Morgunblaðið - 18.11.1990, Page 41
.MOKGUNMAÐID, SUNfjUPAGUR-.l^NÓjVEMBER litjW
Ljóðabók
eftir Krist-
ján Amason
ÚT ER komin hjá Máli og menn-
ingu ljóðabókin Einn dag enn
eftir Kristján Árnason.
Þetta er önnur ljóðabók Kristjáns
og í henni eru 72 ljóð. Hún
skiptist í þijá hluta, I. Undir óson-
lagi, II. Þrettán þankabrot um lífið,
en sá hluti er allur undir sonnettu-
hætti, og loks eru þýðingar í III.
hlutanum. Þýðingarnar spanna
næstum 2.700 ár bókmenntasög-
unnar, og meðál tuttugu og fjög-
urra höfunda sem Kristján glímir
við eru Saffó, Goethe, Heine, Rilke
og Auden.
Kristján Árnason er fæddur
1934. Hann stundaði nám í Þýska-
landi og Sviss og hefur kennt bók-
menntir við Menntaskólann á Laug-
arvatni og Háskóla Islands. Kristján
hefur skrifað greinar um bókmennt-
Kristján Árnason
ir og heimspeki og þýtt fjölda bók-
menntaverka.
Bókin er 97 bls., prentuð í Prent-
smiðjunni Odda. Ingibjörg Eyþórs-
dóttir hannaði kápu. Bókin er gefin
út bæði innbundin og í kilju.
Reykhólasveit:
Sundhöll byggð í Djúpadal
Reykhólasveit.
DJUPIDALUR er þekkt stórbýli
frá fornu fari og þaðan er Björn
Jónsson ritstjóri faðir Sveins
Björnssonar fyrsta forseta ís-
lands.
*
IDjúpadal búa hjónin Jenný Leifs-
dóttir og Samúel Sakaríasson
frá Eskifirði ásamt börnum sínum.
Þau.eru: Brynja sem er lærður
matsveinn, Sigurdís sem er í bú-
fræðinámi á Hólum með fiskirækt
sem sérgrein. í Djúpadal er mjög
góð aðstaða til fiskiræktar. Leifur
sem vinnur við 'búið. Helga er við
nám í grunnskólanum á Reykhólum
og yngsta barn þeirra hjóna, Þóra,
sem er þriggja ára.
Samúel er ekki með mjög stórt
bú en hann býr með sauðfé og eru
ærnar 298 en ærnar eru afurðasam-
ar. Beit er góð en tún kalsöm og
verður hann oft að sækja slægjur
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Kvenfélagskonur af formannafundi SSK fyrir framan Sjúkrahús Suðurlands.
Sunnlenskar kvenfélagskonur:
Sundhöllin í Djúpadal.
í aðrar sveitir. Samúel er búinn að
byggja upp flest eða öll hús í
Djúpadal og er nú að gera upp
gamla íbúðarhúsið sem hann ætlar
að nota fyrir ferðaþjónustu.
Fyrir fáum árum lét Samúel bora
fyrir heitu vatni og fékk um 20
1/sek. af um 70 gráðu heitu vatni.
Hann var búinn að leggja hitaveitu
í íbúðarhúsið og nú er loftið í súg-
þurrkunarkerfinu hitað svo að nú
þornar heyið miklu hraðar.
Fyrir tveimur eða þremur árum
fór heilsa Samúels að bila og varð
hann að dvelja langtímum saman á
INNLENT
Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson
sjúkrahúsum og heilsuhælum og
allt útlit fyrir að hann yrði bundinn
við hjólastól þar sem eftir væri.
Með fádæma dugnaði er hann laus
við hjólastólinn og fer ótrúlega mik-
ið um með hjálp hækja. Heit böð
eiga vel við Samúel og sjúkdóm
hans og Samúel hefur sjaldan dáið
ráðalaus og lagði hann í það stór-
virki að byggja sér „sundhöll“.
Sundhöllin er 15 metrar að lengd .
en laugin sjálf er 1Ö metrar að lengd ■
og breiddin er 4 metrar en breidd
hússins er 5,80 m. Við sundlaugina
eru baðklefar og í miðju er snyrti-
klefi. Húsið yfir lauginni er járn-
klætt timburhús, vel einangrað og
klætt með hvítu plasti að innan.
Eini styrkurinn sem Samúel hef-
ui' fengið er frá starfsmönnum
Landhelgisgæslunnar en þeir eiga
sumarbústaði þarna í grennd og
lögðu þeir fram 300 þúsund krónur
og hafa hjálpað til með vinnufram-
lög. Þeir fá svo aðgang að sundhöll-
inni í staðinn.
- Sveinn
Tækjakaup til sjúkrahússins
fjármögnuð með jólakortasölu
Selfossi.
SUNNLENSKAR kvenfélags-
konur afhentu afhentu Sjúkra-
húsi Suðurlands nýlega sírita —
monitor sem notaður er til athug-
ana á þunguðum konum og mæl-
ir meðal annars hjartslátt fóst-
ursins.
