Morgunblaðið - 18.12.1990, Page 88
Alltaf þyrstir
okkur í jólin
Sgilt
... að sjálfsögðu!
I/*^QLU CIÖO
H€RRflRfKI
SNORRABRAUT 56
C13505 + C14303
ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Fijáls innflutningiir á
bensíni frá áramótum
Verðlagsráð fjallar um afnám sameiginlegrar verðjöfnunar olíufélaganna
Ríkið fær
23 milljónir
frá óperunni
ENN er ekki ljóst hvernig fjár-
hagsvandi íslensku óperunnar
verður leystur, en um 10 millj-
ónir vantar til að endar nái sam-
an í rekstrinum. Stefnt er að
frumsýningu á óperunni Rigo-
letto í Gamla Bíói á annan dag
jóla.
Guðmundur Eiríksson, formað-
ur stjórnar óperunnar, segir í sam-
tali við blaðið, að Jágmarksþörf
opinberra styrkja til íslensku óper-
unnar væri 35 millj. kr. og væri
þá gert ráð fyrir að framlag frá
einkaaðilum og tekjur af rekstri
næmu 45 milljónum. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins má
reikna með að um 23 milljónir
króna renni til hins opinbera af
starfsemi óperunnar í formi
skatta, þannig að nettóstyrkur
miðað við 35 milljóna króna króna
framlag, er um 12 milljónir.
Sjá ennfremur í miðopnu.
JÓN Sigurðsson viðskiptaráð-
herra ákvað í gær að gefa inn-
flutning á bílabensíni frjálsan frá
1. janúar næstkomandi. Verð-
lagsráð fjallar um það á morgun,
hvort afnema eigi sameiginlega
verðjöfnun olíufélaganna. Verði
það gert, getur það leitt til verð-
samkeppni milli oliufélaganna.
„Við hér hjá Skeljungi erum
ósköp ánægðir með að vera bún-
ir að fá frelsið," sagði Kristinn
Björnsson forstjóri Skeljungs hf.
í gær. „Ég lít á þetta sem fyrsta
áfangann á langri leið til þess
að þetta verði nú allt frjálst."
Jón Sigurðsson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að hann
gerði ráð fyrir að verðlagsráð fjalli
um bensínverðákvarðanir í fram-
haldi af þessum tíðindum, væntan-
lega á morgun. „Þá geri ég ráð
fyrir því að menn ræði þar þá hug-
mynd að bensínverðlagningin verði
fijáls, þó þannig að hvert olíufélag
ákveði sama verð fyrir allt land.“
Hörður Helgason framkvæmda-
stjóri hjá Olís hf. sagði þetta aðeins
hluta af dæminu. „Hinn hlutinn er
verðlagningin sem er í sama horfi
og hún hefur alltaf verið. Hins veg-
ar er þetta skref í rétta átt.“
Vilhjálmur Jónsson forstjóri Olíu-
Nýtt trygg-
ingagjald
skilar 500
milljónum
ÓLAFUR Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra hefur lagt fram
frumvarp um nýtt trygginga-
gjald sem koma á í stað fimm
mismunandi gjalda sem lögð hafa
verið á fyrirtæki. Á þetta gjald
að skila 500 milljónum króna við-
bótartekjum í ríkissjóð 1991.
Jafnframt hefur verið fallið frá
því að leggja á hafnarmálagjald sem
boðað hafði verið í fjárlagafrum-
varpinu og sérstakt álag á iðgjalds-
stofn tryggingargjaldsins.
Sjá fréttir bls 45 og 53
Bjargað úr
sjónum
SKÖMMU fyrir miðnætti í gær-
kvöld ók fólksbifreið fram af
bryggju í Njarðvík, Tveir voru í
bilnum og að sögn lögreglunnar
í Keflavík sluppu þeir ómeiddir.
félagsins hf. sagði ákvörðun við-
skiptaráðherra vera eðlilegt og
sjálfsagt framhald af því sem gerst
hefur. Hann kvaðst ekki búast við
áframhaldandi samstarfi olíufélag-
anna um bensínkaup. „Ég á von á
að þau verði hvert fyrir sig með
það.“
Vilhjálmur sagði afnám sameig-
inlegrar verðjöfnunar geta leitt til
verðsamkeppni milli félaganna. „Ef
eitt félagið lækkar verðið þá er það
nákvæmlega sama og hefur gerst
hér í kringum okkur, þá fara hin
olíufélögin í sama farið, eða kannski
niður fyrir, og það leitar svo jafn-
vægis. En, að það sé mismunandi
verð hjá félögunum á markaðnum,
það getur aldrei orðið nema bara
augnablik," sagði hann.
