Morgunblaðið - 18.12.1990, Qupperneq 86
86
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990
-t
Verslun okkar í Hafnarstrœti 19 verður lokað tímabundið
um óramótin v/breytinga óg endurbóta.
Opnum aftur fyrir 15. maí nk.
í tilefni þess bjóðum við ýmsar gjafavörur ó sérstöku
jólatilboði í versluninni.
ULLARVÖRUR; peysur, jakkar, treflar, húfur, vœrðarvoðir o.fl
SKINNAVÖRUR
KERAMIK - GLERVARA - POSTULIN
OG ÖNNUR GJAFAVARA.
Gerið góð kaup fyrir jólin.
RAMMAGERÐIN
Hafnarstrœti 19
Bók
sem lætur
engan
ósnortinn
Lifðu er frásögn fjögurra barna
móöur, sem veiktist af krabba-
meini og hvernig hún öðlaðist
styrk til að takast á
viö sjúkdóminn.
Mari Lornér hefur tvisvar
heimsótt ísland og talað
á fundum um sorg og
sorgarviðbrögð, haldið
erindi fyrir hjúkrunarfólk
og talað í kirkjum.
Pöntunarsími (91) 25155
UR DAGBOK
LÖGREGLUNIMAR í REYKJAVÍK:
14. -17. desember 1990
Umferðin þyngist er nær dregur
jólum, sérstaklega á aðalleiðum, í
nágrenni stórmarkaða og í mið-
bænum. Merki þess sáust um helg-
iná. Fólk gerði sér þó grein fyrir
þessari staðreynd og tók almennt
lífinu með ró og sýndi hvert öðru
oft og tíðum aðdáunarverða
tillitssemi.
„Einungis“ þrír ökumenn eru
grunaðir um að hafa ekið undir
áhrifum áfengis um helgina. Tveir
þeirra lentu í umferðaróhöppum.
Tæplega 1.100 ölvaðir ökumenn
hafa verið kærðir það sem af er
árinu. U.þ.b. 130 þeirra hafa lent
í umferðaróhöppum eða slysum.
Aðfaranótt laugard'ags var ann-
asamt hjá lögreglumönnum sem
voru á vakt í miðborginni. Veður
var gott og gífurlegur fólksfjöldi
safnaðist þar saman. Mikil ölvuna-
rólæti voru sleitulaust til kl. 5.00,
en skýringin á því er að öllum lík-
indum sú að prófum var að ljúka
í mörgum skólum borgarinnar.
Skrílslæti ýmiss konar voru áber-
andi, en þáttur hinna „fullorðnu"
var þó ekki minni en unglinganna.
Hinir fyrrnefndu voru sýnilega
mun verri viðureignar sökum ölv-
unar og slæmrar framkomu. At-
hafnir unglinganna einkenndust
öðru fremur af skemmdarverkum
og slagsmálum. Þurfti lögreglan
ítrekað að hafa afskipti af handa-
lögmálum og liðsinna aðilum, sem
orðið höfðu fyrir líkamsmeiðingum
vegna beinna árása. Seint um nótt-
ina hafði lögreglan auk þess af-
skipti af ijórum einstaklingum sem
höfðu um 30 grömm af hassi í
fórum sínum.
Þtjú umferðarslys urðu um helg-
ina. Aðfaranótt laugardags var
ekið á gangandi vegfaranda á
Austurbergi, en bifreiðinni var síð-
an ekið á brott af vettvangi. Á
laugardag slösuðust ökumenn og
farþegi í árekstri tveggja bifreiða
á gatnamótum Þorragötu og Suð-
urgötu. Um kvöldið var síðan einn
fluttur á slysadeild eftir árekstur
tveggja bifreiða á gatnamótum
Stekkjarbakka og Reykjanesbraut-
ar.
Tilkynnt var um 8 búðarhnupl,
flest í Kringlunni, en þar er sér-
stakt eftirlit með hugsanlegu
hnupli í tilefni desember. 15 ára
drengur reyndi t.d. að hnupla
skammti af frönskum kartöflum í
Hagkaupum fyrir 85 kr. og 14 ára
stúlka reyndi að hnupla varasalva
á sama stað.
Eldur kom upp í togaranum
Viðey RE 6 í Reykjavíkurhöfn á
sunnudag. Eldurinn hafði kviknað
í herbergi fyrir ljósavél. Reykkaf-
ari frá slökkviliðinu brenndist á
kinnum við slökkvistarfið.
Maður var handtekinn aðfara-
nótt sunnudags eftir að hann hafði
brotið glugga í verslun við Hverfis-
götu og stolið þaðan
sjónvarpstæki.
Á laugardagsmorgun sást til
manns á hlaupum í Hraunbæ vaf-
inn inn í bláa gólfmottu. Sá hafði
villst af leið um nóttina, afklætt
sig ofarlega í einum stigagangn-
um, sofnað þar, vaknað, ráfað nið-
ur, séð að hann var á ókunnum
slóðum, gripið tilfallandi dregil er
hann varð var við mannaferðir og
sennilega leitað í áttina heim.
Hann getur leitað fatnaðar síns
hjá lögreglunni.
Yfirlýsing vegna
skrifa um skuldir
Stykkishólms
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing:
Vegna yfirlýsingar frá bæjarráði
Stykkishólmsbæjar, sem birt er ,í
Morgunblaðinu 14. desember, varð-
andi „meinlega villu, sem birtist í
Árbók sveitarfélaga" í ár, óskar
skrifstofa Sambands íslenskra
sveitarfélaga að fram komi að tölur
þær sem birtar eru í bókinni um
skuldir Stykkishólmsbæjar bárust
skrifstofu sambandsins frá bæjar-
skrifstofunni í Stykkishólmi á stöð-
luðu eyðublaði með sama hætti og
hliðstæðar upplýsingar frá öðrum
sveitarfélögum og úr þeim unnið á
sama hátt.
Nú hefur komið í ljós að þær
upplýsingar sem bárust frá Stykkis-
hólmi um heildarskuldir bæjarins
voru rangar. Með skuldum bæjar-
sjóðs voru einnig taldar skuldir
hafnarsjóðs og skuldir vegna bygg-
ingar íbúða fyrir aldraða.
Ekkert annað sveitafélag hefur
gert athugasemdir við þær marg-
háttuðu upplýsingar um fjárhag
sveitarfélaga sem í Árbókinni birt-
ast, enda eru þær beint frá þeim
komnar.
í reikningsfærslum sveitarfélaga
gætir þó nokkurs misræmis. Það
misræmi fer þó stöðugt minnkandi
og með útgáfu nýs bókhaldslykils
standa vonir til að það verði úr
sögunni.
Árbók sveitarfélaganna er glögg
og greinargóð heimild um rekstur
og fjárhagsstöðu sveitarfélaganna
á hveijum tíma,
Forstöðumaður Hagdeiklar
Lúðvík Hjalti Jonsson.
Söðulsholtsprestakall:
Fjölmenn að-
ventusamkoma
Borp í Miklahollshreppi.
AÐVENTUSAMKOMA fyrir Söðulsholtsprestakall var haldin í
Laugargerðisskóla sunnudaginn 9. desember. A annað hundrað
manns víðsvegar úr prestakallinu mættu til þessa ágæta mannfagnað-
Sóknarpresturinn, séra Hreinn
Hákonarson, setti samkomuna og
kynnti dagskráratriði. Ræðumaður
kvöldsins var séra Árni Pálsson,
prestur á Borg á Mýrum. Þau hjón,
séra Árni og frú Rósa Björk Þor-
bjarnardóttir, eru kærkomnir vinir
okkar hér síðan þau dvöldu hér um
nokkurra ára bil. Séra Árni vígðist
hingað í Söðulsholtsprestakall á sín-
um tíma.
Þá söng sönghópurinn Án skil-
yrða. Fyrirliði hans er Þorvaldur
Halldórsson. Var góður rómur gerð-
ur að söng þeirra. Þá fluttu nem-
endur úr Laugargerðisskóla ýmsa
þætti, bæði látbragðsleiki og upp-
lestur. Var það allt vel af hendi
leyst. Þakkaði sóknaipresturinn
fólkinu fyrir góða þátttöku á að-
ventukvöldinu.
Kvenfélagskonur úr Miklaholts-
hreppi gáfu veitingar á eftir sem
voru framreiddar af mikilli rausn
og myndarskap.
Páll
Ásgeir Jakobsson.
Nafn höfund-
ar féll niður
Nafn féll niður í frásögn Morgun-
blaðsins sl. laugardag um bókina
“Bíldudalskóngurinn" - athafna-
saga Péturs J. Thorsteinssonar.
Höfundur bókarinnar er Ásgeir
Jakobsson.
I
4
4
G