Morgunblaðið - 18.12.1990, Síða 52
52
oggi naaNiaaaa a j3-Aaaiaia<i gigajhvhjdho]
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990
í-tiðaríjás tií
ouðugmty
nuels
Sanaya
Roman
lykrlað
patSÓM£GIM
STYRKOG
WDLEGUU ÞftOSKA
Fjármálaráðherra og BHMR:
Fullkominn trúnaðarbrestur
Mistúlkun og rangfærslur segir fjármálaráðherra
fullyrða að fullkominn trúnaðar-
brestúr ríki milli fjármálaráðherra
og stéttarfélaga innan BHMR
vegna setningar bráðabirgðalaga
og erfiðra samskipta.“
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra segir margt vera mis-
sagt í þessu bréfi. í samtali við
Morgunblaðið greindi hann frá því,
að aldrei hefði verið sagt að um
samningafundi væri að ræða. A
þessum fundum sem hefðu verið
mjög gagnlegir hefði verið rætt um
þær ályktanir sem mætti draga af
reynslu síðustu 4-5 ár og ýmsar
hugmyndir verið reifaðar um hvern-
ig þessum málum og samskiptum
yrði betur hagað í framtíðinni. Fjár-
málaráðherra fannst leitt að BHMR
hefði kosið að mistúlka þessa fundi.
„Það sýnir hve erfitt er að færa á
Friðrik Sophusson
jón Þórðarson (S-Vl), Ingi Björn
Albertsson (S-Vl), Matthías Bjarna-
son (S-Vf), Stefán Valgeirsson
(SFJ-Ne) og Hjörleifur Guttorms-
son (Ab-Al). Frumvarpið var því
sent forseta efri deildar til fyrir-
greiðslu.
Slitróttar trillukvótaum-
ræður í sameinuðu þingi
UTHLUTUN veiðiheimilda til
smábáta, svokallaður trillukvóti,
var enn á ný til umræðu á Al-
þingi. Björn Valur Gíslason (Ab-
Ne) fór fram á umræður utan-
dagskrár á 31. fundi sameinaðs
þings. Ræður þingmanna báru
um flest svip af fyrri umræðum
um þessi mál en nokkrum þing-
mönnum þótti mjög miður að
verða að gera hlé á umræðum
vegna deildarfunda.
Björn Valur Gíslason vildi vekja
athygli á þeim stórkostlega vanda
sem blasir við smábátaeigendum.
Margir búsettir á smærri stöðum
horfast nú í augu við að flosna upp
eða leita á framfæri hins opinbera.
Aðallega hefðu staðir eins og
Grímsey og Borgarfjörður eystri
verið nefndir en þetta mál snerti
alla landsmenn. Björn Valur sagði
andstætt öllum rökum að markaðs-
setja óveiddan fisk. Kvótakerfið
gerði þá stóru stærri. Trillukarlar
gætu ekki gengið í banka og sjóði
til að afla sér fjár til kvótakaupa.
Ræðumaður sagði kvótasölu frá
smábátum ýta undir smáfiskadráp,
því að smærri bátarnir veiddu
stærri fisk í net en togararnir aftur
á móti dræpu tvöfalt fleiri fiska til
að fylla upp í tonnið eða þorskígild-
ið.
Matthias Bjarnason tók undir
flest í málflutningi ræðumanns og
studdi hann með dæmum frá sínu
kjördæmi. Matthías hafði litla trú
að bjargráðum Hagræðingarsjóðs.
Sá sjóður kæmi til éftir að skip
væri selt — og þá væri fólkið farið.
Þegar aðrar þjóðir hefðu snúið
af braut ófrelsins og miðstýringar
sneru íslendingar sér í austur. Mátti
ráða af ræðu Matthíasar að nú risi
skömmtunarráðuneyti. Matthías
taldi Erich Ilonecker, fyrrum leið-
toga þýska alþýðulýðveldisins, vei
til þess fallinn að veita ráðuneytinu
forstöðu, en Honecker væri að sögn
verklítill nú um stundir.
benti þingmönnum á nauðsyn þess
að afgreiða mál í deildum þingsins
og ítrekaði að um þetta hefði tekist
samkomulag. Arni Gunnarsson
forseti neðri deildar tók undir sjón-
armið forseta Alþingis. Hið sama
gerði Danfríður Skarphéðinsdóttir
(SK-Vl).
