Morgunblaðið - 14.12.1990, Blaðsíða 53
53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990
Papar: Tröllaukin tákn
Undir írskum
áhrifum
Hljómplötur
Sveinn Guðjónsson
Þegar norrænir víkingar námu
land á íslandi voru þar fyrir
írskir munkar, sem landnáms-
menn kölluðu papa. Það fer því
vel á að hljómsveit með þessu
nafni flytji tónlist undir írskum
áhrifum, sem heyra má á nýrri
hljómplötu „Tröllaukin tákn“.
Hljómsveitin Papar rekur upp-
runa sinn til Vestmannaeyja og
þeir sem muna eftir hljómsveit-
inni Logum finna áreiðanlega
samhljóm í tónlist Papanna.
Liðsmenn sveitarinnar eru Her-
mann Ingi Hermannsson, Vignir
Ólafsson, Georg Óskar Ólafsson
og Páll Eyjólfsson og auk þeirra
koma við sögu á plötunni Helgi
Hermannsson, Birkir Huginsson
og Ósvaldur Freyr Guðjónsson.
Allir skila þeir góðu verki í hljóð-
færaleik og söng og í heild er
tónlistin á plötunni ágætlega
heppnuð afþreyingartónlist.
Irsk tónlist hefur sterk sér-
kenni og sjarma, sem Pöpum
tekst ágætlega að koma til skila.
Auk írsku þjóðlaganna á þessari
plötu eru þar líka frumsamin lög
eftir Papa sjálfa og í sumum
þeirra má einnig finna írsk áhrif
svo sem í laginu „Rauða ljónið".
í öðrum má finna greinileg áhrif
frá 7. áratugnum, svo sem í
„Ballöðunni um Óskar vitavörð".
Slík tónlist kann að virka gamal-
dags á suma, en fyrir aðra vekur
hún upp ljúfar minningar um
liðna dýrðardaga. Annars ríkir
svo mikið frelsi í tónlistinni á
vorum dögum að menn geta al-
veg eins sótt efnivið sinn aftur
til bítlatímans eins og hvert ann-
að.
Textarnir eru margir ágætir
og sumir skemmtilega „vina-
lega“ í hinum dæmigerða „Eyj-
astíl“ svo sem vera ber. Eitt
gamalt „Eyjalag" er á þlötunni,
„Elliðaeyjarljóð“, en ég er ekki
alveg sáttur við þessa suður-
amerísku útsetningu á laginu.
Svona lög eru orðin svo rótgróin
að það á ekkert að vera að breyta
þeim og því síður að klæða þau
í suðrænan búning.
Hljómplatan „Tröllaukin
tákn“ fer áreynslulaust í gegnum
hlustir manna og með jákvæðu
hugarfari má hafa af henni tals-
verða ánægju. En auðvitað verð-
ur að segjast eins og er, að á
henni er ekki að finna neinar
opinberanir. Hún markar engin
þáttaskil í dægurtónlistarsög-
unni enda hefur það örugglega
ekki verið ætlun Papa með þess-
ari útgáfu. Hins vegar er hún
eflaust kærkomin þeim sem unna
írskri tónlist, þótt hætta sé á að
hún fari fyrir ofan garð og neðan
hjá öðrum.
Margar gerðir, margir litir.
únuF
Glæsibæ, sími 82922.
’Miðað við verðlistaœrð
ierösamanUurö:Geriö ilerösamdmmrö! öertövero^amurm
'ösamanburd! Geriö verösamanburö! Geriö verösamanbm
> h - ' >' plpl ■ ' 'V