Morgunblaðið - 18.11.1990, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1990
19
Salka Valka í Det Norske Teatret:
„Margt gott en sýn-
ingin langdregin“
- segir í leikdómi í Aftenposten
„JORUNN Kjellsby bar uppi þessa sýningu," segir Eilif Straume
í leikdómi sínum í norska dagblaðinu Aftenposten um uppfærslu
Det Norske Teatret á leikgerð Stefáns Baldurssonar og Þorsteins
Gunnarssonar á Sölku Völku Halldórs Laxness sem frumsýnd var
í Osló á fimmtudagskvöld í síðustu viku. „Hún var móðir og leit-
andi sál hér á jörðu. Heil í sorg sinni og gleði. Það var þessi
innri hlýja kvenverunnar, sem við könnumst við úr sögum skáld-
jöfranna Laxness og Heinesens, sem lýsti henni brautina gegnum
fátækt og kulda.“
Straume minnir á hversu leik-
uppfærsla skáldsögu eins og
Sölku Völku sé vandasamt verk.
Hann segir að Stefáni Baldurssyni
hafi tekist að glæða stóra kafla
verksins lífi og lit, sérstaklega í
fyrsta hlutanum, þó að vissrar
stöðlunar gæti í stöðugt endur-
teknum atriðum með söng og spili
— fyrst með Hjálpræðishernum
og síðan mótmælaaðgerðum
sósíalista. „Þetta er vafalaust rétt
mynd af staðbundnu, íslensku fá-
mennissamfélagi í byijun aldar-
innar þar sem lífið sjálft var staðl-
að,“ segir Straume, „en frá leik-
rænu sjónarmiði getur það orðið
einhæft.“
Straume segir að sér hafi fund-
ist sviðsmyndin hrá og einföld:
Vísbending um bryggju og fisk-
reit og stórar, hvítar tröppur sem
yfirgnæfðu annað á sviðinu og
lágu upp til kaupmannshússins
og prestssetursins; yfirstéttar-
fólkið er hátt yfir almenning haf-
ið. „Sérkennileg lausn hjá leik-
myndahönnuðinum, Þórunni
Þorgrímsdóttur,“ segir Straume.
Hann segir að hin unga leik-
kona, Anneke von der Lippe, hafi
leikið aðalhlutverkið af nákvæmni
og öryggi. Bilið milli mildi og
undirgefni móðurinnar annars
vegar og þvermóðskulegs sjálf-
stæðis dótturinnar hafi verið með
því áhrifamesta við sýninguna.
Straume hrósar þýðingu Knut
Odegárds og segir að margt hafi
verið vel gert í þessari sýningu.
Þó hafi sér fundist hún langdreg-
in, sérstaklega eftir hlé. „Eftir
stendur mynd af tveimur konum:
Jorunn Kjellsby og Anneke von
der Lippe, móður og dóttur. Þær
eru eins og tvær ásjónur Janusar;
frá annarri stafar hlýju, fijósemi
og kvenlegleika frumkonunnar,
þeirri mildi sem svo oft er misnot-
uð; frá hinni stafar sterkari sjálfs-
vitund og ákveðni," segir Eilif
Straume.
Leikhús fyrir börn
í Norræna húsinu
KAÞARSIS - leiksmiðjan frumsýnir mánudaginn 19. nóvember leik-
ritið Saga um lítinn prins. Hugmyndin að verkinu er sótt í sögu
franska rithöfundarins Saint-Exxupéry, Litli prinsinn, en leikhópur-
inn hefur unnið 40 mínútna langa leikgerð byggða á sögunni, sem
ætluð er 3-7 ára gömlum börnum.
Sýningar verða í sal norræna
hússins við Hringbraut og þar ætlar
Kaþarsis að bjóða áhorfendum í
ævintýralegt ferðalag um heim litla
prinsins í fylgd með leikurum Kaþ-
arsins.
Leikarar í Sögunni um lítinn
prins eru þau Asta Arnardóttir,
Erling Jóhannesson, Sigurþór Al-
bert Heimisson og Skúli Gautason.
