Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDASOGUR SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) W*
Þú getur lent í deilum fyrri hluta
dagsins. Þú hefur góða dóm-
greind núna og færð mikla upp-
örvun í frístundastarfi þínu. Láttu
ferðalög og rómantík ganga fyrir
öðru.
Naut
(20. apríl — 20. maí)
Þó áð fjármálaútlitið sé gott frá
þínum bæjardyrum séð geturðu
ient í karpi út af peningum. Gerðu
innkaup og bjóddu til þín gestum
í kvöld.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 4»
Fóik er fúst að mæta þér á miðri
leið, svo að það er engin ástæða
til að æðrast. Rómantískar til-
finningar eru endurgoldnar og
hjón njóta þess að taka ákvarðan-
ir í sameiningu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) Hg
Dagurinn byijar ekki sem allra
best, en áður en hann er allur
verður þú himinlifandi yfír því
hversu vel þér hefur miðað áfram.
Þér opnast ný leið til tekjuöflun-
ar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu uppstökkan vin ekki koma
þér úr jafnvægi í dag. Það eru
horfur á að rómantík og gleði
setji svip sinn á líf þitt núna,
þökk sé hugðarefnum þínum.
Góða skemmtun.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Ýttu ekki um of á eftir hiutunum
í dag. Þú ert á heimavelli þar sem
fjölskyldan og heimilið eru annars
vegar. Kvöldið verður notalegt.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Það er ráðlegast fyrir þig að
treysta á eigin dómgreind núna.
Kunningi þinn sem þykist allt
vita gerist einum of aðsópsmikill
í lífi þínu. Þú ferð út á meðal
fólks í kvöld.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þér líkar illa að vera ýtt til hliðar
núna. Dagurinn verður engu að
síður indæll og þér gengur vel í
vinnunni. Fjármálavit þitt er
traust um þessar mundir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Þú hressir upp á heilsuna og útlit-
ið á næstu vikum. I dag gengur
allt eftir þínum kokkabókum. Þú
átt auðvelt með að tjá skoðanir
þínar og hefur ánægju af ferð
sem þú tekur þátt í.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
í dag áttu auðvelt með að ráða
fram úr vandamálum og ná ár-
angri á andlega sviðinu. Þú getur
lent í minni háttar karpi fyrri
hluta dagsins, en kvöldið verður
ein samfelld uppskeruhátíð hjá
þér.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Það er ekki ástæða til að deila
um smávægilegustu ákvarðanir.
í heildina tekið verður dagurínn
líflegur og þú hittir margt fólk.
Taktu þátt í hópstarfí. I kvöld
skaltu leggja áherslu á samveru.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) 'S*
Það verður einhver hvellur hjá
fjölskyldunni fyrri hluta dagsins.
Þú veist upp á hár hvert þú stefnir
í næstu framtíð og gerir áætlanir
í samræmi við það.
AFMÆLISBARNIÐ er gætt inn-
sæis- og stjórnunarhæfileikum.
Það sækist eftir að taka þátt í
opinberu lífi og getur náð langt
! stjómmálum, lögfræði, kennslu
og trúmálum. Það vinnur best
þegar það er innblásið og gæti
látið að sér kveða í listum. Það
metur fjárhagslegt öryggi mikils,
en ætti að forðast að hneigjast
um of til efnishyggju.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
‘visindálegra staðreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
LJOSKA
SMAFOLK
Það ér orðið langt síðan ég hef séð ekla sokkahúfu
mhhhmbmmmhbmhrphi
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Skynjunin er vanaföst. Við
lærum að sjá hlutina á ákveðinn
hátt og höldum okkur fast við
þá túlkun. En þessi formfesta
skynjunarinnar byrgir okkur að
vissu leyti sýn. Við sjáum ekki
hið augíjósa þótt það blasi við.
í skák heitir það skákblinda, í
brids bridsblinda, nema hvað!
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ 107
VÁ
♦ Á8743
♦ Á9853
Austur
... * 63
V875432
♦ G1062
♦ D
Suður
♦ ÁKDG98
VKD
♦ K
♦ G764
Vestur Norður Austur Suður
— — • ' — 1 spaði
Pass 2 tíglar Pass 3 spaðar
Pass 4 lauf Pass 4 spaðar
Pass Pass 6 spaðar Pass Pass
Útspil: Hjartagosi.
Setjum okkur í spor suðurs.
Á hvað horfir hann fyrst og
fremst? Lauflitinn, er það ekki?
Hvernig eigi að vinna úr honum
án þess að gefa nema einn slag?
En lesandinn hugsar kannski
dýpra. Hvað með að fríspila
tígulinn?
Til þess verður hann að liggja
4-3, svo mikið er víst, en er
samgangurinn nægur? Hér gætu
menn blindast og haldið að eina
innkomu vanti. Tígli er spilað
ákóng, spaða á tíu, tígulás tek-
inn og tígull trompaður. Ef
hjartakóngurinn heima væri
bara óbreyttur hundur myndi
blasa við að trompa hjarta (sem
þarf hvort eð er að gera) og
nota innkomuna til að fría 5.
tígulinn. Laufásinn er þá enn í
borðinu. En af því að kóngurinn
er nú einu sinni kóngur í ríki
sínu þegar ásinn er farinn, þá
er erfítt að hugsa sér að trompa
hann. Við erum ekki vön því og
þess vegna gæti okkur yfirsést
möguleikinn. Að lesandanum
undanskildum, að sjálfsögðu.
SKÁK
Vestur
♦ 542
¥ G1096
♦ D95
♦ K102
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu Skákmóti í Badenweiler
í Þýskalandi um síðustu mánaða-
mót kom þessi staða upp í viður-
eign sovézka stórmeistarans Vikt-
ors Kupreitsjíks (2.440), sem
hafði hvítt og átti leik, og enska
alþjóðameistarans Jonathans
Levitts (2.455). Svartur lék síðast
21. — Db5-d7??, en sá afleikur
kostar hann drottninguna.
22. Hxh6! og svartur gafst upp,
því hann bjargar ekki bæði mátinu
og drottningunni. Jafnit-Qg efstir
á mótinu urðu sovézku stórmeist-
ararnir Kupreitsjík og Zaitsjík,
Þjóðveijinn Muse og tékkneski
stórmeistarinn Jansa með 7 'A v.
af 9 mögulegum. 7 v. hlutu Lev-
itt, Þjóðveijarnir Tischbierek og
Knaak, Porper, ísrael og Efimov,
Sovétríkjunum.