Aársfundi Sambands sunn-
lenskra kvenna fyrr á þessu
ári var ákveðið að gefa Sjúkrahús-
inu tækið. Það var keypt fyrir ijár-
framlög frá kvenfélögunum og
síðan að meginhluta til fyrir fé úr
jólakortasjóði sambandsins og kost-
aði 1,3 milljónir króna. Á formanna-
fundi fyrir skömmu sem haldinn var
á Selfossi var tækifærið notað til
þess að afhenda tækið formlega.
Jólakortasala Sambands sunn-
lenskra kvenna er að hefjast um
þessar mundir en allar tekjur af
þeirri sölu renna til tækjakaupa
fyrir Sjúkrahús Suðurlands.
- Sig. Jóns.
Gísli Ingólfsson
■ / BYRJUN nóvember opnaði
ný verslun með köfunarbúnað í
Skeifunni 19, 3. hæð. Eigandi er
Gísli Ingólfsson kafari og veitir
hann alla nauðsynlega ráðgjöf við
val á búnaði. Þá býðst viðgerðar-
þjónusta fyrir allan seldan búnað.
Um er að ræða búnað fyrir áhuga-
og atvinnumenn frá Scubapro,
Oceanic, Apeks, DSI, Gates og
Oban. Opnunartími er frá kl. 9.00-
12.00 og 13.00-17.00.
Ritgerðir um
hagfræði og
efnahagsmál
HIÐ íslenska bókmenntafélag
hefur gefið út bókina Almanna;
hag eftir Þorvald Gylfason. í
bókinni eru endurprentaðar 75
ritgerðir um hagfræði og efna-
hagsmál, sem hafa áður birst í
Morgunblaðinu, Vísbendingu og
Fjármálatíðindum.
Bókin skiptist í 10 meginkafla, sem
heita: Hagfræði stjórnmál og
vísindi, Verðbólga, verðbólga,
Gengi krónunnar, Fjármál ríkisins,
Bankar peningar og vextir, Vinnu-
markaður, Atvinnuvegir, Erlend
viðskipti, Frá útlöndum og Lands-
hagir og lífskjör. Bókin er 458
blaðsíður.
Á bókarkápu segir m.a.:„ Höfuð-
tilgangur útgáfunnar er að bregða
birtu á þrálátan efnahagsvanda
íslensku þjóðarinnar og vekja les-
endur til umhugsunar um það, með
hvaða ráðum sé hægt að vinna bug
á vandaum til frambúðar. Hér er
hugað að undirrót verðbólguvan-
dans, sem er alvarleg meinsemd í
þjóðlífinu enn sem fyrr, og þráfelld-
um rekstrarerfiðleikum atvinnuveg-
anna og meðfylgjandi afkomuvanda
Þorvaldur Gylfason
almennings. Sérstök áhersla er lögð
á að athuga ýmsa bresti í innviðum
efnahagslífsins í landinu og
árekstra ólíkrá hagsmuna, sem
standa í vegi fyrir hyggilegri hag-
stjórn. Bókinni er þannig öðrum
þræði ætlað að hjálpa lesendanum
að skyggnast undir yfirborð hinnar
endalausu efnahagsumræðu, sem
gnæfir yfir önnur mál á Islandi um
þessar mundir. Efni bókarinnar er
þó ekki allt bundið við vandamál
líðandi stundar, heldur er einnig að
finna í henni fræðilegar ritgerðir
um ýmis önnur efni tengd efna-
hagsmálum og hagstjórn".
Myndin er tekin af fundi Tæknifélags mjólkuriðnaðarins á íslandi.
Tæknifélag mjólkuriðnaðarins:
Umhverfisvernd rædd á
haustfundi í Stykkishólmi
HAUSTFUNDUR Tæknifélags
mjólkuriðnaðarins á íslandi var
haldinn í Stykkishólmi dagana
9.-11. nóv. sl. Voru þar mættir
félagsmerin af öllu landinu.
Þetta er í annað sinn sem fund-
urinn er haldinn hér.
Afundinum var aðallega rætt
um breytingar sem fyrirhug
aðar eru á reglugerð um mjólk og
mjólkurvörur frá 1986. Felast þær
aðallega í breytingum á hugtökum
á mjólkurafurðum og strangari
regjum um flokkun mjólkur.
Á föstudag kynntu tveir erind-
rekar fyrirtækisins Elopak í Nor-
egi, þaðan sem mörg samlög liafa
fengið sínar mjólkurumbúðir, hug-
myndir sínar til umhverfismála og
verndunar en félagið er alltaf að
þróa í þessum efnum umbúðir og
annað sem gæti valdið sem bestri
umhverfisvernd. Kom m.a. fram
að Elopak ræktar víða skóga og
í ýmsum löndum til framleiðslu
sinnar og rækta meira heldur en
það eyðii' til umbúða. Er lagt á
það mikil áhersla að uppgræðsla
skóga verði mun meiri en eyðing
þeirra.
Laugardagurinn fór að mestu
leyti í að ræða þetta aðalefni fund-
arins og tóku margir til máls og
létu sín viðhorf í ljósi.
Engar ályktanir voru gerðar en
stjórninni falið að huga nánar að
þessu máli og kynna sínar niður-
stöður hið fyrsta.