Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 43
MoiiGUNBLADií) FOLK I FRETTUM 'SUNNUDAGOR 18. NÓVEMBER 199Ó 43 F.v. Sigurveig Jónsdóttir aðstoðarfréttasljóri Stöðvar 2, Hailgrímur Jónsson sparisjóðsstjóri í Sparisjóði vélstjóra, eiginkona hans Þórunn Rafnar og Edda Hermannsdóttir skrifstofustjóri í Heilbrigðisráðu- neytinu. TONnS IBM-tónleikar Sinfóníunnar Sinfóníuhljómsveit íslands hélt sérstaka tónleika um síðustu helgi í tengslum við sýninguna „Undraheimur IBM“, en IBM er styrktar- aðili Sinfóníunnar á yfirstandandi starfsári. Tónleikarnir voru íyrir sér- staka boðsgesti IBM. „IBM er fyrsta einkafyrirtækið til að axla þá menningarlegu ábyrgð að styrkja fjárhagslega starfsemi Sinfóníunnar. Hann er umtalsverður og hljómsveitinni mikil hvatning og kærkomin viðurkenning á gildi hennar í menningarlífi þjóðarinnar," segja IBM-menn. Meðal verka á tónleikunum má nefna Níundu sinfóníu Dvoraks, aríu Greifafrúarinnar úr Brúðkaupi Fígarós og Adagio frá 1965 fyrir flautu, hörpu og strengi eftir Jón Nordal. F.v. Aldís Benediktsdóttir bankamaður og eiginmaður hennar Sigurð- ur E. Guðmundsson forstjóri Húsnæðisstofnunar rikisins, Ævar Kjarlansson útvarpsmaður og eiginkona hans Guðrún Kristjánsdótt- ir myndlistarkona. F.v. Margrét Þorvaldsdóttir neytendablaðamaður og eiginkona Há- skólarektors, Valgerður Valsdóttir og Guðrún Sigurjónsdóttir eigin- kona Vals Valssonar bankastjóra Islandsbanka sem er lengst til hægri, en á milli hjónanna grillir í Sigmund Guðbjarnason Háskóla- rektor. NÝR OG STÆRRI SUZUKISWIFT Sighvatur Blöndahl í fjallagal- lanum. MANNRAUNIR Tjaldið sprakk í tætlur yfir höfðum okkar SUZUKISWIFT SEDAN er sérlega glæsi- legur og rúmgóður fjölskyldubíll, þar sem vel fer um farþegana og nægt rými er fyrir farangur. SUZUKI SWIFT SEDAN býðst með afl- miklum 1,3 I og 1,6 I vélum, 5 gíra handskiptingu eða sjálfskiptingu. Einn- ig er hann fáanlegur með sítengdu aldrifi. • Til afgreiðslu strax. • Komið og reynsiuakið. Verð frá kr. 814.000 stgr. Opið mánud. - föstud. kl. 9-18. Laugard. kl.13-16. $ SUZUKI --***----------- SUZUKIBÍLAR HF. SKEIFUNNI 17 ■ SiMI 685100 lega sprakk í tætlur yfir höfðum okkur og rauk í mörgum slitrum út í veður og vind, en við sátum eftir í stórhríðinni í svefnpokunum! Af öðrum þáttum bókarinnar má nefna björgunarleiðangur inn á Eiríksjökul er flugvél með tveimur breskum flug- mönnum hrapaði þar og reynslusögu úr Suðurlandsslysinu 1986,“ sagði Sighvatur. Þess má geta, að bókin er skreytt 40 ljósmyndum sem allar eru af vett- vangi mannraunanna sem um ræðir. Einn hinna nýju höfunda í jóla- bókaflóðinu sem er óðum að bresta á er Sighvatur Blöndahl, fjöl- miðlamaður sem lengst af á ferli sínum hefur verið við Morgunblaðið og síðar Stöð 2. Bók hans heitir „Mannraunir" og kemur út á vegum Fróða í vikunni sem nú er að hefj- ast. Nafn bókarinnar ber með sér efni hennar, en Sighvatur segir nán- ar frá: „Þetta er bók sem ég er búinn að ganga með i maganum í mörg ár. Bókin skiptist í níu mannraunaþætti og hef ég sjálfur komið við sögu í nokkrum þeirra, en í öðrum hef ég skráð frásagnir þeirra sem lentu í raununum. I öllum tilvikum utan einu komust menn lifandi frá reynslunni. Ég hef verið í fjallamennsku í 21 ár og því upplifað margt og það er svo skrýtið að þó maður lendi í vitlausu veðri og bráðri lífshæýtu, er maður varla búinn að fara í heitt bað við heimkomuna að skipulagning næstu ferðar er hafín. Nema hvað, ég ímynda mér að einhverjir geti haft gaman af að lesa svona sögur. Ekki svo að skilja að ég viti ekki að þús- undir annarra sagna hljóta að vera merkilegri og meiri. Samt, þetta hef ég upplifað og þetta er nú komið á prent,“ segir Sighvatur. „Sem dæmi um mannraunir sem sagt er frá í bókinni og ég hef sjálf- ur upplifað get ég nefnt frásögn af ferð minni ásamt fleirum á Eig- ertind. Við vorum varla sestir á topp- inn, eftir erfitt klifur í vondu veðri, en