Morgunblaðið - 18.12.1990, Page 59
59
Það er sagt að maður komi í
manns stað. En stundum er örðugt
að sjá, að það geti orðið. Það er
örðugt núna. Við skiljum ekki alltaf
hlutina rétt, þegar svo hræðilegir
atburðir gerast, eins og nú hafa
gerst. Við einfaldlega lömumst og
öll orð verða máttlítil. Það er harm-
urinn, sem sýnir okkur betur en
nokkuð annað, að ekkert í heimi
verður að verðgildi jafnað við þá
manneskju, sem við höfum lært að
unna.
Ásthildur fæddist 1. desember
1943 og varð því nýlega 47 ára.
Við áttum samleið í 18 ár. Betri
vinur en hún er vandfundinn. Að
reyna að lýsa persónuleika hennar
er feykna erfitt. Hún var stór í
flestu. Skaprík, ljúf og skilningsrík.
Greind til munns og handa. Góð
móðir og amma. Tryggðinni var
ekki tillit í hana. Hún erfði aldrei
neitt við neinn. Ásthildur var hrein-
lynd kona og sagði hug sinn, varði
þá sem áttu erfitt einhverra hluta
vegna. Hún yeitti skjól þeim sem
ekkert áttu. Ásthildur fór ekki var-
hluta af mótlæti í lífinu. Venjuleg-
ast sigraði hún flest mótdrægt og
lærði á sinn sérstaka hátt, hvernig
á að meta gildi þessa eða hins.
Ásthildur var mjög fríð kona og
hafði þessa einstöku reisn sem ekki
er öllum gefin. Hún var með ein-
dæmum góð móðir og húsmóðir.
Hún unni börnum sínum af alhug
og g^af þeim líf sitt.
Asthildur var trúuð kona og
kenndi börnum sínum að elska
Guð, og keppti eftir því, sem var
hans vilji. Unaðsstundir lífs hennar
voru margar og naut hún þeirra í
ríkum mæli, en alltaf sjálfri sér
samkvæm. Auðvitað komu sorgir,
sem sóttu hana heim, móður- og
föðurmissir, vonbrigði í ástum.
En hún var nægilega stór til
þess að sigra þetta allt og gaf Guði
leyfi til þess að ráða lífi sínu. Ég
ætla ekki að tíunda æviferil henn-
ar, því ég þekki ekki nægilega ætt-
ir hennar til þess að nefna.
Núna vil ég aðeins minnast henn-
ar, þegar fundum okkar bar saman
fyrir fáum vikum, þegar ég sótti
ísland heim. Það var að venju yndis-
legt að koma í Álakvíslina, sjá börn-
in og barnabarnið nýja. Hún gætti
litlu stúlkunnar hennar Ágústu
dóttur sinnar. Þegar við kvöddumst
og ég þurfti að fara heim voru orð
hennar að hún kæmi senn að heim-
sækja okkur hér í Englandi. Ekki
hvarflaði að mér, að við myndum
ekki sjást aftur.
Börnum hennar, Friðþjófi, Magn-
úsi Loga og Svölu Birnu vil ég senda
samúð mína alla. Þau hafa misst
svo óskaplega mikið og ég bið góð-
an Guð að gefa þeim styrk, ekki
bara móðurmissinn, heldur einnig
systurmissinn.
Um harmsefni ykkar, elsku börn,
ætla ég ekki að ræða. Og þó er svo
margt einmitt um þetta að segja,
hve frábær kona og móðir hún var.
Við missi hennar eruð þið særð svo
djúpu sári og svo viðkvæm, að það
væri ekki nærgætið að snerta það
mjög.
En ég veit að þið hafið fundið
það, þessa síðustu sorglegu daga,
að harmur ykkar er skilinn. Þið
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990
hafið fundið öldur ástúðarinnar og
samúðarinnar leita um sálir ykkar
og veit að þær hafa yljað ykkur og
styrkt.
