Morgunblaðið - 13.11.1990, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 13.11.1990, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NOVEMBER 1990 A-evrópsk friðsemd bjargaði málunum __________Skák_____________ Margeir Pétursson MEÐ þrjá Sovétmenn og einn Pólverja hálfum vinningi á und- an fyrir síðustu umferð gerði ég mér ekki miklar vonir um efsta sæti á opna meistaramóti Vínarborgar sem lauk helgina 3.-4. nóv sl. En friðsemd A-Evr- ópumannanna kom sér vel, þeir sömdu stutt jafntefli innbyrðis og með sigri yfir júgóslavneska alþjóðameistaranum Perovic* tókst mér að ná þeim. Öflug- asta skákmanni Tékka, Lubom- ir Ftacnik tókst einnig að sigra og urðum við því sex jafnir í efsta sæti mótsins. Lev Psak- his, sem tefldi æfingaeinvígi við Kasparov í sumar fyrir HM, missti hins vegar af lestinni með því að ná aðeins jafntefli við lítt þekktan V-Þjóðverja, Gschnitzer að nafni. Þetta var í níunda sinn sem meistaramót Vínarborgar er hald- ið með þessu formi, en það hefur aldrei verið eins öflugt og í þetta sinn. Það voru stærsti banki Aust- urríkis, Creditanstalt Bankverein og Casinos Austria AG, sem mun vera stærsta fyrirtæki heims á sínu sviði, sem kostuðu þetta mót. Næsta ár er ætlunin að bæta enn um betur og tefla í mörgum flokkum. Vínarborg er reyndar ein af vöggum nútíma- skáklistar. Taflíélagið þar var stofnað árið 1857 og með öflugum stuðningi barónanna Rotschild og Kolisch voru þar haldin mörg sterkustu alþjóðaskákmótin á síðasta fjórðungi 19. aldar og fyrsta fjórðungi þessarar. Fremsti skákinaður Austurríkismanna fyrr og síðar er án efa Karl Schlec- hter (1874-1918) sem gerði m.a. jafntefli, 5-5, við Lasker í heims- meistaraeinvígi árið 1910 og var svo óheppinn að tapa síðustu skákinni. Þar sem Vínarborg er mjög nálægt mörgum A-Evrópulöndum komu margir þátttakendur þaðan og eins og venjulega voru þeir sigursælir. Lokastaðan varð þessi: 1-6. Wojtkiewicz, Póllandi, Gavrikov, Krasenkov og Kengis, Sovétríkjunum, Ftacnik, Tékkó- slóvakíu og Margeir Pétursson 7 v. af 9 mögulegum. 7-16. Psakhis, ísrael, Röder, Gschnitzer og Zysk, V- Þýzkal- andi, Kolev og Danailov, Búlgaríu, Nijboer, Hollandi, Fauland, Lend- wai og Dúckstein, Austurríki, 6 'A v. Þátttakendur í A flokki voru alls 171 tölu, þar af 11 stórmeist- arar og 20 alþjóðlegir meistarar. Ef menn eru fjarri sínu bezta á mótum sem þessum getur farið mjög illa, eins og sást á frammi- stöðu Kevins Spraggett, sem komst í átta manna úrslit síðasta áskorendamóts og féll ekki út þar fyrr en í bráðabana. Hann virtist vanmeta hina þéttingssterku A- Evrópumeistara og endaði með aðeins 50% vinninga, eða 4 ‘A. Fremsti skákmaður Austurríkis, Jozef Klinger, varð að sætta sig við sama vinningshlutfall, en hann hafði þó þá afsökun að hafa sofið yfir sig í einni skákinni. Eg fór fremur rólega af stað, hlaut þtjá vinninga úr fyrstu fjór- um, en vann þá tvær í röð og komst í toppinn. Þá tefldi ég hins vegar mjög illa gegn Wojtkiewicz og gaf honum kost á að ná óstöðv- andi kóngssókn, sem hann út- færði reyndar nokkuð skemmti- lega. Hvítt: Margeir Pétursson Svart: Wojtkiewicz, Póllandi Kóngsindversk vörn I. d4 - Rf6 2. c4 - c5 3. d5 - d6 4. Rc3 - g6 5. e4 - Bg7 6. Be2 - 0-0 7. Bg5 - h6 8. Bf4 - He8!? Leikið til að sneiða hjá aðalaf- brigðinu 8. — e6 9. dxe6 — Bxe6, sem er ekki sérlega traust á svart. 