Leikstjóri er Kári Halidór og Árni
Harðarson sér um tónlist.
Sýningar verða sem fyrr segir í
sal Norræna hússins, mánudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og föstu-
daga, bæði fyrir og eftir hádegi.
Stærri hópar getá pantað sýningar
eftir samkomulagi en nánari sýn-
ingartími verður auglýstur síðar.
Allar upplýsingar um sýninguna
eru veittar í síma 16252 eða í Nor-
ræna húsinu i síma 17030. Sýning-
ar á Sögu um lítinn prins verða
fram í miðjan desember.
(Úr frcttatilkynningu)
Afgreiðslutími verslana í Reykjavík:
Aukið fijálsræði veld-
ur litlum breytiugum
- segir Magnús Finnsson fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasamtakanna
MAGNÚS Finnsson framkvæmdasljóri Kaupmannasamtakanna
telur ekki að aukið frjálsræði í reglum um afgreiðslutíma verslana
í Reykjavík frá áramótum muni hafa miklar breytingar í för með
sér. Samkvæmt gildandi reglum hafi fjölda verslana verið heimilt
að hafa opið til 22 á kvöldi en fæstar hafi fært sér það í nyt.
Hann segir engan vafa á, að þar sem afgreiðslutíminn lengist í
reynd við þessa breytingu, muni aukinn launakostnaður koma að
fullu fram í hækkuðu verðlagi.
Magnús sagði að samtök kaupa-
manna hefðu um árabil barist fyr-
ir auknu fijálsræði á þessu sviði
og kysu að búa við það. Hins veg-
ar væri vinnutími verslunarmanna
og -eigenda þegar einhver sá
lengsti sem þekktist og ef hann
lengdist enn yrði sjálfsagt fljótlega
erfitt að fá fólk til starfa, ekki
síst ef mikið yrði um að verslanir
yrðu opnar á sunnudögum. Hann
kvaðst telja líklegt að vinnutíma-
mál yrðu ofarlega á blaði í næstu
kjarasamningum við verslunar-
menn, sem áður hefðu sett fram
kröfur um hámarksvinnutíma,
vaktavinnu og sérstaka samninga
fyrir hveija tegund verslana.
Virðisaukaskattur - Námskeið
Ert þú á réttri leið með virðisaukaskattinn ?
Endurskoðun hf. og Sinna hf. standa fyrir námskeiðum um virðisaukaskatt, þar serh
áhersla verður lögð á reglur og aðferðir við tekjuskráningu, innskatt og bókhald auk
umfjöllunar um ákvæði laga og reglugerða.
Námskeidin standa yfir tvö kvöld og verda haldin sem hér segir:
* Verslun og þjónusta 20. og 21. nóvember 1990 kl. 20 - 2230
* Iðnaður og iðnaðarmenn 27. og 28. nóvember 1990 kl. 20 - 2230
Þátttaka tilkynnist í síma 91-651233. Námskeiðin verða haldin að Bæjarhrauni 12 í
Hafnarfirði. Námskeiðsgjald er kr. 7000.
Endurskoðun hf.
mm
Sinna hf.
löggiltir endurskoðendur
Bæjarhrauni 12
220 Hafnarfjörður
rekstrar- og fjármálaráðgjöf
Bæjarhrauni 12
220 Hafnarfjörður
Endurskoðun hf. veitir almenna þjónustu á sviði endurskoðunar, reikningsskila, bókhalds og skattamála.
Sinna hf. fæst við rekstrar- og fjármálaráðgjöf og veitir aðstoð í tölvumálum.
GÓLFEFNAKYNNING
■
p Hartek lioganas
í tilefni af því að TeppabúðinJ
1 £} / « • 1 .. 1 M
hefur nú fensið e
l: * j* ^ C h ^
gólf— og vej
PartekHö
20-80 % afslátt af
^gjandi lager.
áið hágæðaflísar á
TEPPABUDIN
GÓLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26- S - 91 681950