Morgunblaðið - 18.12.1990, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990
53
Breytingar á sköttum fyrirtækja:
Tryggingagjald í stað
fimm annarra gjalda
Skilar ríkissjóði 500 milljónum
Pjármálaráðherra hefur lagl fram stjórnarfrumvarp á Alþingi um
tryggingagjald, sem kemur i stað fimm mismunandi gjalda sem fyrir-
tæki greiða nú. Gjaldið á að skila 500 milljónum króna viðbótartekj-
um til rikissjóðs.
Ti’yggingargjaldið kemur í stað
launaskatts, lífeyristrygginga-
gjalds, slysatryggingargj alds,
vinnueftirlitsgjalds og iðgjalds í
Atvinnuleysistryggingasjóð. Verður
gjaldið 4,25% af öllum launum en
á næsta ári er gert ráð fyrir að
gjaldið verði í tveimur þrepum, 2,5%
og 6%. í þessu segir fjármálaráðu-
neytið felast óbreytta skattbyrði
þeirra sem hingað til hafi greitt þau
fimm gjöld, sem tryggingargjaldið
kemur í staðinn fyrir, en þeir aðilar
sem hafa verið undanþegnir
greiðslu á gjaldi til lífeyristrygg-
inga, fái nokkra hækkun.
I frumvarpinu um trygginga-
gjaldið er farið að tillögum nefndar
sem endurskoðað hefur lög um
skattlagningu fyrirtækja. Hún lagði
til að samræming launagjalda verði
gerð í þremur áföngum. I fyrsta
áfanga verða tvö þrep, 2,5% í und-
anþágugreinum sem eru fiskveiðar,
iðnaður og landbúnaður; og 5,5% í
öðrum geinum. Árið 1992 verði
hlutföllin 3,25 í undanþágugreinum
og 4,75% í öðrum greinum. Árið
1993 verði tryggingagjaldið í einu
"þrepi, 4,25%. I frumvarpinu nú er
gert ráð fyrir séstöku 0,5% álagi á
hærra þrepið á næsta ári, sem skili
475 milljóna króna tekjum í ríkis-
sjóð.
í fjárlagafi'umvarpinu var gert
ráð fyrir að nýtt tryggingaiðgjald
skilaði 800 milljónum króna og
sérstakt álag á iðgjaldsstofninn
öðrum 800 milljónum króna.
Hætt við að leggja
á hafnarmálagjald
HÆTT hefur verið við að leggja á hafnarmálagjald það, sem boðað
var í fjárlagafrumvarpi næsta árs og átti að skila ríkissjóði 560
milljónum króna. Þá mun tryggingagjald það, sem lagt verður á
fyrirtæki, skila 1,1 milljarði króna minni tekjum samkvæmt útreikn-
ingum fjármálaráðuneytisins, en boðað var í fjárlagafrumvarpinu.
Loks hefur Alþingi samþykkt tæplega 900 milljóna hærri útgjöld
ríkisins á næsta ári en fjárlagafrumvarpið gerði ráð fyrir. Fjármála-
ráðherra segir þó enn stefnt að því að halli á fjárlögum verði ná-
lægt 1% af landsframleiðslu en það svarar til 3,5-4 milljarða króna.
Fyrirhugað er að þriðja umræða um fjárlög á Alþingi fari fram síðar
í vikunni.
Ólafur Ragnar Grímsson sagði
að ekki kæmu fram fleiri frumvörp
um tekjuöflun ríkissjóðs en þau
frumvörp um tekjuskatt og trygg-
ingargjald sem lögð voru fram í
gær. Það þýddi að skattar myndu
lækka um 1 milljarð króna á næsta
ári, miðað við forsendur yfirstand-
andi árs, og verðlag myndi við það
lækka um 0,1%. Þá yrðu tekjur
ríkissjóðs 1,6 milljörðum minni en
fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár
gerði ráð fyrir.
Þegar Ólafur Ragnar var spurður
hvort þetta þýddi að fjárlög yrðu
samþykkt með 7-8 milljarða króna
halla, í stað 3,7 milljarða halla eins
og fjárlög gerðu ráð fýrir, sagði
hann það ekki vera.