9. Dd2 - Kh7 10. 0-0-0? Þetta reynast nú heldur betur óheppileg viðbrögð gegn hinum rólega 8. leik svarts. Ég vanmat II. leiks svarts, en eftir hann er engin leið fyrir hvítan til að fá teflandi stöðu. 10. - 1)5 11. f3 - Da5! 12. cxb5 - a6 13. b6 - Rbd7 14. b7 - Bxb7 15. g4 - Hfb8 16. h4 - Bc8 17. Dc2 undra þótt þetta standist. Eftir misheppnaða byijun hvíts standa á honum öll spjót. 18. Kxb2 - Ilb8+ 19. Kcl - Da3+ 20. Kd2 - Hb2 21. Hbl Eini varnarmöguleikinn, en því miður þarf svartur ekki strax að taka drottninguna, heldur á hann banvænan millileik. 21. — Rxe4+! 22. Rxe4 — Hxc2+ 23. Kxc2 - f5 24. gxf5 - gxf5 25. Bd3 — c4 26. Rg5+ — hxg5 27. Bxf5+ - Kg8 28. Bd2 - Dxa2+ 29. Kcl — Rc5 og hvítur gafst upp. Þar með var ljóst að ég yrði að vinna tvær síðustu skákirnar til að eiga möguleika á efsta sæti, en daginn eftir var röðin kominn að mér að detta í lukkupottinn í byijuninni: Hvítt: Sjöberg, Svíþjóð Svart: Margeir Pétursson Drottningarindversk vörn 1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 - b6 4. g3 - Ba6 5. Dc2!? Hér er miklu algengara að leika 5. Da4 eða 5. b3, en þetta þarf þó ekki að vera miklu síðra. 5. — c5 6. Bg2 — Rc6 7. dxc5 — bxc5!? Tveimur umferðum áður á mót- inu hafði Psakhis leikið 7. — Bxc5 gegn Sjöberg og unnið fljótt eftir hrikalegan afleik Svíans, en ég vildi ekki gefa honum kost á að endui-bæta taflmennsku sína. 8. 0-0 - Hc8 9. Bf4 — Be7 10. Hdl - 0-0 11. b3?! Þessi leikur er fullhægfara og gerir svaiti kleift að jafna taflið strax. 11. - (15! 12. cxd5? Eftir þetta hrynur hvíta staðan hreinlega. Nauðsynlegt var að leika 12. Re5, þótt svarta staðan sé.eilítið þægilegri eftir 12. — Rxe5 13. Bxe5 - Rd7 14. Bb2 - d4. 12. - Rxd5! Hvítur virðist alveg hafa gleymt þessum möguleika. Nú hótar hvítur óþyrmilega 13. — Bf6 og þar að auki væri 13. — Rd4 sterkt. Hvítur getur heldur ekki lokið liðsskipan sinni á eðli- legan hátt, því 13. Rc3 er svarað með 13. — Rd4! og svartur vinnur mann. 13. De4 - Bf6 14. Re5 14. — Rxf4! 15. Hxd8 — Rxe2+ 16. Khl Endataflið eftir 16. Dxe2 — Bxe2 17. Hxc8 — Hxc8 18. Rxc6 — Hxc6 19. Bxc6 — Bxal er al- veg vonlaust því svartur hefur peð yfir og þar að auki biskupaparið. 16. - Hfxd8 17. Rxc6 - Hdl + 18. Bfl - Hxfl+ 19. Kg2 - Hgl+ 20. Kh3 — h5! og hvítur gafst upp. Hann tapar miklu liði, en aðalhótun svarts í stöðunni er 21. — Rf4+ og síðan 22. — Bfl mát! Rétt er einnig að geta þess að í 14. leik gat svartur einnig tryggt sér liðsyfirburði með því að leika 15. — Rd4, sem er þó ekki alveg eins fljótvirkt. Afmælisdagabók eftir Amy Engilberts HÖRPUÚTGÁFAN hefur gefið út nýja íslenska bók, Afmælis- dagar nieð stjörnuspám, eftir Amy Engilberts. Bókin skiptist í 12 kafla og fær hvert stjörnumerki sérstaka um- íjöllun. Greint- er frá eiginleikum fólks sem fætt er í hinum ýmsu stjörnumerkjum og sérstakir reitir til þess að færa inn nöfn vina og minna þannig á afmælisdaginn þeirra. Einnig er sagt frá frægu fólki sem fætt er í viðkomandi stjörnumerkjum. í inngangsorðum bókarinnar segii': „Þessi litla afmadisdagabók er ætluð til þess að gleðja vini og kunningja. Ilver afmælisdagur minnir á hið liðna, en einnig þær vonir sem bundnar eru við fram- tíðina. Með því að minnast vina og gleðjast á afmælisdögum færast manneskjurnar nær hver annarri. — Amy Engilberts." Afmælisdagar með stjörnuspám er 130 bls. Filmuvinna, prentun og bókband er unnið í prentsmiðjunni Odda hf. Amy Engilberts BÚSÁHÖLD — GJAFAVÖRUR — LEIKFÖNG O.FL. PANTIÐ JÖLAVÖRURNAR NÚNA Síðasti móttökudagur jólapantana er 20. nóvember Verð miðað við gengi 23.8.1990 PÖNTUNARSÍMI52866. Þrjár myndir og ein til Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Sögur að handan („Tales from the Darkside: The Movie“). Sýnd í Regnboganum. Leik- stjóri: John Harrison. Aðalhlut- verk: Deborah Harry, Christian Slater, David Johansen, James Remar, Rae Dawn Chong. Nútímanorn (Deborah Harry) dulbúin eins og slétt og felld út- hverfahúsmóðir heldur blaðburða- dreng lokuðum inni í búri í eldhús- inu hjá sér og ætlar að hafa hann í kvöldmatinn en höfuðlausn hans er að segja henni hrollvekjur. Þannig er búin til umgjörð utan um þijár stuttar hryllingsmyndir sem vekja hvorki hrylling né ótta þótt þær séu vel gerðar tæknilega og stundum talsvert groddara- lega. Þær eru byggðar á sögum Arthur Conan Doyles, Stephen Kings, sem flestir ættu að þekkja, og Michael McDowells, höfundar Bjölludjússins sællar minningar. Yfirbragðið er í dulítið alvöru- lausum, kómískum stíl sem er ágætur til síns brúks en dregur að mestu úr skelfingaráhrifunum í leikstjórn John Harrisons eins og berlega kemur í ljós í fyrstu sögunni uin múmíu sem vaknar til lífsins á háskólaheimavist og stútar fjendum eiganda síns. Christian Slater er glettilega góð- ur banamaður smyrlingsins (ef hægt er að tala um að drepa múmíur) en það sárvantar hroll í yfirborðskennda söguna. Þá er lítið vit í sögu númer tvö en nóg af smekkleysu. Hún er gerð eftir handriti horrormeister B-hroðans, George A. Romeros, uppúr sögu Stephens Kings um banvænan kött á dimmu herra- setri. Eigandinn ræður til sín leigumorðingja að kála kettinum, sem hann kennir um að hafa drep- ið þrjá íbúa hússins, en morðing- inn (David Johansen) hefur hvergi roð við svarta kisa, er að lokum skríður oní maga hans í gegnum munninn í ljótasta og teygðasta atriði allrar myndarinnar; virki- lega ósmekklegt og blóðmjólkað af Harrison. Lokahrollurinn er blanda af skrýmslasögu og ástarsögu eftir McDowell um listmálara sem lofar dreka einum að segja aldrei til hans og atburðanna kvöldið sem þeir rekast saman. Á sama tíma hittir hann ástina sína og tíu árum seinna segir hann henni allt með hörmulegum afleiðingum. Myndin er ágætlega leikin af Remar og Chong en burðarlítil eins og hinar full fyrirsjáanleg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.