Morgunblaðið - 18.11.1990, Page 48

Morgunblaðið - 18.11.1990, Page 48
Bögglapóstur um ollt lond PÓSTUR OG SÍMl MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJA VÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Fyrrum foringi í sovésku leyniþjónustunni í samtali við Morgunblaðið: KGB í nánu sambandi við stjórnmálamemi á Islandi Núverandi foringi leyniþjónustu hersins skráður sem konsúll í sendiráðinu ÁRIÐ 1981 hafði útsenduruni sovésku leyniþjónustunnar, KGB, á Islandi tekist að koma á leynilegu trúnaðarsambandi við þrjá íslenska stjórnmálamenn úr Sjálfstæðisflokknum, Alþýðu- bandalaginu og Framsóknarflokknum, að mati Olegs Gordíevskíjs, fyrrum foringja í sovésku leyniþjón- ustunni, sem Morgunblaðið átti samtal við í gær. Hann tók fram að ekki hefði verið um njósnara að ræða heldur hefðu þessir menn verið í trúnaðarsam- bandi við fulltrúa sovésku leyniþjónustunnar. Oleg ^-5^_Gordíjevskíj var einn helsti sérfræðingur KGB í málefnuin Norðurlanda og hafði verið útnefndur yfir- maður KGB í Lundúnum er hann flúði vestur yfir oieg Gordíevskíj Járntjaldið árið 1985. Hærra settur KGB-foringi hef- ur aldrei áður flúið til Vesturlanda. I samtalinu kom fram að ólíkt því sem gerist annars staðar eru umsvif leyniþjónustu Rauða liers- ins (GRU) meiri hér á landi en umsvif KGB. Yfirmaður GRU á ís- landi segir Gordíevskíj að sé Vladímír K. Mínkevítsj, sem skráður er sem konsúll á lista þeim sem utanríkisráðuneytið gefur út með nöfnum erlendra sendimanna á Islandi. Nýverið kom út á Bretlandi bók eftir Gordíevskíj og breska ^aagnfræðinginn Christopher Ándrew um sögu KGB og hefur hún vakið heimsathygli. Morgun- blaðið sneri sér til Gordíevskíjs og spurði um samband KGB og ís- lands þar sem hann sinnti málefn- um Norðurlanda sérstaklega á löngum starfsferli sínum. Gordíevskíj kvaðst hafa þessar upplýsingar frá fyrrum yfirmanni KGB á íslandi, Gergel að nafni, en þeir tveir deildu herbergi um skeið í höfuðstöðvum KGB í Moskvu. „Það var talað um að KGB hefði tekist að koma á leynilegu trúnað- arsambandi við fjóra menn á ís- landi. Ég man að einn þeirra var . í Alþýðubandalaginu og annar í stærsta stjórnmálaflokki landsins og ég man einnig greinilega að Framsóknarflokkurinn var nefnd- ur. Að auki hafði tekist að koma slíku sambandi á við einn þeirra sem stóð framarlega í íslensku frið- arhreyfingunni,“ sagði Oleg Bjartsýnir þjófar í Kópavogi: Gripnir af "•lögreglu í sama húsi LÖGREGLAN í Kópavogi stóð tvo menn að innbroti í bæjarfó- getaskrifstofurnar þar á sjötta tímanum í gærmorgun. Þjófarnir þóttu bjartsýnir með afbrigðum, því skrifstofurnar eru í sama húsi og lögreglustöðin. Gengið er inn í lögreglustöðina norðanmegin í húsinu, en þjóf arnir brutust inn á aðra hæð húss- ins og fóru inn sunnan megin á húsinu. Þeir höfðu lítinn óskunda gert þegar lögreglan kom af neðri hæðinni og handtók þá. Rannsóknarlögreglan hefur mál- ið á sinni könnu. Þar fengust þær upplýsingar í gærmorgun að yfir- “P^.eyrslur biðu þess að mesta ölvíman rynni af mönnunum. Gordíevskíj og bætti við að um starfandi stjórnmálamenn hefði verið að ræða. Hann vildi ekki full- yrða neitt um samband KGB og Alþýðufiokksins. Hann tók fram að hér væri ekki um eiginlega A Arni sagði að til þess að ná fyrir- sjáanlegum hallarekstri niður benti allt til þess að um helmings njósnara að ræða. Vegna smæðar íslands hefði útsendurum KGB ver- ið bannað að ráða íslenska upp- ljóstrara. Þess í stað hefði verið ákveðið að reyna að koma á leyni- legu trúnaðarsambandi (á ensku Confidential Contacts, innskot Morgunblaðið). Þetta fólk hefði ekki verið á mála hjá KGB en þeg- ið gjafir við ýms tækifæri og ferð- ir til Sovétríkjanna. Ólíkt því sem tíðkaðist annars staðar hefðu fund- ir þessa fólks og KGB-mannanna ekki farið fram á veitingastöðum heldur á heimilum útséndara sov- ésku leyniþjónustunnar í Reykjavík. Hann gat þess að al- menna reglan væri sú að KGB- mönnum væri bannað að hafa sam- skipti