Fundi var framhaldið að aflokn-
um deildarfundum og þráðurinn
upp tekinn þar sem frá var horfið.
Stefán Valgeirsson (SFJ-Ne)
sagði m.a. að í lögum stæði að fiski-
miðin skyldu vera sameign þjóðar-
innar en svo væri ekki nú. Byggð-
irnar væru að bresta. Alltaf væri
erfitt að deila út milli manna, en
þau byggðarlög sem ekki hefðu tök
á öðru en sjávarútvegi yrðu að njóta
forgangs.
Kristinn Pétursson (S- Al),
Málmfriður Sigurðardóttir (SK-
Ne) og Hjörleifur Guttormsson
(Ab-Al) gagnrýndu kvótakerfið og
smábátaúthlutunina harkalega. Það
kom fram að Kristinn Péturson
hefur skrifað sjávarútvegsnefnd
neðri deildar Alþingis bréf. Þar
kemur fram að bréfritari telur að
lögin um fiskveiðistjórnun brjóti í
bága við 69. og 67. greinar stjórnar-
skárinnar og fer fram á að nefnd
kveði sér til fulltyngis þijá af fær-
ustu sjálfstætt starfandi lögmönn-
um í stjórnsýslurétti til afla álits
þeirra um nauðsynlegar breytingar.
Kristinn Pétursson segir að afstaða
til þessa bréfs verði að vera ljós af
hálfu sjávarútvegsnefndar neðri
deildar og forseta Aiþingis fyrir
jólahlé. — Sú tímasetning er ekki
fullljós, þess má geta að það kom
fram í ræðu foreta sameinaðs þings
að nú er að því stefnt að þing fari
í jólaleyfí næskomandi föstudag.
En á hinn bóginn hafði Kristinn
Pétursson á orði að meiru skipti að
fá kvótalögunum breytt heldur en
að þinghald tefðist í nokkra daga.
Atvinnuleysisbætur:
Hógvær ósk Karvels
í upphafi fundar hafði Guðrún
Helgadóttir, þingforseti, greint
þingmönnum frá því að samkomu-
lag værí milli forseta þingsins að
fundi sameinaðs þings og þar með
þessari umræðu yrði frestað í
hálftíma, til að halda fundi í deildum
og afgi'eiða mál til nefnda og milli
deilda.
Karvel Pálmason (Ab-Vf) kunni
þessu verklagi illa og mótmælti því
að fresta umræðu og slíta í sund-
ur. Taldi hann þetta mál skipta
meiru en þau sem lægu fyrir í deild-
um. Halldór Blöndal (S-Ne) tók
undir þá beiðni sem Karvei hefði
„borið fram með hógværum hætti".
Mál Kristins Péturssonar (S-Al)
var einnig á sama veg. Þingforseti
Allir eigi sama rétt
FRAM er komið á Alþingi frumvarp til breytinga á lögum um at-
vinnuleysistryggingar, þess efnis, að allir launþegar eigi sama rétt
til atvinnuleysisbóta, hvort sem þeir eigi aðild að stéttarfélagi eða
ekki.
Geir H. Haarde (S-Rv) flytur
frumvarpið. I greinargerð segir að
frumvarpið sé einfalt og snerti fáa
einstaklinga, en varði engu að síður
grundvallarrétt manna til félaga-
frelsis og þvingunarlausra ákvarð-
ana um aðild að félögum. „Það mun
einsdæmi með lýðfijálsum þjóðum
að réttur til atvinnuleysisbóta sé
háður því skilyrði að hinn atvinnu-
lausi sé í stéttarfélagi. Er enda
vandséð að þörf manna fyrir bæt-
ur, missi þeir vinnu sína og þar
með tekjumöguleika, sé minni ef
þeir eru ekki í stéttarfélögum.“ Þá
bendir flutningsmaður á þá stað-
reynd að Atvinnuleysistrygginga-
sjóður sé fjármagnaður með iðgjöld-
um af öllum launum (líka þeirra er
standa utan stéttarfélaga) og fram-
lögum úr ríkissjóði, þ.e. af skatt-
greiðslum allra skattþegna.
