Morgunblaðið - 18.12.1990, Page 72
.MORQy^BtAfflÐyWiaJtiPAfítjP J.8,;Qj:SEjV[gEI?.,1990
-.'72
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) W*
Þú færð margar frumlegar hug-
myndir í dag og átt auðvelt með
að koma þeim á framfæri við
annað fólk. Þú ert með mörg járn
í eldinum og sum þeirra eru gló-
andi núna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hugmynd, sem er þess virði að
henni sé fylgt eftir í verki, lýstur
niður í huga þér. Hittu umboðs-
menn þína og ráðgjafa í dag.
Taktu þátt í menningarviðburði
og leggðu drög að ferðalagi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú tekur þátt í mikilvægum við-
ræðum um fjárfestingar og fjár-
mál. Verkefni sem þú hefur unn-
ið að um tíma er að nálgast loka-
stig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) >“$8
Skilningur eykst í ástarsambandi
þínu núna. Ljáðu rómantískum
tilfinningum aukið svigrúm. 1
kvöld á samvera að ganga fyrir
öðru.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) <ef
Þú hefur glöggt auga fyrir því
núna hvað orðið getur þér til
framdráttar í vinnunni. Það verð-
ur samsæti á vinnustað þínum
eða samverkamaður þinn býður
til samkvæmis. Vertu heima hjá
þér í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú tekur upp nýja frístundaiðju
núna. Þér finnst þú tengjast barn-
inu þinu sterkum böndum í dag.
Þú öðlast hamingju af því að fást
við skapandi verkefni og áhuga-
mál í kvöld.
V°8 ^
(23. sept. - 22. október) Qflb
! dag er lag til að taka mikilvæg-
ar ákvarðanir sem varða heimilið.
Þú ættir að huga að jólainnkaup-
unum í dag.- Ættingi þinn er
mjög umhyggjusamur.
Sþorödreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^jjj^
Þú færð innblástur núna og ef
þú ert skapandi einstaklingur
verður þetta dagur árangurs og
framfara. Þú átt auðvelt með að
koma fólki í skilning um hvað
þú ætlast fyrir.
Bogmadur
(22. nóv. - 21. desember) JÍfO
Nú veistu loksins hvað þú ætlar
að gefa ástvinum þínum í jóla-
gjöf. Þú færð ekki heppilegri dag
til jólainnkaupa og til að taka
mikilvægar fjármálalegar
ákvarðanir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hlustaðu á hvað innsæi þitt býð-
ur þér að gera núna og þá verður
þú á réttum stað á réttum tíma.
Hugsun þín er frábærlega skýr
núna og framkoma þín óaðfinn-
anleg.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh.
Þó að dagarnir fyrir hátíðar séu
oft erfiðir, finnurðu lausa stund
til að eiga í einrúmi. Þetta er
góður dagur til að undirbúa jarð-
veginn fyrir viðskiptasamband
eða afþreyingu.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) . *Z£i
Það er erfitt að festa hendur á
þér núna, en þú hittir vini þína
oft um þessar mundir. Þú heim-
sækir einhvem án þess að gera
boð á undan þér. Það er fögnuður
í loftinu.
AFMÆLISBARNIÐ er félags-
vera, vinsamlegt, en seintekið.
Það er svolítið óeirið og verður
að gæta þess að dreifa kröftum
sínum ekki um of. Það hefur
stjórnunarhæfileika og er fjöl-
hæft með afbrigðum. Það hefur
áhuga á andlegum málefnum og
gæti laðast að heimspeki, fræðum
eða trú.
Stj'órnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
UÓSKA
FERDINAND
SMAFOLK
' I THINK
SOMEBOPV
JUST 60T BACK
FROMTHEVET
WHERE HE HAP
H15 TEETH
CLEANEP.. J
Ég held að einhver hafí
verið að koma frá dýra-
lækninum, þar sem hann
hafí fengið tennurnar
hreinsaðar.. .
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Taktu þér stöðu í austur í
vöm gegn 4 hjörtum suðurs:
Norður gefur; enginn á hættu.
Vestur
♦
♦
♦
Norður
♦ ÁKG92
¥ G1082
♦ KD
♦ 84
Austur
♦ 107
¥K5
♦ Á8752
+ DG106
Suður
♦
¥
♦
4
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu Pass Pass
Pass
Útspilið er tígulfjarki, 3. eða
5. hæsta, þú drepur á ás og
sagnhafi lætur níuna. Hvað svo?
Það er hætt við að puttarnir
rati nokkuð ósjálfrátt á lauf-
drottninguna:
Vestur
♦ D85
¥6
♦ 10643
♦ Á9732
Norður
♦ ÁKG92
¥ G1082
♦ KD
♦ 84
Austur
♦ 107
¥ K5
♦ Á8752
♦ DG106
Suður
♦ 643
¥ ÁD9742
♦ G9
♦ K5
Vörnin fær sína tvo laufslagi,
en síðan svínar sagnhafi fyrir
spaðadrottningu og hjartakóng
og vinnur sitt spil.
Spilið er hálfrar aldrar gam-
alt meistarastykki í vöm. Austur
spilaði spaðatíu í öðmm slag!
Sagnhafi þóttist viss um að tían
væri einspil og þorði ekki að
svína í trompinu. Tók ásinn og
spilaði síðan spaða á níuna og
enn spaða. En nú trompaði aust-
ur með kóng og spilaði lauf-
drottningu.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á ólympíumótinu í Novi Sad
kom þessi staða upp í skák alþjóð-
legu meistaranna Wirthensohn
(2.430), Sv iss, sem hafði hvítt
og átti leik, og Lin Ta (2.435),
Kína. Hvítur var að opna löngu'
skálínuna að svarta kóngnum,
síðasti leikur var 17. d4 — d5!,
sem svartur var að svara með 17.
— c6xd5.
18. Rxg6+! og svartur gafst
upp. Eftir 18. — hxg6, 19. Dh6+
er hann mát í næsta leik og 18.
— Kg8 er auðvitað vonlaust. Þetta
dugði Svisslendingum þó ekki til
að sigra Kínverja, því á fyrsta
borði tapaði Viktor Korchnoi
óvænt fyrir Ye Jinagchuang.