Morgunblaðið - 18.12.1990, Page 39
MORGUNBI.ADIÐ ÞRIEXJUDAGUR 18.' DESEMBER’ 1990'
39
Blaðamanni og útgefend-
um Pressunnar stefnt
ÁRNI Vilhjálmsson hæstarétt-
arlögmaður hefur fyrir hönd
Werners Rasmussonar höfðað
meiðyrðamál á hendur blaða-
manni Pressunnar, Sigurjóni
Ljóðabók eftir
nemendur Stáð-
arborgarskóla
NEMENDUR 6. - 9. bekkjar Stað-
arborgarskóla Breiðdalsvík hafa
gefið út ljóðabókina Hitt og
þetta.
I inngangi segir ábyrgðarmaður
útgáfunnar Sævar Sigfússon kenn-
ari, að nemendur skólans hafi enn
einu sinni lokið við ljóðabók, en
vinnan fór fram í bókmenntatímum
í haust og hafa nemendur sjálfir
samið ljóðin og myndskreytt þau.
í bókinni eru rösklega 100 ljóð.
Hún er 96 blaðsíður, ljósrituð hjá
Staðarborgarskóla.
M. Egilssyni, og útgefendum
blaðsins, vegna fyrirsagnar og
ummæla, sem viðhöfð voru í
Pressunni nýlega uin apótek-
ara. Verður málið þingfest á
bæjarþingi í dag.
Krafa Árna fyrir hönd Werners
er ómerking ummæla, sem viðhöfð
voru í Pressunni. Var blaðamanni
og útgefendum send stefna í fyrri
viku og sagðist Árni ekki hafa
heyrt frá þeim, hvort þeir hygðust
mæta í bæjarþingið. Mæti þeir
ekki í bæjarþingi gengur dómur í
málinu. Mæti þeir hins vegar fá
þeir ákveðinn frest til að afla
gagna og skila greinargerð. Venj-
ulegur tími fyrir slíkan frest er
1-2 mánuðir.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
m
QX
Hallgrímur Dalberg
Athugasemd
vegna kafla
Hallgríms
Dalbergs
AÐ GEFNU tilefni vill undirrit-
aður koma eftirfarandi athuga-
semd á framfæri vegna birtingar
Morgunblaðsins á kafla úr bók-
inni „Með kveðju frá sankti bern-
harðshundinum Halldóri“ þar
sem Hallgrímur Dalberg lýsir
vist sinni í bresku fangelsi á
stríðsárunum.
í inngangi að kaflanum hefur
láðst að geta þess að Hallgrímur
Dalberg var fangelsaður og fluttur
til Bretlands alsaklaus. Hann hafði
í græskuleyi sínu tekið innsiglað
umslag í geymslu fyrir Jens B.
Pálsson loftskeytamann á Arctic.
Eftir að Jens var handtekinn vísaði
hann á dulmálslykii þann sem hann
hafði notað við að senda Þjóðveijum
veðurskeyti og reyndist hann vera
innihald bréfs þess, sem Hallgrímur
geymdi. Við þetta féll grunur á
Hallgrím sem leiddi til handtöku
hans, en í hæstaréttardómi yfir
Jens segir m.a.: „Olli hegðun
ákærða í sambandi við varðveislu
tækis þessa og útbúnaðar þess, að
saklausir menn íslenskir (Hallgrím-
ur Dalberg og Marel Kr. Magnús-
son), sem í grandaleysi höfðu við
munum þessum tekið, voru grunað-
ir um samsekt í njósnarathöfnum
og því fluttir til Bretlands og hafð-
ir þar í nokkra mánuði í varðhaldi.“
Önundur Björnsson
V^terkurog
L/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Hörður Ágústsson.
vit steinmustera meginlandsins frá
svipuðum tíma.“
Bókin er 310 blaðsíður í stóru
broti, með mörgum myndum og
teikningum. Hún var tilnefnd til
íslensku bókmenntaverðlaunanna
fyrr í þessum mánuði.
REYKJAVIK
Penninn, Hallarmúla
Mál og menning, Síðumúla
Eymundsson, Mjódd
Penninn, Kringlunni
Griffill, Síðumúla
Mál og menning, Laugavegi
Eymundsson, við Hlemm
Penninn, Austurstræti
KÓPAVOGUR
Bókaverslunin Veda
HAFNARFJÖRÐUR
Bókabúð Olivers Steins
KEFLAVÍK
Bókabúð Keflavíkur
ÍSAFJÖRÐUR
Bókaverslun Jónasar
Tómassonar
AKUREYRI
Bókaverslun Jónasar
Jóhannssonar
Tölvutæki - Bókval
Bók um allar þekktar
kirkjur í Skálholti
BÓKIN Skálholt II Kirkjur, eftir Hörð Ágústsson listmálara, er kom-
in út hjá Bókmenntafélaginu. Er þar fjallað um allar þekktar kirkj-
ur, 9 talsins, sem staðið hafa í Skálholti frá öndverðu og fram að
sóknarkirkjunni sem rifin var 1956.
í bókinni er leitast við að túlka
niðurstöður fornleifarannsókna sem
gerðar voru í Skálholti á árunum
1954 til 1958. Jafnframt var aflað
annara tiltækra héimilda um kirkjur
þessar, svo sem byggingaleifa,
naglfastra muna, ljósmynda, vatns-
litamynda og óbirtra ritheimilda,
að því er kom fram á blaðamanna-
fundi forlagsins í gær.
Hver kirkja fær sína sérstöku
umfjöllun, þar sem meðal annars
er leitast við í máli og myndum að
endurgera viðkomandi kirkju í tei-
kniformi. Síðan er byggingarsaga
rakin, fjallað um höfund, list og
stíl og loks byggingu í sögulegu
samhengi.
í síðasta kafla bókarinnar, þar
sem dregnar eru saman niðurstöð-
ur, segir höfundur að byggingar-
saga kirknanna í Skálholti sé eitt
gleggsta dæmið um að fáar eða
engar þjóðir á vestræna menningar-
svæðinu, hafi þurft að eyða jafn-
mikilli orku í endurbætur og endur-
byggingu kirkna sinna og Islend-
ingar. Því hafi framar öðru valdið
slæmt veðurfar og einnig að ekki
tókst að byggja kirkjur úr varan-
legra efni en timbri og torfi.
Lokaorð bókarinnar eru þessi:
„Hvað sem því líður hefur verið
sýnt fram á að dómkirkjur miðalda
voru vegleg og merkileg hús, sér-
kennilegt framlag íslendinga til
heimslistarinnar enda þótt þær séu
nú týndar og tröllum gefnar. Þegar
þær voru upp á sitt besta hefur
hveijum gesti, sem þar steig fótum
inn, þótt þær ekki síður tilkomu-
miklar en okkur er við göngum á
Fallegir hlutir gefa lífinu gildi
Það á einnig við um penna. Sumir misskilja þá en við ætlumst til þess að skrifað sé með
þeim.
Parker Duofold kúlupenninn hér að neðan er vissulega fallegur, enda hefur ekkert verið til
sparað. Hitt er þó mikilvægara að hann er mjög vandaður.
Parker Duofold dansar um blaðið með jöfnu flæði af bleki. Það er hrein unun að skrifa
með Parker Duofold.
Parker Duofold fæst hjá eftirtöldum söluaðilum.
Ý PARKER