Morgunblaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 2
2
M0RGUNBLAÐIÐÞRIÐJUDAGUR-1&,DESEMHEU 1990
Lágmarksverð á
fiski hækkar sam-
kvæmt þjóðarsátt
Á FUNBI yfirnefndar í gær var ákveðið almennt lágmarksverð á
fiski, sem gildir frá 1. desember síðastliðnum til 15. september næst-
komandi og eru hækkanir á lágmarksverðinu þær sömu og kauphækk-
anir samkvæmt svokölluðum þjóðarsáttarsamningum. Um þessa verð-
ákvörðun varð samkomulag í yfirnefndinni milli fulltrúa fiskkaup-
enda, Árna Benediktssonar og Bjarna Lúðvíkssonar, og fulltrúa útgerð-
armanna, Kristjáns Ragnarssonar, en oddamaður yfirnefndar, Þórður
Friðjónsson, sat hjá við afgreiðslu málsins. Fulltrúar sjómanna tóku
ekki þátt í störfum yfirnefndar.
Á fundi Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins í gærmorgun var ákvörðun
um almennt lágmarksverð á fiski
vísað til yfimefndar ráðsins. Hins
vegar lýstu fulltrúar sjómanna í
yerðlagsráðinu, Helgi Laxdal og
Óskar Vigfússon, því yfir að þeir
myndu ekki taka þátt í störfum yfir-
nefndar, þar sem þeir hefðu einung-
is umboð til að semja um frjálst fisk-
verð, eða verð sem tengt væri verði
á fiskmörkuðunum.
„Sjómenn munu að sjálfsögðu
tengja saman atkvæðagreiðslu um
kjarasamning þeirra, sem fram fer
fýrir áramót, og þessa ákvörðun um
lágmarksverð á físki, hvort sem okk-
ur þykir það betur eða verr,“ sagði
Óskar Vigfússon; formaður Sjó-
mannasambands Islands, í samtali
við Morgunblaðið í gær eftir að lág-
marksverð á fiski hafði verið ákveð-
ið í yfimefnd Verðlagsráðs.
„Hins vegar munum við að sjálf-
sögðu mæla með samþykkt kjara-
samninganna, þar sem við höfum
skrifað upp á það. Við, fulltrúar sjó-
manna í Verðlagsráði, tókum ekki
þátt í störfum yfimefndar ráðsins
af þeirri einföldu ástæðu að við töld-
um að þessi skrípaleikur, sem á sér
stað í Verðlagsráði sjávarútvegsins,
eigi að taka enda, það er að segja
að ráðið ákveði lágmarksverð.
Það er deginum ljósara að mis-
munandi fískverð er í gangi á hinum
ýmsu stöðum á landinu. Við vildum
ABR:
Forval fyrir
flokksbundna
Alþýðubandalagið í Reykjavík
ákvað á félagsfundi í gærkvöldi
að fram fari forval í Reykjavík
19. janúar nk., sem verði opið öll-
um flokksbundnum alþýðubanda-
lagsmönnum í Reykjavík.
Að sögn Sigurbjargar'bísladóttur
formanns ABR verður kosið í 5 efstu
sæti framboðslista. Síðan taki al-
mennur fundur alþýðubandalags-
manna endanlega ákvörðun.
Birting hefur viljað að forvalið
yrði opið öllum stuðningsmönnum
Alþýðubandalagsins. Forsvarsmenn
Birtingar lýstu mikilli óánægju með
þessa niðurstöðu í gærkvöldi.
koma í veg fyrir að það yrði áfram
með þeim hætti og sumir væru að
skírskota til Verðlagsráðsverðs varð-
andi það verð, sem þeir eiga að
greiða,“ sagði Óskar Vigfússon.
Lágmarksverð á fiski hækkar um
2,83% frá 1. desember síðastliðnum
og 2,5% 1. mars 1991. Þá hækkar
verðið um 2% 1. júní 1991 með þeim
fyrirvara að hækki laun almennt um
meira en 2% 1. júní 1991 áskilur
yfirnefndin sér rétt til að endurskoða
fiskverðshækkunina frá sama tíma.