Sjá ennfremur á miðopnu.
Sérstakur saksóknari áfrýjar málum fjögurra Hafskipsmanna:
Málinu lokið fyrir 13
af 17 sakborningimi
PÁLL Arnór Pálsson, sérstakur ríkissaksóknari í málum sem kennd
' eru við Hafskip og Útvegsbankann, hefur áfrýjað dómi Sakadóms
Reykjavíkur gagnvart Björgólfi Guðmundssyni, fyrrum forstjóra
Hafskips, Ragnari Kjartanssyni, fyrrum stjórnarformanni Haf-
skips, Páli Braga Kristjónssyni, fyrrum framkvæmdastjóra fjár-
mála- og rekstrarsviðs Hafskips, og Helga Magnússyni,- fyrrum
löggiltum endurskoðanda Hafskips. Jafnframt hefur hann ákveðið
að sýknudómi yfir hinum sakborningunum 13 verði ekki áfrýjað
og er málinu því lokið hvað þá varðar.
Ragnar Kjartansson er sá eini
þeirra fjögurra sem áfrýjað er
gegn, sem sakadómur hafði sýkn-
að, hinir þrír höfðu verið sakfelld-
ir vegna fáeinna af þeim tugum
ákæruatriða sem beint var gegn
hveijum þeirra. Björgólfur hafði
verið talinn sekur um tvö ákæru-
atriði og dæmdur til fimm mánaða
fangelsis skilorðsbundið, ,Páll
Bragi var talinn sekur um þrjú
ákæruatriði og dæmdur í tveggja
mánaða fangelsi skilorðsbundið og
Helgi var talinn hafa gerst brot-
legur við eitt atriði ákærunnar og
dæmdur til greiðslu 100 þúsund
króna sektar sem hann taldist
þegar hafa staðið skil á með af-
plánun 20 daga gæsluvarðhalds
meðan málið var til rannsóknar.
Áfrýjað verður fyrstu 6 köflum
ákærunnar, en þeir lúta að reikn-
ingsskilum og áætlanagerð Haf-
skips og meintum fjárdrætti og
skjalafalsi hinna þriggja forsvars-
manna þess. Auk þeirra kafla er
snerta Utvegsbanka er fallið frá
kafla sem laut að meintum skila-
svikum í viðskiptum Hafskips við
Reykvíska endurtryggingu og einu
atriði þar sem tveimur starfs-
mönnum Hafskips var gefin að sök
rangfærsla skjala.
í samtali við Morgunblaðið
kvaðst Páll Arnór Pálsson mundu
gera grein fyrir því við málfiutning
í Hæstarétti á hveiju þessi ákvörð-
un byggðist. Ákvarðanir ríkissak-
sóknara um'framhald máls byggð-
ust að jafnaði ýmist á því að
ákæruvaldið væri ekki sátt við
forsendur dóms eða að ekki væri
búist við að Hæstiréttur kæmist
að annarri niðurstöðu en þeirri
sem fyrir lægi. Sérstakur saksókn-
ari kvaðst búast við að Hæstirétt-
ur fengi málið til meðferðar í
fyrsta lagi næsta haust.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins gera veijendur hinna
ákærðu ráð fyrir að leggja fram
frávísunarkröfu fyrir Hæstarétti
sem byggist á því að sérstakur
ríkissaksóknari hafi dregið lengur
en lög leyfa að taka ákvörðun um
áfrýjun.
Ríkið leggiir til-
lögur fyrir lækna
SAMNINGANEFND ríkisins lagði í gær fram tillögur til lausnar
kjaradeilu ungra lækna. Guðríður Þorsteinsdóttir, seni sæti á í
samninganefnd ríkisins, sagði í gær, að læknar hefðu viljað skoða
þessar tillögur nánar, en stefnt væri að nýjum fundi á miðviku-
dag. Hún vildi ekki greina frá efnisatriðum tillagnanna, en sagði
að stefna yrði að því að leysa deiluna fyrir jól.
Það er mat fjögurra yfirlækna fræðinga þeirra deilda spítalans,
á Borgarspítalanum að hættu- Sem mest sinna slysa- og bráða-
ástand geti skapast á spítalanum þjónustu. Davíð A. Gunnarsson,
ef ekki verði hlutast til um lausn forstjóri Ríkisspítalanna, sagði að
þessa máls hið fyrsta. I yfirlýsingu stjórnarnefnd Ríkisspítala hefði
læknanna segir að takmörkun samþykkt á fundiáskorun til
aðstoðarlækna á yfii’vinnu hafi samningsaðila um að gengið yrði
haft í för með sér verulega aukið til samninga hið allra fyrsta.
vinnuálag fyrir yfirlækna og sér-