Morgunblaðið - 18.12.1990, Side 55
atgeir/urðu ryði að bráð/hafa vopn
okkar verið/vísur og tvírætt
háð./Veldum við sömu vopnin/vær-
um við fjölmenn þjóð?/ Ætli okkur
þá nægðu/ órðaglettur og ljóð?“
Árni beitir oft hárfínu háði og
kankvísri kímni til þess að afhjúpa
fáfengileikann í margvíslegu brölti
manna við að láta svo að sér kveða
að þeir verði „ Ómissandi“ og bregð-
ur þá upp skondnum myndum jafn-
framt þvísem hann ræður heilt eins
og þetta heilræði gefur til kynna:.
„Lifðu meðan enn er tími til,/en týn
ei sjálfum þér í dagsins önnum./í
kirkjugörðum er svo yfirfullt/af
ómissandi fyrri tíðar mönnum.“
Árni rímar og stuðlar að jafnaði
í ljóðum sínum og þó þau séu mis-
jafnlega kliðmjúk tekst honum það
bærilega og stundum prýðisvel.
Þegar hann sleppir rími er þó sem
hugmyndir og líkingar skerpist og
hrynjandin verði liprari og snarpari
en ella. Það er t.d. góð hreyfing og
hæfilegur hraði í ljóðinu „Dánar-
dægur“. „Þetta er þá dagur-
inn/dapri og þögli,/sem fór að nálg-
ast/við fæðingu þína,/fyrst ofur-
hægt/úr órafjarlægð/og þú gafst
honum engan gaum,-/en loks er
hann kominn,/með leifturhraða
þrumunnar/og þú — farinn/í kvöld
mun hann hverfa/inn í kyrrð sólar-
lagsins./Á morgun rífa milljón-
ir/hann hugsunarlaust/af dagatal-
mu.
Þegar Árni slær saman þýðingu
Iífs og merkingarleysi þess líkt og
hér nær hann hvað bestum árangri
í glímu sinni við hverfulleikann og
líka við „afl íslenskrar tungu“ því
þá neistar sem af bjarma nýrrar
víddar og lífsveruleika, sem gefur
að líta handan vð tímans tif og er
þó í honum miðjum enda vitnar
„Samviskan“ um þá vídd.
„Hvaðan er sá hvati,/sem hvetur
innri róm/yfir okkur sjálfum/upp
að kveða dóm?“ „Er það efnisheim-
ur,/atómanna mergð/eða ræður
annað/okkar dýpstu gerð?“
Árni kemst það langt í lífsleit
sinni og ljóðum að spyija áleitinna
spurninga og nálgast svörin réttu.
Hann segir þó um sjálfan sig: „En
ég er ei skáld,/aðeins skuggi, sem
fyrir ber./Mig skortir málið,/en
skynja bálið,/sem brennur og ólgar
í brjósti mér. “ 0g hægt er að túlka
ljóðið „Skóhljóð" á líkan veg þó það
sé margrætt. Sá húmsins gestur
sem þar er lýst og kom nærri en
knúði þó ekki dyra er þá sá andgust-
ur _sem ljær ljóðum vængi.
Árni fetar lítt nýjar slóðir í ljóða-
gerð sinni. Hann heldur sig ofast á
öruggum leiðum sem grannt hafa
verið kannaðar og er greinilega
heimamaður á vettvangi arfleifðar
íslenskra ljóða. Hann leggur ekki
langt ínn á hættusvæðin þar sem
fátt er um leiðarmerki. Honum
væri óhætt að sýna meiri dirfsku,
hætta sér lengra út móti andgustin-
um sterka og taka hann alveg í
fang sér til að glæða logann í
bijósti, hætta sér út í harðari glímu
við lífsháskann sjálfan sem er svo
skammt undan í bestu ljóðum hans.
Það er í tvísýnunni einni sem hægt
er að vænta undra og stórmerkja,
því þar verður tilfinningin dýpst og
skynjunin næmust, — á þeim mær-
um þar sem ljós og myrkur togast
á, þjáning og sæla, efi og trú —.
Það var í því myrkri þar sem
þessi orð hljómuðu: „Guð minn, Guð
minn, hví hefur þú yfirgefið mig?“
sem skemmst var inn í sigur- og
sannleiksljósið bjarta. Og það gerist
þegar myrkrið verður dimmast og
dekkst í skammdeginu hér á norð-
urhveli jarðar að jólin lýsa upp hug-
arfylgsni manna helgri birtu sinni.
Sannleiksorðið tæra ‘heyrist þá og
hljómar í hverfulum jarðar heimi
gegnum sorgir hans og sorta og
vekur þá vitund og trúarvissu með
hveijum þeim sem af einlægni leitar
svara, að það hvernig lifað.er og
ljóðað skiptir miklu máli.
Ljóðabók Árna Grétars Finnsson-
ar „Skiptir það máli“ er prýdd teikn-
ingum eftir Eirík Smith sem auka
áhrifamátt ljóðanna og ég vænti
þess að þeir sem hafi hana í höndum
og lesi nú á aðventu og jólum eða
í annan tíma hafi af því bæði gagn
og gleði.
MCffiGþWBLAÐffl ÞHlÐjJljDAGUIi 18: DESEMBER 19^0;
Ævintýri
Geisladiskar
Guðjón Guðmundsson
BLINDFLUG nefnist hljómdiskur
sem hljómsveitin Súld hefur sent
frá sér með tíu lögum eftir félaga
í sveitinni. Skemmst er frá því að
segja að heildarsvipurinn á Blind-
flugi er allur annar og betri en á
Bukoliki, sem Súld sendi frá sér
fyrir tveimur árum. Blindflug er
mjög áheyrileg bræðingsplata,
nokkur lög í þyngri kantinum,
önnur léttari og ljúf og grípandi
Hljómdiskurinn hefst á hraðri og
bráðskemmtilegri sömbu, Betra seint
en aldrei, eftir bassaleikarann Pál
E. Pálsson. Páll gekk til liðs við sveit-
ina á þessu ári og fyllir vel það skarð
sem Stefán Ingólfsson skildi eftir
um lykil
sig, því auk þess að vera lipur bassa-
leikari kann hann að semja grípandi
tónlist undir formerkjum suðrænnar
jasssveiflu.
Það bregður ýmsum stíltegundum
fyrir á Blindflugi, sömbu, jassrokki,
hreinum jassi, indverskri tónlist, en
þrátt fyrir það er diskurinn furðu
samstæðúr og ræður því sjálfsagt
mest að undirtónninn er jafnan bræð-
ingur með sterkum jassáhrifum.
Nafngiftir á lögum diskins eru
skemmtilegar og sérkennilegar
t.a.m. Einu sinni var lykill, Flótti
stigamannsins yfir spýtnaakurinn,
Fleiri te, o.s.fiv. Melódíurnar eru líka
flestar sérkennilegar, krefjast hlust-
unar, sem er oftast einkenni tónlistar
sem endist lengur.en í viku.
Lárus Grímsson hefur komið víða
við á tónlistarferli sínum og kemur
það fram í tónsmíðum hans á Blind-
flugi. Næturljóð er eitt þeirra laga
sem setja sterkan svip á diskinn,
dulúðugt, ljóðrænt og í hægasta
tempóinu. Önnur sterk lög á disknum
er Fleiri te Tryggva Hbner og Kjarn-
orkulaus heimur (No Nukes) eftir
Steingrím, seiðandi asískur rytmi
II
sem minnir helst á trúartónlist úr
þeirri heimsálfu.
Geta verður þáttar Martins Van
der Valk, hins hollenskættaða slag-
verksleikara Súldarinnar. Slagverk
hans, alls kyns pákur og klukkna-
spil leika stórt hlutverk við að ljá
tónlistinni nauðsynlega fyllingu pg
þeim heimstónlistarlegu áhrifum sem '
gætir svo víða á Blindflugi.
Blindflug er kærkomin viðbót í
innlenda diskaflóru sem er æði fá-
breytileg eins og gróðurfar landsins.
Þarna eru á ferðinni metnaðarfullir
tónlistarmenn og hugsjónarmenn
sem víla ekki fyrir sér að senda á
íslenskan markað vandaðan bræðing,
enda hafa kannski þær stórkostlegu
viðtökur sem sveitin hefur hlotið í
Kanada hvatt þá til verka. Flutning-
urinn á Blindflugi er eins og hann
gerist bestur. Diskbæklinginn prýðir
listileg ljósmynd Ragnars Axelssonan*
af flugi fugla á óræðum himni og
auk þess er þar að finna allar helstu
upplýsingar sem að gagni koma.
LOÐFELDIRNIR
Á SKÓLAVÖRÐUSTÍGNUM
ERU ALLS EKKI DÝRARI v
EN LOÐFELDIRNIR Á STRIKINU
Það er útbreiddur misskilningur að loðfeldir
og skinnavara frá þekktum alþjóðlegum
hönnuðum sé dýrari á Skólavörðustígnum
en hjá feldskerum erlendis. Þeir vita betur,
sem hafa kynnt sér hönnun og gæði loðfelda
í nágrannalöndum okkar.
«
Alþjóðleg gæði efst á Skólavörðustígnum.
Urvalið hefur sjaldan verið fjölbreyttara en einmitt þessa dagana.
Hjá Eggerti feldskera færðu m.a. loðfeldi frá Revillion, París,
Gilles-Allard, Montreal, Montiocci, Milano, og sérsaumaða loðfeldi hannaða
af Eggerti feldskera, að ógleymdum loðfóðruðu tískukápunum frá Revillion.
Við erum einnig með nýjungar í Beaverskinnum og Nutria fenjabjór.
Verð sem skipta máli.
Hér eru nokkur dæmi, sem tala sínu máli:
Loðfóðraðar kápur frá kr. 56.000
ítalskir tískufeldir frá kr. 97.200
Revillion slár úr kasmír og reffrá kr. 89.600
Sérsaumaðir loðfeldir hannaðir afEggerti feldskera
frákr. 186.000
Sérhannaðir loðfeldir frá Revillion frá kr. 272.000
Kanadískir minkafeldir frá kr. 252.100
Síðir loðfeldir frá ýmsum hönnuðum frá kr. 132.000
Allar loðskinnavörur hjá Eggerti feldskera eru seldar með þjónustuábyrgð. Greiðslukjör.
EGGERT
Efst á Skólavörðustígnum,
sími 11121.
cr
■ • ,■ -
■
Höfundur er sóknarprestur í
Hafn&rfirði.