þvílík óveðursský hrönnuðust upp að það var þreifandi bylur og kuldi næsta einn og hálfa sólarhringinn. Vegna snjóflóðahættu gátum við ekki flúið niður sömu leið og við komum upp, heldur urðum við að þreifa okkur aðra leið. Sem dæmi um hvers lags hjakk það var, þá vorum við 18 klukkustundir að þreifa okkur eftir hamri sem að öllu jöfnu tekur tvo klukkutíma að afgreiða! Öðru sinni vorum við þrír saman á Kili og lentum í bijáluðu veðri. Það vildi svo einkennilega til, að eitt það* síðasta sem ég gerði áður en lagt var í hann, var að lesa mér til um hver viðbrögð ættu að vera ef tjaldið fyki ofan af mönnum við slíkar kring- umstæður. Er veðurhamurinn æstist hafði ég á orði við félaga mína að ég hefði verið að lesa mikla speki og við skyldum búa okkur samkvæmt henni. Drógum á okkur jöklagallana og skriðum ofan í svefnpokana. í sömu mund reif vindurinn sér leið inn í tjaldið og svipti því í loft upp. Skipti engum togum, að tjaldið hrein- REIÐUR PABBI ÚTI í BÆ EEinhvers staðar úti í bæ er maður sem hugsar mér þegjandi þörfina. Ég veit ekki hvað hann heitir og myndi ör- ugglega ekki þekkja hann i isjón, enda hef ég bara hitt hann einu>: sinni. En þá varð ég þess valdandi að hann lenti í dá- litlum vanda sem hann mun súpa seyðið af fram á næsta vor. Atvikið átti sér stað í september í skóla- stofu vestur í bæ. Kringum- stæður gætu ekki hafa verið sakleysislegri. Foreldrafundur í 4.-A. Möminur og pabbar sátu á litlum stólum við lítil borð og hlustuðu á kennarann segja frá fyrirhuguðu námsefni vetr- arins. Reyndar voru mömm- urnar í yfirgnæfandi meiri- hluta. Einungis tveir pabbar höfðu getað fengið frí úr vinn- unni þennan dag, því þeirra störf eru svo miklu merkilegri en það sem mömmur dunda sér við á daginn. Það var líka greinilegt að öðrum pabbanum á þessum foreldrafundi fannst hann vera að hlaupa í skarðið fyrir eiginkonuna. Við áttum öll að skrifa nafnið okkar á blað og stilla þvi upp á borðinu fyrir framan okkur, en þessi maður skrifaði riafn konu* sinnar stórum stöfum. Ekki sitt eigið nafn! Hann leit aug- ljóslega ekki á sig sem föður skólabarnsins heldur sem eig- inmann móðurinnar — og þetta var hennar deild. Þarna sátum við sem sagt og komið var að því að velja fulltrúa í foreldraráð fyrir nýbyrjað skólaár. Mamma, sem setið hafði i ráðinu í þrjú ár, baðst undan endurkjöri og það fannst öllum viðstöddum sjálf- sagt mál. Hins vegar bauðst enginn til að taka við af kon- unni, þrátt fyrir itrekaðar óskir kennarans um sjálfboðaliða. Það var því ekki um annað að ræða en að draga um þetta.- Kennarinn útbjó þess vegna litla miða, gerði kross á einn þeirra, braut þá saman og setti í krukku. Sá, sem fengi kross- inn, færi í foreldraráðið. Þegar ljóst var að hveiju stefndi stóð allt í einu gusan út úr pöbbun- um tveimur. Þeir kepptust við að lýsa því hvað þeir væru hræðilega uppteknir frá morgni til kvölds, jafnt um helgar sem hvunndags. Þeim nægði barasta ekki sólarhring- urinn til að sinna öllum brýnu verkefnunum sem þeir hefðu á sinni könnu og það væri tómt mál að tala um að þeir yrðu með í svona lottói. Á meðan sátu mömmurnar þegjandi. Stilltar og prúðar byrjuðu þær síðan að draga miða úr kruk- kunni, án þess að að mögla, þótt ljóst væri að karlarnir æt- luðu ekki að taka þátt í þessu með þeim. Meira að segja mam- man, sem setið hafði i foreldr- aráðinu í þrjú ár, dró miða og einnig kona sem verið hafði formaður Jafnréttisráðs. Það var þá sem ég klúðraði öllu fyr- ir karlinum. Ég neitaði að draga miða nema karlarnir gerðu það líka. Sagði að við mömmurnar hefðum örugglega ekkert minna að gera en pab- barnir og krafðist jafnréttis kynjanna. Að endingu neydd- ust karjarnir til að láta undan og taka miða úr krukkunni. Þið hefðuð átt að sjá svipinn á öðrum þeirra, þegar hann slétti úr miðanum og við blasti stór kross! eftir Jónínu Leósdóttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.