Morgunblaðið - 18.12.1990, Page 4
MORGUWBMÐIÐI ÞRIÐJUDAGURfl8:l DESBMBBRj 1980;/.
Æ
Erlend verðbréfaviðskipti:
Erlend verðbréfavið-
skipti fóru rólega af stað
STARFSMENN verðbréfasjóðanna voru flestir sammála um að við-
skipti með erlend verðbréf hefðu farið rólega af stað í gærdag
og lítil sem engin sala hefði átt sér stað. Hjá Kaupþingi höfðu þó
síðari hluta dagsins verið seld erlend bréf fyrir á þriðju milljón
islenskra króna. Frá 15. desember var leyft að fjárfesta .í erlendum
verðbréfum fyrir íslenska peninga og hefur að sögn starfsmanna
verðbréfasjóðanna verið mikið um það undanfarið að fólk hringi
og spyijist fyrir um þessi viðskipti.
Hjá Kaupþingi fór salan á er-
lendum verðbréfum í gær nokkuð
fram úr því sem menn höfðu gert
sér vonir um að sögn Maríu Sigurð-
ardóttur. Þar seldust bréf fyrir á
þriðju milljón króna auk þess sem
ijöldi fólks. hringdi og aflaði sér
upplýsinga. María sagði að það
væri auðheyrt á mörgum sem
hringdu að þeir hefðu beðið nokkuð
lengi eftir því að geta ávaxtaðjé
sitt erlendis.
Agnar Jón Ágústsson hjá Fjár-
festingarfélaginu tók undir að mik-
ið hefði verið hringt og spurst fyr-
ir um kaup á erlendum verðbréfum.
Hann sagði að lítil sem engin sala
hefði átt sér stað í gær. Fólk væri
enn að skoða þennan möguleika,
athuga hvað væri í boði, kostnað
við kaup á erlendum verðbréfum
og hugsanlega ávöxtun.
Svanbjöm Thoroddsen hjá Verð-
bréfamarkaði íslandsbanka sagði
að viðskipti hefðu farið rólega af
stað eins og við mætti búast. Fólk
hefði öðrum hnöppum að hneppa
á þessum árstíma en að fjárfesta
í erlendum verðbréfum. Þeir sem
væru í þeim hugleiðingum litu
frekar til hlutabréfanna, m.a.
vegna þess skattaafsláttar, sem
þau veittu.
Hjá Landsbréfum var hafin sala
á Heimsbréfum fyrir um þremur
vikum og búið er að selja innlend
bréf fyrir nokkrar milljónir króna,
að sögn Sigurbjörns Gunnarsson-
ar. Sagði Sigurbjörn að ekki væri
ennþá farið að fjárfesta í erlendum
sjóðum. Mikið hefði verið spurst
fyrir um erlend verðbréf undan-
farnar vikur, en ekkert meira í gær
en aðra daga.
VEÐUR
VEÐURHORFUR IDAG, 18. DESEMBER
YFIRLIT í GÆR: Við strönd Grænlands vestur af Vestfjörðum er
983 mb lægð sem mun hreyfast austur og fara að grynnast, en
langt suðvestur í hafi er 1.035 mb hæð sem hreyfist austur. Yfir
Nýfundnalandi er 995 mb lægð á ieíð norðaustur.
SPÁ: Á morgun snýst vindur til norðan- og norðvestanáttar með
éljum norðanlands og vestan en léttir til suðaustanlands. Vaxandi
frost.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Norðaustanátt, nokkuð hvöss austan-
til. Él norðan- oig austanlands og vestur með suðurströndinni en
úrkomulaust vestanlands. Frost 5—10 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Austanstrekkingur við suðurströndina
en hægviðri norðantil. Él á Suður- og Austurlandi en léttskýjað
norðanlands. Hiti um frostmark syðst á landinu en annars frost,
mest í innsveitum norðanlands.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
-J 0" Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti yeður
Akureyri 2 snjóéi
Reykjavik léttskýjað
Bergen *1 súld
Helsinki 0 skýjað
Kaupmannahöfn vantar
Narssarssuaq +12 skýjað
Nuuk +13 snjóél
Osló +1 poka
Stokkhólmur 1 þokumóða
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 11 rigning
Amsterdam 0 þokumóða
Barcelona 8 mistur
Berlín +1 súld
Chlcago vantar
Feneyjar 6 hálfskýjað
Frankfurt 2 léttskýjað
Glasgow 4 alskýjaðr
Hamborg 2 skýjað
Las Palmas vantar
London 2 mistur
LosAngeles 8 heiðskfrt
Lúxemborg +1 snjókoma
Madrfd 7 skýjað
Malaga 13 alskýjað
Mallorca 12 skýjað
Montreat +8 léttskýjað
NewYork 4 skýjað
Orlando vantar
Parfs 2 léttskýjað
Róm 10 léttskýjað
Vfn +1 snjókoma
Washlngton vantar
Winnipeg +23 heiðskírt
Læknar reykja
minna en aðrir
LÆKNAR á Ríkisspítölum
reykja minnst allra sem á
spitölunum starfa og þeir eru
manna fróðastir um skaðsemi
reykinga. Þetta kemur fram í
könnun sem gerð var meðal alls
starfsfólks Ríkisspitala og birt
er í Læknablaðinu. Um fjórðung-
ur starfsmanna spitalanna
reykir.