Morgunblaðið/Sigurður Bjömsson
Ólafsfirðingar í gegnum Múlann
Sá áfangi náðist í samgöngu-
málum á sunnudag að göngin
í gegnum Ólafsfjarðarmúla
voru opnuð fyrir umferð sjö
mánuðum á undan áætlun. Mik-
ii umferð var strax í gegnum Sjá ennfremur á blaðsiðu 50:
göngin og þegar mest var náði „Opnun ganganna kærkomin
bílalestin eftir þeim endilöng- nú þegar versti tíminn fer í
um. hönd.“
Aðstöðugjöld og fasteignaskattar:
Raunhækkun 1991 getur
nálgast hálfan milljarð
SVEITARFÉLÖGIN kunna að hækka fasteignaskatta og aðstöðu-
gjöld að raungildi um 460 til 480 milljónir króna á miili áranna
1990 og 1991 að óbreyttu álagningahlutfalli. Þetta jafngildir því að
raunhækkun þessara tekjustofna sveitarfélaganna yrði tæpur millj-
arður króna á tveimur árum. í fréttabréfi VSÍ, Af vettvangi, segir
að umsvif sveitarfélaga á undanförnum áratug hafi aukist um 23%
umfram vöxt landsframleiðslu, eða úr 6,7% af landsframleiðslu í 8,2%.
Yfirfasteignamatsnefnd ákvað
nýverið að fasteignamat húsnæðis
hækki um 12%. Til samanburðar
hækkaði byggingarvísitala um
11,4% frá nóvember 1989 til sama
tíma í ár. í Af vettvangi segir að
miðað við spá Þjóðhagsstofnunar
um 7% verðlagshækkun á milli ár-
anna 1990 og 1991 leiði þessi
hækkun til tæplega 4,7% raun-
hækkunar fasteignaskatta frá fyrra
ári. Þannig yrði raunhækkun fast-
eignaskatta á atvinnulífið um 100
milljónir króna og fasteignagjöld á
íbúðarhúsnæði hækkuðu um 80
milljónir króna að raungildi.
Aðstöðugjöld reiknast af heildar-
veltu fyrirtækja á síðastliðnu ári.
„Miðað við 14% hækkun verðvísi-
tölu landsframleiðslu á milli áranna
1989 og 1990 mun óbreytt álagn-
ingarhlutfall leiða til 6,6% raun-
hækkunar þessa skatts milli ára,“
segir í Af vettvangi. Samtals er
álagning aðstöðugjalda í ár rúmir
4,5 milljarðar króna, þannig að
6,6% raunhækkun þessa skatts
nemur tæpum 300 milljónum króna.
Samtals gætu skattahækkanir á
atvinnulífið því orðið tæpar 400
milljónir króna á næsta ári. f
„Ef sveitarfélögin ætla ekki að
auka hlut sinn á kostnað atvinnu-
lífs og einstaklinga hljóta þau að
endurskoða til lækkunar álagning-
arhlutföll bæði aðstöðugjalds og
fasteignaskatts, því að óbreytt hlut-
föll þýða raunverulega skattahækk-
Gosdrykkjaframleiðsla Sanitas:
Pharmaco inn í
nýtt hlutafélag
Morgunblaðið/ Sverrir.
Hvíta ýsan við hlið annarrar sem er eins og ýsur eru flestar.
Hvít ýsa á boðstólum
STARFSMENN fiskbúðarinnar
Sæbjargar ráku upp stór augu
í gær J>egar þeir sáu óvenjulega
ýsu. Ysa þessi er hvít á lit og
mjög sjaldgæf að sögn fiskifræð-
inga.
Guðmundur J. Óskarsson í Sæ-
björgu sagði að hann vissi ekki til
að hvítingi af ýsuætt hafí komið
hér á land áður. Hann sagðist
a.m.k. ekki hafa séð svona
hvítingja áður, en hann hefur unn-
ið við fisksölu í 37 ár.
Einar Jónsson, fiskifræðingur,
sagðist ekki muna eftir að hvít ýsa
hafi komið hér á land áður. „Ég
hef séð hvítan þorsk, en ekki hvíta
ýsu,“ sagði Einar.
Guðmundur sagði að hann æti-
aði að hafa ýsuna í fiskborðinu í
Kringlunni í dag til að fólki gæfist
kostur á að skoða þennan sjald-
gæfa físk.
í GÆR var undirritað samkomu-
lag milli Pharmaco hf. og Sanitas
hf. um stofnun nýs hlutafélags,
sem yfirtaki rekstur gosdrykkja-
framleiðslu Sanitas og annist
dreifingu þess frá og með næstu
áramótum. Samkomulag þetta er
þó háð samþykki erlendra um-
bjóðenda Sanitas.
Pharmaco kaupir framleiðslu-
tæki Sanitas og allt sem snýr að
gosdrykkjaframleiðslunni, þar með
talið einkaleyfí. „Ætlunin er að taka
yfir reksturinn frá og með næStu
áramótum," sagði Werner Rasmus-
son stjómarformaður Pharmaco í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Við höfum ekki haft tíma til að
hafa samband við umboðsmenn
Sanitas þannig að það kemur ekki
í ljós fyrr en seinna, hvort við höld-
um þeim umboðum." Sem kunnugt
er hafa verið uppi vangaveltur um
hver hljóti Pepsi umboðið og voru
forráðamenn fyrirtækisins staddir
hér á landi fyrir nokkru til viðræðna
m.a. við Smjörlíki/Sól hf. og Ölgerð-
ina Egil Skallagrímsson hf.
Öllu starfsfólki Sanitas var sagt
upp störfum fyrir nokkm. Verði
nýtt hlutafélag stofnað, er búist við
að megnið af starfsfólkinu verði
endurráðið.
Pharmaco hefur verið í fréttum
að undanförnu vegna kaupa þess
og dótturfyrirtækisins, Deltu, á
öðrum fyrirtækjum. Á þessu ári
hefur Pharmáco keypt íslensk mat-
væli, auk þess sem það hefur tekið
Laxalind á leigu. Delta hefur keypt
Tóro og Sápugerðina Frigg. Sagði
Werner að með þessum kaupum
væri verið að renna stoðum undir
fyrirtækið, „því að það virðist vera
stefna Framsóknarflokksins að
reyna að þjóðnýta lyfjainnflutning
og -dreifíngu", sagði hann.
un. Það kæmi þá til viðbótar rúm-
lega 440 milljóna raunhækkun
þessara gjalda á þessu ári frá hinu
síðasta, en þá er einnig meðtalin
hækkun álagningarhlutfalla," segir
í fréttabréfi VSI.
VSÍ segir að umsvif sveit’arfélaga
á undanförnum áratug hafí aukist
um 23% umfram vöxt landsfram-
leiðslu, eða úr 6,7% af landsfram-
leiðslu í 8,2%. Með nýjum lögum
um tekjustofna sveitarfélaga hafi
ýmis sveitarfélög þegar nýtt sér
ótæpilega heimild til að hækka að-
stöðugjöld og fasteignaskatta. Bent
er á að sveitarfélögin hafi notað
þann tekjuauka sem varð á árunum
1986 til 1988 til þess að auka
rekstrarútgjöld og fjárfestingu.
Fram kemur í fréttabréfínu að
árið 1980 voru beinir skattar 45,3%
af tekjum sveitarfélaga, en 46%
árið 1990, aðstöðugjöld voru 9,8%
en verða 14,5% í ár, fasteignaskatt-
ur var 10,7% og verður 12,7% í ár.
Frá 1980 hafa aðstöðugjöldin
hækkað um 107% að raungildi og
fasteignaskattur um 67%. „Heildar-
tekjur sveitarfélaga hafa hækkað
um 46,5% á þessu tímabili, eða 7,5
milljarða að raungildi," segir í
fréttabréfínu.
Gestur Einarsson ráð-
inn að Morgnnblaðinu
Gestur Einarsson, rekstrarráð-
gjafi, hefur verið ráðinn umsjónar-
maður auglýsinga- og markaðsmála
Morgunblaðsins og tekur hann til
starfa 1. janúar 1991.
Gestur Einarsson hefur undan-
farin misseri annast ýmsa ráðgjöf
við blaðið. Hann hefur ásamt félög-
um sínum rekið ráðgjafarfyrirtækið
Ráðgarð hf.
Gestur Einarsson varð rekstrar-
tæknifræðingur frá Svíþjóð 1971
og að námi loknu stundakennari í
rekstrartækni og stjórnun við
Tækniskóla íslands' og Háskóla Is-
lands, auk þess sem hann veitti
tæknideild Mjólkursamsölunnar
forstöðu.
Gestur er kvæntur Valgerði
Hjaltested meinatækni og eiga þau
þijú börn.
Morgunblaðið býður Gest Einars-
son velkominn til starfa. Gestur Einarsson