Sjálf þakka ég vinkonu minni,
frú Ásthildi Thorsteinsson, fyrir það
sem hún var mér'og bið ég henni
Guðs blessunar. /
Guðlaug Skagfjörð
Hún Ágústa varð nýlega 18 ára.
Hún varð móðir fyrir fáeinum mán-
uðum síðan. Ég þekkti hana frá
þeim degi, sem hún fæddist og
fylgdist með henni til þess dags sem
hún lét lífið í bifreiðaslysi þann 5.
desember sl. ásamt móður sinni.
Ágústa var björt á allan hátt,
einlæg og afar góð stúlka. Hún var
sunnudagaskólabarnið mitt, sem
tók yngri systkini sín með sér á
sunnudagsmorgnun til þess að
hlusta á guðsorð og syngja honum
lof.
Oft hringdi hún til mín á laugar-
dagskvöldum og bað mig að vekja
sig með símanum morguninn eftir.
Meining hennar var að klæða
krakkana, Magnús Loga og Svölu
Birnu, og halda í sunnudagaskól-
ann. Ef mögulegt án þess að vekja
mömmu. Þannig var Ágústa. Hún
unni móður sinni og systkinum. Ég
hygg hún hafi átt sínar elskustund-
ir sér í lagi eftir fæðingu dóttur
hennar.
Mér er afar þungt um mál þegar
ég nú minnist þeirra mæðgna. Ég
get einungis þakkað þann tíma sem
Ágústa gaf mér og bið henni bless-
unar Guðs.
Guðlaug Skagfjörð
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild Skagfirðinga
Hátt í 30 pör mættu til leiks hjá
Skagfirðingum sl. þriðjudag á konfekt-
kvöld hjá deildinni. Efstu skorir hlutu:
N/S:
Sigtryggur Sigurðss. - Sverrir Kristinss. 372
Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 367
Aðalbjörn Benediktss. - Jón V. Jónmundss.362
Ármann J. Láruss. — Ólafur Láruss. 352
A/V:
Baldvin Valdimarss. - HjálmtýrBaldurss. 386
Rúnar Lárusson — Magnús Sverrisson 359
Ari Konráðsson - Gyifi Þ. Gíslason 350
Jón Steinar Ingólfsson — Ragnar Jónsson 341
Næsta þriðjudag lýkur svo sþila-
mennsku þetta árið, með eins kvölds
jólasveinatvímenningskeppni. Að sjálf-
sögðu taka efstu pörin heim með sér
jólakonfekt, af stærri tegundinni.
Vegna sérstöðu þessa kvölds býður
deildin öllu spilaáhugafólki til leiks, ám
endurgjalds. Spilað er í Drangey við
Síðumúla 35 og hefst spilamennskan
kl. 19.30.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
t
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og jarðarför eiginmanns míns og föður okkar,
ÓSKARS JÚLÍUSSONAR,
Suðurgötu 17,
Sandgerði.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Jóhánn Grétar Óskarsson,
Magnea Ósk Óskarsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför sonar míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
GESTS GEIRSSOIMAR,
Smyrilshólum 4.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landakotsspítala og kiwanisklúþbs-
ins Elliða. Guð gefi ykkur gleðileg jól.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Lokað
vegna jarðarfarar EINARS J. SKÚLASONAR frá
kl. 13.00-16.00 í dag þriðjudag.
Einar J. Skúlason hf.,
Grensásvegi 10.
RAÐAUGIÝSINGAR
ÝMISLEGT
BORG
LISTMUNIR-SYNINGAR-UPPBOÐ
Málverk
Höfum hengt upp olíumyndir eftir Kristján
Davíðsson, nýjar vatnslitamyndir eftir Karó-
línu Lárusdóttur og nýleg verk eftir Louisu
MattUíasdóttur. Einnig^olíumyndir eftir Erro.
Þá eru til sölu úrval mynda gömlu meistar-
anna, t.d. Jóhannes S. Kjarval, Jón Stefáns-
son, Gunnlaug Blöndal, Kristínu Jónsdóttur,
Ásgrím Jónsson, Þorvald Skúlason og Gunn-
laug Scheving.
Vekjum athygli á að á Þorláksmessu verður
opið hjá okkur frá kl. 14.00-22.00.
Pósthússtræti 9
Austurstræti
sími 24211.
NA UÐUNGARUPPBOÐ
Nauðungaruppboð
annað og síðara fer fram á fasteignum þrotabús Melrakka hf., Gránu-
móum, Sauðárkróki, fóðureldhúsi og skinnaverkun og fóðurstöð
ásamt frystigeymslu með vélum og tækjum á skrifstofu uppboðshald-
ara, Víðigrund 5, fimmtudaginn 20. desember 1990 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Gisli Baldur Garðarson hrl., Búnaðarbanki
íslands, Brunabótafélag íslands, Steingrímur Þormóðsson hdl. og
Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Bæjarfógetinn á Sauðárkróki.
BOEG
Wélagslíf
□ EDDA 599018127 - Jf.
I.O.O.F. Ob. 1P= 17218128Ú2S
Jv.
AD-KFUK
Fundur i kvöld kl. 20.30 á Háaleit-
isbraut 58. Jólaminningar. Fund-
ur I umsjá Lilju Sigurðardóttur,
Gísla Friðgeirssonar og fjöl-
skyldu. Allar konur velkomnar.
Ath. breyttan fundarstað.
□ HAMAR 599012187 - Jólaf.
I.O.O.F. Rb. 4 = 14012188 -
8 AJv.
Fyrirlestur
Æsir stendur fyrir fyrirlestri í
kvöld kl. 20.30 í Brautarholti 8.
Dagskrá: Leifur Leópoldsson,
sem er skyggn vökumiðill, talar
um reynslu sína af yfirnáttúru-
legri skynjun. Leifur „sér“ áru
fólks og getur skyggnst inn í
fyrri lif og „séð“ hvernig tiltekin
reynsla úr fyrri lífum eflir eða
takmarkar okkur [ þessu lífi.
Hann þendir einnig á leið til þess
að hreinsa Karma úr fyrri lífum.
Hann mun „miðla" þessum upp-
lýsingum um ofangreind atriði
til þeirra sem vilja. Einnig verður
kynning á lófalestri, rithandar-
greiningu og túlkun stjörnu-
korta. Boðið verður upp á veit-
ingar. Aðgangseyrir 900 kr.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Atvinnumálafulltrúi
Starfshópur á vegum landbúnaðarráðuneyt-
isins, Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og
Stéttarsambands bænda óskar að ráða
starfsmann, karl eða konu, sem hefur það
verkefni að vinna að eflingu heimilisiðnaðar
og skyldra verkefna í sveitum með sérstakri
áherslu á atvinnu fyrir konur. Viðkomandi
þarf að geta hafið störf sem fyrst. Ráðning-
artími er 1-2 ár. Til greina kemur ráðning í
hálft starf. Starfinu fylgja mikil ferðalög.
Umsóknir skulu stílaðar á:
Stéttarsamband bænda,
pósthólf 7040, 127 Reykjavík.
fyrir 31. desember nk.
Blaðberar
- Siglufjörður
Blaðbera vantar frá áramótum í Hverfisgötu
og Háveg.
Upplýsingar í síma 96-71489.
JlltfgiiaifybiMfr
Eðalfiskur hf. - Borgarnesi
Framleiðslustjóri -
matvælafræðingur
Vegna vaxandi útflutningsverkefna og vöru-
þróunar óskar Eðalfiskur hf. eftir að ráða
framieiðslustjóra/matvælafræðing til fram-
tíðarstarfa.
Umsóknir sendist til markaðsdeildar
Eðalfisks hf., Húsi verslunarinnar, Kringlunni
7, 108 Reykjavík, eigi síðar en á hádegi
24. desember nk.
Með allar umsóknir verður farið sem
trúnaðarmál.