Ef starfsfólki Ríkisspítalana er
gefín einkunn á skalanum 1-10
kemur í ljós að þekking er almennt
góð á skaðsemi reykinga. Enginn
munur er á þekkingu karla og
kvenna en yngra fólk virðist sér
meðvitaðra um skaðsemi reykinga
en þeir sem eldri eru. Yngsti hópur-
inn fær meðaleinkunnina 8,8 en sá
elsti 7,8.
Læknar fá hæstu meðaleinkun
starfshópa, 8,9 en aðrar heilbrigðis-
stéttir fylgja fast á eftir. Þeir hópar
sem ekki teljast til heilbrigðisstétta
virðast hafa heldur minni þekkingu
á skaðsemi reykinga. Þeir sem ekki
tilgreina starfsheiti sitt hafa Iægsta
meðaleinkunn, 7,1.
Athygli vekur að um 15% að-
spurðra virðast ekki vita um hættu
reykinga foreldra fyrir fóstur og
börn.
Reykingar eru óháðar kynferði,
en tengjast aldri, starfshópum og
þekkingu á skaðsemi reykinga.
Reykingamenn eru hlutfallslega
fæstir úr hópi lækna, aðeins um
7%. Séu þeir hafðir til hliðsjónar
kemur í ljós að hlutfallið milli
reykingarmanna og þeirra sem ekki
reykja er talsvert hærra og hæst
hjá ræstinga- vakt- og aðstoðar-
mönnum, þar sem það er 6,5 sinnum
hærra.
Flestir þeir sem reykja vilja
hætta því, eða um 82%. Þeir sem
yngri eru vilja það frekar en hinir
eldri. Stærstur hluti reykinga-
manna segjast vilja aðstoð við að
hætta og telja að Ríkisspítalar eigi
að bjóða starfsmönnum á námskeið
til þess að hjálpa til við að losna
úr viðjum raykinga.
Næstum 98 prósent allra þeirra
sem svöruðu vilja takmarka
reykingar á sjúkrahúsum. Tæpur
helmingur vill algert reykingabann,
en rúmlega helmingur finnst að
leyfa eigi reykingar á afmörkuðum
svæðum. Kyn og starf skiptir ekki
máli varðandi afstöðu manna til
þessa máls.
Sjópróf
hefjast í dag
SJÓPRÓF vegna strands Erling
KE 45 fara fram hjá Bæjarfóg-
etaembættinu í Keflavík í dag.
Erling strandaði á þriðjudags-
kvöld við Borgarboða, skammt vest-
an Hornarfjarðaróss. Þrettán skip-
veijar af Erling komust heilir og
höldnu um borð í Þorstein GK 16.
SPÆNSKA klementínag virðist
vera búin að skipa sér fastan
sess á jólaborðum landsmanna.
Slær hún nú orðið öllum öðrum
ávöxtum við hvað varðar sölu
á þessum árstíma.
Hagkaup eru orðinn einn um-
svifamesti innflutningsaðili lands-
ins á ávöxtum og grænmeti og
flytur fyrirtækið nú inn sjálft
megnið af þessum vörum sem
seldar eru í verslunum þess. Nem-
ur heildarsalan á ávöxtum og
grænmeti hjá Hagkaupum um
600-700 milljónum króna á þessu
ári að sögn Jóns Ásbergssonar
hjá Haugkaupum.
Kolbeinn Ágústsson, innkaupa-
maður ávaxta og grænmetis hjá
fyrirtækinu, sagði aðspurður að
jólaávöxturinn í ár væri tvímæla-
laust klementínan og væri geysi-
leg sala í henni. Hefðu vinsældir
hennar aukist ár frá ári. Hann
sagðist gera ráð fyrir að seld yrðu
á annað hundrað tonn af kle-
mentínum fyrir jól. Þetta væri
mikil aukning frá því í fyrra og
væri það fyrst og fremst vegna
aukinna gæða og lægra verðs.
Þær kostuðu nú 129 krónur kílóið
á móti 179 krónum fyrir síðustu
jól.
Annar ávöxtur sem ávallt væri
vinsæll fyrir jólin væru stóru
rauðu amerísku eplin. Þá sagði
Kolbeinn áberandi að fólk væri
farið að kaupa sífellt meira af t.d.
fersku rauðkáli til að sjóða niður
sjálft. „Fólk er að uppgötva meir
og meir hve gott er að nota ferska
grænmetið," sagði Kolbeinn.
Reykingakönnun á Ríkisspítölum:
Klementínan vin-
sælasti ávöxturinn