við fulltrúa kommúnista- flokka í erlendum ríkjum en gerð hefði verið undantekning .hvað Al- þýðubandalagið varðaði þar sem mat manna í höfuðstöðvunum hefði verið það að þar væri ekki um hreinræktaðan kommúnistaflokk samdráttur yrði að verða á starf- semi á handlækninga- og Iyflækn- ingadeildum spítalans, og einnig að ræða. Gordíevskíj sagði að sérstakar reglur giltu um starfsemi KGB á íslandi sem mótaðar hefðu verið annars vegar með tilliti til smæðar landsins og þá sérstaklega Reykjavíkur og þeirrar staðreyndar að Islendingar hefðu ávallt rekið fremUr vinsamlega utanríkisstefnu í garð Sovétríkjanna. í sovéska sendiráðinu í Reykjavík störfuðu þrír, hugsanlega fjórir, KGB-for- ingjar. Útsendarar leyniþjónustu hersins, GRU, væru hins vegar fleiri, sennilega sjö en hugsanlega allt að 11. Þar af væru þrír þeirra skráðir sem sovéskir stjórnarerind- rekar. „Vladímír Mínkevítsj stjórn- ar aðgerðum GRU á íslandi. Hann er reyndur, þekktur og duglegur' leyniþjónustumaður. Ég veit að hann hugðist flytja sig til Dan- merkur en dönsk yfirvöld neituðu honum um landvistarleyfi og þá kom hann til íslands," sagði Gordíevskíj. yrði að draga verulega úr starfsemi á endurhæfingar- og taugadeild og qldrunardeildum. „Mér sýnist á þessari stundu að yfir áramótin þurfi að loka 135 rúmum af 493, eða um 30%, en það gæti þó orðið allt að 50% samdrátt- ur. Þetta hefur verið kallað yfir okkur, en við vonumst til að þetta sé ekki varanlegt ástand. Það fer þó að verða svo ef við erum stöð- ugt hýrudregin, og þá þýðir ekki Vinnustöðvun í Straumsvík: Deilt um baðvatn STARFSMENN í kerskálum ál- versins í Straumsvík lögðu niður vinnu í gærmorgun til að mót- mæla því, að fjórir starfsmenn hafa verið áminntir fyrir að fara í bað nokkru fyrr en gert er ráð fyrir í reglum fyrirtækisins. Jafnframt telja starfsmennirnir að baðvatnið sé of kalt. Að sögn Jakobs Möller, starfs- mannastjóra ÍSAL, gera reglur fyr- irtækisins ráð fyrir að starfsmenn í kerskálum fái að fara í bað 12 mínútum fyrir lok vaktar en um- ræddir starfsmenn hafi verið búnir að baða sig og þurrka 15 mínútum fyrir vaktarlok. Jakob segist ekki hafa heyrt áður kvartað yfir því að sturturnar væru kaldar. Gert var ráð fyrir að fram- kvæmdastjórn ÍSAL hittist síðdegis í gær vegna þessa máls. annað en að viðurkenna að ekki er hægt að reka þetta sjúkrahús á þeim afköstum sem við höfum gert. Ef ríkið þvingar okkur til að loka, þá þýðir það væntanlega að sjúkl- ingar þurfa að fara heim, en það er ljóst að heimahjúkrun, sem kost- uð er af ríkinu, er á engan hátt tilbúin til að axla þau verkefni. Það er því enginn vandi leystur með því að loka þessum rúmurn," sagði Árni. Morgunblaðið/Rúnar Þór Skotveiðimenn frá Akureyri halda til veiða á Öxnadalsheiði í gærmorgun. Þeir mega búast við kæru frá Skotveiðifélagi Akrahrepps. Félagar í Skotveiðifélagi Eyjafjarðar, SKOTEY, héldu til rjúpnaveiða á Öxnadalsheiði í gærmorgun. Deilur hafa staðið um heimild inanna til rjúpna- veiða þar, eftir að Skotveiðifé- lag Akrahrepps leigði fugla- veiðiréttinn af sveitarstjórn Akrahrepps. SKOTEY telur félaga sína vera í fullum rétti við ijúpnaveiðar á heiðinni án þess að greiða fyrir veiðileyfi en því mótmæla for- svarsmenn Skotveiðifélags Akra- hrepps. Um tugur manna úr Eyja- firði fór til ijúpna í gær og voru nöfn tveggja veiðimanna skrifuð niður og hyggst Skotveiðifélag Akrahrepps kæra þá til lögreglu fyrir ólöglegar ijúpnaveiðar. Allt að helmings samdráttur um áramót í rekstri Borgarspítala HORFUR eru á að dregið verði allt að 50% úr starf- semi á flestum deildum Borgarspítalans um næstu áramót vegna fyrirsjáanlegs 47 niilljóna króna rekstrarhalla spítalans á þessu ári. Heilbrigðisráð- herra hefur synjað ósk spítalans um aukafjárveit- ingu til rekstrarins, og að sögn Árna Sigfússonar, formanns stjórnar Borgarspítalans, mun því óhjákvæmilegt annað en að draga verulega úr starfseminni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.