„Það er verið að endurmeta ýmsa
þætti í forsendum fjárlagafrum-
varpsins eins og venjulega er gert
í aðdraganda þriðju umræðu, og við
getum því á þessu stigi ekki sagt
nákvæmlega til um hver endanleg
tala verður. Það er verið að ræða
ýmislegt, bæði aðhald í útgjöldum
og breytingar á tekjuáætluninni,
vegna þess að nú er að hefjast viss
uppsveifla í hagkerfinu sem gerir
það að verkum að óbreytt skatta-
kerfi og tekjustofnar kunna að skila
meiru á næsta ári en þeir gerðu í
ár. Við sjáum merki um þennan
bata á ýmsum sviðum, fyrirtæki
skila meiri hagnaði, bílasala hefur
aukist og það eru á síðustu mánuð-
um ýmis jákvæð merki breytinga
sem sýnir að okkur er að takast
að komast upp úr öldudalnum. Þá
hefur það alltaf legið fyrir, að ríkið
fengi meiri tekjur inn, þótt skatt-
arnir sem slíkir yrðu hækkaðir, ein-
faldlega vegna þess að hagsveiflan
skilar meiru til fyrirtækjanna og
fólksins og um leið í ríkissjóð,“ sagði
Ólafur Ragnar.
Hann sagði aðspurður að ekki
yrði gert ráð fyrir áhrifum frá bygg-
ingu væntanlegs álvers í því sam-
bandi.
TKRMOtOminf
HITAPOKINN
hlý og notaleg jólagjöf
THERMOcomfort hitapokinn inniheldur skaðlausa
saltlausn.
Með því að þrýsta létt með fingrunum á málmplötu í
pokanum'(sjá mynd-1), byrjar lausnin að kristallast og
verður á örfáum sekúndum yfir 50°C og heldur þeim
hita í meira en 1 1/2 klukkustund.
Eftir að THERMOcomfort hitapokinn er orðinn kaldur,
er auðvelt að gera saltlausnina virka að nýju með því
að setja hann í sjóðandi vatn í u.þ.b. 20 mín.
THERMOcomfort hitapokinn veitir þér yl og ánægju
árum saman. 6 mánaða ábyrgð.
Þrjár stærðir
l Takið málmplötuna á milli
þumals og vísifingurs,
þrýstið varlega upp og niður
þangað til vökvinn fer að
kristallast.
507
610
12x18 cm
16x25 cm
818
2 Hitaþokinn er settur í frotte-
pokann til þess að hann
liggi þaegilega á húðinni og
haldist lengur heitur.
20x42 cm
Kreditkorla-
þjónusta
3 Setjið hitapokann i sjóðandi
vatn í u.þ.b.20 min. til að
gera hann virkan á ný.
Réttarhálsi 2-110 R.vík - Símar: 31956-685554 - Fax: 687116
V^terkurog
k/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
K
RURNAR
ERASTASE
EFTIRTÖLD
ALLAR STAND
UM FAGMENNSKU.
U SELDAR A
M HARGREIÐSLUSTOFUM SEM
RÖFUR FRAMLEIÐANDA
Adam og Eva, Skólavörðustig 41, Reykjavík
Agnes, Bleikjukvísl 8, Reykjavík
Björt, Bæjarhrauni 20, Hafnarfiröi
Borgarspítali, Reykjavík
Brósi, Ármúla 38, Reykjavík
Bylgjan, Hamraborg 14a, Kópavogi
Elegance, Hafnargötu 61, Keflavík
Greiöan, Miöbæ, Háaleitisbr., Reykjavík
Guörún, Linnetstíg 6, Hafnarfiröi
Hár og snyrting, Hverfisgötu 105, Reykjavík
Hársýn, Reynimel 34, Reykjavík
Hótel Saga, v/Hagatorg, Reykjavík
Hrönn, Austurveri v/Háaleitisbr., Reykjavík
Höfuólausnir, Hveratold 1-5, Reykjavík
íris, Hafnarstræti 16, Reykjavík
Lokkar og Línur, Hafnargötu 35, Keflavík
Perla, Vitastíg 18a, Reykjavík
Pílus, Þverholti, Mosfellsbæ
Píróla, Laugavegi 59, Reykjavík
Rannveig, Jakasel 28, Reykjavík
Safír, Skipholti 50c, Reykjavík
Salon A París, Hafnarstræti 20, Reykjavík
Sigga Finnbjörns, Kaupgaröi v/ Engjahjalla, Kóp.
Sóiveig Leifs, Grímsbæ v/Bústaöarveg, Rvk.
Sólveig Leifs. Stigahlíö 45, Reykjavík
Stella, Hraunbæ 102a, Reykjavík
Tinna, Furugerði 3, Reykjavík
Þel Hárhús, Tjarnargötu 7, Keflavík
l<
ERASTASE EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI