú og ber við að banda-
lagið hafi ekki þörf fyrir kol-
munnakvótann við Færeyjar.
Færeyingar höfðu fimm ára
rammasamning við Austur-Þýska-
land og rennur hann ekki út fyrr
en í apríl 1992. Kjartan Höydal,
fiskimálastjóri Færeyinga, segir
það óþolandi að EB standi ekki
við þennan samning. „Það er ákaf-
lega ósanngjarnt að láta breyting-
arnar í Þýskalandi koma með þess-
um hætti niður á okkur,“ segir
hann.
Höydal bendir á að afkoma
færeysku fiskiskipanna, sem veitt
hafi í Eystrasalti, sé algerlega háð
þorskkvótanum þar.
fréttaritara Morgunblaðsius.
Samkomulag hefur hins vegar
tekist um aðra þætti fiskveiði-
samningsins, það er veiðiheimildir
Færeyinga í Norðursjó, fyrir vest-
an Bretland og við Grænland, auk
heimilda EB til veiða á færeyskum
miðum. Samningaviðræðurnar
hefjast að nýju 3. desember næst-
komandi.
Þýskaland:
Sovéskar handsprengj-
ur á 800 krónur stykkið
Hainborg. Reuter.
HANDSPRENGJUR, hríðskotarifflar og önnur vopn eru nú
á útsölu í austurhluta Þýskalands. Það eru sovéskir hermenn
sem með þessum hætti reyna að drýgja tekjur sínar.
hermennina. Þeir vilja koma
vopnum sínum sem fyrst í verð
áður en þeir verða kallaðir heim.
I sömu frétt kemur fram að
fimmtíu sovéskir hermenn hafi
sótt um hæli sem pólitískir flótta-
menn í Þýskalandi undanfarna
viku. Að auki hafi 150 hermenn
strokið úr búðum sínum á þessu
sama tímabili.
Þýska fréttatímaritið Der Spi-
ege/’segir frá því að svartamark-
aðsverðið á Kalashnikov-
hríðskotarifflum sé 200 mörk
(7.200 ÍSK), skammbyssum 100
mörk (3.600 ÍSK) og hand-
sprengjum 25 mörk (800 ÍSK).
Að sögn blaðsins eru það einkum
vopnasalar, þýskir og erlendir,
sem verslað hafa við sovésku
Reuter
Jannis Ritsos
látinn
Gríska skáldið Jannis Ritsos lést
í gær, 81ns árs að aldri. Ritsos
var sannfærður kommúnisti alla
sína tíð og margsinnis fangelsað-
ur eða rekinn úr landi eftir seinni
heimsstyijöld vegna stjórnmálaaf-
skipta sinna. Hann var tvisvar
orðaður við Nóbelsverðlaunin en
fékk þau ekki. Á hinn bóginn fékk
hann Lenínverðlaunin sovésku
1977. Tónskáldið Mikis Þeódorak-
is, sem nú er orðinn hægrisinni,.
gerði lög við mörg ljóða Ritsos
og urðu sum þeirra vinsælir bar-
áttusöngvar vinstrisinna næstu
árin.
HLJÓÐKÚTAR
FRÁ USA
NÝ SENDING í
FLESTAR GERÐIR
AMERÍSKRA BÍLA
Einnig
TURBO-KUTAR
með2“-2y4“-2y2“
stútum
Gæðavara - gott verð
Póstsendum
Opið laugardaga kl. 10-13
Bílavörubúóin
FJODRIN
Skeifan 2 simi 82944
Við hðfum eftirfarandi notaðar fiskvinnsluvéiar til sölu:
BAADER 440 - FLATNINGSVÉL Þeir, sem áhuga hata á ein-
BAADER 189 - FLÖKUNARVÉL hverjum hessara véla, hafi
BAADER 190 - FLÖKUNARVÉL vinsamlegast samband viö:
BAADER 182 - FLÖKUNARVÉL C0FISH GR0UP
BAADER 415 — HAUSUNARVÉL P.O.Box 23
BAADER 184 - FLÖKUNARVÉL N-8430 Myre, Norge
BAADER 150 - FLÖKUNARVÉLFVRIR KARFA Simi: 9047-88-34300
BAADER 170 - FLÖKUNARVÉL FYRIR FLATFISK Telefox: 9047-88-34301
BAADER51 - R0ÐFLETTIVÉL Telex: 65071 Cofis n
Myndatökur fró kr. 7.500,-.
Öllum okkar
myndatökum fylgja tvœr
stœkkanir 20x25 sm.
Ljósmyndastofurnar
Mynd, Hafnarfirbi, sími
54207,
Barna- og
fjölskylduljósmyndir,
Reykjavík, sími 12644,
Ljósmyndastofa Kópavoqs,
sími 43020