Ólafur Ragnar Grímsson
betri veg, þegar menn greinilega
mistúlka og rangfæra allt sem gert
er.“
Frumvarpið var samþykkt með
21 atkvæði, 13 sögðu nei, 2 voru
fjarverandi. Sex greiddu ekki at-
kvæði, Eggert Haukdal (S-Sl), Frið-
ATKVÆÐAGREIÐSLA um frumvarp til staðfestingar á bráðbirgða-
lögum þeim um launamál sem tíðast eru kennd við BHMR fór fram
í gær. Frumvarpið var til þriðju umræðu síðastliðinn föstudag en
atkvæðagreiðslu var þá frestað. Atkvæði féllu á sama veg og eftir
2. umræðu. Friðrik Sophusson (S-Rv) gerði grein fyrir atkvæði sínu.
Við það tækifæri las hann minnisblað frá Páli Halldórssyni form-
anni BHMR til launamálaráðs samtakanna. Af bréfi þessu verður
að ætla að samskipti BHMR við fjárm&laráðuneyti og fjármálaráð-
herra séu mun verri en fram kom í máli Ólafs Ragnars Grímssonar
fjármálaráðherra við aðra umræðu síðastliðinn þriðjudag.
í ræðu sinni á þriðjudaginn
^freindi fjármálaráðherra frá fund-
um og viðræðum við. aðildarfélög
BHMR í þeim tilgangi að eyða
fjandskap og tortryggni sem ríktu
í samskiptum fjármálaráðuneytins
og samtakanna. Og ætti þessi óvild
sér lengri sögu en núverandi ríkis-
stjórn. Á ráðherra var að skilja að
skilningur og traust milli málsaðila
hefði aukist nokkuð og því von um
einhvern árangur. Minnisblað það
sem Friðrik Sophusson las gefur
tilefni til að ætla að íjármálaráð-
herra hafi verið fullbjartsýnn.
í bréfinu segir m.a. að rangt sé
að viðræður í starfsnefndum vegna
kjarasamninga gangi vel. „Fulltrú-
ar fjármálaráðherra í nefnd um
ábyrgðarmat hafa t.d. algerlega
kastað til þess verks höndum. Einn-
ig er það sagt rangt að nú standi
yfir samningaviðræður milli fjár-
málaráðherra og einstakra sam-
flotsfélaga BHMR. „Fjármálaráð-
herra óskaði með bréfi dagsettu 30.
ágúst sl. eftir fundum með félögun-
um. Í bréfi ráðherrans var setning
bráðabirgðalaga hörmuð. Af þeirri
ástæðu var Ijáð máls á fundum með
honum. Á þessum fundum hefur
fjármálaráðherra hins vegar hvorki
viljað ræða bráðabirgðalögin né
framkvæmd kjarsamningsins. Hins
vegar hefur fjármálaráðherra viljað
ræða kjarasamninga eftir gildistíma
„þjóðarsáttar" í því skyni að skuld-
binda fjármálaráðherra í næstu
ríkisstjórnum. í bréfínu segir for-
maður BHMR að fjármálaráðherra
hafí lýst því yfír að hann sé að bjóða
aðildarfélögum BHMR eitthvað í
samningum. Það sé rangt, fjármála-
ráðherra reyni að hagnýta sér vilja
félaganna til viðræðna í því skyni
að setja á svið að hann sé ávallt
tilbúinn til að leysa mál með samn-
ingum en það sé ekki trúverðugt
eftir setningu bráðabirgðalaga á
kjarsamning félaganna. Niðurlags-
orð í bréfí formanns BHMR eru:
„í ljósi reynslunnar er nú hægt að
BÆKUK
í AMDA
M Ý -
ALDAK
Miölaöar
ráðleggingar
frá
Ijósverum
að
handan
BOK EMMANUELS
(Emmanuels Book)
Ritub af Pat Rodegast
Bækur sem
leiöbeina,
glebja
og hjálpa.
LIFÐU I GLEÐI
(Living with Joy)
Ritub af
Sanaya Roman
Þær eru ihnbundnar og kosta kr. 2.490,
Fást í öllum helstu bókaverslunum
NYALDARBÆKUR
Bolholti 6, simar 689278 og 689268